Morgunblaðið - 16.09.2000, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Svolítið um Silfrið salta
HEIMILDARMYND
um síldveiðar Norð-
manna við Island var
sýnd í sjónvarpinu nýlega
og hefur fallið fólki vel í
geð. Það er greinilegt í
síldarbænum gamla,
Siglufirði. Hér man fólk
norska, sænska og
finnska sfldarsjómenn í
þúsundatali í landlegum
um hverja helgi um langt
skeið. Og enn er talað um
tvö landnám Norðmanna
á Siglufirði. Hið fyrra er
Þormóður rammi nam
land um 900 og það
seinna sem hófst 1903
þegar Þormóður Bakke-
vig og fjöldi annarra norskra útgerð-
armanna lögðu grunn að frægasta
sfldarbæ í heimi. Norðmannatíminn á
Siglufirði stóð í þrjátíu ár og norskt
sjómannaheimili var rekið hér í 50 ár.
Svona mætti áfram telja.
Margir urðu því hai'la kátir yfir
þessari nýju heimildarmynd þó svo
við söknuðum þess að hinum miklu
áhrifum Norðmanna hér á Siglufirði
skyldu ekki vera gerð gleggri skil.
Rétt er áður en
lengra er haldið að
lýsa stuttlega mynd-
inni og augljósum
kostum hennar. Hún
hefst á almennri um-
fjöllun um aðstæður í
Noregi og á íslandi á
19. öid og ástæður
þess að Norðmenn
hófu sfldveiðar á fjar-
lægum miðum. Síðan
er siglt af stað og áður
en komið er aftur til
heimahafnar er störf-
um og reynslu sjó-
manna lýst og litið til
margra átta um leið til
að gera umfangsmik-
ilh sögu sem best skil. Að lokum er
svo sagt frá oíveiðinni og hruni sfld-
arstofnsins.
Verkið er mjög fjörlegt á köflum,
snaggaralegar klippingar fjölbreyti-
iegra myndskeiða og framsetning
myndefnis og frásagnar einhvern
veginn skemmtilegri en við eigum að
venjast í íslenskum heimildarmynd-
um. Vanir kvikmyndagerðarmenn
hafa greinilega staðið að verki þar
Síldin
í Silfrinu salta er sagan
sögð af Norðmönnum,
segir Örlygur
Kristfínnsson, og séð
frá þeirra sjónarhóli.
sem mikið hefur verið lagt í mynd-
rænar „skreytingar" og hljóðsetning-
ar gamalla fflmubúta. Og þarna er
hinn mannlegi og dramatíski þáttur
einn af meginþráðum verksins. Það
minnir óneitanlega á heimildarmynd-
ina Svartur sjór af sfld eftir Birgi Sig-
urðson þar sem skáldið og sjáandinn
laðaði áreynslulaust fram töfra sfld-
aráranna og þjóðin hreifst af.
Á Silfrinu salta eru nokkrir sagn-
fræðilegir gallar, hérumbil allir smáir
og skipta litlu sem engu máh í fram-
vindu verksins. Ein stór villa er þó
þarna sem verður að nefna sérstak-
lega. Ami Friðriksson, hinn merki
fiskifræðingur, sannaði með rann-
Rólandsbrakki, síldarminjasafn
í Siglufirði.
sóknum sínum seint á 5. áratugnum
gamla kenningu sína um að Norður-
landssfldin fræga og norska síldin
voru af einum og sama síldarstofnin-
um. Það var ekki Norðmaðurinn Finn
Devold sem var frumkvöðullinn, og
með þessu vísiridaafreki Árna Frið-
rikssonar hófst fjölþjóðleg samvinna
síldveiðiþjóðanna sem Norðmenn
höfðu áður ekki sýnt mikinn áhuga.
