Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður læknaráðs Landspítala - háskólasjúkrahúss
segir mál Steins Jónssonar verða rætt á næsta fundi
Út í bláinn að tala um
hagsmunaárekstur
„ÞETTA er nýtt fyrir okkur og mér
finnst út í bláinn að væna Stein
Jónsson um að sýna spítalanum
ekki hollustu eða bera á hann hags-
munaárekstur," segir Sverrir Berg-
mann, formaður læknaráðs Land-
spítala - háskólasjúkrahúss, er
hann var spurður um þá ákvörðun
forstjóra spítalans að afturkalla
ráðningu Steins sem sviðsstjóra
kennslu og fræða. Segir forstjórinn
hagsmunaáreksturinn felast í því að
Steinn hafi unnið að undirbúningi
einkarekins sjúkrahúss jafnframt
því sem hann eigi að helga sig upp-
byggingu kennslu og ft-æða meðal
lækna.
Læknaráð spítalanna voru sam-
einuð fyrir nokkrum vikum og
Sverrir kjörinn formaður þess.
Hann segir málið verða tekið upp á
næsta fundi læknaráðs næstkom-
andi mánudag. Hann kveðst hafa
tekið málið upp á sviðsstjórafundi á
þriðjudaginn var og viljað vita hvort
rætt hefði verið við Stein en ekki
fengið afgerandi svör.
Læknar alltaf
hollir spítalanum
„Þetta er harkalegt og ég vildi
vita hvort farið hefði verið að mál-
inu með eðlilegum hætti, rætt við
Stein og málin skýrð og að því loknu
tekin ákvörðun sem hann væri hluti
af og honum gefinn kostur á því að
gera upp við sig hvar hann vildi
vera,“ sagði Sverrir ennfremur og
sagði að eftir atvikum væri unnt að
veita mönnum óopinbera áminningu
og skýra fyrir þeim stöðu þeirra.
Sverrir segir sviðsstjóra ekki
hafa verið ráðna eftir auglýsingar
heldur hafi menn verið valdir í
störfin af framkvæmdastjórum við-
komandi sviða. Segir hann læknaráð
hafa lagt til að störfin hefðu verið
auglýst.
„Læknai' hafa alltaf verið hollir
Landspítalanum og öðrum vinnu-
stöðum sínum og ég þekki vinnu-
framlag lækna við lækningar,
kennslu og rannsóknir. Eg tel að
þeir hafi allir staðið sig mjög vel og
sinnt starfi sínu af trúmennsku.
Þegar ég lít til baka þá höfum við
ekki mikið gagnrýnt vinnustaðinn
en gagnrýnt mikið heilbrigðiskerfið
en mér skilst að tilefnið í tilfelli
Steins sé gagnrýni hans á spítalann
og þá hafi verið brugðist svona við.
En hann er talinn nógu tníverðugur
til að gegna stöðu sinni ,yið spítalann
og mér finnst þetta því stangast á,“
segir Sverrir en Steinn er sérfræð-
ingur í lungnalækningum og hefur
síðustu árin starfað á Landspítala í
Fossvogi (áður Sjúkráhúsi Reykja-
víkur) og þar áður á Landakotsspít-
ala.
„Ég sé enga hagsmunaárekstra í
þessu og þeir eru þá búnir að vera
fyrir hendi öll þau ár sem ég hef
starfað hér,“ segir Sverrir og eru
það frekar áratugir en ár. „Steinn
er í rauninni að ræða um breytt fyr-
irkomulag á þeirri miklu sérfræði-
þjónustu sem fram fer utan sjúkra-
húsa, að þar eigi sér stað einhver
samvinna og samtenging en.það er
langt því frá að þetta sé komið á
eitthvert spítalastig. Hann er einn
þeirra sem taka þátt í þessari um-
ræðu ásamt fjölda annarra sem
einnig tengjast spítalanum. Ég sé
alls ekki að þetta séu slíkir hags-
munaárekstrar að þeir réttlæti
svona. Ég er handviss um að Steinn
hefði sinnt þessu starfi mjög vel og
verið mjög trúr í því. Það eru engir
hagsmunaárekstrar gagnvart þessu
embætti. Hann er þar að taka þátt í
skipulagi og uppbyggingu fræðslu
fyrir lækna og það eru menn alveg
jafn færir um að gera í fullum trún-
aði þótt þeir tali fyrir betra skipu-
lagi á þjónustu sérfræðinga utan
sjúkrahúsa. Enda eru líkalega um
70% sjúkrahússlækna að einhverju
leýti þátttakendur í slíkri þjónustu
og rík og löng hefð er fyrir.“
Ekki rætt í starfsmannaráði
Einar Oddsson, formaður starfs-
mannaráðs Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, segir ráðið ekki hafa
fjallað um málefni Steins Jónssonar
enda taki það ekki mál einstakra
starfsmanna fyrir.
