Morgunblaðið - 19.09.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 19.09.2000, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Utlit fyrir taplausan rekstur á þessu ári Eindrægni einkenndi kjaramálaráðstefnu Kennarasambands fslands RÚV rekið með 61,6 milljóna kr. tapi á síðasta ári Fjöltnargir kennarar sóttu fundinn á laugardag. Arangurstengt launa- kerfi ekki lausnin RÍKISÚTVARPIÐ var rekið með 61,6 milljóna króna tapi á síðasta ári. Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri RÚV, segir að stefnt sé að því að tap- rekstur verði ekki á stofnuninni á þessu ári. „Það er ekkert sem bendir til þess að tap verði á rekstrinum á þessu ári og stefnt er á núllið. Við ágústlok benti ekkert til annars en að reksturinn verði í jafnvægi eins og fjárhagsáætlun segir til um. Við erum að vinna núna að gerð áætlana um rekstur næsta árs,“ sagði Hörð- ur. Hann sagði að tap síðasta árs gengi út yfir eigið fé stofnunarinnar og það lækkaði sem tapinu næmi. Eigið fé RÚV er um 950 milljónir króna. Hörður segir að lítillega hafi tekist að auka tekjm- RÚV á þessu ári. Lítilsháttar tekjuaukning hafi orðið vegna fjölgunar þeirra sem af- notagjöld greiða. Einnig hafi auglýs- ingatekjur aukist lítillega. Lítil breyting er á sértekjum stofnunar- innar. Stefnt er að því að áætlun fyrir næsta ár liggi fjTÍr í lok þessa mán- aðar. í samtali við Morgunblaðið sl. sunnudag sagði Gunnlaugur Sævai’ Gunnlaugsson, formaður útvarps- ráðs, að stofnunin hefði verið rekin með tapi og þær áætlanir sem hafa verið kynntar fyrir næsta ár bendi til áframhaldandi taps. ÁRANGURSTENGT launakerfi er ekki lausnin á vanda skólans, að mati Arthurs Jarmans, eins af for- svarsmönnum ensku kennarasam- takanna (NUT), en hann var sér- stakur gestur kjaramálaráðstefnu Kennarasambands íslands sem haldin var á Grand hóteli í Reykja- vík á laugardag. Sagði Jarman að slíkt kerfi hefði í fór með sér illkynja samkeppni milli kennara sem hefði síður en svo góð áhrif á skólastarf. Kennarar fjölmenntu á ráðstefn- una á laugardag en samningar þeirra eru lausir nú í haust. Mikil eindrægni einkenndi ráðstefnuna en fram kom í máli forystumanna kenn- arasamtakanna að þeir teldu kenn- arastarfið ekki hafa verið metið að verðleikum undanfarin ár og að óhjákvæmilegt væri að kjör kennara yrðu bætt verulega, m.a. vegna þess að það væri í raun hagur alls þjóðfé- lagsins. Jarman ræddi á ráðstefnunni um tilkomu ái-angurstengds launakerfis í Englandi og varpaði hann fram þeirri spurningu hvort lausnin á vanda skólans væri þar fundin. „Svarið er nei. Það er ekki svarið, það er ekki lausnin," sagði Jarman afdráttarlaust. Ekkert hefði valdið eins mikilli sundrungu meðal kenn- ara í Bretlandi og nýtt launakerfi, sem ríkisstjóm Tonys Blairs hefði reynt að koma á fót. Staðreyndin væri sú að einkunnir nemenda byggðust á fleiru en frammistöðu kennarans einni og sér. Nefndi Jarman þar t.d. bakgrunn nemenda og heimilisaðstæður þeirra en nú væri svo komið að hópi kenn- ara væri neitað um aukagreiðslur af því að nemendur þeirra mældust ekki nægilega háir í prófunum, og kennararnir teldust þar af leiðandi ekki hafa staðið sig nógu vel. Samkeppni af þessum toga taldi Jarman ekki af hinu góða, það sem gerðist í kennslustofu væri nefnilega að upplagi annars vegar samstarfs- verkefni kennara innbyrðis, og kennara og nemenda hins vegar. Rannsóknir sýndu heldur ekki fram á að þetta launakerfi væri tO bóta, nema síður væri. Jónína Benediktsdóttir, forstjóri Planet Esju heilsulindar, mæltist til þess í erindi sínu að kennarastarfið yrði hafið til vegs og virðingar. Sagði hún að kennarar ættu skilyrðislaust að fá sanngjarnt endurgjald fyrir vinnu sína, ófært væri að manneskja sem væri treyst fyrir framtíð barna landsmanna hefði verri laun en t.d. Réttað í Gljúfur- árrétt RÉTTAÐ var í Gljúfurárrétt í Grýtubakkahreppi sl. laugardag. Alls voru um 6-7 þúsund fjár í rétt- inni að þessu sinni en eins og ann- ars staðar á landinu, hefur sauðfé verið að fækka í Grýtubakka- hreppi á undanförnum árum og á eftir að fækka enn. Smalað var á Látraströnd og í Fjörðum og stóðu lengstu göngurnar yfir f þrjá daga. