Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 31

Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 31 LISTIR „Yfirhlj<5ðhraðateikning“ nr. 3 eftir Kristján, frá ár- inu 1972. Brennt byssupúður á pappír. Á veggnum er verk úr gleri eftir Rögnu Rúbertsdóttur, en skúlptúrarnir eru verk Karin Sander. „Hraðari og hægari línur“ eftir Kristján frá árinu 1975. Blek á þerripappír. Galerie Anhava er með starfsemi sína í glæsi- legum húsakynnum við hliðina á nútímalista- safninu Kiasma í Helsinki. Fríða Björk Ingvarsdóttir var þar á ferð fyrir skömmu og leit inn á sýningu þeirra Kristjáns Guð- mundssonar, Rögnu Róbertsdóttur og Karin Sander. I samtali við Ilonu Anhava sem rekur galleríið kom fram að íslensk hugmyndalist hefur vakið athygli list- unnenda erlendis. EF einhver á dijúgan þátt í því hversu vel íslenskum listamönnum hefur gengið að kynna verk sín í finnskum listheimi á undanfömum árum þá er það Ilona Anhava. Hún rekur hið virta Galerie Anhava í Helsinki og hefur með fagmannleg- um vinnubrögðum sett svip á mynd- listarlífíð í borginni. Ilona er mikil áhugamanneskja um samtímalistir og tengsl hennar við íslenska lista- menn eiga rætur sínar að rekja til að- dáunar hennar á verkum Kristjáns Guðmundssonar sem hún hafði upp- götvað án þess að þekkja til hans persónulega. Þegar hún hóf eigin gallerírekstur hafði hún strax samband við Kristján og fór þess á leit að fá að sýna verk eftir hann. I gegnum Kristján kynnt- ist hún svo Sigurði, bróður hans, og síðan Hreini Friðfinnssyni, sem varð til þess að hún gerði sér ferð til Amsterdam á yfirlitssýningu á verk- um hans fyrir nokkrum árum. Síðan þá hefur Ilona skipulagt einkasýn- ingar með þeim öllum, en aðrir ís- lenskir listamenn sem hafa sýnt hjá henni eru þau Ragna Róbertsdóttir og Finnbogi Pétursson sem tekið hafa þátt í samsýningum. Nú stendur yfir sýning í Galerie Anhava á verkum frá ýmsum tímum eftir Kristján Guðmundsson. Verk hans eru í stærra sýningarrýminu, en í minni salnum eru tölvuunnir skúlptúrar eftir Karin Sander og eitt verk unnið í gler á vegg eftir Rögnu Róbertsdóttur sem hefur sýnt víða um heim undanfama mánuði. Islensk hugrnyndalist varð að vel þekktri hreyfingu erlendis „íslensk hugmyndalist varð að hreyfingu sem er ákaflega vel þekkt á Norðurlöndum og jafnvel í löndum Mið-Evrópu,“ segir Ilona og stað- næmist við verkið „Yfirhljóðhraða- teikning" eftir Kristján sem varð til þegar byssukúlu var skotið yfir pappír. „Allir sem hafa áhuga á hug- myndalist vita að Island er mjög sér- stakt í þessu tilliti, því þar hefur VITSMUNALEG SPENNA „Teikning" eftir Krislján frá árinu 1987. Blýantur á pappa. komið fram list sem er bæði vits- munalega spennandi og í fagurfræði- legu jafnvægi. Þessi list er tær og einstaklega falleg. Því miður er það yfirleitt svo að enginn er spámaður í sínu föður- landi,“ segir hún brosandi. „En þótt almenningur á íslandi þekki þessa listamenn ekki eins vel og marga aðra sem eru kannski minni spámenn eiga þeir stóran hóp velunnara er- lendis. Lars Nittve, forstöðumaður Tate-nútímalistasafnsins, var hér í morgun að skoða þessa sýningu. Hann sagði að sýningin væri hreint frábær; maður þyrfti ekkert að vita um bakgrunn hennar til að njóta verkanna en svo kæmi vitneskjan um „konseptið" eins og rúsína í pylsu- endanum og yki skilning manns.“ Þegar Ilona er spurð um aðdrag- anda sýningarinnar brosir hún og út- skýrir vinnuaðferðir sínar. „Ég verð að viðurkenna að ég læt oft hugboð ráða því hvemig ég vinn hlutina. Þess vegna get ég svo sem ekki út- skýrt ástæðurnar fyrir því að ég vildi setja þessa sýningu saman á þennan hátt. En mig hefur mjög lengi langað til að sýna einhver eldri verka Krist- jáns í Finnlandi. List hans hefur allt- af vakið mjög jákvæð viðbrögð og reyndar var það svo að fyrsta sýning- in sem ég skipulagði með honum hreinlega bjargaði galleríinu. Það var árið 1992 að mig minnir. Þetta var á erfiðum tímum efnahagskrepp- unnar hér og galleríið var í erfiðri fjárhagsstöðu. Sýning Kristjáns vakti svo mikla athygli að nærri öll verkin seldust." Ekki einungis Qárhagslegur ávinningur Ilona segir að ávinningurinn af þessari fyrstu sýningu þeirra Krist- jáns hafi þó hreint ekki einungis verið fjárhagslegur, því