Morgunblaðið - 02.12.2000, Side 22
22 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÁTVRá
réttri leið
Stjórn Afengis og tóbaksverslunar
ríkisins er að leggja lokahönd á stefnumót-
un félagsins. Arnór Gísli Ólafsson ræddi
við Hildi Petersen og Sigurð M. Magnússon
stjórnarmenn ATVR.
VIÐSKIPTI
Morgunbla<5ið/Kristinn
Verslanir ÁTVR verða endurhannaðar í áföngum á næstunni með það að markmiði að gera útlit þeirra hlýlegra.
Fjölga á kynningum á léttvínstegundum í verslunum ÁTVR og koma til
móts við ört vaxandi vínáhuga almennings.
„PAÐ má segja að við séum um
þessar mundir að leggja lokahönd á
stefnumótun Áfengis og tóbaks-
verslunar ríkisins hvað varðar versl-
anirnar. í þeirri stefnumótun byggj-
um við að töluverðu leyti á reynslu
hinna Norðurlandaþjóðanna. Það er
ekki ýkja langt síðan Systembolaget
í Svíþjóð og Alko í Finnlandi tóku að
endurskapa ímynd sína. Það verður
að segjast eins og er að okkur líst
nyög vel á margt sem þeir hafa verið
að gera og viljum innleiða þá þætti
hér. Við stefnumótunina verðum við
vitaskuld að gæta þess að halda okk-
ur innan þess lagaramma sem
löggjafínn hefur sett um starfsemi
ÁTVR,“ segja Hildur Petersen for-
maður og Sigurður M. Magnússon
varaformaður stjórnar ÁTVR.
Viðskiptaleg nálgun nauðsynieg
Hildur og Sigurður segja að í
stefnumótun ÁTVR vilji stjómin
taka mið af því besta sem áfengis-
einkasölur annars staðar á Norður-
löndum hafa verið að gera. „Þær
virðast að mörgu leyti vera komnar
lengra en við hér á íslandi í því að
þróa viðskiptalega nálgun á starf-
semi einkasölunnar. Við gerum okk-
ar grein fyrir því að það era mjög
skiptar skoðanir um fyrirkomulag á
áfengissölu á íslandi og við göngum
þess ekki dulin að það getur verið
mikið tilfinningamál. Það fyrirkomu-
lag sem ríkir nú getur verið ásætt-
anleg málamiðlun milli mjög ólíkra
skoðana, að því gefnu að ákveðin
grundvallarskilyrði séu uppíyllt,
eins og til dæmis góð þjónusta við
viðskiptavini, gott vöruúrval og síð-
ast en ekki síst viðunandi verð.
Stjóm ÁTVR getur haft töluvert
um það að segja hvernig vöruúrvalið
er og hvers konar þjónusta er veitt
en það er hins vegar ekki á forræði
ÁTVR að ákveða verð á áfengi. Við
viljum hins vegar reka ÁTVR á sem
allra bestan hátt innan þess laga-
ramma sem settur hefur verið.
Það er aftur á móti í sjálfu sér sér-
stakt að áfengisgjöld á fslandi á létt-
um vínum og bjór skuli vera svo
miklu hærri en í nágrannalöndunum
og í raun engin sérstök rök fyrir því.
Afengisgjöldin á sterkum vínum eru
aftur á móti mjög sambærileg hér og
annars staðar á Norðurlöndunum.
En gagnvart verðlagningu nýtur ís-
lenska ríkið auðvitað einangrunar
landsins.“ Hildur og Sigurður segj-
ast vera þeirrar skoðunar að verð-
lagning á léttvíni og bjór hér á landi
sé meira vandamál en fyrirkomulag
smásölunnar, það sé í raun brýnna
úrlausnarefni. Þeir einu sem geti
verið mjög sáttir við verðlagningu
áfengis séu vínáhugamennimir því
að dýru léttvínin séu á góðu verði og
kosti hér svipað eða jafnvel minna
en víða annars staðar. „Við tökum
það hins vegar fram að það er ekki á
hendi stjómar ÁTVR að taka á því
heldur fjármálaráðuneytisins.“
Hildur og Sigurður segja að áf-
engisgjald á Islandi sé línulegt mið-
að við styrk vínanda en annars stað-
ar sé það yfirleitt í þrepum, þ.e.a.s.
að áfengisgjaldið sé mismunandi
fyrir ákveðið áfengismagn, til dæmis
mjög lágt fyrir bjór, aðeins hærra
fyrir léttvín og svo mikið hærra fyrir
brennda drykki. „Þetta gerir það til
dæmis að verkum að ódým léttvínin
hér á landi geta verið tvisvar til
þrisvar sinnum dýrari en í nágr-
annalöndunum. Okkar skoðun er sú
að ef það eigi að viðhalda þvi fyrir-
komulagi sem nú ríkir verði að upp-
fylla öll þau skilyrði sem við nefnd-
um áðan, þ.e. vömúrval verður að
vera gott, þjónustan líka og verðið
verður að vera ásættanlegt."
Eðlilegt að lengja
afgreiðslutímann
Hildur og Sigurður segja stóran
hluta af stefnumótunarvinnu og
framtíðarhugmyndum hafa snúist
um þjónustuþáttinn, sama gildi um
afgreiðslutímann en þau vilji gjarna
sveigja hann miklu meira að opnun-
artíma þeirra verslana sem ÁTVR
er í nálægð við. „Fyrir utan verslun-
ina Heiðrúnu em verslanir ÁTVR
opnar frá 11-18 virka daga nema
föstudaga en þá er opið til 19 og á
laugardögum er opið frá 11 til 14.