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Gljúfurárrétt og tóku ungir sem aldnir virkan þátt f réttar- störfunum. I úrtíningnum vakti lambhrútur nokkur töluverða at- hygli en hann var með fjögur horn. Morgunblaðið/Kristjári kona sem réði sig í handklæðaþvott á líkamsræktarstöð. Sagði Jónína að ráðamenn ræddu mikið um einsetningu skóla og mikil- vægi þess að allir skólar hefðu góðan tölvukost. Tölvur þurrkuðu hins vegar ekki hor úr nefi lítils barns, eða hygðu að mannlegum þætti skólastarfsins að öðru leyti. Hvatti hún kennara einnig til að hugleiða betur fjölgun einkaskóla. Gunnar Kvaran sellóleikari, sem jafnframt er deildarstjóri strengja- deildar Tónlistarskólans í Reykja- vík, ræddi um gildi hefðbundins tónlistarnáms og sagði hann að nær undantekningarlaust styrkti það allt annað nám. Gunnar vakti athygli á því að tón- listarkennarar hefðu yfir 20% lægri laun en grunnskólakennarar. Þeir hlypu hins vegar ekki í önnur störf vegna launanna því tónlistina iðkuðu þeir af hugsjón, ástríðu og hefðu oft margra ára sérnám á bakinu. „En nú er mælirinn fullur. Við verðum að vakna og krefjast eðlilegra launa fyrir störf okkar,“ sagði Gunnar. Dásemdir tækninnar leysa kennarann ekki af hólmi Ásta Möller alþingismaður gerði kennurum grein fyrir því hvernig hjúkrunarfræðingar hefðu á sínum tíma farið að því að fá kjör sín bætt, en Ásta var áður formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Fór hún tíu ár aftur í tímann og rakti hvernig hjúkrunarfræðingar, sem áður störfuðu í tveimur fagfélögum, hefðu tekið höndum saman og farið að leggja aukna áherslu á fagleg mál- efni og breytta ímynd stéttarinnar, auk þess sem þeir hefðu hugsað samningatækni sína upp á nýtt. Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, sagði menn slegna blindu af tæknifram- förum síðustu ára, og það endur- speglaðist ekki síst í sjónarmiðum ráðamanna. Dásemdir tækninnar kæmu hins vegar ekki til með að leysa kennarann af hólmi. Var það mat Tryggva að einungis hefðbund- in skólamenntun væri til þess fallin að efla börnum víðsýni og almennan þroska. Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla íslands, gerði fjárframlög til-skólamála að umtalsefni. Reyndi hann að sýna fram á að framlög til íslenska menntakerfisins væru alls ekki sambærileg og í nágrannalönd- unum, fæm lykju skólagöngu hér en í öðrum OECD-löndum, launakjör kennara væru lakari, minna fé væri varið til rannsókna og þróunar, námsstyrkir væru varla fyrir hendi hér á landi og háskólamenntun væri ekki heldur af sama gæðastuðli. Grundvallarendurmat á starfi kennara nauðsynlegi; Á ráðstefnunni sagði Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, m.a. að bylt- ingar væri þörf í launamálum kenn- ara ætti skólastarf á Islandi að geta þrifist með eðlilegum hætti til fram- búðar. Ástandið í ráðningarmálum eitt og sér væri næg sönnun þess að staðan væri óviðunandi. Ríkið yrði að sýna meiri metnað, stjórnmála- menn yrðu að hafa kjark til að breyta áherslum í úthlutun fjár- magns svo skólinn yrði samkeppnis- fær í baráttunni um vinnuaflið. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formað- ur Félags grunnskólakennara, sagð- ist iðulega svara því þannig, þegar hún væri spurð hvort til verkfalls kennara kæmi í haust, að hún vonaði ekki. Hún væri að vísu sannfærð um að slíkt yrði samþykkt í allsherjar- atkvæðagreiðslu og benti á að kenn- arar ættu digran vinnudeilusjóð sem gæti haldið þeim lengi í verkfalli. „Neyðist grunnskólakennarar í verkfall er enginn vafi í mínum huga hvers vegna,“ sagði Guðrún Ebba því næst. Var hún þar að vísa til löngunar fulltrúa í launanefnd sveit- arfélaga, sem hún sagði að mætti jafna við þráhyggju, til að breyta vinnutímanum með það að yfirlýstu markmiði að ná meiri kennslu út úr kennurum og afnema kennsluaf- sláttinn. Kennarar gætu að vísu alveg hugsað sér breytingar á vinnutíma- skilgreiningunni en það væri ekki allt til sölu. „Og því fyrr sem full- trúar í samninganefnd Launanefnd- ar sveitarfélaga gera sér grein fyrir þeirri staðreynd þeim mun árang- ursríkari verða viðræðurnar." Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara og varaformaður KÍ, sagði að í hreint óefni stefndi ef ekkert væri að gert. Sagði hún ábyrgð yfirvalda mikla. Borga þyrfti kennurum sómasamleg laun og hér dygðu engir smáaurar, alltof lág kennaralaun stefndu virð- ingu skólastarfsins og námi nem- enda í hættu. Sagði hún að grund- vallarendurmat á starfi kennara þyrfti að fara fram.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.