Eftir frumsýningu í Háskólabíói í
vor var sem sagt ljóst að í verkinu
leyndust hnökrar sem létt væri að
Öi'lygur
Kristfinnsson
laga fyrir sýningu í sjónvarpi. Haft er
fyrir satt að fullur vilji framleiðenda
hafi verið til þess. Einnig var Ijóst að
þessi skemmtilega mynd átti mikið
erindi til Islendinga og hún væri kjör-
in til sýninga á besta áhorfstíma
(stefnt hefur t.d. verið að því að sýna
hana í norska sjónvarpinu um jól eða
páska). En af einhverjum ástæðum lá
mönnum of mikið á og myndin „fór
út“ hjá Sjónvarpinu óleiðrétt og á
óheppilegum tíma.
I Silfrinu salta er sagan sögð af
Norðmönnum - og séð frá þeirra
sjónarhóli. En þar sem um er að ræða
sögu sem skarast við okkar þá ber að
fagna þessari mynd þó svo að nokkur
atriði kunni að fara í taugarnar á okk-
ur. Myndin hefur augljósa kosti, hún
fræðir um leið og hún gleður augað
og skemmtir. Við fáum innsýn í at-
burði sem þúsundir Islendinga voru
þátttakendur í og höfðu gífurleg áhrif
á þróun samfélags okkar. Þessi mynd
er eins og Svartur sjór af sfld til þess
fallin að vekja áhuga á atburðum sem
eru svo undra skammt undan en til-
heyra um leið gjörsamlega liðinni tíð.
Hún er til að undirbúa jarðveginn í
hugum okkar fyrir þau vönduðu og
miklu sagnfræðiverk sem beðið er
eftir frá okkar góðu sagnfræðingum.
Höí'umlur er myndlistamiaður og
safnstjóri á Súdarminjasafninu í
Siglufirði.
Hafnfírðingar:
Verjum Hörðuvelli!
Á undanförnum vik-
um hefur vaskur hóp-
ur Hafnfirðinga geng-
ið fram og mótmælt
fyrirhugaðri eyðileg-
gingu Hörðuvalla- og
Sólvangssvæða í bæn-
um. Gengið hefur ver-
ið í hús með undir-
skriftarlista gegn
framkvæmdunum og
einnig liggja listar
frammi á ýmsum stöð-
um hér í bænum.
Ekki er það svo að
því sé mótmælt að
auka þurfi skólarými í
Hafnarfirði.
Þær teikningar sem
fyrir liggja að nýrri skólabyggingu,
þ.e. grunnskóla, íþróttahúsi og
sundlaug auk leikskóla eru einfald-
lega svo viðamiklar að svæðið ber
þær engan veginn. Glæsilegar
teikningar sem vafalaust verða að
prýðilegu mannvirki, en einfald-
lega á kolröngum stað í bænum.
Umferðaröngþveiti
Engar lausnir liggja fyrir varð-
andi umferðaröryggi á Lækjar-
götu, sem er eina gatan sem tekur
við umferð að og frá þessu skóla-
hverfi og einnig að Sólvangi, sem
er öldrunarstofnun, sem og heilsu-
gæslunni í Hafnarfirði. Þar skapast
nú þegar öngþveiti á vissum tímum
dagsins, hvað þá þegar 700 barna
skóli verður settur þarna niður til
viðbótar. Eina lausnin varðandi
Lækjargötuna er þá að breikka
hana út í Lækinn, en viljum við
Hafnfirðingar það? Nei, varla. Um-
ferðarteppa með stóraukinni slysa-
hættu mun einfaldlega margfaldast
á Lækjargötu með tilkomu þeirra
mannvirkja sem þarna eiga að rísa.
Steinunn Guðnadóttir, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins og for-
maður skólanefndar Hafnarfjarðar,
hefur ítrekað haldið
því fram að ekkert sé
enn ákveðið um hvort
börn úr norðurhluta
Setbergshverfis muni
sækja þennan skóla.
Það er hins vegar deg-
inum ljósara að svo
verður. Eða, á ef til
vill nýr skóli á Hörðu-
völlum að standa hálf-
tómur næstu árin?
Nei við vitum betur.
Erum við Hafnfirð-
ingar þá tilbúnir að
axla þá ábyrgð að
börn úr hverfinu þurfi
að fara yfir Reykja-
nesbrautina til þess að
komast í skólann sinn?