Formaðurinn kveðst hins vegar
gera ráð fyrir að málið verði rætt í
víðu samhengi á næsta fundi ráðsins
sem ekki hefur verið dagsettur.
„Það er málfrelsi í landinu og það er
ekki gott ef menn roega ekki tjá
sig,“ segir Einar og kveðst ekki
vilja tjá sig frekar um málið að
sinni.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra kvaðst ekki vilja tjá sig
um málið, það væri á forræði for-
stjóra spítalans og hann hefði svar-
að ágætlega fyrir það.
Tap SÍF í Noregi talið
nema
Ósló. Morfnnibladid.
í NORSKA viðskiptablaðinu Dag-
ens Næringsliv er greint frá þeirri
ákvörðun SÍF að draga úr umsvif-
um sínum í sjávarútvegi í Noregi
og því haldið fram að SIF hafi tap-
að a.m.k. 650-750 milljónum ís-
lenskra króna á rekstrinum í Nor-
egi
Dótturfélag SIF í Noregi, Mar-
Nor var skv. DN rekið með u.þ.b.
290 milljóna króna tapi á síðasta ári
og fram kemur að útlitið fyrir þetta
ár sé svipað.
Greint er frá því að markaðs-
verðmæti SÍF hafi minnkað veru-
lega undanfarið ogJ að óánægðir
hluthafar í íslenska fyrirtækinu
krefjist endurskipulagningar á
rekstrinum. Astæðan fyrir erfiðum
rekstri sé að saltfiskframleiðendur,
bæði norskir og íslenskir, eigi í sí-
fellt meiri vandræðum með að út-
vega hráefni þar sem æ stærri hluti
aflans sé frystur og seldur á alþjóð-
legum markaði. Eins og greint hef-
ur verið frá hefur SIF þegar selt
tvö af fiskvinnslufyrirtækjum sínum
í Noregi og mun líklega leita eftii-
kaupanda að þriðja fyrirtækinu,
Loppa Fisk. Fram kemur í DN að
SÍF hafí hingað til forðast að selja
Loppa Fisk en blaðið bendir aftur á
móti á nokkra hugsanlega kaup-
endm- að fyrirtækinu. f því sam-
bandi er nefnt fyririækið Dáfjord
Laks og hefur DN eftir heimilda-
mönnum sínum að viðræður þess
fyrirtækis og SÍF hafi þegar farið
fram. Annar mögulegur kaupandi
að Loppa Fisk er Fjord Seafood.
Bæði fyrirtækin reka laxeldisstöðv-
ar m.a. í Norður-Noregi.
Morgunblaðið/Ásdís
Piparkökuhús
KEPPENDUR í hinni árlegu pip-
arkökuhúsakeppni Kötlu hafa
stillt piparkökuhúsum sínum upp
i Kringlunni. Eins og sjá má eru
húsin mörg hver skrautleg mjög
og af öllum stærðum og gerðum.
Þau verða til sýnis fram á sunnu-
dag.
Formaður Læknafélags íslands
Fráleitt að hefta
málfrelsi fólks
„ÞAÐ að hefta málfrelsi fólks hjá
þessari stofnun finnst mér fráleitt
og ávísun á eitthvað verra sem ég vil
ekki nefna,“ sagði Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Læknafélags
íslands, spurður um afturköllun
ráðningar Steins Jónssonar sem
sviðsstjóra. Sigurbjörn kvað
Læknafélagið ekki hafa tekið málið
fyrir en myndi gera það ef leitað
yrði eftir því.
