Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 74

Morgunblaðið - 19.09.2000, Side 74
MORGUNBLAÐIÐ 74 ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 2000 Ásgeir og Erlingur taha áskoruninni! Fylgist með á næstu mánuðum og sjáið þá umbreytast! Naf n: Ásgeir Ólafsson Nafn: Erling Ágústsson ,Starf : Sölustjóri Starf : Markaðsráðgjafi >yngd : 93 kg. Þyngd : 76 kg. Hæö: 183 cm. Hæð: 172 cm. Ásgeir ÓLafsson og Erling Ágústsson hafa ákveðið að snúa vió blaðinu og taka áskorun ADONIS og PUMA. Á næstu 3 mánuðum mun ADONIS aðstoða þá við að breyta um LífstíL, grenna sig og bæta á sig vöðvamassa. Hjátpaðu okkur að styðja við bakið á drengjunum með því að halda allrí óhollustu frá þeim! mm JUÚJIUMLM ADOnic, <0 Salatbarinn hjá Elka VGRSLUN MGÐ FPEÐUOÓTflRGFNX Kringlunni - www.adonis.is FÓLK í FRÉTTUM Kvikmyndin Englar alheimsins fær verðlaun á kvikmyndahátíð í Hollandi Sætur s á Schr ÍSLENSKAR MYNDIR gera það ekki endasleppt á erlendum kvik- myndahátíðum um þessar mundir. Strax í kjölfar góðs gengis á kvik- myndahátíðinni í Toronto fór Friðrik Þór Friðriksson með mynd sína Engla alheimsins á kvikmyndahátíð- ina Film By The Sea í Hollandi þar sem myndin var tilnefnd til verð- launa sem besta myndin byggð á bókmenntaverki. Alls 12 myndir voru tilnefndar í flokki þessum og því er skemmst frá að segja að Engl- arnir var valin sú besta í þeim hópi. Friðrik Þór veitti verðlaununum við- töku en þau voru 10 þúsund evrur eða 720 þúsund krónur. Það sem ger- ir heiður þennan hvað markverða- stan eru þær myndir sem Englar Al- heimsins skaut ref fyrir rass. Þar voru á meðal allstórar myndir á borð við myndgerð Mary Harron af um- deildri metsölubók Brett Easton Ellis American Psycho, Affliction sem hinn margrómaði handritshöf- undur og leikstjóri Paul Schrader gerði eftir sögu Russell Banks en fyrir leik sinn í henni fékk James gamli Cobum Óskarsverðlaunin fyrr á árinu, nýjast mynd Terrence Da- vies The House Of Mirth eftir bók Edith Wharton með þeim Gillian Hollendingar hrifust af Ingvari og Englunum. Anderson og Dan Aykroyd í aðal- hlutverkum og Up At The Villa eftir sögu Somerset Maugham í leikstjórn Philips Haas, með þeim Sean Penn og Kristin Scott Thomas. Friðrik Þór segist að vonum ánægður með útnefninguna, ekki síst með að hafa unnið nauman sigur á jaxlinn Schrader: „í umsögn dómnefndar kom fram að myndir okkar tveggja stæðu uppúr en þar sem gera þurfti upp á milli þeirra þá hefði Englar al- heimsins á endanum staðið með pálmann í höndunum.“ Friðrik segir Schrader karlinn ekkert hafa tekið þeim lyktum allt of drengilega - hann hefði strax í kjölfarið yfirgefið hátíðina í fússi og skráð sig út af hót- eli sínu: „Það er gaman að hafa unnið mann sem er ein af ástæðunum fyrir því að maður fór út í þennan bransa. Eg ætla þó að vona að hann fari ekk- ert að erfa ósigurinn við mann.“ Friðrik Þór segist reyndar ekki hafa mikla trú á því „þar sem vel fór á með okkur áður en til bráðabanans blóðuga kom.“ Englar alheimsins verður tekin til almennra sýninga í Hollandi í desember. Næsta hátíð Englanna verður í Riga og segir Friðrik Þór að sú sé með allsérstæðu sniði: „Þeir tína til nokkrar af frambærilegustu mynd- um hátíðarinnar í einn hatt og veiða síðan upp úr sigurmyndina. Ég kann vel að meta slíkan húmor.“ Lestur er undirstaða... hih^ Allra starfa í nútima þjóðfélagi. Því betrl sem þú ert í lestri, þeim mun betri möguleika hefur þú á að ná góðum árangri í starfi. Alls náms. Því betri sem þú ert í lestri, þeim mun betri möguleika hefur þú á að ná góðum árangri í námi. Hafðu undirstöðuna í lagi. Margfaldaðu lestrarhraðann. Lestrarhraði fjórfaldast að jafnaði og eftirtekt batnar. Næsta námskeið hefst 26. september. Við ábyrgjumst árangur. Sími 565 9500 HRAÐLESTRARSKÖLINN www.hradlestrarskolinn.is mbl.is og Síminn-GSM efna til spennandi getraunaleiks á Formúla-1 vef mbl.is. Með þátttöku átt þú möguleika á að vinna GSM-síma frá Símanum-GSM Skjóttu\^i úrsWtin FORMÚLAN Á SfMINN-GSM £RBA SKRIF8 rOFA^^m REYKJA VIKUR mbl.is MYNDBOND Samúræi nútímans Vofan: Leið Samúræjans (Ghost Dog: The Way ofthe Samurai) Spennuniynd ★★% Leikstjórn og handrit: Jim Jarmusch. Aðalhlutverk: Forest Whitaker, John Tormey. (111 mín.) Bandaríkin/Þýskaland/ Frakkland, 1999. Bergvík. Bönnuð innan 16 ára. NÝJASTA kvikmynd bandaríska jaðarleikstjórans Jim Jarmusch er nýstárlegur samhræringur ólíkra kvikmyndahefða. Myndin fjallar um leigumorðingja sem kallar sig Vof- una og býr í dúfna- kofa uppi á húsþaki í svertingjahverfi í New York. Hann er einrænn og fáskipt- inn og hefur helgað sig lífsspeki Sam- úræjans. En hvað gerist þegar lífs- gildi þessarar alda- gömlu hefðar eru heimfærð á harða lífsbaráttuna í glæpahverfum stórborgarinnar? Mafíuforingi sem bjargaði eitt sinn lífi Vofunnar verður meistarinn sem Vofan þjónar skilyrðislaust og er reiðubúinn að deyja fyrir. Jarmusch tekst að blanda skemmtilega saman þráðum úr samúræjahefðinni, glæponahefðinni og loks gamanhefð- inni og láta heildarmyndina ganga ágætlega upp. Líkt og mörg verk Jarmush er þetta einnig mynd um stórborgina og ólík menningaráhrif. Besti vinur Vofunnar er t.d. franskur íssali sem talar ekki stakt orð í ensku. Þá birtist mafían sem sam- safn hálfgerðra karlskrögga sem til- heyra deyjandi hefð, líkt og samúr- æinn. Whitaker stendur eins og klettur í miðju þessa hrærigrauts og veldur ábyrgðarhlutverki sínu sem þungamiðja kvikmyndarinnar alger- lega áreynslulaust. Þetta er áhuga- verð mynd sem þó lætur dálítið und- an síga í lokin. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.