Samtals em verslanir ÁTVR því
opnar í 39 stundir á viku en til sam-
anburðar mætti nefna að verslanir
Alko í Finnlandi em opnar að meðal-
tali 58 stundir á viku eða 19 tímum
lengur en hér. Dreifing verslunar-
innar er enda ójafnari hjá okkur en
Finnum, eða um 60% af heild á
föstudögum og laugardögum en 40%
í Finnlandi. Okkur finnst það vera
mjög mikilvægur þáttur í því að
bæta þjónustuna að laga afgreiðslu-
tímann að afgreiðslutíma annarra
verslana.
Við eigum auðvelt með að gera
okkur í hugarlund hvað það getur
valdið mikilli gremju ef menn era að
versla eftir hádegi á laugardögum
og koma að öllum verslunum opnum
nema ÁTVR. Til viðbótar við
afgreiðslutímann viljum við nefna
ráðgjöfina sem byggist á góðri vöra-
þekkingu hjá starfsfólki en ýmislegt
hefur raunar þegar unnist á því
sviði. Við stefnum hins vegar að því
að gera enn betur og efla þennan
þátt þjónustunnar til muna á næstu
mánuðum."
Vaxandi áhugi á léttum vfnum
Hildur og Sigurður nefna einnig
verðskrá ÁTVR sem sé ágætis rit
með miklar upplýsingar. „Okkur
finnst aftur á móti að fólk viti ekki
nægilega mikið um hana. Á þessu
þurfum við að taka og við viljum
einnig auka útgáfuþáttinn eða
fræðsluþáttinn hjá ÁTVR; það er
mjög vaxandi áhugi hjá fólki á létt-
vínum, einkum rauðvíni, og ÁTVR
getur komið betur til móts við hann
með fróðleik um vín, samspil víns og
matar og kynningu á nýjum vínum.
Verðskráin er gefin út þrisvar sinn-
um á ári og í henni væri hægt að
kynna sérstaklega ný vín sem væm
að koma í reynslusölu. Við getum
einnig komið til móts við áhugafólk
um vín á vefsvæði ÁTVR. Raunar
emm við þegar komin nokkuð áleiðis
í þeim efnum á vefsvæðinu og við
getum til dæmis bent á að á vef okk-
ar er núna kynning á spænskum vín-
um og þar er að finna mikinn fróð-
leik, s.s. um vínræktarhéraðin, kort
af þeim, berjategundir, spænsk vín
og mat o.s.frv."
Hildur og Sigurður segja að einn-
ig sé stefnt að þvi að vera með slíkar
kynningar í verslunum, þ.e. að dreg-
in verði fram ákveðin lönd eða iands-
væði. Þá megi og nefna að fyrir jólin
verði ÁTVR með kynningu á því
hvaða vín henti best með jólamatn-
um. Þá standi einnig til á næstu
mánuðum að hefja endurhönnun
verslananna að nokkru leyti, þ.e. að
gefa þeim hlýlegra útlit en nú er og
þá ekki síst í víndeildunum. „Þær
verða að vísu ekki teknar fyrir allar í
einu en það verður væntanlega byrj-
að á Kringlunni.
Ef við lítum svo á að ÁTVR sé í
raun smásölukeðja þá er rökrétt að
beitt sé sömu aðferðafræði við þróun
verslana ÁTVR og annarra versl-
ana. I því felst samræming, þ.e. í
litavali, framsetningu og öðm slíku
eins og við þekkjum hjá öðrum smá-
sölukeðjum. Við teljum að þetta sé
eðlileg þróun og þessi leið hefur ver-
ið farin bæði í Svíþjóð og Finnlandi.
Á hinum Norðurlöndunum er seldur
bjór í verslunum og því er ekki að
neita að þetta fyrirkomulagi gerir
öðmm norrænum áfengiseinkasöl-
um kleift að einbeita sér betur að
sölu á léttvínum en þær leggja mikið
upp úr víndeildum sínum.“
Hildur og Sigurðpr segja að áður
fyrr hafi verslanir ÁTVR ekki alltaf
verið staðsettar á fjölförnum stöðum
en það hafi breyst til batnaðar hin
síðari ár. Það megi segja að nú sé
búið að koma öllum verslunum í
tengsl við aðrar verslanir eða fjöl-
fama staði. Það sé ekki nema eðli-
legt að verslanir ÁTVR séu staðsett-
ar á þeim stöðum þar sem fólk
almennt versli eða eigi leið um, þ.e.
við stórmarkaði eða í verslunarkeðj-
um. „Vömúrval hefur einnig stór-
batnað. Það eru t.d. um tvö þúsund
vörategundir á boðstólum í Heið-
rúnu sem jafnast á við það besta í
öðmm löndum. Það er sjálfsaf-
greiðsla nánast í öllum verslunum
ÁTVR þannig að langar biðraðir fyr-
ir framan búðarborðið em liðin tíð.
Sjálfsafgreiðsla þykir ekki sjálfsagð-
ur hlutur hvorki í Svíþjóð né Noregi.
ÁTVR er einnig eina einkasalan á
Norðurlöndum sem rekur vefversl-
un þannig að viðskiptavinurinn get-
ur fengið vörana senda heim til sín.“
Sýning í dag
Sýnum í dag frá kl. 10-14 á Gylfaflöt 24-30 í Reykjavík:
Doka-steypumót, Plettac-hjóla- og veggjapalla, Atlas Ward-stálgrindarhús, ál-, ál/tré- og
tréglugga, Plettac-vinnustaðagirðingar, Lumin-svalalokanir og-handrið, Horizal-, Alsta-
iðnaðarhurðir, pallanet og margt fleira
formaco
Gylfaflöt 24-30,112 Reykjavík