Morgunblaðið - 16.09.2000, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ
Safnaðarstarf
Neskirkja
Nýtt fyrir-
komulag á guðs-
þjónustum
í Neskirkju
NÚ ER vetrarstarf Neskirkju í vest-
urbæ Reykjavíkur að hefjast. Sú
breyting verður á guðsþjónustum í
etur að þær verða kl. 11, en ekki 14,
mk þess sem bömin í sunnudaga-
kólanum verða með í guðsþjónust-
:ni til að byrja með en hverfa svo til
mna verkefna. Vetrarstarfíð hefst
ína á sunnudaginn kl. 11 og verður
iðsþjónustan með þessu fyrirkomu-
igi, bömin byija í kirkjunni en fara
/o í safnaðarheimilið í tveimur hóp-
i m, sjö ára börn og yngri annars veg-
>.r og 8-9 ára börn hins vegar. Annað
tarf í Neskirkju verður sem hér seg-
ir:
Tíu til tólf ára starfið (TTT) verð-
r á mánudögum kl. 17 og unglinga-
dúbbur er starl'andi á fimmtudögum
1.20.
Foreldramorgnar eru í kirkjunni
á miðvikudagsmorgnum kl. 10.
Fjölskyldu- og hjónastarf Nes-
kirkju fer af sunnudagskvöldið 8.
október nk. kl. 20.30. Opið hús þar
sem boðið er upp á kaffí og meðlæti
verður í safnaðarheimilinu sérhvern
miðvikudag kl. 16. Annan hvern mið-
vikudag verður svo sr. Frank M.
Halldórsson með trúfræðslu kl. 17 og
kl. 18 hvern miðvikudag verður svo
bænamessa.
Starf aldraðra hefst laugardaginn
7. október kl. 14. (ath. breyttan tíma)
og verður alla laugardaga í október
og nóvember og síðan áfram eftir
áramót.
Kvöldmessur verða einu sinni í
mánuði. Fyrsta kvöldmessan verður
sunnudagskvöldið 25. september nk.
kl. 20.
Þess má loks geta að auk þessa er í
Neskirkju öflugt AA- og Al-Anon—
starf fjórum sinnum í viku.
Kvennakirkjan
1 Neskirkju
FYRSTA messa Kvennakirkjunnar
á þessu hausti verður haldin í Nes-
kirkju sunnudaginn 17. september
kh 20.30. Séra Yrsa Þórðardóttir
prédikar. Dr. Þórunn Guðmunds-
dóttir syngur einsöng við undirleik
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir almennan
söng og syngur m.a. sænsk lög í til-
efni af því að sænskar konur sem
vilja kynna sér Kvennakirkjuna
verða gestir í messunni. Kvenna-
kirkjukonur munu gera þessa stund
að sérstakri fagnaðarstund þar sem
séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
prestur Kvennakirkjunnar, var
sæmd heiðursdoktorsnafnbótvið Há-
skóla íslands 8. september sl.
Fimmtudaginn 21. september kl.
17.30 verður síðdegisboð í stofum
Kvennakirkjunnar í Þingholtsstræti
17. Gestir verða frá bókaútgáfunni
SÖLKU, sem er nýstofnað kvenna-
bókaforlag í eigu Hildar Hermóðs-
dóttur og Þóru, Sigríðar Ingólfsdótt-
ur. Sagt verður frá útgáfubókum og
ieeið upp úr einhverri þeirra. Kaffi og
heitar vöfflur verða áboðstóhim.
Hátíðarmessa
í Breið-
holtskirkju
Á MORGUN, sunnudag, hefjum við
vetrarstarfið í Breiðholtskirkju í
Mjódd formlega með barnaguðsþjón;
ustu kl. 11 og hátíðarmessu kl. 14. I
þessari messu lætur Daníel Jónasson
formlega af störfum sem organisti
eftir 28 ára þjónustu og Sigrún M.
Þórsteinsdóttir tekur við. Inga J.
Baekman syngur stólvers. Að messu
lokinni verður kaffisamsæti til heið-
urs Daníel í safnaðarheimilinu.
