Morgunblaðið - 02.12.2000, Side 14
14 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnt að bvf að fækka alvarlegum umferðarslysum um 40%
Samstaða nauðsynleg
eigi árangur að nást
UMFERÐARWNGI umferðarráðs
lauk í gær. Þingið tók undir markmið
í drögum nýrrar umferðaröiyggis-
áætlunar stjómvalda en þau gera ráð
fyrir 40% fækkun alvarlegra slysa
fyrir árslok 2012.
Sigurður Helgason, upplýsingafull-
trúi Umferðarráðs, segir að þrátt fyr-
ir háleit markmið hafi það verið al-
menn skoðun þingfulltrúa að þessum
markmiðum væri hægt að ná. Það
væri hinsvegar ljóst að menn þyrftu
að snúa bökum saman. „Miðað við þá
þróun sem á sér stað í sambandi við
hönnun bíla, vega og í greiningu um-
ferðarslysa þá eigi að vera hægt að
snúa þeirri óheillaþróun sem verið
heíur á síðustu 2-3 árum á betri veg,“
segir Sigurður.
ViII að íjármagn verði tryggt
tíl að standa við áætlunina
Umferðarþing samþykkti tillögu
Gunnars Hjartar Gunnarssonai*,
deildarverkfræðingur á umferðadeild
Borgarverkíræðings, þar sem lýst er
vonbrigðum yfir því að í fjárlögum
sem nú eru í meðferð Alþingis sé ekk-
ert gert ráð fyrir auknum fjármunum
til þessarar baráttu. Umferðarþing
benti á að fullnægjandi umferðarör-
yggisáætlun verði að innihalda fjár-
hags- og framkvæmdaáætlun og
tryggja verður að tíl hennar renni
nægt fjármagn úr opinberum sjóðum.
Þingið skoraði á ríkisstjóm og Al-
þingi að lýsa því nú þegar yfir að
væntanieg 12 ára áætlun muni upp-
fylla framangreind skilyrði.
Sigurður Helgason segir að líta
yrði á baráttuna gegn umferðarslys-
um sem fjárfestingu og bentí á að
kostnaður vegna umferðarslysa væri
um 12-18 milljarðar á ári. Einn þátt-
urinn í baráttunni væri aukin lög-
gæsla. Sigurður segir að ekki þurfi
ýkja mikla fjármuni til að ná árangri.
Þórhallur Ólafsson, formaður um-
ferðarráðs, sagði við setningu þings-
ins að almenningur sættí sig ekki
lengur við ónauðsynlegar mannfómir
í umferðinni.
Sálfræðileg próf fyrir
unga ökumenn
Á seinni degi umferðarþings í gær
var sérstaklega fjallað um unga öku-
menn. Kjartan Þórðarson, deildar-
sérfræðingur hjá ökunámsdeild um-
ferðarráðs, kynnti nýja rannsókn sem
hann hefur unnið með Valdimar
Briem, dósent við Háskólann í Lundi,
og Ásþóri Ragnarssyni sálfræðingi
um sálræna þættí í umferðarslysum
ungra ökumanna.
Kjartan sagði að menn hefðu gjam-
an séð samhengi á milli spennufíknar
ungra ökumanna og umferðarslysa.
Málið væri hinsvegar ekki svo einfalt.
Fólk leitaði sér yfirleitt útrásar fyrir
spennufíkn með öðmm hættí en með
hraðakstri. Rannsóknin sýndi að það
væri samspil ólíkra sálfræðilegra
þátta sem mótuðu hegðun ökumanna.
Kjartan bað þingfulltrúa að velta
því fyrir sér hvort ástæða væri til
þess að hafa stutt sálfræðileg próf
með ökunámi til stuðnings ökukenn-
ara og ökuskóla. Þá væri e.t.v. ástæða
til þess að fá sálfræðilega greiningu á
þeim sem bijóta ítrekað af sér í um-
ferðinni.
Fjöldi látinna og alvarleaa slasaðra 1985-1999
Fjöidi og sett markmio fyrir árið 2012
1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 2025
Ungir karlmenn ekki verri öku-
menn en ungar konur
Kjartan sagði að það væri vel þekkt
staðreynd að yngri ökumenn ættu
oftar aðild að umferðarslysum en
eldri ökumenn. Þá væri jafnframt
Ijóst að ungir karlmenn lentu frekar í
slysum en ungar konur. Kjartan sagði
að þetta hefði almennt verið túlkað
þannig að ungir karlmenn væm mun
verri ökumenn en ungai' konur. Það
væri þó e.t.v. kominn tími til að endur-
skoða þessa afstöðu. Kjartan benti á
að þegar slysatölur kynjanna era
bomar saman koma ungir karlmenn
ætíð miklu verr út. Þegar hefur verið
tekið tillit tíl ekinna kflómetra og þess
tíma sem ungir ökumenn em í um-
ferðinni þá kemur hinsvegar í ljós
hlutfallið er svipað meðal ungra karla
og kvenna en samkvæmt umferðar-
könnun Umferðairáðs aka ungir karl-
menn mun meira en ungar konur.
