Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 55

Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ____________________________ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 55 MINNINGAR - 1940 var sótt eftir því við hann að gerast lögreglumaður á Akureyri. Þá var breskt hernám í landi sem færði löggæslumönnum að höndum ný og áður óþekkt viðfangsefni. Frá þeim tíma var lögheimili hans hér í bæ en alla tíð var hann bundinn bernskusveit sinni sterk- um tilfinningaböridum og hugur hans leitaði þangað. Sem dæmi þess skal nefnt að á morgni þess dags þegar hann and- aðist sat bróðurdóttir hans hjá honum góða stund. Þá var hann með fullu ráði og rænu, ræddi við hana um atburði liðinna daga í heimahögum og minntist þess með- al annars að það hefði verið sólskin daginn sem hún fæddist, 1. júní 1930. Starf lögreglumannsins mun ekki hafa fallið honum að öllu leyti vel í geð. I því komst hann í kynni við ýmsar skuggahliðar mannlífsins næsta ólíkar því sem hann hafði kynnst og alist upp við í Mývatns- sveit. Því var honum áreiðanlega mjög að skapi er hann 1954 átti þess kost að gerast umsjónarmað- ur Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri er sinna skyldi viðgerðum húss og tækja. Þar fengu hæfileik- ar hans sem áður hafa verið kynnt- ir að njóta sín á verðugan hátt. Því starfi sinnti hann svo þar til honum var skyldugt að hverfa frá er hann náði sjötugsaldri. Aður er fram komið að Jón hafði í æsku ekki mikinn áhuga á hefð- bundnum bústörfum. Á einu sviði þeirra hygg ég þó að honum hafi ekki verið þvert um geð að leggja fram liðsinni sitt. Þar á ég við göngur og fjárgeymslu á hinum víðáttumiklu afréttum sem liggja að Mývatnssveit en hann mun hafa verið settur í starf gangnamanns þegar innan við fermingu. Þannig hafði hann sem fullorðinn maður öðlast þekkingu á verulegum hluta þess svæðis sem Ólafur Jónsson, ráðunautur hér á Akureyri, fjallar um í ritverki sínu er ber nafnið Ódáðahraun. Því hefur það varla verið tilviljun að Ólafur valdi hann sem fylgdarmann sinn í síðustu könnunarferðum sínum til undiiy búnings ritunar bókarinnar. í henni gefur Ólafur honum þessa einkunn sem samferðamanni: „Get ég ekki kosið mér betri ferðafé- laga, því Jón er röskleikamaður, ósérhlífinn, fjölhæfur og verður aldrei ráðafátt.“ Undir þessi orð veit ég að margir ferðafélaga Jóns fyrr og síðar geta tekið. Við lok síðari heimsstyrjaldar hóf Ferðafélag Akureyrar könnun á öræfaleiðum hér norðaustanlands er færar væru hinum nýju farar- tækjum, jeppum og stærri fjór- hjóladrifnum bifreiðum. Starf þetta fór að verulegu leyti fram á þeim svæðum eru Jóni voru kunnug frá barnæsku. Því kom það e.t.v. nokk- uð af sjálfu sér að hann gerðist öt- ull liðsmaður félagsins, sat í stjórn þess um árabil og var fararstjóri og leiðsögumaður í fjölda ferða á vegum þess. Nokkru eftir 1960 skildi leiðir hans og félagsins af sérstöku tilefni sem ekki verður tíundað hér. Eftir það var hann ekki virkur félagi en engu að síður var framlag hans svo mikils metið að síðar var hann gerður að heiðursfélaga þess. Ekki lagði Jón öræfaferðir á hill- una eftir áðurnefndan skilnað við FFA. Hann efndi til ferða að eigin frumkvæði með fólki sem þekkti til hans. Þannig stóð hann fyrir mörg- um leiðöngrum á árabili kringum 1980 til könnunar á fornum ferða- leiðum, einkum leið Skálholtsbisk- upa yfir Ódáðahraun í vísitasíu- ferðum til Austurlands svo og flutningsleiðum brennisteins frá Fremrinámum sunnan Mývatns- sveitar til hafnar á Húsavík. Full viðurkenning á árangri í fyrrnefnda verkefninu hlýtur að teljast messa sú sem biskup Is- lands söng á fornum