Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Ráðstefna um menningartengda ferðaþjdnustu var haldin á Hólum á laugardag. Á myndinni standa (f.v.) Szilvia Gyimóthy, Anna Maria Di Giovanni, Michael Quinlan, Rögnvaldur Guðmundsson fundarstjóri og Magnús Jóns- son, sveitarstjóri á Skagaströnd. Upp skal á kjöl klífa - ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu Menning er byggðamál UPP skal á kjöl klífa, ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu, var haldin á Hólum í Hjaltadal sl. laugardag en ráðstefnan er á dag- skrá Reykjavíkur - menningar- borgar. Ráðstefnan tengist Evrópuverkefninu Guide 2000 en markmið þess er að efla menning- artengda ferðaþjónustu með sér- stakri þjálfun starfsfólks. Auk ís- lands taka þátt í verkefninu Danmörk, Irland og Italia en ís- land stjórnar verkefninu. Rann- sókn og ráðgjöf ferðaþjónustunnar hefur umsjón með verkefninu hér á landi en Iðnþróunarfélag Norð- urlands vestra er samningsaðili hér á landi. Rögnvaldur Guðmundsson verk- efnisstjóri sagði að mikil aukning væri á komu erlendra ferðamanna hingað til Iands og í ár stefnir í að erlendir gestir verði um 300 þús- und. „Ef fram fer sem horfir verð- ur fjöldi erlendra ferðamanna orð- inn ein milljón innan 15 ára. Það er ljóst að erfítt verður að mæta þess- um mikla fjölda eingöngu með náttúrutengdri ferðaþjónustu og því er mikilvægt að efla náttúru- tengda ferðaþjónustu. Verklok á næsta ári Rögnvaldur kynnti markmið verkefnisins en þau eru að flokka og skrá menningarauðlindir sem nýst geta við nýsköpun í ferðaþjón- ustu, útbúa fræðsluefni og nám- skeið í þróun menningarferðaþjón- ustu og loks að gera niðurstöðum verkefnisins skil á heimasíðu á Netinu. Vinna við verkefnið er langt komin en áætluð verklok eru snemma á næsta ári. Rögnvaldur sagði að verkefni sem þetta hefði ýmis jákvæð áhrif önnur en bein markmið verkefnis- ins sjálfs. „Auk markmiða verkefn- isins sjálfs hafa í tengslum við það verið settar upp sýningar, mikil skráningarvinna hefur verið unnin, ráðstefnan hér á Hólum, rannsókn- ir í ferðamálum og ýmsar hug- myndir hafa vaknað að menningar- tengdri ferðaþjónustu. Höfuðatriði er að ekki sé tjaldað til einnar næt- ur og að verkefnið sé þannig unnið að niðurstöður þess komi til með að nýtast áfram eftir að verkefninu sjálfu lýkur formlega. Fulltrúar samstarfslanda íslands í verkefninu, þau Michael Quinlan frá Limerick, Irlandi, Szilvia Gyim- óthy frá Bornholm, Danmörku og Anna Maria Di Giovanni frá Bari á Itali'u kynntu hvernig unnið er að því að byggja upp menningar- tengda ferðaþjónustu á stöðunum með það að markmiði að efla fcrðamannaiðnaðinn. Vaxtarbroddur í ferðaþjónustu Guðrún Helgadóttir, starfsmað- ur Byggðastofnunar og Hólaskóla, sagði í erindi sínu að menning væri byggðamál og kanna þyrfti betur gildi hennar sem atvinnugreinar. Hún sagði jafnframt að menning- artengd ferðaþjónusta væri einn helsti vaxtarbroddur ferðaþjónustu á Islandi og því væri ljóst að menn- ing og ferðaþjónusta ætti mikla samleið. „Fjármagn til menningar eru styrkir til ákveðinnar grunnþjón- ustu sem ferðaþjónustan getur síð- an reitt sig á. Þrátt fyrir að menn- ingaratburðirnir sjálfir séu ekki að skila hagnaði þá eru margfeldis- áhrifin mikil og öll þjónusta í kring nýtur góðs af menningunni. Skúli Helgason fjallaði um sam- starf Reykjavíkur - menningar- borgar og sveitarfélaga víðs vegar um landið en Skúli sagði að sam- starfið hafi verið ákaflega árang- ursríkt. Þijátíu sveitarfélög voru með atriði á dagskrá menningar- borgarinnar og flest endurspegl- uðu þessi verkefni náttúru og menningu heimamanna. Skúli sagði að 68.000 manns hefðu sótt þau 25 atriði sem lokið er og velta þeirra verið 75-80 milljónir króna. „Ég tel æskilegt að reynsla þessa verkefnis verði skoðuð til að efla menningu á landsbyggðinni. Það er nauðsynlegt að virkja frum- kvæði heimamanna því þeir þekkja betur möguleikana sem fyrir hendi eru hvort sem er í náttúru eða menningu. Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarsljóri ferðamannabrautar Hólaskóla, fjallaði um aukinn áhuga ferðamanna á menningu og hvað hefði verið gert á svæðinu til að efla þessa þjónustu. Gudrun Kloes, ferðaþjónustubóndi á Brekkulæk, fjallaði um möguleika menningartengdrar ferðaþjónustu í íslenskum sveitum að vetri og Sigr/ður Sigurðardóttir, for- stöðumaður Byggðasafns Skagfirð- inga, fjallaði um starfsemi safna og þýðingu þeirra fyrir ferðaþjónustu. Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmað- ur og framkvæmdarsfjóri Þjóð- lagahátíðar á Sigluflrði, fjallaði um ferðaþjónstu á listrænum nótum. Að lokum var haldið í hestaréttir í Staðarrétt þar sem Þorsteinn Broddason, framkvæmdastjóri Hestamiðstöðvar Islands, kynnti starfsemi miðstöðvarinnar. Gagnagrunnur mennta- málaráðuneytis mikilvægur þáttur Á FUNDI fulltrúa úr samninganefnd Félags framhaldsskólakennara með fjármálaráðherra í byrjun síðustu viku kom meðal annars fram að kenn- arar líta til vinnu í menntamálaráðu- neytinu við gerð gagnagrunns um starf kennara sem mikilvægs þáttar sem gæti skipt máli í kjarasamning- um. Menntamálaráðuneytið hefur unnið að uppbyggingu gagnagrunns- ins þar sem er að fínna mikilvægar talnalegar upplýsingar. Á fundininn með fjármálaráðherra var einnig, að sögn Elnu Katrínar Jónsdóttur, for- manns Félags framhaldsskólakenn- ara, farið ítarlega yfir sjónarmið fé- lagsins. „Við verðum vör við aukinn áhuga í menntamálaráðuneytinu á málum sem tengjast kjarasamningum sem birtist meðal annars í því að þarna er verið að vinna við uppbyggingu gagnagrunns sem ég álít að samn- ingsaðilar geti haft mikið gagn af,“ sagði Elna Katrín. „Við eigum gott samstarf við menntamálaráðuneytið um faglega stefnumörkun og um þennan gagna- grunn sem við teljum að geti nýst prýðilega við að skoða ýmsar stærðir í kjarasamningum," sagði Katrín Elna. Eftir fundinn með fjáramálaráð- herra var óskað eftir samningafundi af þeirra hálfu. Elna Katrín segir þó að ekkert nýtt hafi komið fram og framhaldsskólakennarar sakni efnis- legrar viðræðu um meginatriðin. Við- brögð hafi verið lítil og samningavið- ræður gengið treglega hvað innihaldið varðar. Viðræðuáætlun var undirrituð 30. júní sl. Framhaldsskólasamningamir renna út 31. október nk. en þetta eru samningar sem varða kennara, náms- ráðgjafa og skólastjómendur í fram- haldsskólum að frátöldum skóla- meistumm. Samkvæmt viðræðu- áætluninni er gert ráð fyrir að það verði skoðað 2. október nk. hvort ástæða sé til að vísa málinu til ríkis- sáttasemjara. Lára Margrét Ragnarsdóttir í sér- legri sendinefnd Evrópuráðsþingsins Kannar stöðu mannréttinda- mála í Tsjetsjníu LÁRA Margrét Ragnarsdóttir al- þingismaður tekur þátt í för sérlegr- ar sendinefndar Evrópuráðsþingsins til Moskvu og Norður-Kákasushér- aðsins dagana 18. til 22. september. Fyrr á árinu var Lára Margrét til- nefnd í sendinefndina sem einn þriggja fulltrúa stjómmálanefndar Evrópuráðsþingsins, en hún er jafn- framt einn varaforseta þingsins. Er þetta í annað sinn sem hin sér- lega sendinefnd Evrópuráðsþingsins heldur til Rússlands