Morgunblaðið - 31.10.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 35
Samtíminn krufinn
frá sjónarhóli kvenna
BOKMEJVNTIR
Skálásaga
DÍS
Höfundar: Birna Anna
Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir
og Silja Hauksdóttir.
Forlagið 2000, 278 bls.
SKÁLDSAGAN DÍS er skrifuð
að þremur ungum konum, gerist í
sumar sem leið og lýsir lííi ungrar
Reykjavíkurdísar sem býr á Lauga-
veginum, er „svona hálftýnd og
hálffundin í einu,“ eins og hún orðar
það sjálf (bls. 116). Dís lifir sem sagt
í einhvers konar millibilsástandi,
getur ekki gert upp við sig hvað hún
á að vera og hvað hún á að gera,
upplifir sig sem „meðalmanneskju í
tilvistarkreppu“ (bls. 115) og finnst
fátt ömurlegra í þjóðfélagi þar sem
allir eiga að meika það á öllum svið-
um og geta ekki orðið hamingjusam-
ir fyrr en þeim áfanga er náð.
A mörgum stöðum í bókinni er að
finna skemmtilegar, beittar lýsingar
á þeim væntingum og kröfum sem
unga fólkinu finnst að gerðar séu til
þess í samfélagi þar sem efnishyggj-
an ræður ríkjum, og ekki síður
skemmtilegar lýsingar á því hvernig
raunveruleikinn stangast á við vonir
og væntingar þeirra sjálfra sem ný-
lega haft hleypt heimdraganum og
eru farnir að sjá um sig sjálfir.
Sumarið 2000, þegar jarðskjálftar
skóku Suðurland og Geysir gaus, er
viðburðaríkur tími í lífi Dísar, vin-
kvenna hennar og vina; tvær vin-
kvennanna trúlofast, sú þriðja verð-
ur ólétt, krosstré bregðast og önnur
veigaminni standa sig og ýmislegt
óvænt kemur upp á eins og vera ber
í skáldsögu - eða eins og Harpa,
frænka og sambýliskona Dísar, orð-
ar það í upphafskafla bókarinnar, þá
spinna örlögin persónunum „magn-
aðan vef ótrúlegra atburða“ (bls. 8) í
rás sumarsins. Frásögnin er hagan-
lega saman fléttuð og lipurlega
skrifuð, þó virka ýmsar „vendingar"
undir lok sögu dálítið „ævintýraleg-
ar“ og á skjön við þá raunsæisfléttu
sem frásögnin byggist á. Stfllinn er
byggður á talmáli, er raunsæislegur
og blátt áfram, enda varla hægt að
krefjast persónulegrar eða nýskap-
andi úrvinnslu á tungumáli þegar
um texta er að ræða sem skrifaður
er í samvinnu þriggja aðila.
Þetta er fjörlega skrifuð bók,
sprottin beint upp úr samtíma kyn-
slóðarinnar sem nú er rúmlega tví-
tug og ekki efa ég að hér er um
sannferðuga lýsingu á þeirri kyn-
slóð að ræða. Það sem vekur hins
vegar athygli mína er hversu lítið
hlutirnir hafa í raun breyst, a.m.k. ef
litið er yfir síðustu tvo til þrjá ára-
tugi. Lýsingin á móralnum í MH og
á samræðum vinkvennanna, part-
íunum o.fl. gætu allt eins verið lýs-
ingar á því sem undirrituð upplifði á
sínum menntaskóla og eftir-
menntaskóla-árum (ég er 20 ára
stúdent). Þetta virðist þó þeim sem
bókina skrifa ekki ljóst því mikið er
gert úr kynslóðabili og breyttum að-
stæðum. Kafli eins og þessi kemur
mér vægast sagt undarlega fyrir
sjónir:
Nei Harpa, spáðu aðeins í hvað
tímarnir eru breyttir, tökum til
dæmis okkur og mæður okkar.
Hvað heldurðu að mamma þín hafi
verið búin að sofa hjá mörgum þeg-
ar hún gifti sig?
Engum.
Nákvæmlega, eins og mamma
mín. En í dag er ekkert óalgengt að
stelpur á aldrinum tuttugu til þrjá-
tíu ára séu búnar að sofa hjá tíu til
sextíu manns. Það er tíu til sextíu-
föld aukning!" (bls. 29)
Glætan! Trúa ungar konur í dag
því virkilega að mæður þeirra hafi
verið hreinar meyjar á brúðkaups-
daginn?
A öðrum stað segir:
Morgunblaðið/Einar Falur
Birna Anna Björnsdóttir, Oddný Sturludóttir og Silja Hauksdóttir.
