Morgunblaðið - 16.09.2000, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 16.09.2000, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ FÓLKí FRÉTTUM LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000 75 Æ Morgunblaðið/Gi'ant Gee Thom York - söngvari, gítarleikari og hljómborðsleikari. Morgunblaðið/Grant Gee Ed O’Brian - gítarleikari. um forðast þetta þá finnst okkur eðli- legt að gera það. Hver hefur svo sem raunverulegan áhuga á þessu?“ Mér hefur nú alltaf fundist mynd- böndin ykkar vera stór hluti af imyndinni og því mikill hluti af hljómsveitinni. Þau skapa annan val- kost fyrir ykkur til þess að tappa af sköpunargleðinni. „Myndböndin urðu betri og betri því minna sem við komum fram í þeim. Því minna sem við þurftum að sýna á okkur andlitin eða spila á hljóðfærin okkar. Paranoid Android myndbandið var tilfelli þar sem leik- stjórinn var búinn að vera hlusta á lagið fram og tilbaka og fékk svo hugmynd að sögu. Það er allt annað en að keppast við það að láta sig líta vel út eða reyna skapa einhverja falska ímynd um það hvernig lífi þú eigir að lifa sem rokkstjarna. Þetta eru bara auglýsingar sem ljúga og það er í rauninni ekkert listrænt við þau. Það er líka annað við þau sem ónáðar mig. Þegar BMW gerir auglýsingar eyða þeir milljónum í 20 sekúndna myndbrot en hljómsveitir fá aldrei neinn verulegan fjárhag og þeirra auglýsingar eru kannski fimm mínútna langar. Og síðan er tónlistin kannski leiðinleg líka.“ Er það ástæðan fyrir því að þið er- uð a<5 gera nokkra sek- úndna klippur með sýnis- hornum úrlögunum? „Að hluta tíl, já. Thom (YorkJ gerði þær ásamt Stanley Donald, gömlum skólafélaga sínum. Þeir eru aðallega að gera hreyfimyndir úr málverk- um eftir þá og það gengur víst bara upp í um 15-20 sekúndur. Okkur finnst mun meira skapandi að gera þetta en að mæta á einhvern tökustað þar sem þú neyðist til þess að láta farða þig. Það er bara fáran- legt og ég er viss um að þér fyndist það líka. Þessar klippur eru í raun út- víkkun á plötuumslaginu. Það er í rauninni það sem við erum að gera.“ Eruð þið að reyna að vera meira w’ð stjórnvölinn en áður? „Já, ætli það ekki. Ég held að það tengist svo því að vilja ekki þurfa að sjá eftir neinu seinna. Ef við lendum í því að finnast eitthvað sem við höfum gert vandræðalegt fimm árum seinna, eða þess vegna viku seinna, vitandi að við vorum við stjórnvölinn þá er það engin spuming um hverj- um það var að kenna..“ Heldur þú að það sé mögulegt að breyta markaðslögmálunum? „Ég veit það ekki. Ég held að hefð- irnar séu mjög sterkar innan tónlist- armarkaðsins. Það er mjög íhalds- amt að vera í hljómsveit. Við tókum upp lag með Humphrey Lyttelton, djasstónlistarmanni á níræðisaldri, og hann var að lýsa því fyrir okkur hvernig það var að vera á tónleika- ferðalagi á fimmta áratugnum. Þá fór spilamennskan eins og í dag aðallega fram á klúbbum. Og við áttuðum okk- ur á því að þetta hefur verið í gangi í rúm 50 ár. Fimmtíu ár af viðtölum og ljósmyndatökum. Þannig að við erum ekki að reyna að hreyfa við neinu. Þetta er allt of fast í skorðunum og allt of hefðbundið. Maður gerir bara nokkrar góðar plötur og lætur þar við sitja.“ Önnur plata fljótlega? Þið tókuð upp fyrir þessa plötu allt uppí40 lög er það ekki? „Jú, en við kláruðum ekki nema svona 25 - 30 af þeim.