Morgunblaðið - 16.09.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000 63
KIRKJUSTARF
1 T ttd
IIK
Mikið úrval af álbrautum
. . . sem við mótum eftir
þinum óskum
JAllt-iyrir
00
A I' r \:{ ry:P
Laugardaginn 16. sept.
kl. 13 - 17 verður
kynning, í Apótekinu
Smáratorgi, á deCHINE
snyrtivörunum þar sem
24 k.gull er í aðalhlutverki.
íslandssólirehf.
Smáratorji Firði Iðufeili Sketfunni Kringlunni Mosfellsb* Smlðjuvegl Spönjlnni Suðuntrönd Akureyii
ífr
V
rv
\Cz
K5I1ÉJÉJ
i gsf IM l%!
B ai li
J
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Asbuð 4 í Garðabæ
Opið hús í dag frá kl. 14-16
Til sölu þetta fallega 166 fm
raðhús á þessum eftirsótta
stað. Húsið sem er á tveimur
hæðum skiptist í forstofu, hol,
þvottaherb., baðherb. og 2
svefnherb. á neðri hæð og á
efri hæð eru stofa til suðurs,
eldhús með nýjum eikarinnrétt.
og nýjum tækjum, hol/borðstofa, 2 svefnherb., og baðherb. Innb.
bílskúr. Fagurt útsýni af efri hæð. Parket á gólfum. Flísalagðar sval-
ir. Falleg ræktuð lóð með hellul. verönd. Laust til afh. 1. nóv. nk.
Húsið verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
#
Kraflakrakkar
deild, börn frá 10 ára aldri, verður
föstudaginn 15. sept. ki. 16-17.30 í
kirkjunni. Innritunargjald er kl.
I. 500. Æfingar verða á þriðjudögum
og föstudögum kl. 16^17.45. Kór-
stjóri er Oddný J. Þorsteinsdóttir.
Safnaðarfélagið. Vetrarstarf fé-
lagsins hefst með hátíðarfundi mánu-
daginn 9. október nk. I sumar voru
liðin tíu ár frá stofnun félagsins og af
því tilefni verður sérstaklega vandað
til dagskrár fundarins, sem hefst kl.
20 í safnaðarsal kirkjunnar uppi.
Nánar auglýst síðar. Aðrir fundir fé-
lagsins í vetur verða fyrsta mánudag
í hverjum mánuði og verður dagskrá
þeirra fjölbreytt. Félagið er öllum
opið, bæði konum og körlum, og eru
engin félagsgjöld.
Kyrrðarstundir. Kyirðarstundir í
Grafarvogskirkju verða í hádeginu á
miðvikudögum kl. 12 með altaris-
göngu og fyrirbænum. Boðið er upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að
lokinni stundinni. Allir velkomnir.
Kyrrðarstundirnar hefjast miðviku-
daginn 20. september nk.
Sorgarhópur. Hópur sem hittist
reglulega í nokkrar vikur og fjallar
um sorg og sorgarviðbrögð mun
starfa í vetur, líkt og síðastliðna vet-
ur. Prestar kirkjunnar sjá um skrán-
ingu í hópinn og hefst starfið þriðju-
daginn 23. janúar 2001 kl. 20 og
verður 10 næstu mánudaga þar á eft-
ir. Hópurinn er ætlaður þeim sem
hafa misst nána ástvini.
Bænahópur. Á hverju sunnudags-
kvöldi kl. 20 hittist bænahópur í
kirkjunni og er hann öllum opinn.
Námskeiðið „Að búa einn“ undir
handleiðslu sr. Önnu Sigríðar Páls-
dóttur verður eftir áramót, ætlað
þeim sem hafa gengið í gegnum
skilnað.
Al-Anon. Al-Anon er með fundi á
föstudagskvöldum kl. 20 og AA-hóp-
ur hittist á laugardagsmorgnum kl.
II.
Símatímar prestanna eru frá kl.
11-12, þriðjudaga til föstudaga og
viðtalstímar eftir samkomulagi. Sím-
anúmer Grafarvogskirkju er 587-
9070 og 587-9080. Netfang: graf.rit-
ari@kirkjan.is. Ath. messuauglýs-
ingar í dagblöðum og starfið almennt
í kirkjustarfi Morgunblaðsins.
