Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 24

Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Fimm sveitarfélög í samstarf með Landvernd í langtíma umhverfisátaki Fjölskyldum býðst að til- einka sér vistvænan lífsstíl Fimm sveitarfélög hafa ákveðið að ganga í sam- starf með Landvernd 1 langtíma umhverfisátakinu Vistvernd í verki. Hrönn Indriðadóttir komst að því að í Reykjavík verður fyrst í stað lögð áhersla á þrjú hverfí; Kjalarnes, Grafarvog og Breiðholt, en öllum er þó heimilt að skrá sig. Morgunblaðið/Golli Forsvarsmenn Reykjavikurborgar og Landvemdar vora í gær með kynningarfund á verkefninu Vistvernd í verki í höfuðborginni. VERKEFNIÐ Vistvernd í verki snýst um hvernig kenna má fólki, með ýmsum einföldum breytingum í daglegu lífi, að gera lífsstíl sinn vistvænni án þess að draga úr lífs- gæðum. Verkefnið er hluti af GAP-verk- efninu „Global Action Plan“ sem á rætur að rekja til alþjóðlegs sam- starfs sem hófst árið 1989 en það hefur nú náð fótfestu í fimmtán ríkjum. Hér á Islandi hefur Landvernd, Landgræðslu- og náttúruverndar- samtök Islands, umsjón með verk- efninu og nú hafa fimm sveitarfélög ákveðið að vera í samstarfi en það era Reykjavík, Akureyri, Reykja- nes, Hafnarfjörður og Hveragerði. „Þessi sveitarfélög leggja okkur fjárhagslega lið til að halda utan um verkefnið, þau hjálpa við mark- aðssetningu og tilnefna staðbund- inn stjórnanda sem á að fylgja verkefninu eftir. Hann mun meðal annars sjá um að vera í sambandi við leiðbeinendur sem era yfir hverjum visthópi," segir Ti-yggvi Felixson, framkvæmdastjóri Land- vemdar. „í Reykjavík verður fyrst í stað lögð áhersla á þrjú hverfi; Kjalarnes, Grafarvog og Breiðholt. Öllum er engu að síður heimilt að skrá sig en við verðum með sér- staka aðstöðu í þessum hverfum. Þá mun verkefnið verða auglýst í þessum þremur hverfum.“ Að sögn Tryggva snýst verkefn- ið ekki um miklar fórnir heldur val um hvernig megi leggja grunn að nýjum venjum og stuðla jafnframt að betra umhverfi. Sérstök handbók gefin út Hér á landi byrjaði Iðntækni- stofnun að leggja grann að verk- efninu fyrir nokkrum áram. „Einn af frumkvöðlum verkefnisins, Jón Jóel Einarsson, hafði frétt af þessu í Svíþjóð og í framhaldi af því var stpfnaður lítill visthópur.“ í fyrrahaust vora 18 fjölskyldur hluti af þróunarverkefninu hér heima og þá var lagður grunnur að handbókinni „Handbók um vist- vernd í verki“, en ritstjóri hennar er Þuríður Þorbjarnardóttir líf- fræðingur. „Bókin er ekki seld í verslunum heldur er hún hluti af námskeiðinu. Búið er að gefa út svo margar bæk- ur um umhverfismál og þær liggja öragglega flestar lítið lesnar uppi í hillum. Við viljum að fólk ákveði fyrst að taka þátt í verkefninu og kaupi síðan bókina. Þá sest það nið- ur ásamt fólki sem hefur áhuga á því sama og veltir umhverfismálun- um fyrir sér. Þannig verður þetta miklu árangursríkara, en þess má geta að félagslegt afl er stór þáttur í verkefninu." Umhverfismat heimilisins Fimm til átta fjölskyldur mynda einn visthóp og hittast sjö sinnum á tveggja mánaða tímabili. Þátttak- endur nota handbókina og þeim er kennt hvernig koma má á vistvænu heimilishaldi. „I fyrsta tímanum er námskeiðið skipulagt í heild og dreift svokölluðum mælingablöð- um sem nefnast Umhverfismat heimilisins, þar sem hver fjöl- skylda metur stöðuna á heimili sínu Rekstur heimilisins breyttist Otrúlegt magn umbúða eftir eina búðarferð RANNVEIG Anna Jónsdóttir, sjálfstætt starfandi menningar- fræðingur, og eiginmaður hennar Þorvaldur Halldór Gunnarsson, forstöðumaður Sjóminjasafns Eyr- arbakka, tóku þátt í verkefninu Vistvemd í verki fyrr á þessu ári. „Einskær áhugi hvatti okkur til að taka þátt í verkefninu en við höfum bæði mikinn áhuga á um- hverfismálum,“ segir Rannveig Anna. „Okkur langaði til að Ieggja okkar af mörkum og fóram yfir- leitt bæði á fundina.