Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 46

Morgunblaðið - 31.10.2000, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ 46 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 ' f.'- Uppskrift að Adam Eiga siðalögmál að ráða því til hvers tæknin er nýtt, eða eiga tækniframfarir að skera úr um hvað ersiðlegt oghvað ekki? Er það rétt af for- eldrum dauðveiks barns að eignast annað barn og nota úr því frumur til að bjarga lífi þess dauðvona? Það gerðu foreldrar Adams litla Nash, sem kom í heiminn í Colorado í Bandaríkjunum í lok ágúst. Hann varð til úr einum af 14 fósturvísum sem myndaðir voru í tilraunaglösum úr eggjum og sæði foreldra hans. Tveir af vísunum 14 höfðu nákvæmlega þau erfðaefni sem til þurfti, og sá sterkari var valinn til þess að verða að barni. Erfðaefni Adams litla er ná- kvæmlega hliðstætt erfðaefni systur hans, Mollyar, sem er haldin blóðsjúkdómi sem heftir myndun beinmergs. Börn með þennan sjúk- VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson dóm ná yfir- leitt ekki sjö ára aldri ef ekki fínnst blóðgjafi. Læknar námu svo stoðfrumur úr naflastreng Adams og fluttu í systur hans. Stoðfrumur eru frumur sem geta vaxið og orðið að hvaða vef sem er. Þetta er ekki kafli úr Fögru veröld eftir Aldous Huxley, heldur kafli úr samtímasögu. Lykillinn að þessu er tæknin sem gerir mögulegt að greina erfðaefnin í fósturvísunum, þeg- ar þeir hafa vaxið, hver um sig, úr einni frumu í átta. Þá er ein fruma tekin úr hverjum vísi og erfðaefnin i þeim greind. Svo var mátað við erfðaefni Mollyar. Maðurinn sem þróaði þessa tækni heitir Yuri Verlinsky og hann hefur sætt harðri gagn- rýni margra æxlunarlækna sem segja að þetta jaðri við að vera siðlaust. Enn einu sinni hefur komið upp sú spurning hvort það sé rétt að gera það sem er hægt að gera. Tækniframfarir eru hraðar og eins og venjulega er siðferðislegra spurninga ekki spurt fyrr en meint tækniafrek er þegar unnið. Líkingin við framtíðarsögu Huxleys, þar sem börn voru búin til.samkvæmt uppskrift, er í tilfelli Adams verulega sláandi. Hann var í raun og veru búinn til í og með í því augnamiði að „nýtast“ systur sinni - þótt of- sagt væri að það hafi verið eini tilgangurinn með tilurð hans. Og segja má, að þar eð hann var beinlínis valinn úr hópi fóstur- vísa samkvæmt erfðaefnisgrein- ingu hafi hann verið gerður samkvæmt uppskrift - það er ekki út í hött að segja að erfða- efni systur hans hafi verið hin fyrirfram gefna uppskrift að Adam. Það er þetta sem gerir að verkum að málið er kannski ekki alveg einfalt. Spurning- unni, sem varpað var fram hér að ofan, um það hvort rétt sé af foreldrum að eignast barn og nota úr því frumur til að bjarga dauðvona barni sínu, væri auð- velt að svara játandi, ef ekki kæmi til þetta millispil um val á fósturvísi samkvæmt efnagrein- ingu. Ef það er í lagi að velja si- sona eiginleika verðandi barns, hvað getur þá verið athugavert við að velja sér næst fósturvísi sem verður að barni sem inni- heldur til dæmis erfðaeiginleika sem vitað er að einhverjir væru til í að kaupa? (Hvers vegna skyldi markaðurinn ekki fá að ráða því hvers konar börn verða til?) Það er að segja, hvernig er hægt að vita hvar mörkin liggja milli þess sem er siðlegt og hins sem er siðlaust? Eru þetta al- gild mörk sem aldrei breytast, eða hljóta þau ævinlega að fær- ast til eftir því sem tækninni fleygir fram? Eiga siðalögmál að ráða því til hvers tæknin er nýtt, eða eiga tækniframfarir að skera úr um hvað er siðlegt og hvað ekki? Foreldrar Adams og Mollyar, þau Jack og Lisa, hafa kannski hugsað sig tvisvar um áður en þau ákváðu að