Tökum öll virkan þátt í starfi
kirkjunnar okkar.
Sóknarnefnd, safnaðarfélag, kór-
ar, æskulýðsfélög, prestar og aðrir
starfsmenn Grafarvogskirkju.
Fríkirkjan í
Reykjavík
opin o g frjáls
FYRIR rúmum 100 árum ákváðu
stofnendur Fríkirkjusafnaðarins að
greina þyrfti á milli kirkju og ríkis. I
dag er Fríkirkjusöfnuðurinn því
óháður ríki. Hann er annar elsti lút-
erski söfnuðurinn í Reykjavík og
hyggir því á traustri hefð. Söfnuður-
inn er einnig óháður landfræðilegum
sóknarmörkum þjóðkirkjustofnunar-
innar þó svo að nákvæmlega sama
Guðstrúin sé játuð og það með sama
evangelíska lúterska hættinum.
Fjórir grunnþættir hafa mótað starf
safnaðarins í ytri málum:
Fjárliagslegt sjálfstæði. Fríkirkj-
an nýtur ekki fjárframlaga frá ríkinu.
Allur kostnaður vegna safnaðar-
starfsins er borinn uppi af safnaðar-
gjöldum sem eru þau sömu og til
þjóðkirkjunnar. Tekjur safnaðarins
fara eftir fjölda safnaðarfélaga. Með
safnaðargjöldum og öðru sjálfsaflafé
kostar söfnuðurinn uppbyggingar-
starf og allt safnaðarstarf.
Þjónusta innifalin í safnaðar-
gjöldum. Með greiðslu safnaðar-
gjalds lítur Fríkirkjusöfnuðurinn í
Reykjavík svo á, að safnaðarfélagi
hafi þegar greitt fyrir alla þá þjón-
ustu, sem fastráðnir starfsmenn
safnaðarins veita safnaðarfélögum.
Þess vegna er ekki innheimt sérstök
þóknun fyrir skírn, fermingu, hjóna-
vígslu eða útför vegna þjónustu safn-
aðarprests og organista, eigi safnað-
arfélagi hlut að máli.
Þátttaka og rík áhrif leikmanna.
Fríkirkjan er fyrst og fremst leik-
mannahreyfing með sjálfsforræði í
eigin málum. Safnaðarfélögum er
tryggður réttur til áhrifa og er það í
samræmi við upphaflegar hugmynd-
ir stofnenda fiíkirkjunnar. Frí-
kirkjusöfnuðurinn hefur verið í mik-
illi uppbyggingu á síðustu árum.
Tækifærin til skapandi þátttöku í
safnaðarstarfinu eru því mörg og
fjölbreytileg.
Sameining fjölskyldunnar í einn
söfnuð. Fríkirkjusöfnuðurinn er ekki
háður landfræðilegum sóknarmörk-
um. Þannig vill söfnuðurinn skapa
fjölskyldunni tækifæri til að samein-
ast í einum söfnuði burtséð frá bú-
setu einstakra fjölskyldumeðlima.
Bamamessur. Barnamessur eru
alla sunnudaga yfir vetrartímann
klukkan 11. Verða þær því samtímis
almennu guðsþjónustunni alla
sunnudaga. Er það von okkar að
margar fjölskyldur noti tækifæri sem
þannig gefst til að byrja hvíldardag-
inn með því að aka/ganga saman til
ldrkju. Með slíkri kirkjugöngu getum
við eignast dýrmætar stundir með
bömunum okkar um leið og við bend-
um þeim á traustan grundvöll til að
byggja líf sitt á. Barnastarfið fer
þannig fram að allir byija saman í
kirkjunni, og þegar að predikun kem-
ur fara bömin ásamt leiðtoga sínum
upp í safnaðarheimili kirkjunnar.
Eftir messuna förum við öll saman og
gefum öndunum brauð.
Almennar guðsþjónustur - ath.
breyttur tími! Almennar guðsþjón-
ustur safnaðarins eru á sunnudögum
klukkan 11. í guðsþjónustunum er
lögð rík áhersla á fallega og góða
tónlist. Einsöngvarar í guðsþjónust-
unum eru úr kór kirkjunnar. Þessi
tímasetning á almennum guðsþjón-
ustum safnaðarins er nýbreytni og
viljum við með því gefa fjölskyldun-
um tækifæri á að sækja saman
messu, en ekki böm og fullorðnir sitt
í hvoru lagi.