Friði fyrir
aldraða fórnað
Hvað með eldra fólkið sem býr á
Sólvangi? Öll vitum við að erill
fylgir börnum, ekki síst þegar kom-
ið er út í frímínútur. Á kvöldin
munu þau einnig sækja á skólalóð-
ina í þau leiktæki sem þar verður
að finna. Friður og ró fyrir eldri
borgara í Hafnarfirði, sem njóta
eiga ævikvöldsins á Sólvangi, er í
húfi. Það dytti engum í hug að
reisa öldrunarstofnun nánast inni á
skólalóð. Það er jafnvitlaust að
setja skóla inn á lóð öldrunarstofn-
unar.
En hver er þá lausnin í skólamál-
unum? Jú, við bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar höfum margbent á að
leysa skuli vandann í Setbergi inn-
an hverfisins. Það er hægt, en vilj-
ann skorti einfaldlega hjá meiri-
hlutanum. Þeir eru fastir í farinu -
Hörðuvalla- og Sólvangssvæðinu
skal fórnað. Lækjarskóla er hægt
að stækka, en á þá lausn var aldrei
látið reyna.
Fjölmargir arkitektar fullyrða
Bæjarmálefni
Hafnfirðingar ætla hins
vegar ekki að láta
bjóða sér þennan yfir-
gang, segir Jóna Dóra
Karlsdóttir, og
mótmæla kröftuglega
þeirri eyðileggingu
sem yfirvofandi er
á Hörðuvöllum.
að með uppkaupum á nokkrum
húsum sé án vandkvæða hægt að
byggja upp nýjan og endurbættan
Lækjarskóla fyrir þann fjölda
barna sem sækja þarf skólann.
Þetta eru mun ódýrari leiðir og
hagkvæmari að öllu leyti.
Það er mikið í húfí
Niðurstaðan er hins vegar sú að
meirihluti Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokks í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar ákváðu í einhverri fljót-
færni að byggja á Hörðuvöllum og
efndu af því tilefni til hönnunar-
samkeppni (sem kostaði bæjarsjóð
um 20 milljónir króna) um skóla-
byggingar á svæðinu. Aðrar lausnir
voru aldrei grannskoðaðar, þótt því
sé haldið fram af meirihlutanum.
Enginn veit hver kostnaður við
þessar byggingarframkvæmdir
verður þegar upp er staðið - senni-
lega þó á þriðja milljarð króna.
Hins vegar hefur meirihlutinn eng-
ar áhyggjur af því - einkafram-
kvæmd skal það vera; framkvæmd
þar sem byggingaraðilar kosta
framkvæmdina og bærinn verður
leiguliði verktakans í næstu ára-
tugi og borgar kostnaðinn við
framkvæmdina oftar en einu sinni.
Framtíðin, börnin okkar, skal
borga. Það er mottó meirihlutans í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Hafnfirðingar ætla hins vegar
ekki að láta bjóða sér þennan yfir-
gang og mótmæla kröftuglega
þeirri eyðileggingu sem yfirvofandi
er á Hörðuvöllum. Eg hvet alla
Hafnfirðinga til að standa saman
gegn þessum áformum og stöðva
þau. Það er mikið í húfi.
Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði.
Byggingaplatan WötSCSKS®
sem allir hafa beðið eftir
VIROCbyggingaplatan er fyrir
veggi, loft og gólf
VIROCbyggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROCbyggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIROC byggingaplatan
er umhverfisvæn
VIROCbyggingaplatan er platan
sem verkfræðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞP
&CO
Leitið frekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: SS3 8640 6 568 6)00
Jóna Dóra
Karlsdóttir
Hvað kostar að
selja mjólkurvörur?
