Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 19.09.2000, Blaðsíða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 '?------------------------------ MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sýning tileinkuð Cliff Richard og The Shadows frumsýnd í Broadway á föstudaginn Iskugga Shadows og Sir Cliff Næstkomandi föstudag verður sett upp sýning í Broadway byggð á frægðarferli The Shadows og Cliff Richard. Þar munu þrír gítarleikarar skiptast á að túlka goðið hornspengda, Hank Marvin, á meðan hinn góðkunni dægursöngvari, Eyjólfur Krist- Morgunblaðið/Ami Sæberg Eins og glöggt má sjá eru þátttakendur sýningarinnar klárir í slaginn. jánsson, bregður sér í hlutverk hins sjarmerandi lávarðar, Cliff Richard. Arnar Eggert Thoroddsen var leiddur um skuggastræti af mönnum sem vel til þekkja. Morgunblaðið/Einar Falur Hvernig fór Svenni Guðjóns (Iengst til vinstri) að því að troða sér inn í Shadows? ALLIR íslenskir unglingar sem gældu eitthvað við gítarinn á árun- um 1960 til 1962 lögðu sig í líma við að stæla hið einstaka lag sem Hank Marvin, sólógítarleikari Shadows, hafði á hljóðfærinu og á tímabili varð ekki þverfótað fyrir íslenskum Shadows-sveitum sem spruttu upp um allt land eins og gorkúlur. ^ Fimm sinnum á Young Ones Sveinn Guðjónsson, blaðamaður og tónlistarmaður, sem lék í eina tíð ineð sveitum eins og Roof Tops og Haukum, segir Shadows hafa verið mikla áhrifavalda í hans lífi. „Þegar ég var krakki fór ég fimm sinnum að sjá myndina The Young Ones með Cliff Richard sem sýnd var í Tóna- bíói,“ staðhæfir Sveinn. „Þar tóku Shadows ansi eftirminnileg dans- spor og voru með alveg rosalega flott gítarlög. Þá var stefnan strax tekin á að verða gítarleikari eins og Marvin.“ Bítlaæðið sem fylgdi í kjölfar Shadows-æðisins fór því öf- ugt ofan í Svein, allavega til að byrja með. „Shadows voru það mikil átrúnaðargoð að lengi vel strögglaði maður við að samþykkja Bítlana þó að á endanum hafi ég einfaldlega gefist upp, það var auðvitað ekkert annað hægt.“ Vilhjálmur Guðjónsson, allra- handamaður hvað hljóðfæraleik varðar, er einn af þeim gítarleikur- um sem kemur til með að túlka sjálf- an Hank Marvin í sýningunni. „A sýningunni verðum við með gamla Vox-magnara, og endurkaststæki (e. ,,echo“) sem var vörumerkið hans Hank Marvin, allt gert til þess að ná rétta hljómnum,“ segir Vilhjálmur. „Þessi sýning er mér hjartans mál enda var ég sjálfur í Shadows-bandi í gamla daga - komst aldrei í neina Bítlahljómsveit af því að ég var kall- aður Villi Shadow! Ég er búinn að kappkosta við að ná rétta tóninum undanfarið og verð því vopnaður rauðum Fender Stratocaster sem var einkennisgítar Hank Marvin." Með tennisspaða uppi í rúmi Jón Þór Hannesson, forstjóri Saga Film, var í einni af fyrstu Shadowssveitunum hér á landi, Tónum. „Á árunum 1960-1962 spruttu upp Shadows-sveitir um alla Evrópu og Island var þar engin undantekning," segir Jón. „Hank Marvin hefur auðvitað haft gífurleg áhrif sem gítarleikari og það má vel greina þau hjá seinni tíma gítargoð- um eins og Mark Knopfler og Eric Clapton. Eg held ég hafi spilað fyrstu Shadowsplötuna alveg í gegn og maður setti sig í stellingar uppi í rúmi með tennisspaða í hönd,“ segir Jón skellihlæjandi. Magnús Eiríksson, gítarleikara og lagasmið er óþarft að kynna, en hann varð eins og flestir af hans kynslóð, fyrir skuggalegum áhrifum af Shadows. „Fyrir okkur var þetta sambærilegt við Bítlaæðið sem á eftir kom og það voru Shadowsbönd vaðandi uppi úti um allt,“ segir hann. „Sjálfur var ég mikill aðdá- andi Hank Marvin og hann hafði mikil áhrif á mig sem gítarleikara." Eyjólfur Kiástjánsson, fyirum Bítlavinur, nú Shadowsvinur, mun syngja hlutverk Cliff Richard í sýn- ingunni en Shadows þjónuðu oft sem undirleikarar hjá popparanum slunga. „Ég komst inn í Cliff fremur seint á hans ferli,“ segir Eyjólfur. „Það var í kringum 1980 þegar lög eins og „We dont talk anymore" urðu vinsæl. Ég verð nú samt að við- urkenna að ég varð fyrir meiri áhrif- um frá Shadows sem slíkum frekar en Cliff. Titillagið úr „Deer Hunter“ er mér til dæmis afar hugleikið." Dagskráin er annars þannig upp byggð að um helmingur laganna verður sungin en í hinum helmingn- um fá Marvinistarnir þrír, Gunni Þórðar, Árni Jörgensen og Vil- hjálmur Guðjónsson að láta