“ Sem eru þá alvegfull- kláruð og tilbúin til út- gáfu? „Já.“ Ég tók einmitt eftir því á tónleikunum að þið voruð að taka 2 eða 3 ný lög sem eru ekki á Kid A „Við veltum því fyrir okkur hvort við ættum að gefa út tvöfalda plötu. En það er svo margar sveitir sem komast á þriðju eða fjórðu plötu sem fer að finnast sem þær séu sérstakar og að tónlist þeirra sé það listræn að hún verði að fylla tvöfalda plötu. Og þær trúa því virkilega að það verði ekki leiðigj- arnt. A löngum plötum beinir þú at- hygli þinni á eitt og eitt lag en ef þú gefur bara út tíu laga plötu þá er ekki hægt að hunsa lagið í miðjunni, jafn- vel þó að ekki sé sungið í því. Þegar hljómsveitir gefa út fleiri en 20 lög í „Við vorum mjög hrifnir af hversu ójarð- bundin tónlist Sigur Rósar er.“ Morgunblaðið/Grant Gee Colin Greenwood - stóri bróðir Jonny’s spilar á bassa. Morgunblaðið/Grant Gee Jonny Greenwood - ef það heyrist í því, þá spiiar hann á það. einu þá fær hlustandinn það á tilfinn- inguna að mörg laganna séu bara uppfyllingarlög þannig að hann miss- ir í rauninni af þeim. Hann neyðist ekki til þess að rannsaka hvert lag fyrir sig.“ Er það þá satt að þið ættíð að gefa út aðra snemma á næsta ári? „Fólk er alltaf að halda því fram, en við höfum ekki ákveðið hvaða lög ættu að vera á henni, hve löng hún ætti að vera eða hvenær hún ætti að koma út. Svo það er í rauninni ekki satt. Við erum þó með fullt af lögum sem okkur langar til að gefa út ein- hvernveginn, svo mikið er satt.“ Eru þessi óútgefnu lög eitthvað minna tilraunakennd en þau sem eru á KidA? „Vonandi erum við bara að nota þau hljóðfæri sem virka best hverju sinni í stað þess að hunsa einhver hljóðfæri bara af því þau eru hefð- bundin. Það er t.d. eitt lag á nýju plötunni sem heitir How To Dis- appear Completely þar sem okkur vantaði hljóðfæri til þess að spila hljómagang. Við prófuðum fullt af hljómborðum en enduðum á því að nota gítar. Við áttuðum okkur á því hve gítarinn er gott verkfæri til þess að koma hrynjanda og hljómagangi til skila þannig að við notuðum hann bara og hugsuðum ekkert meira út í það. Það hefði verið afar auðvelt fyrir okkur þar að falla í þá gildru að neita að nota gítarinn með þeim einu rök- um að notast frekar við frumlegra hljóðfæri. Maður verður bara að átta sig á því hvaða hlutir virka best við hvað. Það er eins með tölvur, sam- plera eða orgel." Það sem á best við hverju sinni Þú notast við eitthvert undratæki sem kallast Caos-pedal, er það ekki? Ég sá að þú spilaðir á það með því að renna fíngri eftir fletinum á því. „ Jú, það er bara eitthvert tæki sem ég nota á tónleikum til þess að reyna að herma eftir þeim hljóðum sem við framkölluðum í hljóðverinu með öðr- um tækjum. Maður notast bara við það sem reynist best hveiju sinni.“ Lítur þú þá frekar á þig sem „hljóðfæraleikara“ Radiohead en „gítarleikara“, aðþú spilir bara á þau hljóðfæri sem þarf að spila á hverju sinni? „Já, það er satt, en það gefur þó í skyn að ég spili vel á þau sem ég geri ekki. Ég fylgi bara þeirri hvöt sem myndast við að hafa fúllt af hljóðfær- um í kringum sig. Maður nálgast bara hvert og eitt þeirra í þeim til- gangi að reyna að ná hljóði úr því og gítarinn er einungis eitt af þessum hljóðfærum. Mér finnst mjög gaman að spila á klukkuspilið á tónleikum. Það er svo indælt hljóðfæri, það syngur svo vel og það er afar andleg upplifun að spila á það.