Morgunblaðið - 16.09.2000, Side 76
76 LAUGAKDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
tmmmm
Gn»Lnuin:fr
Allir
velkomnir
„ÞJÓÐAREIGNIN verður sextug" segir
Hemmi Gunn og er að tala um að sjálfur Ómar
Ragnarsson á afmæli í dag. Að því tilefni
verðu haldið tvöfalt afmæli fyrir þennan mikla
heiðursmann á skemmtistaðnum Broadway á
morgun, sunnudag.
„Ómar ætlaði ekki að halda upp á þetta en
það var auðvitað tekið fram fyrir hendurnar á
honum,“ segir Hemmi. „Á morgun tekur hann
því á móti öllum sem kæra sig um að heiðra
þennan ljúfling og listamann milli klukkan 14
og 16 og á þeirri fallegu samverustund verður
boðið upp á te og tertur. Það er óskandi að
sem flestir sjái ástæðu til á heilsa upp á hann.“
- Allir Islendingarþess vegna?
„Já, já, Ómar er þjóðareign og það ber að
líta á hann sem slíkan. Það eru allir velkomn-
ir.“
Margir eiga honum
margt að þakka
„Síðan um kvöldið heldur Broadway stór-
skemmtun til heiðurs snillingnum og þá stíga
vinir og velunnarar á svið í verulega vandaðri
dagskrá. Meðal atriða má nefna hljómsveit
Gunnars Þórðarsonar, Rúnar Júl. úr Hljóm-
um, Sumargleðina og Ragga Bjama, Diddú og
Bergþór Pálsson, Karlakór Reykjavíkur og
Bubba Morthens. Þetta verður fyrir hlé en eft-
ir hlé mun þessi mikli gleðigjafi sjálfur trylla
fólkið. Skemmtunin sjálf hefst kl. 21.30, hún er
á vægu verði og við vonumst til að sjá sem
allra flesta því þetta verður stórskemmtun í
hæsta gæðaflokki."
- Fékkstþú þessa hugmynd?
„Já, mér fannst alveg ófært að hann væri
sjálfur að hamast á afmælisdaginn sinn,“ út-
skýrir Hemmi. „Það eru svo margir sem eiga
honum mikið að þakka. Hann hefur verið hálf-
gerður fóstri minn í áratugi og mér fínnst tími
til kominn að hann sé metinn að verðleikum.
Það er enginn listamaður sem hefur gefíð
þjóðinni jafnmikið og hann held ég. Hann er
búinn að standa á sviði í yfir fjörutíu ár auk
þess að gera sjónvarpsþættina sína sem eru á
heimsmælikvarða og allir þekkja. Já, það er
svo sannarlega kominn tími til að heiðra
hann.“
- Var auðvelt að fá fólk ílið með þér?
„Já, það þarf eiginlega að halda aftur að
fólki. Það eru allir boðnir og búnir að taka
þátt. Menn hafa jú verið verðlaunaðir af minna
tilefni en þessu," segir Hemmi Gunn að sönnu.
Ómar með Frúnni frægu.
Sotheby’s býður upp Hendrix-jakka
Tíu dala
kvenjakki
JAKKI nokkur, sem rokkgoðsögnin
Jimi Hendrix átti, er nú til sýnis í
Hard Rock Cafe-veitingastaðnum í
Covent Garden í London. Þessi
austurlenski jakki verður boðinn
upp á þriðjudaginn sem „stjörnu-
hluturinn" á rokkuppboði hjá
Sotheby’s.
Búist er við að boð muni
streyma frá söfnurum um allan
heim. Seinasta ár var Gallotine
„Champion" gítarinn hans John
Lennon á uppboðinu og seldist
hann fyrir um tæpar 28 milljónir
króna. Græni silkijakkinn sem er
með litríkum prentunum af drekum,
trjám og blómum verður seldur ás-
amt mynd af Jimi og bréfi sem sann-
ar að þetta sé rétti jakkinn, undirrit-
að af vinkonu hans Judith Vernon,
en gítaristinn gaf henni jakkann árið
1967. Hann er seldur fyi-ir hönd
einkasafnara og er metinn á um
þrjár og hálfa milljón króna.
Sotheby’s segir það sérstaklega
gott við jakkann að til eru margar
myndir af Jimi í jakkanum sem á sín-
um tlma var hannaður fyrir konu og
kostaði þá tíu dollara, eða tæpar þús-
und krónur.
Fleiri Hendrix-hlutir verða á upp-
boðinu, þ.á m dagskrá að Jimi
Hendrix Experience-tónleikunum í
Róm með eiginhandaráritun goðs-
ins, sem mun líklega fara á um 350
þúsund krónur.
Einnig kynningarsnepill að tón-
leikum í Lancashire að andvirði um
15 til 20 þúsund króna.
Uppboðið á jakkanum er bara ein
af mörgun uppákomum sem haldnar
eru til að minnast þess að 30 ár eru
liðin frá dauða gítaristans goðsagna-
kennda sem lést af ofneysla eitur;
lyfja þegar hann var 27 ára gamall. í
rauninni stóð frami hans einungis yf-
ir í fjögur ár, eða frá því að hann kom
til London árið 1966 og þar til hann
dó árið 1970.
Boston’s Museum of Fine Arts
ætlar að hengja upp
Gibson Flying V-gítarinn hans frá
1967 sem er með hippalegu blóma-
mynstri á sem Jimi hannaði sjálfur.
Fjögur geisladiskabox hafa verið
gefin út og sérstök sýning helguð
gítaristanum er hafin í Rokk- og
frægðarsafninu í Cleveland.