Þess má geta áð nú hefur verið lok-
ið við að leggja norskar steinflísar á
gólf kirkjunnar og má því segja að 22
ára byggingarsögu hennar sé loks að
ljúka. Við höfum því margt fyrir að
þakka í messunni á sunnudag og
væntum þess að sóknarbúar og aðrir
velunnarar kirkjunnar fjölmenni í til-
efni dagsins og taki þátt í þessari
þakkarhátíð með okkur.
Sr. Gísli Jónasson.
Kvenfélag
Háteigssóknar
gefur flygil
VIÐ upphaf vetrarstarfs í Há-
teigssöfnuði mun Kvenfélag Há-
teigssóknar færa söfnuðinum að gjöf
nýjan flygil til notkunar í hátíðarsal
safnaðarheimilisins. Afhendingin fer
fram eftir messu kl. 14 sunnudaginn
17. september, þá mun Signý Sæ-
mundsdóttir sópran syngja við undir-
leik organistans Douglas A. Brotchie.
Kaffiveitingar verða á eftir í boði
sóknarnefndar.
Bamaguðsþjónustur verða klukk-
an 11 á sunnudagsmorgnum i vetur, í
umsjá sr. Helgu Soffiu Konráðsdótt-
ur, Péturs Björgvins Þorsteinssonar
fræðslufulltrúa, Sólveigar Höllu
Kristjánsdóttur guðfræðinema og
Guðrúnar Helgu Harðardóttur
djáknanema.
Þar verður fjölbreytt og skemmti-
legt efni við hæfi barna, sungið og
leikið, beðið og sögur sagðar.
Tómas Sveinsson sóknarprestur.
Kvöldmessa í
Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld kl. 20 verður fyrsta
kvöldmessa haustsins í Grensás-
kirkju. í kvöldmessunum er lagt upp
úr því að skapa andrúmsloft næðis og
friðar, hlýju og samfélags. Formið er
einfalt en mikill, almennur söngur.
Töluðu orði er stillt í hóf enda aðal-
atriðið að finna nálægð Guðs og
mæta honum í orði hans og við al-
tarið. Auk kvöldmessunnar er að
sjálfsögðu messa kl. 11 árdegis.
Á þeim tíma hefst líka barnastarfið
eins og í öðrum kirkjum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Bai’nakór Grensáskirkju er að
hefja 11. starfsár sitt. í vetur æfir kór
yngri barna, 6-9 ára, á sunnudags-
morgnum kl. 10.
Sr. Ólafur Jóhannsson.
Æðruleysis-
messa
Dómkirkjunnar
ÆÐRULEYSISMESSA Dómkirkj-
unnar, tileinkuð fólki í leit að bata eft-
ir tólfsporakerfinu, verður í
Dómkirkjunni í Reykjavík sunnu-
dagskvöld kl. 20.30. Þar eru allir vel-
komnir til tilbeiðslu og æðruleysis.
Lofgjörðinni stýrir söngkonan
Anna Sigríður Helgadóttir við undir-
leik bræðranna Harðar og Birgis
Bragasona. Hinn eini sanni Þorvald-
ur Halldórsson syngur einsöng. Sr.
Karl V. Matthíasson prédikar og sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir stjómar
samkomunni, jafnframt verður
reynslusögu deilt með viðstöddum. í
lok stundarinnai- verður helg smum-
ing í anda frumkirkjunnar og fyrir-
bæn. Það verður boðið upp á kaffi eft-
ir messu en ekki fyrir messu eins og í
fyrravetur. Einnig hefjast messurn-
ar hálftíma fyrr en áður. I messukaff-
inu verður kynnt tólfsporavinna sem
fram fer í safnaðarheimili Dómkir-
kjunnar á þriðjudagskvöldum í vetur
og er samstarfsverkefni Dómkir-
kjunnar og miðbæjarsafns
KFUM&K.
Æðruleysismessur em innihalds-
ríkar og helgar stundir þar sem fólk
kemur og leitar eftir samfélagi við
guð og meðbræður sína. Allh- vel-
komnir.
Ray McGraw
í Kefas
í DAG, laugardaginn 16. september,
verður Ray McGraw gestaprédikari í
Kefas, kristnu samfélagi, Dalvegi 24,
Kópavogi. Ray McGraw er trúboði,
forstöðumaður og kennari frá Kan-
ada og hefur verið hér á landi síðustu
daga með námskeið um það hvernig
hægt er að rjúfa ættarbölvanir, reka
út illa anda og lækna sjúka. Samkom-
an hefst kl. 14 og em allir hjartanlega
velkomnir
Kyrrðar- og
bænastund í
Fella- og
Hólakirkju
VETRARSAFNAÐARSTARF
Fella og Hólakirkju er smátt og
smátt að hefjast þessa dagana.
