Morgunblaðið - 19.09.2000, Page 44

Morgunblaðið - 19.09.2000, Page 44
t4 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Afsakanir til sölu „Þetta erstórtfyrirtæki sem níðist á börnunum mínum. “ Diane Gramley, fimm barna móðir í Bandaríkjunum. Norður-amerískir neytendur láta ekki bjóða sér hvað sem er, og væri óskandi að íslenskir neytendur tækju þá sér til fyrirmyndar. Banda- ríkjamaðurinn James Goodwin kom nýlega fram í sjónvarps- auglýsingu og baðst afsökunar. Það sama gerði landi hans Jacques Nasser, og Kanada- mennirnir John Cleghorn og Robert Milton. Þessir menn eiga það sameig- inlegt að vera æðstu yfirmenn stórfyrirtækja sem hafa ekki komið sérlega vel fram við við- skiptavini sína undanfarið. Goodwin er aðalframkvæmda- stjóri bandaríska flugfélagsins United Airlines sem hefur átt í vandræðum undanfarið og orðið að aflýsa mörg hundruð flug- viounnr ferðum og * ™nUlir seinkun hefur „ , ... _ orðið á öðr- Eftir Kristjan G. Arngrímsson um eins fjölda. Ástæðan er sú, að flugmenn sem starfa hjá félaginu hafa staðið gallharðir á kröfum um bætt kjör og gripið til aðgerða til að leggja áherslu á þær. Þetta hefur auðvitað bitnað helst á þeim sem síst skyldi, það er að segja viðskiptavinun- um sem kaupa flugmiða og fljúga með félaginu. Þeir sem fást við almanna- tengsl segja að með þessu móti vilji fyrirtækið gera allt sem það getur til að sýna við- skiptavinum sínum að málið sé tekið alvarlega og að þeir skipti máli fyrir fyrirtækið. Óskandi að þeir sem stjórna Flugleiðum og Flugfélagi Islands tækju þetta til athugunar. „Við ráðleggjum fólki, þegar það hefur gert mistök, að viður- kenna mistökin og biðjast af- sökunar á þeim, leiðrétta þau og halda svo áfram. Sannleikur- inn er öruggasta skálkaskjólið," hefur kanadíska blaðið Toronto Star eftir David Israelson, yfir- manni hjá almannatengslafyrir- tækinu Media Profile í Toronto. En virkar þetta? Leggja við- skiptavinir trúnað á þessar af- sökunarbeiðnir, eða eru þeir svo kaldranalegir að líta bara á þetta sem enn eitt sölutrikkið? Yfirmenn að reyna að kjafta sig ,út úr klúðri? „Neytendur eru ekki heimsk- ir,“ er haft eftir Alan Middle- ton, fyrrverandi auglýsinga- stjóra og núverandi prófessor í markaðsfræðum við Yorkhá- skóla í Toronto. „Þeir van- treysta nú þegar öllum sem eru í yfirmannsstöðum. Þeir vita að orð eru ódýr. Þetta virkar bara ef eitthvað er í raun og veru gert í málunum.“ Eri kannski er þetta ekki bara auglýsingatrikk. Að minnsta kosti þótti afsökunar- beiðni yfirmanns United Air- lines það merkileg að ein af stærstu sjónvarpsstöðvum Bandaríkjanna, CBS, sá ástæðu til þess, fyrir nokkru, að greina frá henni í aðalfréttatíma sín- um, og meira að segja sem fyrstu frétt. Aðurnefndur Nasser er aðal- framkvæmdastjóri Ford- bílaverksmiðjanna; Cleghorn er æðsti yfirmaður Royal-bankans í Kanada og Milton aðalforstjóri kanadiska flugfélagins Air Can- ada. Kannski er óvæntur sjón- varpsframi þeirra til marks um að þeir séu meðvitaðir um það sem virðist vera útkoman úr nýlegri könnun sem greint er frá í viðskiptatímaritinu Busin- ess Week fyrir skömmu. Þar kemur meðal annars fram að mikill meirihluti Bandaríkjamanna (72%) telur að stórfyrirtæki þar í landi - sjálfu heimalandi stórfyrirtækj- anna - ráði orðið of miklu á of mörgum sviðum í þjóðfélaginu. Þessi sami meirihluti álítur líka að æðstu yfirmenn þessara fyr- irtækja hafi alltof há laun. Engu að síður telja flestir að mörg stórfyrirtæki framleiði góðar vörur, og það sem virðist angra fólk er því kannski frem- ur