„Þegar mamma var ung lá í aug-
um uppi að staða kvenna var verri
en karla. Þær höfðu greinilega lægri
laun, gekk greinilega verr að hasla
sér völl í atvinnulífinu og höfðu
greinilega minni réttindi en karlar.
Að berjast fyrir því að afnema allt
þetta var augljóslega þarft verk.
Núna er misréttið bara ekki jafn
greinilegt. Til þess að vera meðvituð
kona [...] þarf maður geðveikt að
vera á verði til að skynja þegar
manni er mismunað vegna kynferð-
is.“ (128)
Hér er kynslóðarbilið kannski
augljóst því þær konur sem eru
komar á fullt í atvinnuþátttöku vita
að laun kvenna og tækifæri til þess
að „hasla sér völl“ eru „greinilega"
ennþá langt frá því sem karlar búa
við og það þarf síður en svo „geð-
veikt að vera á verði til að skynja"
mismuninn (og mismununina) - því
miður.
Bókin sver sig opinberlega í ætt
við bók Hallgríms Helgasonar (sem
er ekki mikið yngri en foreldrar
persóna verksins) 101 Reykjavík.
Hér er „miðbæjarlífi“ unga fólksins
lýst út frá sjónarhóli ungu konunnar
sem túlka má sem nokkurs konar
„svar“ eða mótmynd við Hlyn Björn
(þótt hann sé reyndar tíu árum
eldri) og höfundar „herma eftir“ eða
vísa í stfl Hallgríms með klausum
eins og þessari:
„...ég [er] búin að setja gamla og
góða vínylplötu á fóninn, ligg á
stofugólfinu og syng hástöfum með
Tammy Wynette, Stand By Your
Man. Blessuð sé minning hennar.
Stand by your man? Hvaða
manni? Sýndu mér mann og ég skal
standa við hliðina á honum. Eg á ör-
ugglega eftir að standa við hliðina á
manni í kvöld. En kannski ekki með
honum. Nema honum standi.“
(bls.157)
Lesendur Hallgríms kannast við
orðaleikja-hugrenningatengsl-stíl
hans hér. Reyndar má segja að Dís
(bókin) sé í virkri samræðu við fleiri
„karlabækur“ síðustu ára og ára-
tuga, til að mynda hefst frásögnin á
því að staðsetja Dís í ákveðið
„hverfi" borgarinnar (Bústaða-
hverfíð) - líkt og gert er í fyrstu
bókum Einars Más og fleiri karlhöf-
unda - áður en hún tekur stefnuna
niður í miðbæ.
Lýsingin á Dís, hennar sjálfsleit
og tilvistarkreppu er mjög lifandi og
sannfærandi og ákaflega kunnugleg
(jafnvel fyrii- þá sem eldri eru!).
Efnishyggju- og framadraumarnir
hafa verið lengi við lýði í íslensku
samfélagi: eiginmaður, börn, einbýl-
ishús, jeppi, verðbréf - og frami í
starfi, þetta hefur vafist fyrir fleiri
kynslóðum kvenna en þeirri sem nú
er á þrítugsaldri:
,Allir eiga að fara í skóla og læra
eitthvað skapandi og áhugavert sem
gefur líka vel af sér. Allir eiga að
skoða heiminn, tala minnst þrjú
tungumál reiprennandi, búa erlend-
is í einhver ár og ferðast jafnframt á
fjarlægar og framandi slóðir. Þegar
fólk er komið með gráðu, eða búið að
ákveða hvað það ætlar að verða þeg-
ar það er orðið stórt, komið langt á
fertugsaldur, má það koma heim til
íslands. Stofna fjölskyldu og fyrir-
tæki og fara að græða peninga.
Stuðla að hagvexti og blómlegu
menningarlífi, lifa heilbrigðu og um-
hverfisvernduðu lífi, flokka rusl og
skokka. Vera sítengt við Netið og
meðvitað um stöðu heimsmála.
Stunda líkamsrækt reglulega og
nýta sér útivistarmannvirki Reykja-
víkur. Vera smart til fara og kíkja á
myndlistarsýningar á sunnudögum.
Grilla úti og gefa til góðgerðarmála.
Eiga tvo bíla (glænýjan stallbak og
slyddujeppa), stóran ísskáp, tvö
sjónvörp, uppþvottavél, heimabíó,
Rainbowryksugu og brauðgerðar-
vél. Nýta sér heimilisþjónustu bank-
anna, vera áskrifandi að spariskír-
teinum og kaupa hlutabréf í
traustum, erlendum verðbréfasjóð-
um. Spara til elliáranna og vera
meðvitað um stjórnmál.