til dæmis hafi þeir listamenn sem komu í galleríið orðið fyrir miklum áhrifum, sem í raun þýðir að myndlist hans er í miklum metum þar í landi. „Yið sýndum ein- ungis pappírs- og blýverk á þessari sýningu og verkin nutu sín ákaflega vel í því litla rými sem galleríið starf- aði í á þeim tíma,“ segir Ilona. „Kveikjan að þessari samsýningu sem stendur núna var þegar ég sá veggmynd úr gleri eftir Rögnu og skúlptúra Karin Sander á sýningar- bás Eddu Jónsdóttur í gallerí i8 á listamessunni í Stokkhólmi. Það sem hún er að gera vekur alltaf athygli mína og ég hugsaði með mér að myndlist af þessu tagi myndi eiga góða samleið með verkum Kristjáns. Ég eygði þarna möguleika á að koma Rögnu og Karin á framfæri hér og nota um leið tækifærið til að sýna þessi eldri verk Kristjáns sem ég hafði haft svo lengi í huga.“ Myndlist af þessu tagi verður ekki vinsæl meðal þorra manna Ilona segir að það sé mikilvægt að gera sér grein fyrir því að list af þessu tagi sé ekki þess eðlis að hún verði vinsæl meðal þorra manna. „En hér í Finnlandi er þó stór hópur list- unnenda sem kann að meta hug- myndalist. Mér finnst það mikill heiður fyrir mig að fá að sýna þessi verk sem eru hér núna, það er mjög mikilvægt fyrh- orðspor gallerísins og alla þá starfsemi sem því tengist. Það tekur mann enginn alvarlega nema maður hafi metnað til að sýna það sem er framsækið.“ Viðskiptavinir Galerie Anhava eru ýmist listasöfn og stofnanir eða lista- verkasafnarar. „Það eru ekki nema einstaka manneskjur sem kaupa list af ástríðu. Flestir kaupa ekki lista- verk fyrr en þeir hafa fullnægt öllum öðrum þörfum,“ segir Ilona. „Safn- arinn lætur listaverkin ganga fyrir kaupum á nýjum bfl og vorferð til Parísar. Aðrir áhugasamir listunn- endur nota bara það sem þeir eiga af- lögu til listaverkakaupa og þvi hefur efnahagsástandið í landinu hverju sinni mikið að segja. Finnar hafa haft það ágætt nú um nokkurt skeið og áhugi á listum eykst um leið. Svo þegar gallerí er orðið vel kynnt fer það að eignast viðskiptavini erlendis frá. Slík viðskiptasambönd eru mjög mikilvæg enda ómetanleg til að koma myndlist á framfæri úti í hinum stóra heimi. Ég er að reyna að efla tengslin út á við, því markaðurinn hér ér svo lítill. Og hann er ennþá minni hjá ykkur á íslandi," segir hún hrein- skilnislega. „Þið verðið þvi að leggja mikið undir í kynningarstarfsemi til að umheimurinn sjái hvað í ykkur býr.“ Lítill markaður er íhaldssamur þegar kemur að myndlist „Þau vandamál sem fylgja litlum markaði eru ekki bara tengd sölu- möguleikum. Reynslan sýnir að lítill markaður er yfirleitt ákaflega íhalds- samur þegar kemur að myndlist. Fólk sem býr í miklu návígi við hvert annað er ekki eins áræðið og hug- rakkt í viðhorfum sínum til mynd- listar og þeir sem búa við meiri fjöl- breytileika. Það lætur ekki hrífast eins auðveldlega og þeir sem búa í stærra samfélagi, því smekkurinn stjómast fremur af umhverfinu og skoðunum náungans en af sjálfs- trausti og dirfsku. Það tekur því langan tíma að breyta viðhorfum í litlum samfélögum og sannfæra fólk um ágæti þess sem þvi finnst fram- andi.“ Þegar vikið er að finnskum sam- tímalistum segir Ilona að Finnar séu hreint ekki nógu duglegir við að kynna finnska myndlist, því það sé ekki gert með markvissum hætti. „En tímarnir eru þó aðeins að breyt- ast. Hér í Finnlandi er ákaflega sterk hefð fyrir málverkinu og það eru ekki nema nokkur ár síðan allir þeir sem fóru í listaháskólann urðu málarar. Núna er fólk meðvitaðra um val- möguleika þegar það finnur sköpun- arþrá sinni farveg sem þýðir að ný listform eru nú meira áberandi og setja mark sitt á listumhverfið. Og þeir sem velja málverkið vinna einnig út frá nýjum forsendum, þeir reyna að vinna úr þeim möguleikum mál- verksins sem ekki hafa verið nýttir áður. Ljósmyndaverk og mynd- bandsverk eru áberandi núna og ungir listamenn á borð við Elenu Brotherus sem nýlega sýndi í galleríi i8 á íslandi hafa vakið mikla athygli um allan heim. Það er því engin ástæða til að örvænta," segir Ilona Anhava undir lok þessa samtals þar sem hún stendur innan um íslenska myndlist, á fallegustu sýningu sem hún hefur nokkru sinni sett upp, að eigin sögn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.