Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 54

Morgunblaðið - 19.09.2000, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskulegur eiginmaður minn, GfSLI TEITSSON, andaðist í Brussel laugardaginn 16. september. Þóra Stefánsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi okkar SIGURÐUR ÁRNASON fyrrv. bóndi á Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð, verður jarðsunginn frá Breiðabólstaðarkirkju fimmtudaginn 21. september kl. 14.00. Hildur Árnason, Unnur Sigurðardóttir, Alfred Rohloff, Valborg Sigurðardóttir, Sara H. Sigurðardóttir, Árni Þ. Sigurðsson, Þórunn B. Sigurðardóttir, Hrafnhildur I. Sigurðardóttir, Óskar Magnússon, Þórdís A. Sigurðardóttir, Gunnar B. Dungal, barnabörn og barnabarnabörn. Gunnar Ólafsson, Aagot Emilsdóttir, Árni M. Emilsson, 'rir. t Hjartkaer eiginmaður minn, faðir okkar, teng- dafaðir og afi, BERGUR TÓMASSON fyrrv. borgarendurskoðandi, Álfheimum 70, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 21. september kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnst hans, er vinsamlegast bent á Landssamtökin Þroskahjálp. Margrét Stefánsdóttir, Stefán Bergsson, Jenný Magnúsdóttir, Tómas Bergsson, Nína Magnúsdóttir, Bergljót Bergsdóttir, Steinn Öfjörð, Birna Bergsdóttir, Ólafur Njáll Sigurðsson og afabörn. t Elskuleg sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT LÁRA RÖGNVALDSDÓTTIR, Gullsmára 10, áður Álfheimum 48, verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 20. september kl. 15.00. Sigurður Sveinsson, Rögnvaldur Guðmundsson, Helga Björg Stefánsdóttir, Áslaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Sölvi Ásgeirsson, Sigríður Guðmundsdóttir og barnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR SIGMUNDSDÓTTIR, Hringbraut 50, áður Lönguhlíð 23, sem andaðist laugardaginn 16. september verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 27. september kl. 13.30. Kristinn S. Jónsson, Ólöf H. Friðriksdóttir, Sigríður G. Kristinsdóttir, Sesselja M. Kristinsdóttir, t Látin er á Selfossi móðir mín, KRISTÍN G. VIGFÚSDÓTTIR frá Hrísnesi, og verður útför hennar gerð frá Árbæjarkirkju miðvikudag 20. september kl. 13.30. Glúmur Gylfason. JÓN SIGURGEIRSSON + Jón Sigurgeirs- son frá Helluvaði fæddist á Helluvaði í Mývatnssveit hinn 14. apríl 1909. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Seli á Ak- ureyri hinn 11. sept- eptember síðast- liðinn á 92. aldursári. Foreldrar hans voru Sigurgeir Jónsson, bóndi á Helluvaði, og Sólveig Sigurðar- dóttir húsfreyja. Jón var yngstur fimm systkina, sem nú eru öll látin. Elst var Guðrún, ljósmóð- ir og bóndi á Helluvaði, f. 1900; Jónas, bóndi á Helluvaði, f. 1901; Sigríður, húsfreyja á Helluvaði, f. 1904; og Anna, húsfreyja á Akur- eyri, f. 1906. Framan af ævi stundaði Jón ým- is störf í Mývatnssveit, einkum þó húsasmíðar. Árið 1940 fluttist hann til Akureyrar og starfaði þar sem lögregluþjónn næstu 13 árin. Árið 1954 gerðist Jón umsjónar- maður á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar það flutti í nýja byggingu á Eyrarlandsholtinu. Því starfí gegndi hann þar til hann fór á eftirlaun. Kæri Jón. Héðan frá sjúkrabeð mínum langar mig að kveðja þig með örfáum línum til að þakka þér yndislegar samverustundir. Þegar ég horfi til baka og hugsa um mannkosti þína verður þú mér eins konar tákn fyrir það besta í ís- lensku þjóðinni. Þú varst hógvær, lítillátur, æðrulaus. Þér féll vel að miðla af brunni þekkingar þinnar og reynslu. Hvar sem drepið var niður var þér jafn auðvelt að ræða um íslenskar bókmenntir, sögu, Ijóð eða náttúrufræði. Aldrei féll þér verk úr hendi og víst er að þú hafðir aldrei meir að gera en eftir að þú lést af störfum fyrir aldurs sakir. Svo var það tónlistin. Þú varst sjálfmenntaður á píanó, harmón- íum og orgel og varst um skeið organisti í Hrísey hjá séra Kára, vini þínum. Mér skilst að þú hafir einnig spilað á básúnu og harmón- iku og þú varst söngmaður góður. Tónlistin var eins og hljómfagur strengur milli okkar. I hverri heim- sókn minni norður var það fastur liður að við spiluðum saman söng- lög, sem þú valdir. Þannig gafst þú mér innsýn í sönghefðina með því að benda á hvar átti að draga tón- inn og teygja. Þetta voru ógleym- anlegar ánægjustundir - og helst hefði ég óskað þess að fá að kveðja þig með tónlist. Þín verður sárt saknað, en eins og sonarsonur þinn fimm ára sagði; „Afí er dáinn, en hann lifir í minn- ingunni.