eignast Adam með þessum formerkjum. En það getur líka verið að þau hafi ekki hikað þegar möguleikinn gafst. Að minnsta kosti var lítið hik á öllum þeim fjölda foreldra sem hafði samband við Verlinsky um leið og fréttirnar af Adam bárust, og að minnsta kosti tíu fjölskyldur í Banda- ríkjunum hafa nú í hyggju að fara sömu leið. Það er auðvitað önnur hlið á málinu, og hún gerir að verkum að það er sennilega ekki til rétt svar við spurningunni. Sú hlið er Molly. Ber ekki foreldrum að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja líf og heilsu barna sinna? Jú. Hvað sem er? Spurningar gerast varla stærri en þessi. Er hægt að fara eftir ein- hverri algildri reglu í leit að svari? Hvað með það vel þekkta boðorð að maður eigi aldrei að koma þannig fram við aðra manneskju að maður sé bara að nota hana til einhvers? Var ekki beinlínis verið að nota Adam? Dálkahöfundar dagblaða í Am- eríku hafa bent á, að Adam hafi kannski verið fyrsta barnið sem hafi ekki bara orðið til sjálfs sín vegna. En ef nánar er að gáð kemur í ljós að sennilega er ekki hægt að nota þetta boðorð til að finna svar við því hvort Jack og Lisa hafi breytt rétt. Hvernig er hægt að vita hvort þau voru að eignast Adam einungis til að bjarga Molly, og ekki í neinum öðrum „tilgangi“? Þau vita það líklega ekki einu sinni sjálf. Til að hægt væri að nota ofan- greinda siðareglu þyrfti að vera hægt að svara þessari spurn- ingu afdráttarlaust, en raun- veruleikinn býður ekki upp á svo þægilegan greinarmun. Líklega verður spurningunum ekki svarað í bráð. Sá eini sem sennilega getur svarað þeim er enn ómálga. Það er að segja Adam litli. Þangað til hann get- ur sjálfur svarað getum við hin í rauninni ekki gert annað en beðið og vonað að ekki hafi ver- ið gert eitthvað algerlega sið- laust. Samt finnst manni nú líklegt að þegar Adam kemst að því að með því einu að verða til hafi hann getað veitt systur sinni lífsvon muni honum þykja svar- ið blasa við. + Kristín Björns- dóttir fæddist á Nolli í Höfðahverfí 6. október 1905. Hún lést á Kristnesspftala 21. október síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Björn Jó- hannesson, bóndi á Nolli, og kona hans Anna Pálsdóttir. Systkini hennar voru Sigríður Þóra, Jó- hannes, Guðbjörg, Hólmfríður Hall- dóra, Snæbjörn Ár- mann og Ingibjörg Birna. Sigríður og Jóhannes eru látin. Árið 1929 giftist Kristín Hauki Frímannssyni á Ytri-Vík á Ár- skógsströnd, f. 9.10. 1903, d. 10.2. 1961. Foreldrar hans voru Frí- mann Þorvaldsson, útvegsbóndi á Ytri-Vík, og kona hans Sigríður Sveinbjörnsdóttir. Kristín og Haukur eignuðust þijú börn. 1) Frímann Björn, f. 19.2. 1930, kvæntur Þorbjörgu Elíasdóttur. Þau eignuðust eina dóttur, Ágústu, en hún lést 15. apríl 1995. Hún átti þrjú böm. Með fyrri manni sínum, Ingvari Þóroddssyni, eignaðist hún dótturina Eydísi, sem er í sam- búð með Birni Pálssyni, en þau eignuðust son fimm dögum áður en langamma hennar lést. Með seinni manni sínum Ómari Ragn- arssyni eignaðist Ágústa dótturina Unni Björgu og soninn Frímann Sofið er ástaraugað þitt, sem aldrei brást að mætti mínu; mest hef eg dáðst að brosi þínu, andi þinn sást þar allt með sitt. (Jónas Haligrímsson.) Ég átti erfitt með að trúa því fyrir þremur vikum að amma Stína væri orðin 95 ára, því ég er bara 31 og við höfum eiginlega alltaf verið á sama aldri. Þegar ég var barn lék hún við mig, sagði mér sögur, tók að sér hvert það hlutverk sem ég úthlutaði henni og lék það af innlifun. Seinna, þegar ég varð eldri, ræddi hún við mig um landsins gagn og nauðsynj- ar, um vandamál heimsins, ástina og allt það sem mér lá á hjarta. Mikið vildi ég