Morgunblaðið - 31.10.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 65
Tillögur þingsins
Ársþingið fól stjóm samtakanna
ýmis verkefni. Má þar nefna að
skipa mann til að safna GPS-stað-
setningarpunktum, sem hestamenn
hafa safnað á ferðum sínum um
i landið, saman á einn stað og vinna
jafnframt að því að þeir verði að-
| gengilegir öllum hestamönnum á
I vefsíðu LH.
Þá var stjórninni falið að láta út-
búa verklýsingu á gerð reiðvega
sem framkvæmdaraðilum ber að
fara eftir. í verklýsingunni á að
koma fram hver efnisblandan skal
vera, þykkt og breidd að teknu til-
liti til álagsþunga.
Þingið skoraði á samtök sveitar-
félaga að virða þarfir hestamanna
til reiðvega og hvatti einstök sveit-
arfélög til að koma upp skiptihólf-
1 um á fjölförnum reiðleiðum.
Kappreiðahrossaþjálfarar þurfa
nú að huga vel að þjálfun hrossa við
að fara inn í rásbása því reglur þar
um voru þrengdar allnokkuð. Nú
verða öll hrossin að fara á sömu
stundu inn í básana. Sé hestur ekki
kominn inn að 1 mínútu liðinni skal
ræsir vísa honum frá. Þá verður
óheimilt að hafa aðstoðarmann inni
í básunum. Innan tveggja mínútna
eftir að hrossin eru komin inn skal
opna hliðin og ræsa hestana.
Stjórn var heimilað að fresta
ákvarðanatöku um hvar landsmót
skuli haldið árið 2004 en tekið er
fram að ákvörðun skuli liggja fyrir
eigi síðar en 1. júní 2001. Slagurinn
mun væntanlega standa á milli
Reykjavíkur og Gaddstaðaflata ef
að líkum lætur.
Viljayfirlýsingu frá 1998 þess
efnis að þing LH verði haldið annað
hvert ár í stað árlega var frestað
um eitt ár þar sem stjórnin telur að
skipulagsmál hafi ekki fengið þá
umræðu sem þarf og því sé ótíma-
bært að fækka þingum.
Tvær tillögur fjölluðu um reið-
hjálma og var önnur þeirra, sem
lagði til að ársþingið hvetti Alþingi
til að lögfesta notkun viðurkenndra
reiðhjálma, felld með litlum mun.
Þess í stað var samþykkt að hvetja
til aukinnar reiðhjálmanotkunar og
stjórn falið að standa fyrir gerð og
útgáfu fræðsluefnis til kynningar á
meðal aðildarfélaga.
Þá beindi þingið því til stjórnar
LH að gangast fyrir kynningu á
reglugerð um aðbúnað hrossa sem
landbúnaðarráðuneytið hefur gefið
út.
I fyrsta sinn í sex ár náði stjórnin
fram hækkun félagsgjalda til sam-
takanna. Nú munu félögin greiða
1.350 krónur til samtakanna í stað
1.000 króna.
Kynbótanefndir ársþinga undan-
farinna ára hafa fengið fá og lítil-
fjörleg verkefni til umfjöllunar og
stundum engin eins og nú. En nóg
hefur verið um að ræða eigi að síð-
ur og nú lagði nefndin fram ályktun
sem var samþykkt. Þar segir að
kynbótahross á landsmótum eigi að
vera mörg en bæta þurfi skipulag
sýninga þeirra á mótunum og beinir
þingið þeim tilmælum til mótshald-
ara að þessir hluth- verði endur-
skoðaðir. Orðalag ályktunarinnar
þótti í meira lagi ruglingslegt og
kallaði Kristinn Hugason þingfull-
trúi hana moðsuðu.
í milliþinganefnd fóru nokkrar
tillögur og má þar nefna eina þar
sem lagt var til að eitt af skilyrðum
til fá viðurkennd íslandsmet á
kappreiðum þurfi rafræna tíma-
töku.
Þá var sett í milliþinganefnd til-
laga sem gerði ráð fyrir að styrk-
leikaflokkaskipting í íþróttakeppni
yrði afnumin.
Vænn slatti af tillögum var felld-
ur og þær misjafnlega merkilegar.
Þingið vildi til að mynda ekki að
felldar yrðu út hæsta og lægsta ein-
kunn í gæðingakeppni þar sem 5
dómarar dæma líkt og gert er í
íþróttakeppni.