áningarstað í Suðurárbotnum síðsumars 1999 og þar auðnaðist Jóni að vera við- staddur. Margoft var Jón til kvaddur þeg- ar gera þurfti út leiðangra til sér- legra verkefna á öræfum uppi, leit- ar og björgunar á fólki eða fé. Skal þar aðeins minnst á björgunarleið- angurinn vegna Geysisslyssins 1950 sem rifjað var upp fyrir alþjóð í sjónvarpsþætti hinn 10. þessa mánaðar. Sjálfur var hann á ýmsan hátt ósáttur við hvernig þá var að málum staðið og birti þær skoðanir sínar í grein í FERÐUM, blaði Ferðafélags Akureyrar 1990. Við lestur hennar ber þó að hafa í huga að á þeim tíma skorti allsendis þá kunnáttu, skipulag, mannafla og tækni sem nú er til staðar ef sam- svarandi slys ber að höndum. Fyrir allmörgum árum kenndi Jón hjartabilunar og ágerðist hún eftir eftir því sem árin liðu. Með tilkomu sjúkdómsins lagði hann ferðalög og útivist að mestu á hill- una. Honum hafa sennilega þótt gönguferðir hér innanbæjar til- gangs- og tilkomulitlar samanborið við þær sem hann hafði áður farið á öræfum. Okkur sem höfum gert heilsueflingu og holla útivist að eins konar trúarbrögðum fannst að hann hefði mátt sinna betur um heilbrigði sína. En hann var af annarri kynslóð og smátt og smátt herti sjúkdómurinn tök sín á hon- um. Við sem nærri honum stóðum höfum hin síðustu misseri oft haft ástæðu til undrast hvernig ásköpuð hreysti hans stóðst margar atlögur sjúkdómsins sem að sjálfsögðu hafði þó betur að lokum. Ekki kann ég skýringu á því hvers vegna dróst svo lengi að Jón staðfesti ráð sitt. Þegar að því kom valdi hann að lífsförunaut sveit- unga sinn, konu sem alin var upp í sama umhverfi og hann og deildi með honum lífsviðhorfi og skoðun- um í mörgum greinum. Ragnhildur er greind kona, félagslynd og lætur sér fátt mannlegt óviðkomandi. Bæði nutu þau hjón félagsskapar fólks, voru gestrisin og samvalin í að halda í heiðri það viðhorf greiðasemi og aðstoðar við náunga sinn sem um aldir hefur verið eitt einkenni hins gamla íslenska bændaþjóðfélags. Þannig varð heimili þeirra hér á Akureyri að segja má allsherjar fyrirgreiðslu- stofnun, bæði hótel og ferðaskrif- stofa, fyrir sveitunga þeirra og fjölda annarra Þingeyinga sem er- indi hafa átt hingað til bæjarins. Spöruðu þau bæði hvorki góðgerð- ir, tíma sinn né fyrirhöfn í þjónustu þessari. Kynni okkar Jóns spruttu af þeirri orsök að fyrir hartnær hálfri öld kvæntist ég bróðurdóttur hans. Nokkurra ára dvöl mín í Suður- Þingeyjarsýslu hafði kveikt áhuga minn fyrir því að kynnast öræfum þeim sem að baki byggðinni lágu. Þeirri löngun varð fyrst svalað í ferð Ferðafélags Akureyrar um Ódáðahraun í júlí 1957 þar sem hann var fararstjóri. Sú ferð er um margt ógleymanleg en þó fyrst og fremst hinn sólbjarti dagur þegar ég leit í fyrsta sinn yfir Oskju. Lagðist þar allt á eitt, veðurblíðan, mikilleiki landslagsins og sú dulúð sem hvíldi yfir staðnum, mögnuð af vitneskjunni um hin sorglegu örlög Knebels og Rudloffs réttri hálfri öld áður. Næstu tvo áratugi átti ég svo ótaldar ferðir um öræfaslóðir í félagsskap Jóns og undir leiðsögn hans. Eftir að við hjónin fluttum bú- ferlum til Akureyrar kom af sjálfu sér að við þau Jón og Ragnhildi höfðum nánust og mest samskipti. í þeim ríkti óskrifað samkomulag um gagnkvæma aðstoð og liðsinni hvenær sem þörfin kallaði. Fyrir það skulu nú Ragnhildi og börnum þeirra hjóna færðar hugheilar þakkir og vottuð innileg samúð okkar hjóna á sorgarstundu. Jafn- framt verður í huga okkar minning um ógleymanlegan mann sem gæddur var svo mörgum eiginleik- um sem hvern mann mega framast prýða. Guðmundur Gunnarsson. „Þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti“ - síðustu hendingar í ljóði skáldsins frá Fagraskógi: Til móður minnar. Þá hefur einn af mínum bestu vinum á lífsleiðinni, Jón Sigur- geirsson frá Helluvaði, kvatt og haldið á vit feðra sinna. Ekki þarf að efa, að þar hafa vinir beðið í varpa, þegar Jón bar að garði, sá vinsæli maður og mikli öðlingur. Ég kynntist Jóni, er við unnum fyrst saman á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri, ég á röntgendeild sjúkrahússins, hann sem „alt muligmand" á þeirri stofnun. Síðar var ég þar sem hjúkrunarnemi og um 10 ára bil sem hjúkrunarfor- stjóri sjúkrahússins. Alltaf sam- starfsmaður Jóns. Okkur varð fljótt vel til vina. í raun og veru var Jón vinur allra þeirra er hann stafaði með. Hann leysti hvers manns vanda, hvort heldur um var að ræða sjúklinga eða starfsmenn og ekki taldi hann yfirvinnutíma, þótt margir væna. Mig langar til að minnast nokk- urra þátta í samskiptum okkar Jóns, þau varpa sýn á nokkra af hans mörgu góðu eiginleikum, þó aðeins fáa. Hann var afar fjölhæfur maður og það virtist allt leika í höndum hans. Ef verkfæri, oft mjög dýrmæt, biluðu á skurðstofu eða annars staðar á deildum var alltaf viðkvæðið: Hvar er Jón? Og Jón kom, gerði við og það brást ekki, áhaldið var í lagi. Þar var völ- undur að verki. Ég minnist aðfangadaga á sjúkrahúsinu. Klukkan fjögur komu þeir Jón, með litla orgelið sitt, og Sverrir Pálsson, skólastjóri Gagnfræðaskóla Akureyi-ar, og sungu og spiluðu jólasálma á deild- um sjúkrahússins. Færðu sig af einni deild á aðra. Þá héldu jólin innreið sína. Klukkan sjö komu starfsfólk og sjúklingar saman á lyflækningadeild og gengið var í kring um jólatré. Jón Iék á orgelið og okkar ágæti söngvari Jóhann Konráðsson stjórnaði söng. Jóhann var deildarstjóri á geðdeild sjúkra- hússins og þegar þeir, snillingarn- ir, Jón og Jóhann, stilltu saman strengi sína, var gaman að taka undir eða bara hlusta og njóta. Ég minnist Jóns sem eins mín besta ferðafélaga. Margan föstu- daginn leit Jón inn á skrifstofu mína og sagði: „Við erum að hugsa um að skreppa inn í Herðubreiðar- lindir eða Hvannalindir og það er alltaf pláss í jeppanum hjá okkur Ragnhildi, ef þú hefur tíma.“ Kona Jóns var Ragnhildur Jónsdóttir frá Gautlöndum. Oftast nær hafði ég tíma eða gat fengið einhvern af mínum ágætu hjúkrunarfræðingum til að taka helgarvaktina. Þetta voru ógleymanlegar ævintýraferð- ir. Jón var sjóður af fróðleik - kunni feiknin öll af vísum og söng- lögum, ömefnum og draugasögum og mér eru minnisstæðar sögur hans af Fjalla-Bensa, hinum mikla fjallagarpi og fjárleitarmanni. Eitt sinn fórum við nokkur frá Akureyi’i og Húsavík upp að Jök- ulsá á Fjöllum til að leggja brú yfir ána og freista þess að komast yfir á jeppum. Karlmennirnir höfðu smíðað brúna undir stjórn Hauks Árnasonar, tæknifræðings á Akur- eyri, og nú skyldi reyna gripinn. Þetta var mikil dirfska. Brúin, sem var nokkrir plankar var reist upp, einhverjir fóru yfir ána í gúmmíbát með Jóni og tóku þar á móti vírum og brúin var lögð yfir. Ýmsar fleiri tilfæringar voru gerðar en of langt mál að tíunda það hér. Síðan var farið yfir brúna, sem ekki var breiðari en svo að hjólbarðarnir námu við ystu brúnir. Sumir héldu sér fast í jeppana, horfðu ekki nið- ur í straumþungann og allt gekk vel. Farið var inn öræfi og komið til baka um kvöldið. Þegar draga átti brúna yfir kallaði Jón: „Bíðið aðeins, hér eru hjólför, sem til- heyra ekki okkar bílum." Þai’na hafði Jón grandskoðað för í jarð- veginum, athugað síðan hjólbarða jeppanna okkar og séð að innan um för eftir þá, voru ókunn för og því hlaut einhver að hafa farið yfir á eftir okkur. Við biðum góða stund, nokkrir orðnir óþolinmóðir, en Jón réð ferðinni. Skyndilega birtist jeppi, sem renndi beint til okkar, þar var kominn læknakandídat af sjúkrahúsinu. Hann var kampakát- ur yfir sinni ferð og sagði hinn ró- legasti: „Jæja, drengir, eigum við ekki að leggja í hann yfir.