“ Hlíf. Með Jóni Sigurgeirssyni er horf- inn enn einn liðsmaður úr þeirri vösku sveit fólks sem fæddist á fyrstu árum þessarar aldar sem nú er á enda eftir fáeina mánuði. Óð- um fækkar nú í hópnum er áorkaði meiri breytingum en nokkur önnur kynslóð á landi hér, með verkum huga og handar hóf hún ísland frá því að vera fátækt þróunarland til þess að vera hópi ríkustu landa heims og bjóða þegnum sínum ein bestu lífskjör í veröld allri. Á langri starfsævi lagði Jón sinn skerf til þessarar þróunar enda, eins og síðar kemur fram, mörgum hæfileikum gæddur. Eftir að hann lét af störfum og aldur færðist yfir gerðist hann þó gagnrýninn á ýmsa þá þróun þar sem honum sýndist manneskjunni ýtt til hliðar í krafti tækni og auðmagns. Foreldrar Jóns bjuggu allan sinn búskap á Helluvaði. Sólveig var kona Ijúflynd og listfeng á ýmsa grein. Sigurgeir helgaði búskapn- um alla krafta sína og gat sér landsfrægð fyrir árangur af kyn- Árið 1952 kvæntist Jón eftirlifandi eigin- konu sinni, Ragnhildi Jónsdóttur, f. 1926, frá Gautlöndum í Mý- vatnssveit. Foreldrar hennar voru hjónin Jón Gauti Pétursson og Anna Jakobsdóttir. Jón og Ragnhildur bjuggu allan sinn bú- skap á Akureyri, lengst af á Spítalavegi 13. Börn þeirra eru: 1) Jón Gauti, f. 1952, landfræðingur og kennari. Kona hans er Helga Pálína Brynjólfsdóttir text- ílhönnuður. Sonur Jóns Gauta og Jennýjar K. Steinþórsdóttur er Eiríkur Gauti; og synir hans og fyrri konu, Lilju Ásgeirsdóttur, eru Jón Ásgeir og Guðmundur Karl. 2) Geirfinnur, f. 1955, jarð- eðlisfræðingur. Kona hans er Hlíf Siguijónsdóttir fiðluleikari. Synir þeirra eru Jón og Böðvar Ingi. 3) Sólveig Anna, f. 1959, píanóleikari og kennari. Hennar maður er Edward Frederiksen, básúnuleik- ari og kennari. 4) Herdís, f. 1962, víóluleikari. Maður hennar er Steef van Oosterhout slagverks- leikari. Sonur þeirra er Jakob. bótum sauðfjár síns. Eldri bróðir- inn, Jónas, sem tók við búi af föður sínum, hélt því starfi áfram en hug- ur Jóns stóð ekki til þess né ann- arra búskaparumsvifa. I því efni sem og fleiru virtist hann sækja fleira til móður sinnar en föður. Er honum óx aldur þroski kom í ljós að honum voru margir hlutir vel gefnir. Hann var mikill vexti og vel að sér ger um íþróttir sem helst voru stundaðar í heimabyggð hans á þessum tíma. Voru það bæði þær sem að gagni komu í daglegri önn eins og skautaferðir á ísi Mývatns og skíðaferðir í snjóþungri sveit sem og íslenska glíman sem reyndi á afl manna og snerpu. Merki hennar hafa Mývetningar löngum haldið á lofti engu síður en aðrir landsmenn. Afi Jóns í föðurætt var Jón skáld Hinriksson, bóndi á Helluvaði og víðar. Hann á sér nú orðið stóran hóp afkomenda og meðal þeirra virðist áberandi hneigð og gáfa til söngs og annarrar iðkunar tónlistar. Svo nefnd séu nokkur meira eða minna þjóðkunn nöfn skulu tilgreindir organistarnir Jón Stefánsson og Reynir Jónasson, söngfólk eins og Margrét Bóasdóttir og Rangár- bræður, Baldur og Baldvin Krist- inn Baldurssynir og enn aðrir bræður, Jónas og Jón Múli Árna- synir. Jón Sigurgeirsson naut sem ungur maður tilsagnar í orgelleik hjá tónlistar- og skáldkonunni Guðfinnu Jónsdóttur frá Hömrum. Til vitnisburðar um þá tónlistar- gáfu sem honum varð eðlislæg er, að einu virtist gilda hvaða hljóðfæri hann snerti, öll hlýddu þau hand- tökum hans. Þannig var hann um áratugaskeið liðsmaður í Lúðra- sveit Akureyrar og á efri árum gegndi hann um árabil organista- störfum við kirkjuna í Hrísey og þjálfaði söngfólk. Auk þess kom hann um skamman tíma að því starfi við þrjár aðrar kirkjur hér við Eyjafjörð, nyrstu kirkju lands- ins í Grímsey, að Hólum og í Lauf- ási. Honum var einnig gefin ágæt söngrödd og því eftirsóttur