Þingið vildi ekki fella stökk út úr
gæðingakeppni barna né heldur
taka upp hinar alþjóðlegu íþrótta-
keppnisreglur sem kallast FIPO
þótt bent væri á í greinargerð að af
frumskyldum sérsambanda ÍSÍ
væri að sjá til þess að keppt væri
eftir alþjóðlegum reglum.
Þá vildi þingið ekki koma á jöfn-
unargreiðslum vegna flutnings
keppnishrossa á landsmót og ekki
heldur tvöfalda vægi hægatölts í B-
flokki gæðinga.
-
Það var mikið stuð á Þormóði Ramma og Loga Laxdal undir lok keppnisi ímabilsins er þeir fóru nokkrum sinnum
undir gildandi meti í 150 metra skeiði og nú hefur árangur þeirra á móti Fáks verið staðfestur sem Islandsmet.
BRIPS
llmsjðn Arnór G.
Ragnarsson
Bridgefélag Reylgavíkur
Aðalspilakvöld - þriðjudagskvöld
Þriðjudaginn 3. október var spilað
2. kvöldið í þriggja kvölda Haust-
Monrad Barometer tvímennings-
keppni. Spilaðar eru 6 umferðir hvert
kvöld og eru veitt rauðvínsverðlaun
fyrir hæsta skor hvers kvölds og síð-
an fyrir 3 efstu sætin í lokin. Staðan
eftir2. kvöldaf3:
HrólfurHjaltason-OddurHjaltason +143
Snorri Karlss. - Karl Sigurhjartars. +118
Páll Bergsson - Hjalti Elíasson +112
Ómar Olgeirsson - ísak Öm Sigurðss. + 99
Gylfi Baldursson - Steinberg Ríkarðss. + 99
JacquiMcGreal-HermannLárusson +95
Birkir Jónsson - Jón Sigurbjömsson + 74
Hæsta skori kvöldsins náðu:
Ómar Olgeirsson - ísak Öm Sigurðss. +105
Gylfi Baldursson - Steinberg Ríkarðss. +100
Guðm. A Grétarss. - Rúnar Gunnarss. + 87
Gísli Steingr. - Sveinn R. Þorvaldss. + 76
Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason + 64
Þriðjudaginn 10. október er síðasta
spilakvöldið í Haust-Monrad Bai'o-
meter félagsins og næsta keppni, sem
byrjar 17. október, er þriggja kvölda
Board-A-Match-sveitakeppni.
Fimmtudagskvöld hjá Úlfari
Fimmtudaginn 5. október var spil-
aður Mitchell-tvímenningui' með
þátttöku 22 para. Meðalskor var 216
ogefstupörvoru:
NS
Guðrún Jóh. - Steinberg Ríkarðss. 261
JónStefánsson-GuðlaugurSveinsson 230
Þórir Sigursteinss. - Vilhjálmur Sig. jr. 228
Hermann Friðriksson - Bjöm Ámason 222
AV
GuðjónBragason-VignirHauksson 274
ValgarðBlöndal-BjömTheodórsson 268
Þorsteinn Karlss. - Leifur Aðalsteinss. 242
GuðbjömÞórðars.-Guðm.Baldurss. 231
Á fimmtudagskvöldum gefst pör-
um kostur á að leggja 300 kr. á mann í
verðlaunapott og rennur potturinn til
efsta eða efstu para sem tóku þátt í
honum. 9 pör tóku þátt í verðlauna-
pottinum og rann hann allur, 5.400 kr.
til Guðjóns og Vignis.
Ulfar Eysteinsson býðui- brons-
stigahæsta spilara hvers mánaðar út
að borða á Þrem Frökkum og brons-
stigahæstir í októbermánuði eru:
1.-2. Ómar Olgeirsson og ísak Ö.
Sigurðsson 24 bronsstig
3.-6. Guðrún, Steinberg, Guðjón og
Vignir 22 bronsstig
Úlfar býður einnig því pari út að
borða sem nær hæsta prósentuskori
hvers mánaðar og eru þeir Guðjón og
Vignir með pálmann í höndunum fyr-
ir októbermánuð en skorið þeirra
jafngilti 63,42%. Valgarð og Bjöm
voru ekki langt undan með 62,03% en'1
bæði þessi pör slógu við góðu skori ís-
aks og Ómars, sem var 60,71%.
BR er með einskvölds tvímenninga
á fimmtudagskvöldum. Þau eru í um-
sjón Úlfars Eysteinssonar ásamt BR.
