Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 32

Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Veröld ný og góð með slíku fólki LEIKLIST Egg-leikhúsið, IV ý I i s t a s a l n i ð o g L e i k f é I a g í s I a n d s SHOPPING & FUCKING Höfundur: Mark Ravenhill. Þýð- andi: Bjarni Jónsson. Leikstjóri: Viðar Eggertsson. Dramatúrgar: Bjarni Jónsson og Hrafnhildur G. Hagalín. Tónlist: DJDarri Lorenzen. Utlitshönnuður: Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir. Rýmisverk í risi: Darri Lorenzen. Ljósahönnun: Sigurður Kaiser. Leikarar: Agnar Jón Egilsson, Atli Rafn Sigurðarson, Hjalti Rögnvaldsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Ólafur Darri Ölafsson. Mánudagur 18. september. BAKGRUNNUR persónanna í þessu verki er ólíkur þó að þær lendi á endanum á sama stað. Þær eru handan stéttarskilgreininga á botni samfélagsins. Krónískt peningaleysi vegna atvinnufælni og fíknar af ýmsu tagi mótar gildismat þeirra. Allt er til sölu nema tilfinningar þeirra og þess vegna verður að gera skýran greinarmun á milli ástar og væntumþykju annars vegar og mögulegrar söluvöru eins og kynlífs og félagslegra samskipta hins veg- ar. Ástin þýðir missir á sjálfsá- kvörðunarrétti og hana ber því að forðast og (stundar)hamingjan er fólgin í pillum og dópi. Frelsi frá eða skortur á hefðbundnu gildismati los- ar um allar hömlur. Maðurinn verð- ur einungis til sem neytandi og allir hlutir verða að mögulegri neyslu- vöru. Peningar til að fullnægja fíkn eða neysluþörf er aflað með hvaða hætti sem er, löglegum eða glæp- samlegum, og engar hefðir eru virt- ar í kynlífi sem er klæðskerasniðið að þörfum hvers neytanda um sig. Þessar forsendur endurspeglast í mismunandi persónugerðum og málsniði. Málið sem tjáningarmiðill er verkfæri hvers og eins til að koma óskum sínum á framfæri og til að fá aðrar persónur til að beygja sig undir vilja sinn. Málsniðið er markað af bakgrunni, fyrirætlunum og tjáningarþroska, þar sem orðin eru fengin að láni, stæld eða stolin og slett framan í persónur og áhorf- endur í stanslausri baráttu við að fá sínu framgengt. Þetta gæti á vissan hátt verið lýs- ing á hversdagslegri tilveru okkar allra nema hvað flest okkar reyna að láta líta svo út sem við fylgjum reglum þjóðfélagsins. Persónur leikritsins láta sér slíkan leikara- skap í léttu rúmi liggja og þess vegna verða samskipti þeirra jafn ýkt og miskunnarlaus og raun ber vitni. Heimur sem hampar hreinsk- ilni og sannleika en forðast hann svo eins og heitan eldinn hefur gott af því að sjá verk á borð við þetta þar sem persónurnar svífast einskis í hreinskilni sinni og sannleiksleit. Orð hins breska leikskálds Williams Shakespeares þar sem hann lýsir tilfinningum Míröndu þegar hún fær loks að sjá hóp dusilmenna sem stormurinn hefur skolað á land á eyðieynni sem hún byggir og notuð eru hér sem fyrirsögn eiga vel við. Hægt er að leggja þau í munn full- trúa sakleysisins sem trónir yfir sviðinu og fylgist jafn áhugalaus með áhorfendum og leikurunum sem hann hefur séð leika sama leik- inn ótal sinnum áður. Hann fram- kallar bara hljóð firringarinnar eins Morgunblaðið/Gólli Helgur gripur í höndum Nönnu Kristínar Magnúsdóttur. og persónugervingur sakleysisins í verkinu sjálfur, sem aldrei sést