“ Eru hinir meðlimimir jafn dugleg- ir við að flakka á milli hljóðfæra og s þú eða er þetta sérstaða þín innan ' hljómsveitarinnar? „Þegar við erum að taka upp og við teljum að lagið sé fullunnið, þá er það fullunnið. Það skiptir ekki öllu máli hvort allir meðlimimir hafi spilað á því eða ekki. Það er ekki nauðsynlegt að allir „geri það sem þeir eigi að gera“. Ef það sem flæðir út úr hátöl- urunum er flott þá er það fullnægj- andi. Fyrsta lagið á plötunni, Everyt- hing in iís right place, er bara Thom og forritaður hljómborðsleikur og það virkar." Ójarðbundin Signr Rós Segðu okkur frá því af hverju þið völduð Sigur Rós til þess að hita upp w fyrirykkur. „Við vorum bara virkilega hrifnir af plötunni og þeirri tilfinningu sem hún býr yfir. Við vorum mjög hrifnir af hversu ójarðbundin tónlist þeirra er. Mér líður eins og ég sé gegnheill þegar ég hlusta á hana, sem er mjög indælt. Jónsi hefur líka sérstaklega áhugaverðar skoðanir á tónlist og hvaða áhrif hún getur haft á mann. Mjög ástríðufullar og athyglisverðar skoðanir." Fiimst þér tónlist þeirra eitthvað svipa tiiykkar? „Nei, þeir eru frekar eins og mun betri útgáfa af hljómsveitum sem ég hlustaði á þegar ég var í háskólanum. Hljómsveitir eins og Slowdive, nema, eins og ég sagði, mun betri. Mun betri söngur með mun fallegri meló- díum. Auk þess sem það eru afbragðs strengjaútsetningar á plötunni. Mig dauðlangar til þess að sjá þá spila á tónleikum með strengjakvartett." Hvað hefur þú náð að sjá marga af þessum femum tónleikum sem þeir hafanú leikið á meðykkur? „Ég hef séð þrenna af tónleikun- um. Eg hef samt alltaf misst af fyrstu 10 mínútunum þeirra, en það ætti bara að vera rétt rúmlega eitt lag eða svo.“ Thom York söng nýlega dúett með Björk, hefur þú heyrt það? „Já, ég hef heyrt það einu sinni í útvarpinu." Og hvemig fannst þér? „Ég veit það ekki alveg. Ég þyrfti að fá að heyra það aftur. Eg er vana- lega ekkert það hrifinn af sinfóníuút- setningum. Þetta er náttúrulega kvikmyndatónlist. Ég væri alveg til í að komast í þessi hljóðfæri en ég ef- ast um að ég myndi nota þau á þenn- an hátt svo ég er í rauninni ekki dóm- bær.“ Að lokum kemur þessi týpíska spurning. Á ekkert að fara að koma úl íslands að spila? „Við vorum einhverntímann beðn- ir um að spila á íslandi ásamt Björk, < • fyrir löngu síðan. Ég bara veit það ekki. Við erum í rauninni hættir að taka langtíma ákvarðanir. Eftir að við klárum þessa tónleikaferð í næsta mánuði er ekkert á dagskránni og við höfum ekkert á prjónunum. Þá ætl- um við bara að gefa okkur tíma til þess að hugsa okkur um í smástund, hvað við viljum gera næst. Vanalega höfum við haft það stranga tímaáætl- un að við höfum vitað upp á dag hvað við verðum að gera eftir eitt ár. En við ákváðum að hætta að skipuleggja hlutina til langs tíma.“ Erþetta tilraun til þess að fá meiri ánægju úr því sem þið emð að gera ? „Já, en bara út af því að það þýðir að við munum spila meira, semja meira og taka upp meira. Við höfum mest gaman af því. Það er ekki það að við séum að reyna aðnjóta frítím- ans betur til þess að slaka almenni- lega á. Því það sem við gerum er í rauninni ekki vinna.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.