Fyrsta kyrrðar- og bænastundin
verður í hádeginu miðvikudaginn 20.
september. Organisti kirkjunnar,
Lenka Matéová, leikur á orgelið frá
kl. 12. Klukkan 12.10-12.25 er helgi-
stund þar sem meðal annars er beðið
fyrir þeim sem eiga við veikindi eða
aðra erfiðleika að stríða. Einnig em
þakkarefni lögð fram fyrir guð.
Bæna- og þakkarefnum má koma til
presta, djákna eða annarra starfs-
manna kirkjunnar í síma 557-3280.
Þriðja miðvikudag hvers mánaðar
verður altarisganga í hádeginu.
I framhaldi af kyrrðar- og bæna-
stundinni í kirkjunni gefst tækifæri
til að neyta saman hádegisverðar í
safnaðarheimilinu gegn vægu gjaldi.
Eftir málsverðinn er áfram opið hús
til kl. 15, samvera fyrir fullorðna þar
sem spjallið heldur áfram, tekið verð-
ur í spil, lesið upp úr góðum bókum
og blöðum eða eitthvað annað gert,
sem fólki kemur til hugar, til
skemmtunar og fróðleiks.
Fólki er frjálst að koma og fara
þegar því hentar. Koma í kirkjuna en
ekki í safnaðarheimilið, eða öfugt, allt
eftir því sem það hefur tíma til eða
áhuga á. Kirkjan býður þeim akstur
til og frá kirkju sem ekki geta komist
sjálfir og þeir sem vilja nýta sér það
láti vita í síma 557-3280 fyrir kl. 10 á
miðvikudagsmorgnum.
Umsjón með kyrrðar-, bæna- og
samverustundunum á miðvikudögum
hefur Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni
en sóknarprestamir sr. Hreinn
Hjartarson og sr. Guðmundur Karl
Ágústsson taka einnig þátt í helgi-
haldinu.
Fella- og Hólakirkja.
Barna- og
unglingastarfið
í Hallgríms-
kirkju
ÞESSI helgi markar upphaf bama-
og unglingastarfs Hallgrímskirkju á
þessu hausti. Starfið fyrir yngstu
börnin tengist guðsþjónustum hvem
sunnudagsmorgun kl. 11 og era
börnin boðin velkomin í guðsþjónust-
una á sunnudag. í guðsþjónustunni
mun bama- og unglingakór
kirkjunnar syngja undir stjórn
Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugs-
dóttur.
Á þriðjudögum kl. 14.30 er starf
fyrir böm á aldrinum 6-8 ára og á
fimmtudögum fyrir 9 -10 ára böm kl.
16.30 og fyrir 11-12 ára börn kl. 18-
19. Þá mun æskulýðsfulltrúi
kirkjunnar taka á móti leikskóla-
börnum í kirkjuna eða heimsækja
þau á leikskólana í sókninni eftir nán-
ara samkomulagi við leikskólastjór-
ana og heilsdagsskóla Austurbæjar-
skóla stendur til boða áð koma í
heirasókn einu sinni í viku.
Æskulýðsstarf kirkjunnar hefst
næstkomandi mánudagskvöld kl. 20 í
kórkjallaranum og þangað era ungl-
ingar 13 ára og eldri velkomnir.
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Magnea Sverrisdótth æsk-
ulýðsfulltrúi.
Fjölskyldu-
guðsþjónusta í
Dómkirkjunni
FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA
verður haldin í Dómkirkjunni næst-
komandi sunnudag, 17. september,
kl. 13. Þessi guðsþjónusta markar
upphafið á barnastarfi Dómkirkjunn-
ar í vetur og era öll börn velkomin
með foreldrum sínum. í guðsþjónust-
unni verða leiðtogar í bamastarfinu
kynntir, lögreglumaður kemur í
heimsókn að ógleymdum Konna, sem
er bráðsniðugur fugl. Umsjón með
athöfninni hefur Bolli Pétur Bolla-
son. Njótið uppbyggilegrar stundar
með börnunum. Verið velkomin.