en heyrist bara í af spiluðu myndbandi. I verkinu eru sagðar litlar sögur þar sem persónurnar spegla sjálfs- mynd sína í viðbrögðum sínum og annarra við frásögninni. Einu sinni voru sagðar stórar sögur sem allir trúðu - þ.e. einu sinni voru til viður- kennd sannindi sem þjóðfélagið byggði grundvöll sinn á. Það eimir eftir af þessari trúgirni í frásögnum föðurins sem hefur skipt út ritning- unni fyrir teiknimynd. Föðurímynd- in gegnir mikilvægu hlutverki í verkinu og gegnumgangandi þráður er faðirinn sem tákn um vald sem meiðir og misnotar. Þetta er bara eitt lítið dæmi um endalausa möguleika í túlkun og skýringu leiktexta og -túlkunar. Yf- ir öllu ríkir andi fjarlægðar milli áhorfenda og persóna sem virðast í fyrstu of frábrugðnar meðalmannin- um til að hægt sé að samsama sig þeim auk þess sem það er skrifað fyrir aðra þjóð í öðru landi og að í þýðingunni mistekst oft að halda jafnvægi milli stirðnaðs bókmáls og lifandi slettna. En að vel athuguðu máli eru þessar leikpersónur bara ýkt mynd af nútímafólki helteknu af firringu og úreltu gildismati sem er að syngja sitt síðasta. Ef verkið seg- ir okkur ekki sannleikann um hver við erum þá segir það okkur að minnsta kosti hvert við stefnum. „Taktu fyrst við peningunum“ verða upphafsorð hinnar nýju ritningar. Einungis með peninga í höndunum ertu til sem neytandi; þú ert aðeins til ef þú kaupir. Að vera er að kaupa. Verkið er sett upp í Nýlistasafn- inu í tengslum við önnur listaverk. Ef til vill vakir fyrir aðstandendun- um að undirstrika að hér er á ferð- inni framsækin list en ekki fyrst og fremst neysluvarningur í fallegum umbúðum eins og flestar uppfærsl- ur eru orðnar á þessum síðustu og verstu tímum. En neysluhyggjan er löngu búin að hertaka herbúðir list- arinnar og þessi tilraun verður ekki annað en pótemkín-tjöld um sýn- ingu sem mest mun seljast út á of- beldi og kynlíf. Það er kannski mesta hættan við þessa uppfærslu að neytendurnir muni ekki sjá skóg- inn fyrir trjánum og taka ekki eftir listaverkinu bak við lætin. Sýningin er að sjálfsögðu mögn- uð, enda á hópur útvalinna aðstan- denda mikið hrós skilið fyrir árang- urinn. Það mætti kalla sjónarspilið fjölleikahús, enda spilað á alla strengi mannlegra tilfinninga. Leik- lausnirnar eru hver annarri snilld- arlegri, leikstjórinn nær því besta fram hjá frábærum leikurunum, sem íklæddir hverfulum táknum tísku okkar tíma, lýstir upp af mis- kunnarlausri skjannabirtu og um- vafðir firrtum hljóðheimi keppast við að ganga fram af okkur með ein- beittum ofsa. Hinn seki áhorfandi á sér hvergi skjól gegn hreinskilni þeiri’a og sannleiksást - nema kannski í rým- isverki Darra Lorenzen uppi á hanabjálkalofti Nýlistasafnsins þar sem hægt er að hjúfra sig saman einn í litlu hosilói og draga upp stig- ann til að varna umheiminum og raunveruleikanum inngöngu. Sveinn Haraldsson Kaupgleði og kynlíf MYNDLIST & LEIKVERK Nýlistasafnið, Vatnsstfg 3b BLÖNDUÐ TÆKNI Asa Heiður Rúnarsdóttir, Dam Lorenzen, Ingibjörg Magnadóttir, Jóhannes Hinriksson, Magnús Sig- urðarson, Sara Björnsdóttir. Til 1. október. Opið þriðjudaga til sunnu- daga frá kl. 14-18. Einnig er sýn- ingin opin þegar leiksýningar Egg- leikhússins standa yfir og geta leik- hússgestir séð myndlistar- sýninguna fyrir