Morgunblaðið - 16.09.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.09.2000, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Könnun Samtaka iðnaðarins 45% félags- manna hlynnt aðild aðESB TÆPUR helmingur félagsmanna Samtaka iðnaðarins vill aðild að Evrópusambandinu ef marka má nið- urstöður nýrrar könnunar sem Gall- up gerði í'yrir samtökin. Samkvæmt könnuninni vilja 45% félagsmanna, sem tók afstöðu, aðild að ESB, 62% telja að innganga í ESB yrði góð fyrir efnahag landsins, 56% vilja aðild inn- an 5 ára og 54% telja að aðild að ESB skerði sjálfstæði íslands lítið. Að beiðni SI kannaði Gallup í ágúst viðhorf almennings til aðildar að ESB annai’s vegar og viðhorf for- ráðamanna íslenskra iðnfyrirtækja hins vegar, þ.e. félagsmanna SI. Kemui’ í ljós að viðhorf hópanna tveggja eru sambærileg, Þannig eru 44% almennings fylgjandi aðild að ESB samkvæmt könnuninni og 52% telja að innganga í ESB yrði góð fyrir efnahag Islendinga. Þegar fólk var spurt að því hvenær æskilegt væri að f slendingar gengju í ESB, ef það stæði þeim til boða, sögðu 12% að við ættum að gera það strax. Rúmlega 34% vilja að við ger- um það innan 5 ára en rösklega 30% vilja bíða lengur. Tæpur fjórðungur kvaðst hins vegar alls ekki vilja að ísland gengi í ESB. Til samanburðar má nefna að um Harðar deilur um fjármál á aðalfundi Verkalýðsfélags Akraness Fallið frá vantrauststillögu HART var deilt um fjármál Verka- lýðsfélags Akraness á framhalds- aðalfundi félagsins í fyrrakvöld. Var forysta félagsins m.a. sökuð um að hafa ekki gætt þess að ávaxta fjármuni félagsins á undanförnum árum. Lögð var fram vantrauststil- laga gegn Hervari Gunnarssyni, formanni félagsins, á fundinum, en tillagan var síðan dregin til baka. Samkvæmt upplýsingum blaðs- ins var gagnrýninni aðallega beint gegn Hervari Gunnarssyni, for- manni félagsins, sem sakaður var um að hafa ekki gætt þess að ávaxta fé verkalýðsfélagsins með eðlileg- um hætti. í ljós kom á fundinum að fengist hafði fyrirgreiðsla hjá við- skiptabanka félagsins sem leiðrétti stöðuna. Inn í þessar umræður blönduðust einnig málefni Verka- mannasambandsins og deilur um starfslok Björns Grétars Sveins- sonar, fyrrverandi formanns VMSI. 70-80 manns sátu fundinn en fé- lagsmenn eru um 1.500. Stóð fund- urinn yfir frá kl. 20 og fram yfir miðnætti. Hervar sagði í gær að deildar meiningar hefðu verið um ávöxtun fjármagns félagsins. „Eg held að menn hafi séð fram á að það væri að minnsta kosti ekki hægt að halda því fram að það væri ávöxtunar- laust, eins og hafði verið látið í veðri vaka. Það er reyndar alltaf spurn- ing um það hversu mikið fé félag sem er í svona rekstri getur bundið inni á bundnum reikningum," sagði hann. Samþykkt var ályktun á fundin- um þar sem því var beint til stjórn- ar félagsins að sjá til þess að fjár- magn félagsins verði ávaxtað á sem bestan hátt. Hervar sagðist líta svo á að menn hefðu skilið sáttir í fundarlok og ákveðið að snúa bökum saman. Það var Sigurður H. Einarsson, sem sæti á í trúnaðarráði félagsins, sem bar fram vantrauststillöguna á Hervar. „Ég lagði tillöguna fram vegna þess að félagið hefur vægast sagt verið mjög veikt, raunar alveg fársjúkt. Það hefur verið mikill slóðaskapur í öllum vinnubrögðum, sem sést m.a. af því að ávöxtun fjár félagsins er alveg fyrir neðan frostmark," segir Sigurður. „Endurskoðandi félagsins lagði fram reikninga, sem sýndu að við værum að tapa a.m.k. tveimur millj- ónum króna á ári. Nú er að vísu búið að lagfæra það. Yfirlitið náði aðeins fimm ár aftur í tímann en mér skilst að það hafi verið algjör óreiða og slóðaskapur í fjármálun- um enn lengra aftur í tímann. Það er þó aðeins toppurinn á ísjakanum. Það er mikill slóðaskapur í öllu sem viðkemur félaginu, kjaramálunum og að félagið virki sem upplýsinga- og þjónustumiðill. Fundarmenn á aðalfundinum voru sammála um að það væri ekki heppilegt að fara að slátra for- manninum á þessari stundu, vegna þess að félagið væri svo veikt fyrir, og það varð því niðurstaða fundar- ins að við skyldum frekar reyna að standa saman og byggja félagið upp,“ sagði Sigurður og kvaðst því hafa dregið vantrauststillöguna til baka. 14% félagsmanna SI vilja ganga strax í ESB, 41% vilja gera það innan 5 ára, 27% vilja bíða lengur en 18% vilja alls ekki að ísland gangi í ESB. Könnun Gallup fór fram símleiðis og tók könnunin um viðhorf almenn- ings til slembiúrtaks úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum 16 til 75 ára. Endanlegt úrtak spui’ðra var 1.161 en svör fengust frá 813 eða 70 af hundraði. ------»-H------ Tjón á bflum í árekstri HARÐUR árekstur varð á