Bolli Pétur Bollason.
Sunnudaga-
skólinn í
Seltjarnar-
neskirkju
ÞAÐ ER farið að hausta og náttúran
syngur skapara sínum lof með litum
sínum og hressandi haustvindi. Nýr
svipur færist yfir hvert sem litið er.
Með haustvindinum kemur annars
konar ferskleiki en ferskleiki vorsins.
Skólarnir iða af lífi bamanna okkar
brúnna og ferskra af útivera sumar-
sins.
Kirkjustarfið er einnig hafið og
það er mikið um að vera í kirkjum
landsins. Þetta er sá tími ársins þeg-
ar kirkjan iðar af lífi.
Sunnudaginn 17. september hefst
sunnudagaskólinn í Seltjarnarnes-
kirkju með skemmtilegum og fersk-
um blæ. Gott væri ef börnin gætu
mætt klukkan 11 þegar guðsþjónust-
an hefst því þá geta þau sungið fyrir
gestina í kirkjunni.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Starfsfólk Seltjarnarneskirkju.
Glatt á hjalla
í Hjallakirkju
VETRARSTARF Hjallakirkju er að
hefjast um þessar mundir og sannar-
lega mikið framundan. Undanfarna
vetur hefur verið lögð áhersla á fjöl-
breytni í helgihaldi og eiga allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
kirkjustarfinu.
Messur eða guðsþjónustur era
hvem sunnudag kl. 11 og er rík
áhersla lögð á þátttöku safnaðarins í
guðsþjónustunum sem hæfa öllum al-
durshópum. Á hverjum þriðjudegi kl.
18 era svo bæna- og kyrrðarstundir í
kirkjunni en þær miða fyrst og
fremst að því að efla bænalíf einstakl-
ingsins.
Bama- og æskulýðsstarf Hjalla-
kirkju hefst nú um þessa helgi.
Bamaguðsþjónustur eru á sunnu-
dögum á tveimur stöðum í sókninni,
kl. 13 í Hjallakirkju og kl. 11 í Linda-
skóla. Kirkjuprakkarar, 7-9 ára
starf, era í kirkjunni á fimmtudögum
kl. 16.30-17.30 og tíu til tólf ára börn-
in, TTT-hópurinn, hittist á miðviku-
dögum kl. 17-18. Markmið þessara
starfsþátta er að sjálfsögðu að bömin
fái að kynnast Jesú Kristi, sem og
hvert öðra, og skemmta sér við líf og
leik í kirkjunni. Unglingarnir fá einn-
ig tækifæri til að gera slíkt hið sama
en fundir í Æskulýðsfélagi Hjalla-
kirkju eru mánudagskvöld kl. 20.30-
22 fyrir 8. bekk og sunnudagskvöld
kl. 20.30 fyrir 9. og 10. bekk.
Fjölskyldumorgnar hófu starf-
semi nú í september og verða á mið-
vikudögum kl. 10-12. Þar gefst for-
eldram kostur á að koma með börnin
sín til þátttöku í helgihaldi, kynnast
öðrum og miðla af reynslu sinni.
Hjálparmæður á vegum Barnamála,
áhugafélags um brjóstagjöf, starfa
árið um kring í Hjallakirkju og era
með fundi sína 1. og 3. þríðjudag í
mánuði kl. 14-16. Kór Hjallakirkju
mun starfa af krafti í vetur og nýir fé-
iagar era ætíð velkomnir.
Öldrunarstarfið í söfnuðinum er
unnið í samvinnu við Digranessöfnuð
og fer fram á þriðjudögum í Digra-
neskirkju.
Eins og sjá má er nóg að gerast í
safnaðarlífi Hjallasóknar. Hjalla-
kirkja stendur öllum opin og er fólk
hvatt til að koma og kynnast kirkju-
legu starfi innan hennar.
Iris Kristjánsdóttir
sóknarprestur.