ljós sitt skína. Nýtt Shadows-æði? Eða hvað? Hinn goðmagnaði gítarómur Shadows í árdaga. Hank Marvin er annar frá vinstri. ÁÐUR en Bítlarnir tóku sig til og trylltu heimsbyggðina voru Shad- ows málið. Að hluta til sveit sem sá um undirspil fyrir poppstirnið ei- lífa Cliff Richard - að hluta til brautryðjendur í rokkgítarleik sem hafa haft ómæld áhrif á þess háttar listiðkun. Eins og eldur í sinu Rætur Shadows má rekja til árs- ins 1958 er tveir ungir gítarleikar- ar frá Newcastle, Hank Marvin og Bruce Welch, voru ráðnir í hljóm- sveitina The Drifters sem var í þann mund að lcggja í tónleika- ferðalag með Cliff Richard sem þá var heitasta poppstjarna Bret- lands. Nafninu Drifters var svo fljót- lega breytt í The Shadows eftir lagalegan þrýsting frá samnefnd- um sönghópi frá Bandaríkjunum sdkm þá naut töluverðra vinsælda. Um það leyti höfðu Shadows hafið útgáfu á sungnum smáski'fum án Richard, en þeim var fálega tekið. Það var ekki fyrr en þeir skrúfuðu niður í hljóðnemunum að þeir slógu í gegn með laginu „Apache", en það sat á toppi breska vinsælda- listans sex vikur í röð. I kjölfarið -breiddust vinsældir sveitarinnar eins og eldur í sinu út um alla Evrópu, og á árunum 1960-1962 var varla til það bæjarfélag í álf- unni sem státaði ekki af einni til tveimur „Shadows“-sveitum. Einhverra hluta vegna náðu Shadows þó aldrei að hasla sér völl handan Atlantsála, en þar var fyr- ir sterk hefð „sönglausra" gítar- sveita, Ventures þeirra þekktust, en hún er ekki síður áhrifamikil sveit með tilliti til gítarvísinda. Shadows hætta Gullöld bresku gítarsveitanna leið þó óhjákvæmilega undir lok er Bítlaæðið upphófst, hvar megin- áherslan, allavega í blábyrjuninni, var á orku og æði fremur en fág- aðan hljóðfæraleik. Sveitir eins og Shadows, þar sem megináherslan var hins vegar á sjálfa tónlistina fremur en klæðaburð og önnur ámóta tískubákn, féllu því fljót- Iega í „skuggann" ef svo mætti að orði komast. Ferillinn hélt þó ótrauður áfram og unnu þeir m.a. með Cliff Richard að hinum ýmsu kvikmynd- um, eins og til dæmis Summer Holiday og The Young Ones en þessar söngva- og gleðimyndir þykja í dag vera hinir verðugustu fánaberar þeirrar dægurmenning- ar Bretlands sem tröllreið fyrri hluta sjöunda áratugarins. Árið 1968 hættu Shadows svo störfum og meðlimir hófu að sinna ýmsum viðfangsefnum í kjölfarið; Hank Marvin og trommuleikarinn Brian Bennet gáfu til dæmis báðir út einleiksskífur stuttu eftir sam- starfsslitin. Þekktasta verkefni Shadowsmeðlima utan móður- sveitarinnar er þó líkast til tríóið Marvin, Welch & Farrar sem fóst- bræðurnir Hank Marvin og Bruce Welch ráku á fyrst.u árum áttunda áratugarins í samstarfi við söngv- arann og gítarleikarann John Farrar en þar einbeittu þeir sér að samsöng í anda Crosby, Stills og Nash fremur en gítarleik. Hinn eini sanni hljómur Ekki leið þó á löngu þar til Hank og félaga fór að klæja í gítar- fíngurna og Shadows hafa komið margsinnis saman aftur eftir að sveitin hætti fyrst opinberlega, ýmist einir og sér eða ásamt gamla félaganum Cliff. Kjarni Shadows hefur ávallt verið gítarleikararnir Hank Marv- in og Bruce Welch ásamt trommu- undrinu Brian Bennett og það cr þetta þríeyki sem borið hefur hróður Shadows á bökum sér til þessa dags. Hank Marvin er rétti- lega talinn vera með áhrifamestu rokkgítarleikurum sögunnar og vopnaður fáguðum og stálhreinum einkennishljómnum galdraði hann fram ómótstæðilegar melódíur á mektarárum sveitarinnar. Síðasta áratug hefur verið heldur hljótt um sveitina, einna helst að Marvin hafi verið iðinn við að gefa út plöt- ur undir eigin nafni en áhrifum Shadows er hins vegar framhaldið á fullu af sterkum og stórum hópi aðdáenda og fjöklinn af starfandi hermisveitum er sláandi. Dýrkun- in á Hank Marvin nálgast trúar- brögð, til eru klúbbar víðsvegar um heiminn tileinkaðir honum og hefur einn þeirra staðið að útgáfu geislaplatna sem bera yfirtitilinn UB Hank eða Vertu Hank þar sem hægt er að spila gítarlínur Hank Marvin við undirspil. Heilu ritgerðirnar hafa og verið skrifaðar með þeim tilgangi að komast að því hvernig hann nái þessum eina sanna „hljómi". Það er kannski að Gunni Þórðar og fé- lagar nái að svipta hulunni af því leyndarmáli næsta föstudag?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.