mótum Mýrarvegs og Þingvallastrætis á Ak- ureyri í gærkvöldi. Áreksturinn varð þar sem eru umferðarljós og er talið að annar bíllinn hafi farið yfir á rauðu ljósi. Engin meiðsl urðu á mönnum en bílarnir eru báðir taldir ónýtir. Að sögn lögreglu á Akureyri er oft á tíð- um ekið of hratt á þessum stað. Arni Mathiesen sjávarútvegsráðherra á ráðstefnu í Lúxemborg Forsendur hugsanlega að skapast fyrir skattalækkun v/m-m&mL „Blikktromman er meðalþeirra bóka 20. aldar sem lengst munu lifa." Úr umsögn sænsku akademíunnar um Giinter Grass þegar hún ákvað að veita honum Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 1999. ÁRNI Mathiesen sjávarútvegsráð- herra segir að hugsanlega séu að skapast forsendur fyrir því að lækka skatta á fyrirtæki á íslandi þar sem staða ríkissjóðs hafi senni- lega aldrei verið sterkari en nú. I ræðu sinni á ráðstefnunni Euro-Ice í Lúxemborg í gær gerði Árni að umtalsefni stöðu og framtíð íslensku krónunnar. Hann sagði að hlutfallslegur styrkur annarra gjaldmiðla en krónunnar hefði ekki síður mikil áhrif á sjávarútveg og aðrar útflutningsgreinar og jafnvel miklu meiri, eins og dæmin sönnuðu með gengisþróun evrunnar. Árni sagði að það kæmi jafnvel til álita að tengja krónuna við evruna tækju Bretar upp hina sameiginlegu mynt ESB. íslendingar gætu hins vegar ekki unað við fiskveiðistefnu ESB og engin teikn væru á lofti um að hún verði endurskoðuð á þann hátt að gæti breytt afstöðu íslendinga. Arni sagði að þróun ESB haldi áfram og íslendingar verði þar þátttakendur fyrir tilstilli EES- samningsins. Það eigi þó ekki við um mótun samræmdrar skatta- Árni Mathiesen sjávarútvegsráð- herra í ræðustól á ráðstefnunni Euro-Ice í Lúxemborg í gær. stefnu aðildarríkja ESB sem ráð- herrann sagði að virtist ætla að verða á dagskrá innan tíðar. Hann sagði að telja mætti víst að skattar í Evrópu hækkuðu yrði tekið upp samræmd skattastefna innan ESB. „Þá getur ísland verið í þeirri stöðu að hafa nær einstaka stöðu. Vera með aðgang að hinum sameig- inlega innri markaði í gegnum EES-samninginn en geta verið með sjálfstæða skattastefnu og notað hana til þess að laða að fyrirtæki og verkefni. Samtímis gætum við styrkt samkeppnisstöðu okkar grunnatvinnugreina eins og sjávar- útvegs og gert þeim kleift að skapa sér stökkpall til þess að auka starf- semi sína annars staðar í heimin- um.“ Árni sagði að hvort sem sam- ræmd skattastefna verði ofan á hjá ESB eða ekki þá gæfu lægri skattar Islendingum ákveðið sóknarfæri. Hann sagði að skattar á fyrirtæki væru næsthæstir á íslandi af Norð- urlöndunum. „Staða ríkissjóðs er mikilvæg í þessu sambandi en hún hefur sennilega aldrei verið sterk- ari. Við höfum verið að greiða niður skuldir á undanförnum árum og óhætt að segja að skuldastaða ríkis- sjóðs sé að komast á viðunandi stig. Okkur er því hugsanlega að gefast einstakt tækifæri til að nota af- ganginn á ríkissjóði, haldist hann næstu árin, til þess að lækka skatta." Úr leik hjúkrunarfræðinema gegn viðskiptafræðinemum. Morgunblaðið/Knstmn Fyrsti Stúdentadagurinn MIKIL þátttaka var í Stúdenta- deginum sem Stúdentaráð stóð fyrir í fyrsta sinn í gær í sam- vinnu við nemendafélögin og há- skólayfirvöld. Eiríkur Jónsson, formaður Stúdentaráðs, segir að ákveðið hafi verið að Stúdenta- dagurinn marki upphaf að félags- lífi vetrarins á hverju hausti en tilgangurinn er sá að efla sam- kennd stúdenta og skapa sameig- inlegan viðburð þeirra allra. Gef- ið var frí frá kennslu eftir kl. 11 og slegið var upp grillveislu í stóru tjaldi fyrir framan aðal- bygginguna. Þar var einnig skemmtidagskrá og knattspyrnu- mót. Þar fór FC Orator, knatt- spyrnulið laganema, með sigur af hólmi eftir úrslitaleik við nem- endur í hagfræði. Heimsókn Wu Yi hófst í gær Sótti heim jarðhita- svæðin í Svartsengi OPINBER heimsókn Wu Yi, meðlims í kínverska ríkisráð- inu, æðsta handhafa fram- kvæmdavaldsins í Kína, hófst í gær, en Wu Yi er hingað kom- inn í boði Halldórs Ásgrímsson- ar, utanríkisráðherra. Heimsóknin hófst með því að Wu Yi skoðaði jarðhitasvæði Hitaveitu Suðumesja í Svarts- engi og Bláa lónið, en einn meg- intilgangur heimsóknarinnar er einmitt að kynnast starfi Is- lendinga í jarðhitamálum. Auk fundar með utanríkis- ráðherra mun Wu Yi m.a. eiga fundi með Davíð Oddssyni, for- sætisráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borgar- stjóra. Þá mun hún sækja heim forseta íslands, Ólaf Ragnar Grímsson á Bessastöðum. Á mánudag mun Wu Yi taka þátt í ráðstefnu um viðskipta- tækifæri í Kina og halda þar er- indi ásamt Valgerði Sverris- dóttur, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.