Safnaðar-
starfíð í Grafar-
vogssókn
HINN 17. september nk. hefst vetr-
arstarfið í nývígðri Grafarvogs-
kirkju. Ánægjulegt er að geta greint
frá því að safnaðarfólki, sem og öðr-
um er hafa sótt kirkjuna heim, finnst
að sérstaklega hafi vel tekist til með
alla hönnun kirkjunnar. Nú sem
endranær er þó mikilvægast að nýta
hana sem best fyrir fjölþætt safnað-
arstarf.
Nýbreytni: Almennar guðsþjón-
ustur verða í vetur kl. 11. Barnaguðs-
þjónustur verða einnig kl. 11. Guðs-
þjónustumar fara því fram samtímis,
hvor á sinni hæð kirkjunnar.
Barnaguðsþjónustur í Engjaskóla
verða nú kl. 13. Þær annast prestar
safnaðarins og barnastarfsmenn.
Foreldramorgnar. Starf þeirra
hefst fimmtudaginn 20. september
kl. 10-12 í Grafarvogskirkju og era
þeir vikulega. Dagskráin er fjöl-
breytt. Áhugaverðir fyrirlestrar
verða haldnir og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir.
„Kirkjukrakkar" í Rimaskóla og
Engjaskóla. Fyrir börn á aldrinum
7-9 ára verða fiindir á þriðjudögum í
Rimaskóla kl. 18-19 og í Engjaskóla
á miðvikudögum kl. 18-19.
Starf KFUM og K verður áfram í
vetur íyrir drengi á aldrinum 9-12
ára á þriðjudögum kl. 17.30-18.30 og
hefjast fundimir 26. september nk.,
og fyrir stúlkur á aldrinum 9-12 ára
er starfið á miðvikudögum kl. 18-19
og hefjast fundirnir 27. september
nk.
Æskulýðsfulltrúi: Helga Stur-
laugsdóttir guðfræðingur hefur verið
ráðin æskulýðsfulltrúi kirkjunnar og
mun hún hafa umsjón með barna- og
æskulýðsstarfinu ásamt prestum,
æskulýðsleiðtogum og starfsmönn-
um barnastarfsins.
Æskulýðsfélög. Fyiir unglinga í 8.
og 9. bekk í Engjaskóla á miðviku-
dögum kl. 20-22. Fyrir unglinga í 8.
og 9. bekk í Grafarvogskirkju á
fimmtudögum kl. 20-22.
Eldri borgarar. Þátttakendum í
þessu starfi fer fjölgandi og er það
von okkar að enn bætist í þennan
góða hóp. Eldri borgarar hittast í
kirkjunni á hverjum þriðjudegi kl.
13.30, en starfið hefst með því að far-
ið verður í haustferð um Suðurland,
þriðjudaginn 26. september kl. 11, og
er mæting við Grafarvogskirkju.
Skráning í ferðina er í síma 587-9070
á milli kl. 9 og 17 alla virka daga.
Á næstunni verður opnuð mynd-
listarsýning á verkum Bryndísar
Bjömsdóttur. Bryndís tekur virkan
þátt í starfi eldri borgara í
Grafarvogskirkju.
Kirkjukór. Kirkjukórinn hefur
þegar hafið vetrarstarfið undir stjórn
Harðar Bragasonar, organista og
kórstjóra. Kórinn, sem er orðinn fjöl-
mennur, getur enn bætt við góðum
karlaröddum.
Fermingarböm. Væntanleg fenn-
ingarbörn era beðin að koma til inn-
ritunar í Grafarvogskirkju sem hér
segir: Fermingarbörn í Engjaskóla,
þriðjudaginn 19. sept. kl. 16. Ferm-
ingarböm í Hamraskóla, miðviku-
daginn 20. sept. kl. 13.30. Fermingar-
böm í Húsaskóla, miðvikudaginn 20.
sept. kl. 15. Fermingarbörn í Rima-
skóla, fimmtudaginn 21. sept. kl. 15.
Fermingarböm í Foldaskóla,
fimmtudaginn 21. sept. kl. 16.30.
Fermingarfræðslan hefst svo viku
seinna samkvæmt stundaskrá og
verður hún afhent við innritun.
Bamakórar. Innritun í undirbún-
ingsdeild 7-9 ára verður föstudaginn
15. sept. kl. 15 í kirkjunni. Innritun-
argjald er kr.J .000. Æfingar verða á
þriðjudögum kl. 18-18.45. Innritun
og raddprófun íyrir nýja félaga í eldri