Sigurbjörn kvaðst hafa upplýsing-
ar sínar um málið úr fjölmiðlum og
kæmi þar fram að höfuðástæðan
fyrir því að ráðning Steins hefði ver-
ið afturkölluð væri sú að hann hefði
gagnrýnt spítalann. Hann kvaðst tjá
sig sem einstaklingur en væri ekki
að viðra álit Læknafélagsins.
„Ég tel fulla ástæðu til að líta
þetta mál mjög alvarlegum augum.
Þetta er spurning um það hvort
starfsmaður sjúkrahússins hefur
tjáningarfrelsi um þessa hluti. Spít-
alastjórnin nálgast þetta eins og
hugsanlega myndi gerast í fyrir-
tækjum sem væru á hörðum sam-
keppnismarkaði. Það er hins vegar
fráleitt að líta á Landspítalann sem
slíkt fyrirtæki, hann situr nánast
einn að verkefnum sínum og að-
stöðu. Ennfremur hefur því verið
lýst yfir margsinnis að heilbrigðis-
þjónustan sé ekki samkeppnismai'k-
aður. Því finnst mér fráleitt að nota
sömu rök og notuð eru í einkafyr-
irtækjum og hefta málfrelsi fólks á
þennan hátt.“
,★★★★★ af fjórum mögulegum
(^oldvaipon sem
hver stól ó tmusmn a henn
ÞÍSwnhn Eldjárn hefur
þýtt barnabókina
Moldvarpan sem vildi
vita hverskeit á hausinn
á henni. Dag einn, þegar
litla moldvarpan stakk
hausnum upp úr jörðinni
til að sjá hvort sólin væri
komin upp, gerðist
dálítið hneykslanlegt, að
mati moldvörpunnar.
Óvenjuleg og stór-
skemmtileg bók fyrir
unga sem aldna.
3
Í0
VAKA- HELGAFELL
Tsjetsjenski flóttamaðurinn í hungurverkfall
Vill knýja á um að hann
fái hór dvalarleyfí
ASLAN Gilaevs, sem kveðst vera
tsjetsjenskur flóttamaður, hefur haf-
ið hungurverkfall. Aslan sagði í sam-
tali við Morgun-
blaðið í gær að
hann hafði ekkert
borðað frá því á
þriðjudag og hann
muni halda verk-
fallinu áfram þar til
hann fái dvalarleyfi
hér á landi.
„Ég borða engan
mat en ég drekk vatn. Ef ekkert hef-
ur breyst á mánudag mun ég einnig
hætta að drekka vatn,“ sagði Aslan.
„Þetta er afleiðing verka dómsmála-
ráðuneytisins. Þeir vilja að ég fari en
þá mun ég deyja. Það er eins gott að
þeir sjái hvað muni gerast. Ég vil
sýna þeim að þetta er enginn leikur
heldur eru mannslíf í húfí,“ segir
Aslan.
Hann bætir við að sér hafi verið
lofað svari frá dómsmálaráðuneytinu
um miðjan desember en enn hafi
ekkert svar borist. Hann segir
óvissuástandið óþolandi og það hafi
bitnað mjög á fjölskyldu hans.
Enn unnið innan þeirra tíma-
marka sem ráðuneytið gaf sér
Aslan kom hingað til lands í lok
júní frá Noregi og sótti um pólitískt
hæli. í byrjun september kvæntist
hann íslenskri konu. í lok nóvember
hafnaði Útlendingaeftirlitið beiðni
hans um pólitískt hæli á þeirri for-
sendu að hann hefði ekki getað fært
sönnur á hver hann væri eða frá
hvaða ríki. Þá hefði hann gefið upp
mismunandi nöfn og fæðingardaga.
Úrskurður IJtlendingaeftirlitsins
var kærður til dómsmálaráðuneytis-
ins. Ingvi Hrafn Óskarsson, aðstoð-
armaður dómsmálaráðherra sagði
þá að búast mætti við endanlegri nið-
urstöðu einhvern tímann í desember.
Ingvi Hrafn sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að málið væri enn í í
vinnslu og ekki lægi fyrir ákvörðun í
málinu. Enn væri unnið innan þeirra í
tímamarka sem menn gáfu sér í upp-
hafi.
V?
...
------3BBM■
Aslan Gilaevs