“ Það sem kom þeim hjónum mest á óvart var hve lífrænn úrgangur er stór hluti sorpsins. Þá kom það þeim líka á óvart hve bflar eyða miklu þegar þeir eru kaldir. Til eru sérstakir hitarar sem eru sett- ir í rafmagn sem borgar sig að kaupa að þeirra mati en þeir hita Haustvörurnar komnar '&bG& Verðdæmi: Jakkar frá kr. 4.900 Stuttir jakkar frá kr. 5.900 Pils frá kr. 2.900 Buxur frá kr. 1.690 Bolir frá kr. 1.500 Stuttbuxur frá kr. 2.500 Kvartbuxur frá kr. 1.900 Pils - Kjólar Alltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Fjölskyldan Rannveig Anna, Þorvaldur Halldór og dæturnar Halldóra Guðlaug og Hallgerður Freyja í kartöflugarðinum sínum en þar er enginn tilbúinn áburður notaður. bflinn og vélina upp. „Fyrsta vikan fór í að vigta allt rusl og það var síðan gert aftur í lok námskeiðsins. Þá kom í ljós mikill munur, mig minnir að það hafi munað 15 kílóum á viku hjá okkur. Það var gott að hafa töl- uraar beint fyrir framan sig en þær koma fólki í skilning um hversu mikið við íþyngjum náttúr- unni og um leið hve mikið við get- um lagt af mörkum til að létta á henni. Þetta geta allir gert. Þá mældum við einnig hvað við notuðum íbensín, rafmagn, hita og vatn svo dæmi séu tekin.“ Á næstu fimm fundum var síðan eitt sérstakt málefni tekið fyrir í hverri viku en umfjöllunarefnin voru sorp, orka, samgöngur, inn- kaup og vatn. Reynum að vera ekki lengi í sturtu Heimilisreksturinn hefur breyst þó nokkuð eftir þátttökuna að sögn Rannveigar Onnu. „Við flokkuðum reyndar ávallt fernur, gler og pappír áður og höfum gert það frá því að við hófum sambúð. Nú erum við einnig meðal ann- ars farin að flokka lífrænan úr- gang, spilliefni og málma. Við vöskum ekki lengur upp undir rennandi vatni og reynum að vera ekki lengi í sturtu. Hvað varðar rafmagnið þá fórum við að passa Ijósin betur, þ.e.a.s. að slökkva oftar á þeim,“ segir Rann- veig Anna og bætir við að þá hafi orðið nokkur lækkun á rafmagni hjá þeim, sem er til hagsbóta fyrir umhverfið og sparar um leið rekstrarkostnað heimilisins. í vikunni þar sem innkaup vora til umræðu var hópurinn í upphafi látinn telja þær vörur sem keyptar voru og hvað þær kostuðu. Síðan var meðal annars reynt að fækka vörunum. „Það gekk vel en það sem angraði alla í hópnum, sérstaklega í ljósi þess hve lítið við gátum gert í því, eru allar þessar umbúðir sem era utanum vörur. Það er ótrúlegt hve mikið magn við flytjum inn af umbúðum heim til okkar eftir aðeins eina inn- kaupaferð. Á námskeiðinu fengum við með- al annars að vita að í Þýskalandi er hægt að fara með kælibox í verslanir og kaupa hakk í eitt box, fisk í annað og svo framvegis. Þetta er ekki hægt hér heima og stífar reglur liggja að baki þess.“ Með kælibox í búðina „Ég veit til þess að Tupper- ware-fyrirtækið hefur gert kæli- tösku sem ætluð er fyrir svona innkaup og vonandi verður þetta að veruleika hér á landi fljótlega. Við geram mataráætlun fyrir tvær til þijár vikur í senn til þess að geta gert hagkvæmari innkaup og til þess að nýtnin verði meiri. Einnig reynum við að kaupa líf- rænt ræktað en úrvalið er bara svo lítið og erfitt er að nálgast vör- urnar.“ Öll fjölskyldan tekur þátt í um- hverfismálum. Dæturnar tvær, tæplega tveggja og rúmlega Ijög-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.