geta sest niður með henni núna og talað um fullorðinsárin. Mig langaði mikið að vera hjá henni á afmælisdaginn og fagna með henni lífinu sem hún hafði lifað, en það er löng leið frá Winnipeg til Ak- ureyrar og ég huggaði mig við það að í staðinn skyldi ég faðma hana næst þegar ég kæmi heim og hvísla að henni öllu því fallega sem mig lang- aði að segja henni. En það varð ekk- ert næst og ég verð að láta mér nægja að spenna greipar og treysta því að hún heyri í mér. Þótt hún hafi núna yfirgefið þennan heim er hún enn á lífi í mér og hinum í fjölskyld- unni. Við eigum öll okkar fallegu minningar um þessa dásamlegu konu sem umvafði okkur ást sinni. Amma Stína lifir í minningu okkar. Ég man þegar hún lánaði mér leggina sína svo ég gæti leikið mér eins og hún hafði gert þegar hún var lítil. Ég man sögumar sem hún sagði mér, um Smjörbita og hauslausa tröllið. Ég man þegar hún söng fyrir mig vísm’nar um Langintes og allt það slekti. Ég man þuluna um Ein- björn og bræður hans. Ég man hversu mikið ég dáðist að henni þeg- ar hún fór með þuluna alla frá Tólf- birni og niður að halanum sem slitn- aði af - án þess að anda. Ég man hvað mig langaði að geta þetta og ég einsetti mér að læra það. Og eins og annað sem hún kenndi mér eða hvatti mig til að læra, það nam ég af áhuga. Ég man þegar hún gifti okkur Gunna bróður og gaf okkur Machin- tosh sælgæti í brúðargjöf. Ég man þegar hún sótti litlu harmonikkuna og spilaði á hana fyrir mig. Ég man heilhveitibrauðsgrautinn, appelsínu- kremstertuna og eggjakökurnar hennar. Ég man hvað hún tók því vel þegar ég hellti kakói niður á fína borðdúkinn hennar, þrátt fyrir að Hauk. 2) Anna Sigríð- ur, f. 6.6. 1931, gift Ingvari Níelssyni. Þau eiga eina dóttur, Guð- rúnu Borghildi, gift Sigurpáli Jónssyni. Borghildur og Sigur- páll eiga fjórar dætur, Önnu Kristínu, Sigur- björgu, Ingunni og Margréti. 3) Jóhann Sveinn, f. 1.1. 1937, kvæntur Kolbrúnu Geirsdóttur. Þau eiga fjögur börn a) Hauk- ur, kvæntur Irisi Thorleifsdóttur og hennar dóttir er Svala. Haukur á son, Stefán Þór. b) Geir, kvæntur Ernu Árnadóttur, þau eiga þrjá syni, Árna Heiðar, Einar Jóhann og Arnar Geir. c) Gunnar Kristinn, kvæntur Svandísi Sverrisdóttur, þau eiga tvo syni, Sverri Má og Jó- hann Inga, og eina dóttur, Guð- rúnu Katrínu. d) Kristín Margrét, ógift og dvelur í Kanada. Kristín ólst upp á Nolli í stórum systkinahópi. Mikið þurfti að vinna í þá daga og var hún forkur til vinnu. Hún var með afbrigðum bókhneigð og hafði mikinn hug á að ganga menntaveginn en að- stæður leyfðu það ekki svo lítið varð úr námi eftir barnaskólapróf. Hún náði góðu valdi á danskri tungu. Rúmlega tvítug fór hún yfir Eyjafjörðinn til systur sinnar, Sig- ríðar, sem þar var sest að. Þar hún hefði verið búin að segja mér að passa mig. Ég man hvað það var gaman að vera hjá henni. Og ekki síst eru sérstakir í minn- ingu minni tímarnir sem ég eyddi hjá ömmu fyrsta árið mitt í menntaskóla. Ég kom oftast við eftir skóla, og stundum í hádeginu, og þá sátum við og töluðum um allt milli himins og jarðar. Það var ekkert sem ég gat ekki talað um við hana, ekkert sem hneykslaði hana eða fékk hana til að roðna. Amma skildi huga unglingsins eins vel og hún hafði skilið barnið. Á þessum tímum þegar við töluðum oft um ástina, hugsaði ég stundum um það hvað það yrði gaman þegar ég gæti leitt fyrir hana manninn sem ég elskaði og ég gæti með stolti sagt honum að þessi dásamlega kona væri amma mín. Núna, þegar ég er búin að kynnast Tim, er erfitt að hugsa til þess að sú stund eigi aldrei eftir að renna upp. Mig langaði svo að kynna hann fyrir ömmu og segja henni hvað