leiksýningu og í hléi. ÓNEITANLEGA setur að gest- um hroll frammi fyrir þeim nötur- lega veruleik sem brugðið er upp í Nýlistasafninu. í viðbót við sýning- una Klisjan er hin endanlega tjáning -The Cliché is the Ultimate Expression - hefur Egg-leikhúsið sett upp sýningu í gryfjunni á hinu umdeilda leikverki Shopping and Fucking eftir breska leikskáldið Mark Ravenhill. Þannig er gerð merkileg tilraun til að flétta saman myndlist og leikhús með því að hafa leikhúsið sem hluta af mynd- listarsýningunni. Um leið eru myndlístarmennirnir sex - sjö ef með er talin Ásdís Sif Gunnarsdóttir sem tekur þátt í mýndbandi Ingibjargar Magnadótt- ur - settir í þá aðstöðu að fylgja leiksýningunni úr hlaði eða vera nokkurs konar inngangur, eða um- gjörð um það sem síðar fer fram á sviðinu. Það er ekki öfundsvert að þurí'a að standa í slíkri skreytilist enda má hún ekki vera nein bein leikskreyting, en hún verður að vera mátuleg forstofa að stykkinu. Bangsar Ásu Heiðar Rúnars- dóttur sátu út um allt gólf SÚM- salarins. I baksýn er stiginn upp í Risathvarf Darra Lorenzen. Sexmenningunum tekst þetta bærilega og sum verkin eru sláandi. Kostur sýningarinnar er hve lista- mennirnir eru ólíkir hver öðrum. Þá er myndbandavarp einstaklega heppilegur inngangur að frekara sjónarspili. Barátta Söru Björns við límbandaskóg sem hún reynir að þokast í gegnum og sigrast á - verk- ið kallar hún Draumaveiðar - er líkt og gamalt minni úr ævintýi-um. Söguhetjan verður að sigrast á óyfir- stíganlegri þraut áður en hún nær fangi sínu. Með gagnsæi límband- anna fær áhorfandinn betri tilfinn- ingu fyrir því að þrautin sé huglæg; ósýnileg og ef til vill hugarburður. Ingibjörg Magnadóttir er hinn út- vörður sýningarinnar með Drauga- sónötu sinni á pallinum. Um leið og Draugurinn er kátbroslegur þegar hann er skoðaður er ljósmynduð Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson Draugur Ingibjargar Magna- dóttur ásamt andlitsmynd lista- konunnar. sjálfsmynd hennar á veggnum í bakgrunni öllu alvöiuþrungnari. Óp og stunur fylgja áhorfandanum um allt húsið og undii'strika mótsagna- kennt - tragikómískt - áreiti verks- ins. I hliðarsalnum hefur hún sett upp myndband með speglum þar sem hún slæst við vinkonu sína upp á líf og dauða þótt endrum og eins ber- ist hlátrasköll frá þessum sér- kennilegu slagsmálahundum. Til hliðar er annað myndbands- varp eftir Jóhannes Hinriksson, spinniverk þar sem umhverfið hringsnýst og kallast á við Harakiri, annað verk eftir hann í gryfjunni þar sem leiksýningin fer fram. Hér er ef- laust reynt að lýsa hugarheimi hins ráðvillta, enda eru áhrifin til þess að æsa upp ógleði um leið og þau lýsa slíku angistarástandi. Þessi mynd- varpsrús vísar síðan áhorfandanum upp í SÚM-salinn þar sem Magnús Sigurðarson, nakinn á ljósmynda- veggspjaldi, hermir heiti mynd- listarsýningarinnar: the Cliché is the Ultimate Expression. Á súlunni í salnum eru handklæðabunkar með ísaumuðum titli leikverksins: Shopp- ing and Fucking. Ki'akkar, sláandi skipan Ásu Heiðar Rúnarsdóttur, er stráð um allt gólfið í salnum. Þetta eru sitj- andi tuskudýr með sama barnsand- litinu fjölfölduðu með tvíræðu brosi. Þetta eru leikföng til að kaupa enda er innkaupakarfan í bakgrunni, en um leið eru áhrifin