Kvöldmessur. Ein af nýjungunum
í safnaðarstarfi vetrarins era kvöld-
messur. Ætlunin er að hafa þær mán-
aðarlega. Fyrsta kvöldmessan á
þessum starfsvetri var haldin 19.
ágúst síðastliðinn. Sú messa var unn-
in í samvinnu við KSS - Kristileg
skólasamtök. Veríð er að undirbúa
þær messur sem verða í september
og október. í nóvember munum við
fá gospelhóp frá herstöðinni á Kefla-
víkurflugvelli. Hann mun flytja okk-
ar svokallaða gospelmessu. Þar fáum
við að sjá hvemig þeir í Suðurríkjum
Bandaríkjanna lofa Guð í tónlist og
tali. I desember verður kvöldmessan
í anda jólanna og er hún unnin í sam-
vinnu við Æskulýðssamband
kirkjunnar í Reykjavíkurprófast-
sdæmum.
Æskulýðsstarf - fermingarstarf.
Fermingarundirbúningur bamanna
er þegar hafinn. Hófst hann með
fermingarskóla 20.-27. ágúst síðast-
liðinn. Enn bætast ný böm við og enn
geta nýir skráð sig í hópinn! Ferm-
ingarárið er mikilvægur tími í lífi
unglingsins og því brýnt að allir legg-
ist á eitt um að þessi tími verði vel
notaður og geti þannig orðið bömun-
um til varanlegrar blessunar. Ferm-
ingin er ekki og verður aldrei einka-
mál barnanna sem fermast, heldur
mál fjölskyldunnar allrar og raunar
safnaðarins í heild. Því er mikilvægt
að við sem eldri erum styðjum þau í
verki með fyrirbæn og með því að
taka ásamt þeim virkan þátt í guðs-
þjónustum og öðru starfi safnaðar-
ins. I vetur verður fermingarbömum
þessa árs og frá í fyrra boðið upp á
æskulýðssamveru. Samvera þessi
verður í samvinnu við æskulýðs- og
fermingarstarf Fríkirkjunnar í Hafn-
arfirði og Óháða safnaðarins. Sam-
veran verður sérstaklega auglýst
með bréfi til hvers og pins á þessum
aldri í söfnuðinum. Ákveðið hefur
verið að halda sérstakan æskulýðs-
dag og verður hann 11. nóvember.
Kyrrðarstundir í kapellunni. í há-
deginu á þriðjudögum í vetur er fólki
boðið til bænastunda í kapellu safn-
aðarins á annarri hæð í safnaðar-
heimilinu. Sérstök áhersla er lögð á
bæn og íhugun, en einnig flutt tónlist
og textar til íhugunar. Koma má
bænarefnum á framfæri áður en
bænastund hefst eða með því að
hringja í síma 552-7270 og fá bænar-
efnin skráð. Safnaðarprestur stýrir
bænastundunum. Að bænastund lok-
inni gefst fólki tækifæri á að setjast
niður og spjalla. Allir eru hjartanlega
velkomnir til þátttöku.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar.
Kirkjudagur
Langholts-
safnaðar
SAFNAÐARSTARFIÐ í Langholts-
kii'kju er hafið, og verður það marg-
þætt eins og fyrr. Starfið hefst með
formlegum hætti nk. sunndag, 17.
sept., með hátíðarmessu og upphafi
bamastarfs á árlegum kirkjudegi
safnaðarins. Dr. Sigurður Ámi Þórð-
arson, prestur og verkefnisstjóri á
biskupsstofu, predikar, Kór Lang-
holtskirkju syngur við hljóðfæraleik.
Eftir messuna selur kvenfélagið
kaffiveitingar í safnaðarheimilinu á
500 krónur.
Bamastarfið hefst kl. 11 í safnað-
arheimilinu, og hefur Lena Rós
Matthíasdóttir umsjón með því eins
og undanfarin ár.