hann er yndislegur og mig langaði að sýna honum hversu dásamlega ömmu ég ætti, að sýna honum þessa konu sem kenndi mér svo margt. En þó að Tim fái aldrei að hitta ömmu Stínu, mun hann samt fá að kynnast henni því amma mun lifa eins lengi og minningin um hana og ég veit að- ég mun aldrei gleyma henni. Ég vildi að ég gæti verið við jarð- arförina og tekið þátt í því með fjöl- skyldunni að kveðja þessa fallegu konu, en ég mun í staðinn halda mína eigin kveðjustund og fagna því að ég fékk að kynnast henni. Dagurinn í dag á ekki að vera sorgardagur því amma er loksins hjá afa, manninum kynntist hún elsta syninum á Ytri- Vík, Hauki, sem hún svo síðar gift- ist. Þau settust að á Ytri-Vík. Aðal- lega var lifað af sjósókn, en líka var höfð ein kýr og 10-20 kindur. Þarna var ákaflega erfið aðstaða, bæði til sjós og lands, sérstaklega við sjóinn. Allt þurfti að bera og draga af handafli. Þar sem Haukur var ekki heilsuhraustur reyndi mikið á dugnað Kristínar. Þótt heimilið væri ekki stórt fjölgaði fólki yfir sumartímann meðan á sjósókn stóð. En haustið 1945 lagð- ist Haukur inn á Kristneshæli og var þar um veturinn. Haustið 1948 fór hann svo aftur á Kristneshæli og var þar til æviloka. Kristín brá þá búi, fékk vinnu á Kristnesi og flutti þangað. Stuttu seinna var byggt nýtt þvottahús fyrir stofnun- ina, með nýtísku vélbúnaði, og stjórnaði hún því frá byijun. Reyndi þá á hæfileika hennar að laga sig að nýjum vinnubrögðum. Eftir andlát Hauks 1961 flutti Kristín til Akureyrar. Var hún nokkra mánuði hjá dóttur sinni og fjölskyldu hennar í Svíþjóð. Síðan fór hún að vinna í skóverksmiðj- unni Iðunni á Akureyri og vann þar til 1975. Árið 1966 keypti hún sér litla íbúð í Oddagötu 1 og bjó þar til 1989, en þá veiktist hún og var fyrst smátíma á Sjúkrahúsinu á Akureyri, en siðan á Kristnes- spftala til þjálfunar, þar til 1. maí 1991 að hún fór á Dvalarheimilið í Skjaldarvík og var hún þar í fjögur ár. Þá þurfti hún orðið meiri um- önnun og fluttist þá aftur á Krist- nesspitala, þar sem frábærlega var séðum hana til hinstu stundar. titför Kristínar fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. sem hún elskaði framar öllu, mannin- um sem hún hætti aldrei að elska þótt hann yrði að yfirgefa hana svona snemma. Og þótt við höfum öll sorg í hjarta og hugsum um hversu mikið við höfum misst á dagurinn í dag samt að vera gleðidagur. Dagurinn í dag er fyrir ömmu mína sem gerði líf okkar allra svo miklu fyllra. Kristín M. Jóhannsdóttir, Winnipeg, Kanada. Við andlát móðui' minnar rifjast upp margt frá því í gamla daga. Mig langar að minnast hennar með nokkrum orðum. Á Ytri-Vík var oft mjög mikið að gera, þegar ég var bam, einkum á vorin og fram á haust. Mamma tók þátt í öllum störf- um og oft var vinnudagurinn langur, þrátt fyrir það hafði hún alltaf tíma til að sinna börnunum sínum. Mamma var ákaflega dugleg og góð. Ég man að sem barn var ég viss um að ég ætti bestu mömmu í heimi. Sem betur fer hugsa sennilega flest börn þannig um sína móður. Ég lenti aldrei í þrætum um hver væri best, en sem unglingur var ég búinn að finna mörg rök fyrir því að mín móðir stæði framarlega. Hún hafði gaman af félagsmálum en félögin voru ekki mörg og tíminn takmarkaður. Hún var í Kvenfélaginu Hvöt og var þar gjaldkeri í nokkur ár. Mörgum minn- inganna mætti segja frá, en ég geymi þær í huganum. Eg vil þakka starfs- fólki á öldrunardeild Kristnesspítala fyrir frábæra umönnun síðustu árin. Mamma mín, hvíl þú í friði. Frímann Björn. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. ________MINNINGAR KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.