Morgunblaðið - 16.09.2000, Síða 64

Morgunblaðið - 16.09.2000, Síða 64
84 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Thorvaldsens- félagið styrkir THORVALDSEN SFÉLAGIÐ ákvað á aðalfundi si'num í vor að styrkja Starfsmenntunarsjóð ungra kvenna um hálfa milljón króna í tilefni af 125 ára afmæli félagsins 19. nóvem- ber næstkomandi. Starfsmenntun- arsjóður ungra kvenna var stofnað- ur af Bandalagi kvenna í Reykja- vík, en Thorvaldsensfélagið er eitt af stofnfélögum Bandalagsins. Starfsmenntunarsjóður ungra kvenna auglýsti styrki úr sjóðnum í vor og á haustfundi Bandalags kvenna í Reykjavík, þann 14. októ- ber, verður úthlutað úr sjóðnum. Að þessu sinni er forgangshópur styrkþega einstæðar mæður. Starfsmenntunarsjóðurinn þakkar Thorvaldsensfélaginu rausnarlegt framlag til sjóðsins, segir fréttatil- kynningunni. Hildur G. Eyþórsdóttir, for- maður Starfsmenntunarsjóðs ungra kvenna, tekur á móti íjárframlagi Thorvaldsensfé- lagsins úr hendi Guðlaugar Jónínu Aðalsteinsdóttur, for- manni Thorvaldsensfélagsins. mbl.is kynnir nýjung. Nú getur þú sent fréttir mbl.is í tölvupósti til vina og vandamanna og látið skilaboð fylgja með. Það eina sem þú þarft að gera er að velja þennan möguleika sem fylgir nú öllum fréttum á mbl.is. Láttu frétta af þér! Kynning á sjálfboðastarfí Rauða krossins MÁNUDAGINN 18. september verður kynning í Sjálfboðamiðstöð Rauða krossins, Hverfisgötu 105, á verkefnum sem sjálfboðaliðar Rauða krossins inna af hendi. Megintilgang- ur kynningarinnar er að afla sjálf- boðaliða á öllum aldri í 4-10 tíma á mánuði til þeirra fjölbreyttu verkefna sem unnin eru í þágu mannúðai’, enda er sjálfboðastarf undirstaða Rauða krosshreyfingarinnar hér á landi sem um heim allan. Dæmi um verkefni í höndum sjálf- boðaliða eru: heimsóknii’ til fanga og til lasburða fólks, sölubúðir, skyndi- hjálp, fataflokkun, handverk, síma- þjónusta, unglingastarf, átaksverk- efni o. fl. Allir þeir sem vilja vita meira um framlag sjálfboðaliða tO samfé- lagsins eru velkomnir á kynningar- fundinn, segir í fréttatilkynningunni. ------t-H-------- Uppeldis- námskeið fyrir foreldra NÚ er að fara af stað haustnámskeið fyrir foreldra um bætt samskipti við böm sín. Námskeiðið sem heitir „Samskipti foreldra og bama“ hefur verið haldið síðan 1987 og er þetta því 14 árið sem það er haldið. Námskeiðið er fyrir foreldra bama á öllum aldri. Lögð er áhersla á hvemig foreldr- ar geti stutt böm sín til að verða sjálf- stæð og ábyrg, kennt börnum sjálf- saga og tillitssemi í daglegum samskiptum, kennt bömum að leysa úr ágreiningi á lýðræðislegan hátt, auk margra annarra þátta sem reynir á í daglegum samskiptum innan fjöl- skyldunnar í dag. Leiðbeinendm' eru sálfræðinganir Hugo Þórisson og Wilhelm Norðfjörð. Hægt er að nálg- ast nánari upplýsingar og skrá sig á www.samskipti.org, segir í fréttatil- kynningu. ----------------- Tímaritið Ljós komið át TÍMARITIÐ Ljós er nýkomið út. Blaðinu er ætlað að höfða til tækni- manna jafnt sem áhugafólks um lýsingu. I blaðinu er að finna fjöl- margar greinar og má m.a. lesa um nýja aðferð til að meta glýju af völd- um dagsbirtu, um nýja ljósastýr- ingu sem tekur tillit til dagsbirtu, um íslenska lampaframleiðslu, um neyðarlýsingu o.m.fl. Blaðið kom síðast út haustið 1997 en stefnt er að því að það komi út tvisvar á ári. Hönnunarhúsið í Hafnarfirði gef- ur blaðið út í samvinnu við Ljós- tæknifélag íslands og er ritstjóri blaðsins Guðni Gíslason. Blaðið er 40 síður og gefið út í 1.500 eintökum og dreift til fagaðila, framhalds- skóla, bókasafna og víðar. Einnig verður hægt að nálgast blaðið á pdf sniði á heimasíðu Ljóstæknifélags- ins, www.centrum.is/lfi. ---------------- Sjálfsbjörg Stofnfundur í fjórum bæjarfélögum STOFNFUNDUR Sjálfsbjargar í bæjarfélögunum Hafnai'firði, Bessa- staðahreppi, Garðabæ og Kópavogi, verður haldinn í Kiwanishúsinu að Helluhrauni 22 í Hafnarfirði, sunnu- daginn 1. október frá kl. 14 til 17, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. ------H#-*------ Sýna hártísku SUNNUDAGINN 17. september kl. 17 í Karlakórshúsinu Ými, Skógarhlíð 20, sýnir Gregory Karlen frá Sebasti- an Artistic Team nýjustu hártískuna frá Sebastian. Gregory er einn af að- alkennurum hjá Sebastian Artistic Team, segir í fréttatilkynningu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.