Morgunblaðið - 16.09.2000, Page 58
58 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma, dóttir og systir,
SÓLRÚN MAGNÚSDÓTTIR,
Eyrarholti 3,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu að kvöldi sunnudagsins
10. september.
Jarðsett verður frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 18. september kl. 13.30.
Sindri Grétarsson,
Hermann Örn,
Harpa Hrönn Grétarsdóttir,
Erna Mjöll Grétarsdóttir,
Járnbrá Einarsdóttir,
Grétar Bjarnason,
Elín Björg Ragnarsdóttir,
Jón Bjarni,
Hannes Jón Marteinsson,
Guðlaugur Jón Þórðarson,
Magnús Jónas Jóhannesson,
Gunnar Jóhannes Magnússon, Stefnir Einar Magnússon,
Björg Magnúsdóttir, Freydís Sjöfn Magnúsdóttir,
Rósa Björk Magnúsdóttir.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL GUÐMUNDSSON
fyrrv. verkstjóri,
Unnarbraut 6,
Seitjarnarnesi,
lést á heimili sínu föstudaginn 15. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sveinbjörg Kristjánsdóttir,
Margrét Pálsdóttir, Alfreð Bóasson,
Guðmundur Þ. Pálsson, fris Dungal,
Magnús Pálsson, Laura Sch. Thorsteinsson,
Björg Pálsdóttir,
Hildur Pálsdóttir, Aðalsteinn Sigurþórsson,
Kristján Pálsson, Erna Kettler,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARGRÉT ÁGÚSTA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Mosabarði 2,
Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring-
braut fimmtudaginn 14. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Júlíus Hinriksson,
Sigrún Júlíusdóttir, Guðmundur Kort,
Katrín Gerður Júlíusdóttir, Gylfi Norðdahl,
Valgerður Júlíusdóttir, Jens Guðbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg systir okkar og mágkona,
SÓLVEIG ANNA LEÓSDÓTTIR,
Sólheimum,
Grímsnesi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju í dag,
laugardaginn 16. september, kl. 13.30.
Árni Leósson, Halldóra Gunnarsdóttir,
Ketill Leósson, Rakel Gísladóttir,
Katla Leósdóttir, Sigurjón Pálsson,
Sigríður Herdís Leósdóttir,
Jón Leósson, Hrefna Jónsdóttir,
María Leósdóttir, Eiríkur Hallgrímsson,
Anna Leósdóttir, Agnar Hermannsson.
+
Ástkær eiginmaður mínn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BÁRÐUR GUNNARSSON,
Lyngholti 6,
er lést mánudaginn 4. september, verður jarð-
sunginn frá Glerárkirkju mánudaginn
18. september kl. 14.00.
Halldóra Guðmundsdóttir,
Guðmundur Bárðarson, Steingerður Steinarsdóttir,
Jóhanna Bárðardóttir, Guðni Þóroddsson
og barnabörn.
+ Baldur Steing-
rímsson fæddist
á Sandhólum í Tjör-
neshreppi, Suður-
Þingeyjarsýslu, 21.
júní 1904. Hann lést
5. september síðast-
liðinn og fór útfór
hans fram frá Foss-
vogskirkju 14. sept-
ember.
Það haustar mis-
snemma og misvel,
jafnt í náttúrunni sem í
lífi okkar mannanna.
Haustið í lífi móður-
bróður míns, Baldurs Steingríms-
sonar, var langt, kyrrt og fagurt,
frostnætur fáar. Hann átti því láni að
fagna að geta búið heima hjá sér á
Skeggjagötunni fram undir það síð-
asta. Þeir eiga gott sem mega eyða
ævikvöldinu sem mest óháðir öðrum,
sáttir innan um sína
gömlu muni og ótal
minningar frá langri
gifturíkri ævi.
Ég var orðinn stálp-
aður þegar ég fyrst
hitti frænda minn.
Engu að síður finnst
mér ég hafa þekkt
hann frá barnæsku.