“ Þetta litla atvik sýnir athygli Jóns, skýra hugsun og ábyrgðartilfinningu. Þeir, sem lögðu brúna, báru ábyrgð á því að enginn færi yfir, sem ekki kæmist til baka til byggða. Annað atvik kemur upp í hug- ann, er sýnir hæfni og kunnáttu Jóns til fjallaferða og að glíma við tvísýnu í þeim férðum. Þegar Geys- isslysið varð á Vatnajökli, eins og fyrir stuttu var sýnt í sjónvarpinu, var það Jón Sigurgeirsson, sem einn leiðangursmanna, er lagði upp frá Akureyri, lagði til að menn reyttu upp hvannir til að merkja leið sína til baka. Sú ákvörðun átti eftir að reynast árangursrík, því að fljótt fennir í gengin spor. Stundum fannst mér að Jón væri ekki á réttri hillu í lífinu, þessi snillingur hefði getað lagt fyrir sig fínt og vandasamt handverk og orðið meira sjálfs sín ráðandi. En - honum var trúlega ætlað að leggja sitt af mörkum til lækninga og að létta þeim lífið, er áttu um sárt að binda. Marga stundina sat hann hjá sjúklingum, sagði frá ferðalög- um sínum um fjöll og firnindi, og vakti endurminningar og glampa í mörgu döpru auga. Jón var sannur Þingeyingur, greindur, fróðleiksfús, frásagnar- glaður, ljóðelskur og söngvinn, laus við mont og yfirborðsmennsku - Þingeyingur - eins og ég hefi þekkt þá besta. Ég þakka honum samfylgd á liðnum árum og sendi Ragnhildi og börnum hennar hlýjar kveðjur. Ingibjörg R. Magnúsdóttir. Himinblíða haustkyrrð, mín hugarfró. Berðu mig á mildum, mjúkum örmum. Veit mér hvíld sem vetur ei vinnur á Hvíld, svo vakinn vorhug ég vori fagni. (Sigurður Jónsson.) Á þiminblíðum haustdegi kveður Jón frændi minn, gangan orðin löng og hann nokkuð göngulúinn. Eg ætla ekki að telja hér upp eða tíunda hans mörgu og merku ævistörf, það gera aðrir mér fær- ari. Frá því ég man fyrst eftir mér var Jönni eins og við kölluðum hann, alveg sérstakur frændi og engum öðrum líkur. Faðir minn og hann voru alla tíð mjög nánir og á áratuga vináttu þeirra bar ekki skugga. Fyrir það vill faðir minn þakka, nú þegar leiðir skilja. Mér er Jönni minnisstæður fyrir svo margt. Allar ferðirnar með honum í blæjujeppanum, þar sem hann kenndi okkur krökkunum svo margt um náttúruna og umhverfið. Hátíðarstundir á Helluvaði, söngur og Jönni að spila undir. Jönni við píanóið í stofunni á Spítalavegi og við stöndum á bak við hann stelp- urnar og syngjum og syngjum „Þeir kalla mig Sveinka káta...“ og margt margt fleira. Ferðir út í Hrísey, þar sem hann spilar í kirkjunni við messur. Heimsóknirnar til okkar á Þóris- stöðum og heimssóknir okkar til hans í kjallarann, þær eru okkur ómetanlegar. Það var gæfa að fá að vera sam- vistum við hann Jönna og læra af honum. Það var mér líka afar lær- dómsríkt að verða vitni að um- hyggju Ragnhildar fyrir Jönna og sjá hversu vel hún annaðist hann þegar heilsu hans fór að hraka og ávallt. Mikið þótti mér gott að fá að koma tO Jönna sunnudaginn 10. september á hjúkrunarheimilið Sel, þar sem hann var vafinn ást og umhyggju, jafnt aðstandenda sem starfsfólks. Það var ljúf stund, - því þrátt fyrir það að ég væri að kveðja hann , þá veit ég að við kveðjum aldrei þá sem skilja eftir sig jafn ljúfar og góðar minningar og hann og lifa áfram í verkum sín- um og afkomendum um ókomna tíð. Inga Margrét Árnadóttir. Mig langar með nokkrum orðum að kveðja föðurbróður minn, Jón frá Helluvaði eða Jönna eins og hann var alltaf kallaður