liðs- maður í kórum. Karlakór Mý- vatnssveitar naut þess meðan hann dvaldi í heimabyggð og hér á Akur- eyri tók hann um árabil þátt í starfi kirkjukórs, Kantötukórs Ak- ureyrar og í Karlakórnum Geysi. Annar hæfileiki sem honum var gefinn í ríkum mæli var hagleikur. Eru ekki miklar ýkjur að segja að vart hafi fundist svo illa bilaður og úr sér genginn hlutur að hann kæmist ekki í samt lag ef Jón fór um hann smiðshöndum sínum. Á þriðja áratug þessarar aldar þegar Jón komst á fullorðinsár fór Jón var ætíð mikill áhugamaður um ferðalög og var í hópi frum- kvöðla í könnun óbyggða Islands á öðrum Qórðungi 20. aldar. Hann lagði víða hönd á plóg við að gera fólki hálendið aðgengilegt og áhugavert, m.a. með þátttöku í skálabyggingum og vegbótum auk þess að hafa frumkvæði að könnun nýrra leiða og brúarsmíðum. Vegna víðtækrar þekkingar sinn- ar á hálendi Norðurlands tók Jón þátt í fjölmörgum björgunar- leiðöngrum. Ferðafélag Akureyr- ar gerði hann að heiðursfélaga sín- um á 85 ára afmæli hans. Þá sinnti Jón tónlistargyðjunni ætíð af mikl- um áhuga. Hann söng í fjölmörg- um kórum frá unga aldri, lék með Lúðrasveit Akureyrar og var um margra ára skeið organisti í Hrís- eyjarkirkju. I hjáverkum lagði Jón stund á bókband og ýmiss konar smíðar og varla var til sá hlutur sem ekki fékk bót meina sinna eft- ir að Jón hafði farið um hann hönd- um. Eftir að Jón var sestur í helg- an stein sneri hann sér æ meir að fræða- og ritstörfum. Um áttrætt eignaðist hann tölvu og eftir það dvaldi hann löngum fyrir framan skjáinn og sló inn fjölmargt er á daga hans hafði drifið og margan fróðleik um náttúrufar og mannlif í Þingeyjarsýslu. Sumt af þessu efni hefur birst í norðlenskum og austfirskum timaritum. Jón verður jarðsunginn frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. að gæta í sveitum nokkurrar efna- legrar velmegunar er tilkomin var bæði vegna félagslegra átaka bænda er hófust að miklu leyti í Suður-Þingeyjarsýslu svo og tæknibyltingar við sjávarsíðuna. Unglingur sem ekki hneigðist til hefðbundinna bústarfa átti því fleiri kosta völ en áður þótt hyrfi ekki úr sinni heimasveit. Óld stein- steypunnar í húsagerð hélt innreið sína og þar varð vettvangur fyrir hagleik hans, útsjónarsemi og karl- mennsku. Hann mun ekki hafa ver- ið nema 15 ára þegar hann hélt fyrst að heiman til þess vinna við byggingu íbúðarhúss á jörð í ná- grenninu. Næsta hálfan annan ára- tuginn lagði hann hönd að bygg- ingu margra íbúðarhúsa í heimasveit og nágrannabyggðum. Enn má nefna í því sambandi byggingu brennisteinsverksmiðju í Bjarnarflagi 1938-1939. Þar gerð- ist hann verktaki ásamt einum sveitunga sínum og byggðu þeir verksmiðjuna raunar tvisvar sinn- um því hin upphaflega bygging brann fljótlega en var svo endur- reist. Með verkum sínum skóp hann sér tiltrú sveitunga sinna og fleiri er til þekktu á hæfileikum hans til að leysa margvísleg tæknileg við- fangsefni. Tvö dæmi um það skulu nefnd hér. Skömmu eftir 1930 mynduðu Mývetningar með sér félagsskap um að leggja síma inn á öll heimili í sveitinni. Af því tilefni var Jón sendur til Reykjavíkur á námskeið í rafeindatækni hjá Ríkisútvarpinu til þess að hann gæti annast við- hald símakerfisins og útvarpstækja sem þá voru að ryðja sér til rúms á heimilum fólks. Hitt dæmið er að sveitungar hans fólu honum alfarið árið 1934 að hanna og standa fyrir byggingu stórrar fjárréttar sem enn er í notkun hjá Baldursheimi í Mý- vatnssveit. Vafalítið hefur frumkvæði hans ráðið því að 1930 var byggð vatns- aflsstöð heima á Helluvaði er sá heimilum þar fyrir rafmagni til Ijósa og eldamennsku um áratuga- skeið. I rúm hundrað ár hefur Mývatnssveit verið sótt heim af mönnum frá ýmsum löndum er leggja stund á náttúruvísindi. Eitt af því sem augu þeirra beinast að er Laxá með fjölbreyttu fuglalífi sínu þar sem hún streymir við tún- fótinn á Helluvaði. Af kynnum Jóns við enska náttúrufræðinga mun það hafa sprottið að 1937-1938 dvaldi hann vetrarlangt í Englandi. Sú dvöl dró síðar þann slóða að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.