Móðir mín talaði oft um
einkabróður sinn og
mat hann mikils. Hann
var líka sá sem við
dreifbýlisfólkið gátum
alltaf leitað til með alls
kyns erindrekstur í
höfuðborginni, bjargvætturinn fyrir
sunnan. Síðar, þegar ég hélt utan til
náms, lá beint við að biðja Baldur að
vera umboðsmaður minn. Ekkert
var sjálfsagðara þótt auðvitað kost-
aði það töluverða snúninga. Eftir að
foreldrar mínir fluttu til Reykjavík-
ur urðu fundirnir fleiri og reglulegar
heimsóknir Baldurs til systur sinnar
í Drápuhlíð voru ætíð tilhlökkunar-
efni, ungum sem öldnum. Hann
fylgdist alla tíð vel með og hafði allt-
af eitthvað skynsamlegt og gjarnan
skemmtilegt tÚ málanna að leggja.
Baldur var gæfumaður. I einkalífi
sínu naut hann ástríkis og umhyggju
fjölskyldu sinnar allt til hinsta dags
og í starfí sínu öðlaðist hann vináttu
og virðingu, jafnt undirmanna sem
yfirboðara. Sem vænta mátti farnað-
ist Baldri vel í starfi, enda metinn að
verðleikum íyrir hæfileika sína, ráð-
vendni og samviskusemi.
Baldur Steingrímsson var fágað-
ur, alþýðlegur og fordómalaus mað-
ur. Aldrei heyrði ég hann hallmæla
nokkrum manni og lánsamir eru þeir
sem lífíð þroskar en fær í engu spillt.
Við systkinin og fjölskyldur okkar
þökkum Baldri að leiðai'lokum ára-
langa tryggð, velvild og ræktarsemi.
Við minnumst hans með virðingu.
Steingrími, Höskuldi og ástvinum
hans öllum sendum við samúðar-
kveðjur og biðjum þeim allrar bless-
unar.
Friðrik Sigfússon.
BALDUR
STEINGRÍMSSON
HALLDOR
INGIBERGUR
ÓLAFSSON
+ Haildór _ Ingi-
bergur Ólafsson
fæddist í Reykjavík
16. desember 1948.
Hann lést á Land-
spftalanum í Foss-
vogi 7. september
síðastliðinn og fór út-
för hans fram frá
Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði 14. septem-
ber.
Við nágrannar Hall-
dórs í sumarbústaðar-
landinu Merkurlaut
viljum kveðja hann með
þessum fátæklegu orðum. Halldór
var nágranni okkar í nokkur ár en
tengdafaðir hans hafði byggt fyrsta
sumarhúsið á sumarbústaðarlandinu
Merkurlaut í Villingaholtshreppi.
Halldór og Elín tóku við bústaðnum
eftir andlát föður hennar og hófu að
laga hann og nánasta
umhverfi að sínum stíl.
Við tókum strax eftir
því að þar fór atorku-
samt fólk. Það var bætt
við palla, byggt við og
aukið við trjágróður-
inn. Bjamaból, en svo
heitir sumarhúsið
þeirra, var búið að fá
nýjan svip og við vitum
að áform voru um að
gera enn meira á
næstu árum. En nú
hafa örlögin gripið inn,
Halldór er fallinn frá
langt fyrir aldur fram
eftir erfiða sjúkdómsbaráttu. Við
minnumst Halldórs með söknuði
sem góðs félaga og úrræðagóðs
nágranna. Við vottum Elínu og böm-
um þeirra okkar dýpstu samúð.
Nágrannar
í Merkurlaut.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Eiginmaður minn,
HALLGRÍMUR VIGFÚSSON,
frá Borgarfirði eystra,
Engihjalla 11,
Kópavogi,
lést á Vífilsstaðaspítala miðvikudaginn
13. september.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Emilfa L'orange.
f..........i -.■—.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
V.
l, 896 8242
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja,
vininn sinn látna
er sefúr hér hinn síðsta blund.
Margseraðminnast,
margterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margserað sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Með þessum orðum langar mig að
kveðja Dóra. Megi minning um
traustan mann lifa.
Ég votta Elínu, Kristínu, Gunnari
og öllum ástvinum sem eiga um sárt
að binda mína dýpstu samúð.
Hulda Gunnarsdóttir.
Birting
minning-
argreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á
ritstjóm blaðsins í Kringlunni
1, Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í sím-
bréfi (569 1115) og í tölvupósti
(minning@mbl.is). Nauðsyn-
legt er, að símanúmer höfund-
ar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en aðr-
ar greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og hæfi-
lega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blað-
inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinai'höfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir grein-
unum.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII-skráa sem í dag-
legu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.