Opið hús. Orgelleikur verður í
opnu húsi í hádeginu dagana 18.-22.
september frá kl. 12-12.30 og síðan
verður hægt að kaupa sér hressingu
ávæguverði.
Allir em velkomnir að líta inn.
Kórstarfið er hafið og gefst al-
menningi kostur á að mæta á opnar
kóræfingar í vikunni. Hjá kór Lang-
holtskirkju verða opnar æfingar
mánudagskvöldið 18. september og
miðvikudagskvöldið 20. september
kl. 20-22. Hjá Gradualekór Lang-
holtskirkju og kórskóla Langholts-
kirkju - eldri deild verða opnar æf-
ingar þriðjudaginn 19. september og
fimmtudaginn 21. september kl. 17-
19. Hjá kórskóla Langholtskirkju -
yngri deild - Krúttakór verður opin
æfing miðvikudaginn 20. sept. kl. 17-
18.
Auk þessara kóra starfa við Lang-
hotskirkju einnig Kammerkór Lang-
holtskirkju og Graduale Nobili sem
er nýstofnuð eldri deild úr Graduale-
kórnum og em félagar þeir sem em
17 ára og eldri í Gradualekómm og
þeir sem vaxnir em upp úr kórnum
allt að 25 ára aldri.
Opið hús verður á miðvikudögum
frá kl. 11-16. Klukkan 11-12 er krist-
in íhugun ásamt með léttri hreyfingu.
Klukkan 12-12.30 er bænagjörð í
kirkjunni með orgelleik og sálma-
söng. Eftir hana er boðið upp á súpu,
brauð og salt í safnaðarheimilinu á
500 kr. Starf eldri borgara ásamt
með föndri, lestri og söngstund fyrir
alla aldurshópa hefst kl. 13 og stend-
ur til kl. 16.
Foreldra- og ungbamamorgnar
em á fimmtudögum kl. 10-12 í sam-
starfi við Heilsuvemdarstöð Reykja-
víkur eins og undanfarin ár. Þar er
einnig söngstund og lestur.
Starf félaga s.s. kvenfélags, safn-
aðarfélags og æskulýðsfélags verður
kynnt síðar. í vetur verður einnig
boðið upp á fræðslu og námskeið, s.s.
sorgarvinnu.
Fermingarstarfið er að hefjast og
era væntanleg fermingarbörn beðin
um að mæta til skráningar þriðju-
daginn 19. sept. á milli kl. 15 og 17.
Nánari upplýsingar um starfið í
Langholtskirkju í vetur má fá í
kfrkjunni í síma 5201300.
Fríkirkjan Vegurinn: Fjölskyldu-
samkoma kl. 11. Michael Cotton
predikar. Samkoma kl. 20. Allir
hjartanlega velkomnir.
Hyálpræðisherinn. Laugardags-
skóli fyrir krakka klukkan 13.
Frábær hreyfing og fjör fyrir böm og
unglinga. Þnr hópar, 7-9 ára, 10-12 ára
og 13-16 ára. Kynntar em ýmsar íþróttir
og teikir með því markmiði að gera
hreyfingu spennandi og skemmtilega.
Fræðslu um mataræði og hreyfingu er
fléttað inní á léttan og skemmtilegan
hátt. Þeir Addi Fannar og Hebbi úr
Skítamóral ásamt kennurunum Dag-
björtu og Dögg halda uppi stuðinu í
allan vetur.
Dögg Gunnarsdóttir Dagbjört Eiríksdóttir
Karate, skautar, þolfimi, fiótbolti, partí,
skemmtífenðir, bíóferöir, tæbó, spinning
og margt fleira á þessu frábæra
námskeiði.
Hin frábæra bók Ólafe G. Sæmunds-
sonar, Lífeþróttur, er innifelin í
námskeiðsgjaldi.
Staður: Planet Pulse-Heilsuskólinn,
Skipholti soa. Tveir fastir tfmar f viku.
Skráning f síma 588 1700
Æ^Itzriicit M*tc. Is f
I C E L A N D
Miðvangur 41, Hafnarfirði
Til sölu falleg 2ja herb. 58 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi
á eftirsóttum þjónustu- og útsýnisstað. Parket á gólfum.
Árni Gunnlaugsson, hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
Opið í dag frá kl. 13.00—16.00.