í Morgunblaðinu 15.
september skrifar
Finnur Árnason grein
undir yfirskriftinni:
„Nýjar áherslur í
Bændahöllinni". Þar
sakar Finnur Lands-
samband kúabænda
um breyttar áherslur
og að landssambandið
sé að reyna að gera
Baug að tortryggilegu
fyrirtæki. Þessi grein
Finns kemur í kjölfar
umfjöllunar á síðum
Morgunblaðsins, þar
sem Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Finnur
Árnason hafa haldið því fram að álag-
ning á mjólk dugi ekki fyrir kostnaði
hjá Baugi. Ari Teitsson og Snorri
Sigurðsson hafa haldið því fram, m.a.
með vísan til upplýsinga frá Noregi,
að núverandi álagning í verslunum
Baugs hljóti að duga vel fyrir kostn-
aði og vera viðunandi fyrir fyrirtæk-
ið.
Fyrst er að taka það fram að engar
breytingar hafa verið gerðar varð-
andi áherslur hjá Landssambandi
kúabænda varðandi samstarf við þá
aðila sem vinna úr og selja fram-
leiðsluvörur íslenskra kúabænda.
Einstaka mannabreytingar Lands-
sambands kúabænda hafa þar engin
áhrif og hefur landssambandið til að
mynda stutt dyggilega við verslanir
og afurðastöðvar á þessu ári, bæði
við markaðssetningu nauta- og naut-
gripakjöts. Landssambandið starfar
einnig náið með íslenskum mjólkur-
iðnaði við markaðssetningu mjólkur-
afurða. Hinsvegar hljóta hagsmuna-
samtök íslenskra kúabænda að
bregðast við þegar forsvarsmenn
stærstu verslunarkeðju landsins
segja fyrirtækið tapa á því að selja
þýðingarmestu afurðir kúabænda,
mj ólkurvörumar.
Áður hefur komið fram að lands-
sambandið hefur ekki dregið í efa
meðalkostnaðartölur varðandi sölu
matvara hjá Baugi. Hinsvegar stend-
ur óhögguð sú skoðun sem fram hef-
ur komið að velta á hvem fermetra
og launakostnaður verslunarinnar
sem hlutfall af veltu skiptir máli þeg-
ar reiknuð er álagningarþörf á ein-
staka vömflokka. Einnig er eðlilegt
að reikna með hliðaráhrifum af sölu
vegna mikillar eftirspumar. Af þessu
má ráða að kostnaður af sölu mjólk-
urvara hlýtur að vera verulega lægri
en meðalkostnaður Baugs og álagn-
ingarþörf að sama skapi.
Það hlýtur að vera hagsmunamál
fyrir stórfyrirtæki eins og Baug að
þekkja til hlítar raunkostnað ein-
Snorri Sigurðsson
Þórólfur Sveinsson
Mjólk
Af þessu má ráða, segja
Snorri Sigurðsson og
Þórólfur Sveinsson, að
kostnaður af sölu mjólk-
urvara hljóti að vera
verulega lægri en með-
alkostnaður Baugs og
álagningarþörf að sama
skapi.
stakra vömflokka, s.s. mjólkurvara,
og geta þannig metið álagningarþörf-
ina út frá því, en ekki meðalkostnaði.
Hagsmunir Baugs og íslenskra kúa-
bænda fara að þessu leyti saman,
enda alvarlegt mál fyrir framleiðend-
ur ef stærsta verslunarkeðja lands-
ins og þar með stærsti einstaki smá-
söluaðili mjólkurvara tapar á sölunni.
I grein Finns segir: „Staðreyndin
er því sú að verslanir Baugs tapa á
sölu drykkjarmjólkur." Smásölu-
álagning á mjólkurvörur var gefin
frjáls fyrir nokkmm ámm, en er í
dag lítt breytt frá því sem hún var
þegar hún var ákvörðuð af opinber-
um aðilum. Nokkm áður en hún var
gefin frjáls var hún hækkuð lítillega,
en á þeim tíma var allt annars konar
uppbygging smásöluverslana en er í
dag. Það er því umhugsunarefni ef
það er ekki arðbært að selja drykkj-
armjólk í dag, þegar smásöluverslun-
in er komin á færri hendur og vænt-
anlega í hagkvæmari rekstrarein-
ingar en áður var.
Þórólfur er formaður Landssam-
bands kúabænda. Snorri er fram-
kvæmdastjóri Landssambands kúa-
bænda.