Spilaðir em til skiptis Mitchell- og
Monrad Barometer-tvímenningar.
Spilamennska byijar kl. 19:30 og
keppnisgjald er 700 kr. Einnig verður
spilurum boðið að leggja í verðlauna-
pott, 300 kr. á mann, sem síðan renn-
ur til efsta parsins eða efstu paranna
sem lögðu í hann. Keppnisstjórar em
Sveinn R. Eiríksson og Sigurbjöm
Haraldsson.
Á föstudagskvöldum BR em spil-
aðir einskvölds tölvureiknaðir tví-
menningar með forgefnum spilum.
Spilaðir em til skiptis Monrad Bar-
ometer- og Mitchell-tvímenningar.
Spilamennska hefst kl. 19:00 og að
loknum tvímenningnum er boðið upp
á þriggja umferða miðnætursveita-
keppni þar sem umferðin kostar 100
krónur á spiiara.
Keppnisstjóri á föstudögum er Sig-
urbjöm Haraldsson. Hann tekur vel á
móti öllum pömm sem og þeim spilur-
um sem koma stakir í leit að makker.
i
I
i
(
i
)
|
i
i
i
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 26.10. lauk
þriggja kvölda hraðsveitakeppni
með sigri sveita Vina með 1.735
stig. I sveitinni spila: Leifur Krist-
jánsson, Gísli Tryggvason, Ámi
Már Björnsson, Guðlaugur Nilsen,
Heimir Tryggvason.
Skor lokakvöldsins varð þessi:
Sv. Freyjanna 610
Sv. Þórðar Bjömss. 595
Sv. Ragnars Jónssonar 563
Meðalskor 540
Lokastaðan varð þessi:
Sv. Vina 1733 •
Sv. Eðvarðs Hallgríms • 1685
Sv. Þórðar Bj ömssonar 1681
Sv. Ragnars Jónssonar 1661
Fimmtudaginn 2. nóvember hefst
fjögurra til fimm kvölda Barometer.
Viljum við hvetja alla spilara til að
mæta og taka þátt í þessari
skemmtilegu, keppni. Spilað er í
Þinghól við Alfhólsveginn og hefst
spilamennska kl. 19.45. Keppnis-
stjóri er Hermann Lárusson.
Heildarmynd
Stóðhestar
Gæðingar
Hryssur
Töltheímar
Fosshálsi 1
577 7000
wwwioltis
Islandsmet Loga
og Þormóðs
ramma staðfest
Sljórn Landssambands hesta-
mannafélaga staðfesti á siðasta
Ifundi sinum fyrir ársþingið árangur
Þormóðs ramma frá Svaðastöðum
og Loga Laxdal í 150 metra skeiði
frá siðsumarskappreiðum Fáks.
Nýja metið er því 13,64 sekúndur
og þar með fallið nær tveggja ára-
tuga gamalt met Leista frá Keldu-
dal sem var 13,9 sekúndur.
En þeir félagar Logi og Þormóð-
ur gerðu gott betur í sumar því á
Andvaravöllum náðu þeir að fara
vegalengdina á 13,16 sek. sem er að
Íþví er best er vitað besti tími sem
mælst hefur. Ekki var sótt um stað-
festingu á þeim árangri enda með-
vindur vel yfir leyfilegum mörkum.
MI.NF.RAL
WASCHGEL
Mineral snyrtivörulínan inniheldur
steinefni og næringefni úr náttúrunni.
Steinefni og raki gegna mikilvægu
hlutverki þegar kemur að umhirðu
húðarinnar, því án steinefna og raka
getur húðin orðið þurr og viðkvæm,
jafnvel elst fyrr vegna ótímabærrar
hrukkumyndunar. Mineral línan er
án allra aukefna, þ.e. engum
rotvarnarefnum né ilmefnum er bætt
í vörurnar.
Apotheker
SCHELLER
NATURKOSMETIK
SNYRTIVORUR A FRABÆRU VERÐI
3sJLUfWW£L
í dag frá kl. 14-17
í Apótekinu iðufelli og Smáratorgi
15% kynningarafsláttur
og kaupaukar
Ap^tekið
lihi/t G op to.’Pftl vffi’
Apótekiö Iðufelli - S. 577 2600 - ApótekiðSmáratorgi - S. 564 5600
FEGURÐ FRÁ NÁTTÚRUNNAR HEND