framkoma fyrirtækjanna og síngirni stjórnenda þeirra. Reyndar fá líka mörg fyrirtæki afskaplega slæma einkunn fyrir þjónustu við viðskiptavini sína, ekki síst sjúkratryggingafélög, sígarettuframleiðendur og olíu- félög. Og það eru ekki bara ein- hverjir hippar og uppreisnar- gjarnir unglingar sem láta í ljósi þessa andúð á ægivaldi stórfyrirtækjanna, að því er fram kemur í Business Week. Þetta munu vera Banda- ríkjamenn af öllum stærðum og gerðum, samanber fimm barna mömmuna sem vitnað er til hér að ofan. Einna harðasta gagn- rýnin komi reyndar frá for- eldrum sem eru óánægðir með að fyrirtæki fái að auglýsa í skólum sem reknir eru af hinu opinbera. Undanfarna tvo áratugi hafi markaðshöftum og reglugerðum stórlega fækkað, og aukin sam- keppni hafi oft leitt til verð- lækkunar. En nú kunni að vera svo komið að neytendum sé nóg boðið af óheftum kapítalisma, og pendúllinn fari að sveiflast í hina áttina. Það er athyglisvert, að á íslandi er pendúllinn enn á fullri ferð - og kannski bara rétt lagður af stað - í þá átt sem Bandaríkjamenn eru búnir að fá nóg af. Það er einmitt til marks um þetta viðhorf bandarískra neyt- enda, að A1 Gore, frambjóðandi Demókrataflökksins í komandi forsetakosningum, hefur nælt sér í fjölda atkvæða með því að gera stórfyrirtæki að skotspæni sínum og lofa kjósendum því, að verði hann forseti muni hann láta til skarar skríða gegn ægi- valdi þessara fyrirtækja, ekki síst gegn sígarettuframleiðend- um og lyfjafyrirtækjum. Það er víst ekki sérlega líklegt að ís- lenskir ráðamenn taki þetta til athugunar. í könnun Business Week kemur líka fram, að einungis fjögur prósent Bandaríkja- manna telja að eina hlutverk fyrirtækja sé að skila sem mestum hagnaði til hluthafanna, og að til lengri tíma litið muni slíkt koma öllum til góða. Níu- tíu og fimm af hundraði telja að fyrirtæki hafi líka skyldum að gegna við starfsmenn sína og það samfélag sem þau starfa í. Fyrirtækjum beri stundum að fórna hagnaði til þess að geta staðið við þessar skyldur. Rekstur heil- brigðisþj ónustu FRÓÐLEG umræða hefur farið fram um rekstur heilbrigðis- þjónustu að undan- fömu. Fara sumir þar mikinn og þá einna fremstur í flokki þeirra sem engar breytingar vilja sjá Ögmundur Jónasson, alþingismað- ur. Hann telur ástand mála hjá okkur gott og engin ástæða til breyt- inga, allra síst að taka upp aukinn einkarekst- ur eins og reynst hefur svo vel á öðrum sviðum þjóðlífsins. Höfuðrök- semd þingmannsins er sú að heilbriðgðisþjónusta í Banda- ríkjunum sé mjög dýr og þar sem hún er einkarekin að mestu sé það víti til vamaðar. Einn höfuðgallinn við þessa um- ræðu er sú að menn eru ekki alltaf að tala um réttu hlutina. Þar er mjög blandað saman annars vegar velferð- arkerfinu, þ.e. tryggingaþættinum sem kaupir þjónustuna fyrir skjól- stæðinga sína, og rekstrarþættinum sem veitir þjónustuna eða selur hana. I nágrannalöndum okkar og víðar hafa menn talið mjög nauðsynlegt að greina vel á milli þessara þátta og koma upp kerfi þar sem þessir aðilar em aðskildir og annar kaupir en hinn selur og það jafnt þó báðir séu reknir af hinu opinbera. Til þess að þetta geti orðið þarf að greina þann kostn- að sem til fellur við hin ýmsu form þjónustunnar því að ákvarðanir um hagræðingu í rekstri hljóta að þurfa að byggjast á vitneskju um það hvernig kostnaðurinn verður til. Rekstur í heilbrigðisþjónustu er ekki að neinu leyti frábmgðinn öðram rekstri hvað þessa einföldu staðreynd varðar. Öll hljótum við að hafa það að markmiði að sem mest fáist fyrir það fé sem