hér. Hann ólst upp á Helluvaði við venjuleg sveitastörf og þó ekki venjuleg, því snemma fór að bera á því að hann væri fljótur að finna nýjar leiðir, og þá hagkvæmari til að skila síniN-;. verki og að smíða verkfæri og áhöld í því skyni. Hann fór ungur að vinna við smíðar í sveitinni og vann til dæm- is við byggingu fleiri íbúðarhúsa, Baldursheimsréttar, Brennisteinsverksmiðju og þá oft sem yfirsmiður. I stríðsbyrjun var lítið að gera hér heima og þá flutti Jönni til Ak- ureyrar, þar sem hann síðar hóf búskap með Ragnhildi Jónsdóttur frá Gautlöndum. Fyrst var hann þar í lögreglunni og síðan á Sjúkrahúsinu við viðhald og við4F gerðir og þar kom sér oft vel hvað hann var hugmyndaríkur. Eitthvert mesta áhugamál Jönna voru öræfi landsins. Hann ferðaðist mikið gangandi með Ólafi Jónssyni og síðar er farið var að fara á bíl- um var hann einn af frumkvöðlum um að opna nýjar leiðir, þar á með- al að brúa Jökulsá á Fjöllum við Upptyppinga svo komist yrði í Hvannalindir og Kverkfjöll. Ég hygg að fáir hafi þekkt betur svæðið milli Skjálfandafljóts og Jökulsár en Jönni, enda var hann sjálfsagður til að fara með geim- fara og jarðvísindamenn um svæð- ið. Þannig valdi Sigurður Þórarins- son jarðfræðingur hann sem sinnv’ fylgdarmann á þessum slóðum og urðu þeir miklir vinir og samstarfs- menn. Óteljandi dagsverk fóru í að leita Biskupaleiðar frá Kiðagili í Möðru- dal. Það var því ánægjulegt að vera með Jönna í Suðurárbotnum í ágúst 1999 þegar biskup íslands var þar með helgistund. Einnig að leita leiða sem brennisteinn var fluttur frá Námaskarði og Fremri- Námum til sjávar, en á þessum ferðum naut hann aðstoðar margra en þó fyrst og fremst barna sinná > og Sigurgeirs B. Þórðarsonar. En að kveikja áhuga á Öræfun- um og náttúrunni á ég honum mest að þakka, og hygg ég að svo geti margir fleiri sagt, því alltaf var hann tilbúin að taka með sér alla sem áhuga höfðu og þegar Jönni kom í Helluvað var alltaf sjálfsagt að taka börnin með hvort sem var upp á Belgjarfjall, út í Stökkul eða hvert sem var, til að sýna þeim og uppfræða þau um það sem hann var að fást við í það skiptið. Oftast þegar Jönni kom í Hellu- vað settist hann við orgelið í Gamla húsi og spilaði upp úr Ærbókinni og allir komu saman og sungu, og þar sem ekki var til orgel hjá okk-C' ur þá hafði hann með sér ferðaorg- el, sem hann ferðaðist með víða, jafnvel upp á fjöll. Á seinni árum fór hann að safna og skrifa niður ýmislegt og sér- staklega það sem tilheyrði Mý- vatnssveit og er það ómetanlegur fjársjóður sem vonandi á eftir að koma á framfæri. Það var mjög sérstakt þegar ég fór að fara til Akureyrar og þegar það spurðist að ég væri frá Hellu- vaði, þá opnuðust allar dyr, allir þekktu Jón frá Helluvaði og naut ég þess. Og alltaf var gott að koma á Spítalaveg til Jönna og Rænku, skreppa í kjallarann, og ræða síðan um heimsmálin yfir kaffibolla. •. ■*> Hann sagði við mig fyrir nokkr- um árum að hann væri orðinn spenntur fyi’ir því að deyja Það væri svo forvitnilegt að vita hvað tæki við. Þetta er Jón Sigurgeirs- son, hann þurfti alltaf að vita hvernig hlutirnir virkuðu, eins og þegar hann ungur drengur reif klukkuna í sundur og sem fullorð- inn maður reif lyklaborðið á tölv- unni til að sjá hvernig það virkaði. Ég vil þakka Jönna fyrir allt sem hann var mér og minni fjöl- skyldu, og kveðja hann eins og s hann kvaddi oft „Það tekur þ\V ekki að kveðjast vandlega, það er svo stutt þangað til við sjáumst næst“. Ingólfur á Helluvaði. • Fleirí minningargruinnr um Jón Sigurgeirsson bíða biriingar og munu birtast íblaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.