vegna átakanna í Tsjetsjníu með það að markmiði að ræða við þarlend stjórnvöld og afla gagna um ástand mannréttindamála. Munu niðurstöður farar sendinefnd- arinnar liggja til grundvallar um- ræðu Evrópuráðsþingsins síðar í september um áframhaldandi aðild Rússlands að Evrópuráðinu, að því er segir í frétt frá Alþingi. Þar kemur fram að tilgangur far- arinnar sé fyrst og fremst að afla gagna um ástand mannréttindamála í tengslum við átökin í Tsjetsjníu, en Evrópuráðsþingið samþykkti til- mæli um þau á fundi í Strassborg í upphafi árs. Þar var meðal annars farið fram á að almenn mannréttindi yrðu virt á svæðinu, að tafarlaust yrði bundinn endi á árásir rússneska hersins gegn saklausum borgurum og að fjölmiðlum og hjálparsamtök- um yrði veittur óheftur aðgangur að svæðinu. Á fundi Evrópuráðsþingsins í apr- íl var samþykkt að mæla með því við ráðherranefnd Evrópuráðsins að hafinn yrði undirbúningur að brott- vísun Rússlands úr Evrópuráðinu ef mannréttindaumbætur í Tsjetsjníu yrðu ekki greindar hið fyrsta. Á fundi Evrópuráðsþingsins dagana 26. til 30. júní var því fagnað að rúss- nesk stjómvöld hefðu sýnt veruleg merki um umbótavilja en raunveru- legar umbætur þóttu þó engan veg- inn nægjanlegar til að draga til baka fyrri tilmæli þingsins. f frétt Alþingis segir að gert hafi verið ráð fyrir að sendinefndin yrði í Tsjetsjníu í gær og í dag og myndi hún þar meðal annars eiga fund með sérlegum mannréttindafulltrúa for- seta Rússlands í héraðinu. Niður- stöður sendinefndarinnar verða ræddar á haustþingi Evrópuráðsins í Strassborg dagana 25. til 29. septem- ber. Athugasemd frá veður stofustj óra EFTIRFARANDI athugasemd hefur borist Morgunblaðinu frá Magnúsi Jónssyni veðurstofu- stjóra: „Vegna ummæla formanns út- varpsráðs, Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, í Mbl. sl. sunnu- dag þess efnis að „veðurfréttir séu ekki fréttir heldur veðurlýsing og spá“ vill undirritaður taka eftirfar- andi fram: 1. Líklega er ekkert eitt efni oft- ar í fréttum en veður nema ef vera skyldi fréttir af efnahagsmálum í breiðri merkingu þess orðs. 2. Sjaldan hafa rökþrotin orðið hlægilegri en að halda því fram að eitthvað sé ekki frétt vegna þess að það sé lýsing og spá. Hvað með ástand og horfur í efnahagsmálum, stöðu og spár um gengi hlutabréfa, verðbólgu, ástand fiskistofna og spár um þróun þeirra eða ástand og horfur í þróun ok'uverðs á heimsmarkaði, svo fátt eitt sé nefnt, sem er algengt fréttaefni? Stór hluti af fréttum almennt eru einmitt „spáfréttir" þ.e. fréttir af einhverju sem ekki hefur enn átt sér stað en er spáð að geti gerst. 3. í nærri þrjátíu ár voru veður- fregnir hluti af fréttum í Sjónvarp- inu og eru það raunar enn í 10- fréttum þess. Er það álit formanns útvarpsráðs að Sjónvarpið hafi flutt fréttir af efni sem ekki er frétt allan þennan tíma? Ljótt, ef satt væri. 4. Vonandi eru til haldbærari rök fyi-ir kostun veðui-fregna en þau sem sáust í áðurnefndu viðtali við formann útvarpsráðs." Morgunblaðið/Arnór Tvær bifreiðar rákust saman á grænu ljósi HARÐUR árekstur varð á milli jeppa og fólksbíls á mótum Lækjar- götu og Reykjanesbrautar upp úr kl. 20 á sunnudagskvöld. Fólksbíllinn var á leið yfir Reykjanesbraut í stefnu suður Lækjargötu en jeppanum var beygt af Lækjargötu til vinstri inn á Reykjanesbraut og voru báðir bíl- arnir á grænu ljósi þegar þeir skullu saman. Sjúkrabíll flutti fjóra á sjúkrahús en meiðsli reyndust minniháttar. Bílarnir eru hins vegar mikið skemmdir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.