veitt er til rekstursins. Heilbrigðiskerfíð á íslandi Hér á íslandi höfum við gjaman stært okkur af því að hafa yfir að ráða góðu heilbrigðiskerfi. Því er hins veg- ar ekki að leyna að margar blikur era á lofti víða í kerfinu, m.a. vegna niður- skurðar á fjárframlögum til þess mið- að við þá þjónustu sem veita þarf. Öll vitum við hvað er framundan, meðal- aldur þjóðarinnar fer hækkandi og kallar það á vaxandi þjónustu kerfis- ins. Við búum hinsvegar við fjár- mögnunarkerfi, þ.e. föst fjárlög, fyrir stærstan hluta rekstursins sem er beinlínis skaðlegt fyrir þau markmið sem sett hafa verið. Þessi fjár- mögnunarleið hefur alls staðar í nálægum lönd- um verið lögð af, einnig í löndum A-Evrópu sem reynt hafa aðferðir sós- íalismans við rekstur þjóðfélaga sinna með alþekktum afleiðingum. Heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum Víkjum þá aftur að umræðunni að undan- fömu. Undirritaður stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunm í sex ár á sjöunda áratugnum og hefur fylgst með málum þar í landi síðan. Banda- ríkjamönnum hefur mistekist að koma upp velferðarkerfi fyrir þegna Einkavæðing ✓ Aður en hægt er að ganga lengra í að einka- væða rekstrarþáttinn, segir Ólafur Örn Arnarson, þarf að gjörbreyta allri hugsun við fjármögnun. sína eins og Ögmundur hefur rétti- lega bent á. Clinton forseti hefur bar- ist fyrir slíku en andstæðingar hans í þinginu hafa komið í veg fyrir það. Þetta er vandamál Bandaríkjamanna sem hefur í mörgum tilfellum komið sér skelfilega fyrir stóran hluta þjóð- arinnar. Þegar kemur að rekstri þeirra stofnana sem veita þjónustuna er allt annað uppi á teningnum. Þar hafa Bandaríkjamenn verið í forystu og verið langt á undan öðram með að skilja nauðsyn þess að beita svipuð- um aðferðum við rekstur heilbrigðis- stofnana og annarra fyrirtækja. Þar er alls staðar notað svokallað DRG- kerfi sem notað er til að flokka sjúkl- inga í hópa með tilliti til vandamála þeirra og finna út réttan kostnað við meðhöndlun. Þetta kerfi var búið til við Yale-háskólann upp úr 1970 og hefur breiðst út um allan heim síðan. Það var tekið upp á Norðurlöndum á síðasta áratug, alls staðar nema á ís- landi. Þetta kerfi hefur leitt í ljós þær aðferðir sem til þarf til að nýta fjár- magnið sem best, t.d. með mikilli aukningu í dagþjónustu en þar erum við langt á eftir. Rétt er einnig að minna á að Bandaríkjamenn hafa lagt langmest allra til rannsókna í læknis- fræði og vísindamenn frá Asíu og Evrópu hafa flykkst þangað vegna þess að þar var þeim búin viðunandi starfsaðstaða. Minna má á að um 80- 90% Nóbelsverðlauna í læknisfræði hafa farið til þeirra. Einkavæðing ekki tímabær Umræða um einkavæðingu er að mínu mati einfaldlega ekki tímabær. Aður en að því kemur er mjög nauð- synlegt fyrir okkur að taka bæði tryggingaþáttinn og rekstrarþáttinn til gagngerrar endurskoðunar. Tryggingaþáttinn er engan veginn tímabært að einkavæða á þessu stigi. Það sem þarf að gera er að breyta nú- verandi kerfi úr því að vera greiðslur úr ríkissjóði með föstum framlögum í eiginlegt sjálfstætt tryggingakerfi á vegum þess opinbera þannig að jafn- rétti sé tryggt. Nauðsynlegt er hins- vegar fyrir alla aðila að skilgreina það sem þegnamir era tryggðir fyiir og hvaða þjónustu þeir geta fengið. Með iðgjöldum sínum væra þegnarnir að tryggja sér ákveðinn rétt, sem ekki yrði aftur tekinn. Þátttaka okkar í Evrópusamstarfi hefur tryggt okkur slíkan rétt að nokkru. Síðan verði heimilt að tryggingafélög bjóði tryggingar þar til viðbótar handa þeim sem