Kjartan sagði að víða erlendis væra
hætt að tala um unga hættulega karl-
menn í umferðinni og fremur rætt um
unga ökumenn.
Þá kom fram í máli Kjartans að
átján ára ökumenn lentu frekar í slys-
um í fyrra en þeir sautján ára. Ástæð-
an fyrir því væri e.t.v. sú að æfinga-
akstur var nýlega leyfður.
Lækkun áfengiskaupaaldurs
eykur tíðni umferðarslysa
Agúst Mogensen, framkvæmda-
stjóri rannsóknamefndar umferðar-
slysa, minntí á að það væri ekki aðeins
á Islandi sem ungir ökumenn lentu
frekar í umferðarslysum. Flest lönd
heims ættu við sama vandamál að
stríða. Meðal þess semÁgúst ræddi í
erindi sínu vai- að lækkun á áfengis-
kaupaaldri myndi auka tíðni umferð-
arslysa meðal ungra ökumanna.
Hann bentí ennfremur á að rannsókn-
ir hefðu sýnt að ungir ökumenn sem
drakkið hafa einn bjór séu mun lík-
legri til að lenda í umferðarslysi en
þeir sem era eldri eftir sömu neyslu.
Ágúst sagði að e.t.v. væri ástæða til að
lækka áfengismörk í blóði niður í 0 %c
hjá þeim ökumönnum sem ekki hefðu
aldur til áfengiskaupa.
Agúst segir að reynslan af því að
hækka ökuréttindaaldur hafi verið
misvísandi. Erlendis hafi víða verið
tekin upp stígskipt ökuréttindi sem
hefðu gefið góða raun. Þegar ungt
fólk lýkur ökuprófi fær það t.a.m. að-
eins réttindi á vissar stærðir bifreiða,
farþegafjöldi er takmarkaður og þeim
er jafnvel bannaður akstur að nætur-
lagi. Ágúst sagði að menn yrðu að
vanda mjög til þjálfunar ökumanna
við erfiðar aðstæður. Þar sem slíkt
hefði verið gert, t.d. með því að æfa
akstur í hálku hefðu nemamir ekdð
enn hraðar í hálku þar sem þeir töldu
sig verða enn betri eftír þjálfunina.
Dr. Frank Horswill hefur rannsakað áhættuhegðun ökumanna
Flestir telja sig mun
betri ökumenn en
meðalmaðurinn
Á UMFERÐARÞINGI sem lauk í
gær hélt dr. Frank Horswill erindi
þar sem hann fjallaði m.a. um rann-
sóknir á hegðun öku-
manna. Horswill bentí
á að mistök ökumanna
valda 65% umferðar-
slysa í Bretlandi og í
95% tilvika má rekja
umferðarslys að hluta
til ökumanns. Það sé
því ljóst að til að fækka
umferðaslysum þurfí
ökumenn að breyta
hegðun sinni.
Sjálfsblekking
ökumanna
Horswill starfar við
háskólann í Reading í
Bretlandi og hefur
ásamt öðram unnið að rannsóknum á
áhættuhegðun ökumanna, t.d. hvers
vegna þeir aka of greitt eða glanna-
lega. Eitt af því sem kom honum hvað
mest á óvart var að þeir sem telja sig
hafa áhyggjur af umferðarslysum
óku á næstum því á sama hraða og
þeir sem engar áhyggjur höfðu.
Horswill telur að ein af skýringunum
sé sú að langflestir ökumenn telji sig
vera mun betri ökumenn en meðal-
ökumaðurinn. „Það er þekkt að fólk
telur sig líklegra til að upplifa já-
kvæða atburði og það sé yfirleitt
betra heldur en meðalmaðurinn,"
segir Horswill. „Þetta hlýtur að vera
sjálfsblekking því varla era allir betri
en meðalmaðurinn," bætti hann við.
Ökumenn væra líka haldnir þessari
sjálfsblekkingu og teldu
sig flestir vera betri og
öraggari ökumenn og
það væra minni líkur á
að þeir lentu í umferðar-
slysi heldur en meðal-
maðurinn. Þetta ætti
jafnvel við þá sem væra
tiltölulega nýbúnir að
taka bflpróf.
Horswill sagði að
þetta hugarfar gæti
reynst hættulegt. „Ef
fólk heldur að það sé ör-
uggara en aðrir, af
hverju ætti það að rejma
að varast óhöpp með því
að aka hægar?“ spurði
Horswill. Þetta fólk telji jafnframt að
áróður um umferðaröryggi eigi ekki
við það sjálft heldur sé áróðrinum
beint að hinum ökumönnunum.