fráhrindandi, skuggaleg og minna okkur á þá stað- reynd að veruleiki sá sem brugðið er upp í leikritinu í gryfjunni er síst óhuggulegri en staðreyndir málsins. Á sama tíma og fréttir berast af barnaþrælkun í asískum verksmiðj- um sportvörufyrirtækisins Nike - nafnið er auðvitað í höfuðið á grísku sigurgyðjunni - eru afföll af íþrótta- mönnum á Ólympíuleikunum í Sydn- ey í algjöru hámarki. Heilu landslið- unum af þessum nútímahetjum er skilað heim vegna ólöglegrar lyfja- og steranotkunar þeirra. Er nokkuð annað eftir en hjúfra sig uppi á Rislofti Darra Lorenzen, að vísu köldu og ljóslausu og bíða þess að dagur rísi og sendi sálar- geisla sína niður um þakgluggann? Þannig virkar myndlistarleg um- gjörð leikritsins í hvívetna og sendir okkur á Ijúfsárum nótum Darra frá fylgsni hans á háaloftinu í hreiður hans í gryfjunni þar sem hann bland- ar saman tónlistinni og effektunum eins og fæddur tölvuplötusnúður. Og þar með er ekki annað en óska öllum til hamingju með vel heppnað tiltæki, tilhlýðilega umgjörð utan um átakanlega en ógleymanlega sýn- ingu undir dyggri stjórn Egg-leik- hússtjói'ans vökula Viðars Eggerts- sonar. Halldór Björn Runólfsson Morgunblaðið/Ámi Sæberg Jóhann Ó. Ingvason, Hljóðfæra- húsi Reykjavíkur, og Sigurður Flosason. Listamanns- samningur HLJÓÐFÆRAHÚSIÐ og Sigurð- ur Flosason saxófónleikari hafa undimtað listamannssamning um notkun og kynningu á Yamaha hljóðfærum. Sigurður mun verða talsmaður Yamaha tréblásturshljóðfæra á íslandi og mun hann fá til afnota Yamaha flautur, klarinett og saxó- fóna af nýjustu og bestu gerð i stað núverandi hljóðfæra sinna. Heildarsöluverðmæti nýju hljóð- færanna er um 2,7 milljónir kr. ---------------- Netbækur • Verkefni í rekstrarhngfræði er eftir Ágúst Einarsson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands. Bókin hefur nú verið gefin út í 4. útgáfu en nýlunda er að bókin er nú eingöngu gefin út á Netinu. Bókin var fyrst gefin út árið 1990. í bókinni á Netinu eru verkefni á sviði framleiðslu, kostnaðar, eftir- spurnar, framboðs, teygni, verð- myndunar, verðaðgreiningar, fjár- mála, fjárfestinga og óvissu. Verkefnin era 85 talsins og eru lausnimar einnig birtai' í bókinni. Þetta er önnur bókin sem höfund- ur gefur út á Netinu, en í fyrra kom út bókin Þættir í rekstrarhagfræði II. Vefslóð þeirrar bókar er http:// www.hi.is/~agustei/rh_b/bookcover- htmlHöfundurinn, Ágúst Einarsson, hefur skrifað fjölbreytilegt kennslu- efni í rekstrarhagfræði og verið fi-umkvöðull í útgáfu kennslubóka á Netinu hérlendis. Bókin er 117 bls. og er aðgangur að henni ókeypis. Vefslóðin er http://www.hi.is/~augstei/rh_b/- verkefnicover.html ---------------- >£jVI-2000 19. september LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR- HÚS KL. 16 cafe9.net ídag taka gestgjafar á móti fólki frá kl.16. Heimsækiö cafe9.net ÍHafn- arhús eða á heimasíöu. www.cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.is ------*-*-*------ Tónleikaröð Selfosskirkju ORGANISTINN í Hveragerði, Jörg Sondermann, verður við orgelið í Selfosskirkju í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Á efnisskránni eru eingöngu verk eftir meistara Johann Sebastian Bach, en nú eru 250 ár frá láti hans. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.