það kjósa. Það getur ekki gengið að ríkið ákveði einhliða að hætta að greiða einhvem hluta kostn- aðar við þjónustuna eða neita að veita hana, ef menn vilja ná einhverri ákveðinni niðurstöðu í fjárlögum! Aður en hægt er að ganga lengra í að einkavæða rekstrarþáttinn þarf að gjörbreyta allri hugsun við fjármögn- un. Eina þjónustan sem hefur verið kostnaðargreind er vinna sér- fræðinga við ferlisjúklinga. Slík greining hefur ekki farið fram í heilsugæslunni og ekki nema að mjög takmörkuðu leyti á sjúkrahúsum. Sú vinna sem er framundan mun taka nokkurn tíma. Síðan þarf að aðskilja þær stofnanir sem kaupa þjónustu og þær sem selja hana. Skiptir þá ekki máli þó að þær séu allar reknar af rík- inu í fyrstu. Aðeins að þessu loknu er tímabært að ræða einkavæðingu á rekstri heilbrigðisþjónustu í meira en þeim litla mæli sem nú er. Höfundur er læknir. Ólafur Örn Arnarson Mál - lestur TALMÁLIÐ er helsta tjáskiptatæki mannsins. Það gerir honum kleift að setja hugsanir sínar í orð og eiga samskipti við aðra. Við getum sagt að mál- ið sé verkfæri fyrir hugsunina. Okkar menningarheimur ger- ir kröfur um að við get- um tjáð okkur og aflað nauðsynlegra upplýs- inga sem eru birtar í rituðu formi. Það er þess vegna afar mikil- vægt að foreldrar og aðrir uppalendur leggi áherslu á að stuðla að góðum málþroska og meiri lestrar- færni. Eðlileg máltaka er undirstaða fyr- ir lestrarnám. I lestrarnámi fæst barnið við allt í senn, umskráningu á hljóðum í tákn, tæknilega færni og málskilning. Góð lestrargeta er sam- spil allra þessara þátta. Það hefur því mikið að segja að gera sér grein fyrir málþroska barnsins við upphaf skólagöngu. Greining á málþroska- röskunum og snemmtæk íhlutun, sbr. ráðgjöf og þjálfun sem allra fyrst, skiptir miklu máli. Það er mikilvægt að talþjálfun byggist á nákvæmri greiningar- vinnu, samvinnu og eðlilegri málþróun. Undirstöðuþættir fyrir mál og málskilningur þurfa að vera til staðar áður en eiginleg lestr- arkennsla hefst. Allt of oft hefur það átt sér stað þegar for- eldrar tjá áhyggjur sín- ar af þroska barna sinna að þeim er sagt að bíða og sjá til. Tím- inn er dýrmætur þegar börnin okkar eiga í hlut. Það ber að leggja áherslu á að finna böm með málþroskafrávik sem allra fyrst til þess að vinna markvisst að því að efla málþroska hjá þeim og draga úr eða jafnvel koma í veg fyrir lestrarörðugleika síðar meir. Marg- ar rannsóknir sýna að þjálfun á for- skólaaldri þar sem börnum er kennt að leika sér með málið getur dregið úr hættu á lestrarörðugleikum. Margar fatlanir og þroskafrávik eins og einhverfa, Downs-heilkenni, misþroski, ofvirkni, greindarskerð- Ásthildur Bj. Snorradóttir Mál Þjálfun á forskólaaldri þar sem börnum er kennt að leika sér með málið, segir Ásthildur Bj. Snorradóttir, getur dregið úr hættu á lestrarörðugleikum. ing, heyrnarskerðing o.s.frv. geta haft í för með sér málhömlun og lestrarörðugleika. Málhömlunin get- ur verið mismikil, ýmist að barnið kunni ekki að hlusta, segi ekki orð, tjái sig í ófullkomnum setningum, sé með framburðargalla eða kunni ekki viðeigandi boðskipti. Það sem skiptir meginmáli er að öll börn eiga rétt á kennslu við hæfi. Til þess að stuðla að kennslu við hæfi er m.a. mikil- vægt að vita hvernig börn þroskast og hvað þau þurfa að læra til þess að geta tjáð sig og hvort hægt er ná tök- um á lestri. Bætt tjáning og lestrar- færni stuðla síðan að meiri félags- færni og auknum lífsgæðum. Höfundur er talmeinafræðingur hjá Talþjálfun Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.