Horswill sagði að einn hópur fólks
liti ekki á sig sem betri ökumenn en
aðrir. Það væra þeir sem hefðu lent í
alvarlegu umferðarslysi þar sem þeir
vora sjálfir valdir að slysinu. Sem
betur fer þyrfti ekki að láta alla öku-
menn lenda í umferðarslysi tfl að fá
fram svipuð áhrif heldur nægði oft að
fá fólk til að ímynda sér að það hefðið
valdið alvarlegu umferðarslysi og
lýsa því í smáatriðum. Einnig væri
áhrifaríkt að sýna fólki myndbönd
þar sem greinilegt er að sök á um-
ferðarslysi er hjá ökumanni og fá fólk
til að setja sig í hans spor.
Öryggisbúnaður getur
skapað falskt öryggi
Horswill hefur einnig unnið að
rannsóknum á því hvemig breyta
megi hegðun ökumanna. Ein leiðin
sem var könnuð var að auka veghljóð
en þá drógu ökumenn ósjálfrátt úr
hraða. Horswill benti á að eftir því
sem meiri öryggisbúnaður væri í bíln-
um því líklegri væri ökumaðurinn tfl
að taka áhættu t.d. með hraðakstri.
Ökumenn fengju það gjaman á til-
finninguna að þeir væra algerlega
óhultir þar sem bfllinn þeirra væri
búinn góðum öryggisbúnaði.
Eftir því sem bflamir yrðu þægi-
legri og hljóðlátari hefði fólk færri
möguleOta á að finna fyrir hraðanum.
Þetta yrðu bflahönnuðir og vegagerð-
armenn að taka til athugunar. Þá ætti
að hvetja fólk tO að kaupa sér kraft-
minni bfla þar sem greinilegt væri að
ökumenn kraftmeiri og betur út-
búinna bfla tækju yfirleitt mun meiri
áhættu í akstri.
HorswOl sagði að reyndir ökumenn
skynjuðu mun betur áhættu en hinir
yngri og óreyndari. Að sögn Horswfll
hefðu Bretar uppi áform um að kenna
áhættuskynjun. Slík kennsla væri
einfold og ódýr en jafnframt áhrifa-
rík. Þeir sem hefðu fengið slíka
kennslu tækju t.a.m. síður áhættu.
A
Dr. Mark Horswill
Morgunblaðið/Ásdís
Ólafur B. Thors tekur við „umferðarljósinu" úr hendi Þórhalls Ólafs-
sonar, formanns umferðarráðs.
Sjóvá-AImennar hlutu
„umfer ðarlj ósið“
SJÓVÁ-ALMENNAR tryggingar
hlutu viðurkenningu umferðar-
ráðs, „umferðarljósið“ árið 2000 á
umferðarþingi. Þórhallur Ólafs-
son, formaður umferðarráðs sagði
að Sjóvá-Almennar hefðu lagt sí-
aukna áherslu á forvarnarstarf á
undanförnum árum. Megintil-
gangur viðurkenningarinnar er
að hvetja til góðra verka á sviði
umferðaröryggismála. Ólafur B.
Thors, framkvæmdastjóri Sjóvár-
Almennra tók við viðurkenning-
unni fyrir hönd fyrirtækisins.
„Umferðarljósið“ er farand-
gripur sem Sjóvá-Almennar munu
varðveita fram að næsta umferð-
arþingi. Þórhallur sagði að þegar
Umferðarráð ieitaðist við fyrir
nokkrum árum að ráða svæðis-
fulltrúa til starfa vegna umferð-
arfræðslu í skólum veitti Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. því máli
mikinn stuðning sem í raun gerði
það mögulegt að ráða svæðis-
fulltrúa til starfa. Þá hafi fyrir-
tækið um áraraðir unnið að marg-
víslegri forvarnarstarfsemi.
Veltibfllinn, sem mikið er notað-
ur, sé t.d í eigu, Sjóvár-Almennra,
Bindindisfélags ökumanna og
Umferðarráðs.
Þá hafi Sjóvá-Almennar staðið
fyrir námskeiðum fyrir unga öku-
menn undanfarin fimm ár sem um
3000 manns hafa sótt. Margmiðl-
unardiskurinn „í umferðinni með
Sjóvá-Almennum“ hafí ennfremur
vakið mikla og verðskuldaða at-
hygli en á disknum er fræðsluefni
fyrir alla þá sem vilja kynna sér
umferðarmál. Einnig hafi fyrir-
tækið staðið fyrir fræðslu öku-
nema um tryggingar og fræðsiu
meðal atvinnubflstjóra þar sem
byggt er á vitneskju um þau
vandamál sem komið hafa upp hjá
viðkomandi fyrirtækjum.