Ef þessi atriði eru á hreinu, geta
lífsgráðugir meðlimir minnar kyn-
slóðar skilgreint sig hamingjusama.
En ekki fyrr.“ (bls. 13)
Frábær er lýsingin á því þegar
Dís skýtur sér á síðustu stundu und-
an því að brúðarvöndur frænku
hennar hafni í fanginu á henni. Þeg-
ar umræddur vöndur stefnir óðfluga
á hana sér hún líf sitt renna sér fyrir
hugskotssjónum, eins og sagan seg-
ir að gerist á dauðastundu einstakl-
ingsins (bls. 144) og hún hoppar hæð
sína til hliðar.
Sýn höfunda á samfélagið, sam-
skipti kynjanna og sjálfsleitina er
skemmtilega íronísk og mjög fyndin
á köflum, þótt vissulega megi einnig
finna alvarlegan undirtón í frásögn-
inni. Sem sagt, afar læsileg og
skemmtileg lýsing á nútímanum
sem hefur alla burði til að meika það
í jólabókaflóðinu.
Soffía Auður Birgisdóttir
Glæsilegir
borðlampar
</>
JB
Mörkinni 3, sími 588 0640
0pi& mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14
Saga af
hjdnabandi
KVIKMYNPIR
Iláskólabfó
MEÐ EÐA ÁN ÞÍN
„WITH OR WITHOUT
YOU“ -k-k'/z
Leikstjóri: Michael Winter-
bottom. Handrit: John Forte. Að-
alhlutverk: Christopher Eccle-
ston, Dervla Kirwan.
BRESKA gamanmyndin Með
eða án þín segir frá hjónum sem
gengur erfiðlega að eignast barn.
Þau hafa verið gift í fimm ár og
allt er í lukkunnar velstandi nema
barnleysið veldur nokkurri
streitu í sambandinu. Þegar
franskur pennavinur eiginkon-
unnar, sem hún hefur aldrei séð
áður í eigin persónu og er löngu
hætt að skrifast á við, birtist
óvænt á dyrahellunni hjá henni
fluttur frá Frakklandi og heimil-
islaus, veitir hún honum fúslega
húsaskjól og dregur það síst úr
spennunni í hjónabandinu þegar
frá líður.
Með eða án þín er hæfilega
fyndin, bresk hjónabandskóm-
edía um fólk sem stendur á kross-
götum í lífi sínu og er ekki með
það alveg á hreinu hvaða átt það á
að fara í. Bretar virðast nokkuð
uppteknir af þessari spurningu,
Metroland og Maby Bay, eru
myndir af sama meiði svo aðeins
tvær séu nefndar, en Með eða án
þín er ekki eins alvarleg og fyrr-
nefnda myndin og talsvert
skemmtilegri en sú síðarnefnda.
Allar komast þær að sömu nið-
urstöðunni eftir mikið jaml, japl
og fuður nefnilega þeirri að
hjónabandið sé hornsteinn lífsins.
Það má vera að blundi í fólki ein-
hver þrá um frelsi til þess að vera
öðruvísi, lifa lífinu eins og það
heitir líklega, en á endanum er
varanlegt samband hið eina rétta.
Stanley Kubrick komst að sömu
niðurstöðu í sinni síðustu mynd,
Eyes Wide Shut. Kannski var það
breska íhaldssemin sem hafði
áhrif á hann, líklegar þó sátt hans
við lífið. Við sáum hins vegar
hvernig slík sambönd geta súrnað
með árunum í miklu djarfari
mynd frá Bandaríkjunum í fyrra,
Amerískri fegurð.
Michael Winterbottom stýrir
myndinni í höfn af nokkru öryggi.
Hún minnir miklu meira á bresk-
ar sjónvarpsmyndir í smæð sinni
og tækni en fullstóra bíómynd og
er ágætlega leikin af írsku leik-
konunni Dervla Kii-wan, sem ber
hitann og þungann af verkinu
(sjónvarpsáhorfendur ættu að
þekkja hana sem kráareiganda í
þáttunum Ballykissangel) auk
þess sem Christopher Eccleston
er alltaf skemmtilegur.
Með eða án þín er lipur saga
um hjón í kreppu sem hefði mátt
vera talsvert beittari en felst á
boðskap um almælt tíðindi.
Arnaldur Indriðason
Heimsfenðin
eru fluttar í
Skogaphliö 18
Heimsferðir hafa nú flutt aðalskrifstofur sínar í
Skógarhlíð 18, og bjóða viðskiptavini sína velkomna
í nýtt og glæsilegt húsnæði þar sem þú finnur nóg af
bílastæðum.
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
wwwiwophhiinivliiz.com