Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Landssími íslands verð
ur seldur í heilu lagi
§|r
v^GMUMD'
Og eina enn, og aftur eina enn, fyrir Dabba sinn.
Jóla hvaðj annað en..
hsmúl
AEG
Bless bursti
Nú gef ég sjálfum
mér uppþvottavél
Þetta er sú heitasta og
hljóðlátasta á
markaðnum.
Túrbó þurrkun,
6 þvottakerfi,
6 falt vatnsöryggi og
3 vatnsúðarar.
Tekur 12 manna stell.
Þetta er alvöruvél og hún
vinnur verk sín í hljóði.
59.900
AEG
Hreint
út
sagt..
..fullkomin þvottavél á
sinn einfalda hátt.
400-1400 snúningar,
öll hugsanleg þvottakerfi
og stærra op.
69.900
1'
m
AEG
Nú færðu það þvegið
vmt'
Alvöru
þvottavél
með
1200/600
snúninga
þeytivindu.
54.900
Hvorki vott.
barkarlaus
þurrkari
sem þéttir
gufuna
54.900
Helmsending Innifalln i verðl
á stór Reykjavikur-svæðlnu
Hvorki vott, en J**..
væri gott ef hann
þyldi þvott -ég
má nú lika rugla
aðeins, svo
sjaldan maður
skreppur í
bæinn.
BRÆÐURNIR
Öll verð eru staögreiösluverð.
Lágmúla 8 • Slmi 530 2800
www.ormsson.is
Ný rafræn örorkuskírteini
Spor í átt til
niitímans
TEKIN hafa verið í
notkun hjá Trygg-
ingastofnun ríkis-
ins rafræn kort fyrir þá ör-
yrkja sem metnir hafa
verið til 75% örorku eða
meira. Sæmundur Stef-
ánsson deildarstjóri var
spurður hverju þetta
breytti fyrir stofnunina.
„Þetta breytir því að
þama er komið varanlegra
form á skírteini en verið
hefur. Aður þurfti að end-
urnýja skírteini þegar
örorka var endurmetin,
sem gert er eftir ákveðn-
um reglum á eins, þriggja
og flmm ára fresti. Nú hef-
ur þeim reglum verið
breytt, þannig að örorka
er endurmetin með heldur
lengra millibili. Því þarf
ekki að endumýja skírteinin eins
oft og áður, þetta er því varan-
legra form á skírteinum en áður
tíðkaðist.“
-En hvað með skírteinishafa,
hvert er gagn þeirra af þessum
nýju kortum?
„Það má segja að með þessu sé
verið að færa örorkuskírteini til
nútímalegra horfs. Um langan
tíma hafa þessi skírteini verið
prentuð, sett í plasthulstur og það
hefur örlað á því að það væri nei-
kvætt viðhorf til gömlu skírtein-
anna, fólk jafnvel skammaðist sín
fyrir þau. En með nýju skírtein-
unum má segja að notkun þeirra
sé orðin með svipuðu móti og ger-
ist með önnur skírteini sem fólk
þarf að framvísa í dag við marg-
vísleg tilefni, svo sem debet- og
kreditkort og ökuskírteini. Þessi
nýja gerð skírteina er í takt við
það sem almennt gerist í dag.“
- Eru margir komnir með þessi
rafrænu örorkuskírteini?
„Fyrir nokkmm vikum vora
send út bréf til um það bil 5000
handhafa örorkuskírteina, þar
sem þeim var tilkynnt um þessa
nýju gerð skírteina, jafnframt var
þeim tilkynnt að þeir þyrftu að
skila inn ljósmynd og að kortið
væri gjaldfrítt. Ég hef ekki ná-
kvæma tölu um hversu margir
eru komnir með skírteini en gert
var ráð fyrir að þessi breyting
myndi ganga í gegn á nokkram
mánuðum."
- Hvernig eru þessi kort notuð?
„Þessi skírteini veita handhöf-
um afslátt af læknis- og lyfja-
kostnaði samkvæmt lögum um al-
mannatryggingar. Ef handhaf-
arnir fara til læknis, sækja lyf í
lyfjabúð eða þurfa í rannsóknir og
fleira er segulrönd á skírteininu
sem geymir upplýsingar um við-
komandi aðila, kennitölu hans og
hver séu réttindi hans innan al-
mannatrygginga. Skírteini þessi
em notuð á sama hátt innan al-
mannatryggingakerfisins og önn-
ur rafræn kort em notuð úti í
samfélaginu."
-Af hverju var þessi breyting
gerð?
„Hluti af svarinu við því er sá
að frá árinu 1998 hefur _________
verið starfandi sam-
starfsnefnd, skipuð
fulltrúum Trygginga-
stofnunar og hags-
munasamtaka öryrkja.
Þessi samstarfsnefnd,
sem sett var á laggirn- —■
ar 1998, hefur það verkefni m.a.
að leita leiða til að bæta þjónustu
við öryrkja og má segja að útgáfa
þessara nýju örorkuskírteina sé
árangur af því starfí ásamt fleiru.
Þess má geta að upplýsingarnar á
skírteininu era lika á ensku, sem
gerir notendum þess mögulegt að
nota það erlendis. Nefndin hefur
Sæmundur Stefánsson
► Sæmundur Stefánsson fæddist
18.2.1954 í Reykjavík. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1975
og BA-prófi í íslensku og sögu
frá Háskóla íslands árið 1986.
Hann hefur starfað við útgáfu,
kynningarmál og almannatengsl
frá námslokum og er nú deild-
arstjóri kynningarmála hjá
Tryggingastofnun ríkisins. Sæ-
mundur er kvæntur Steindóru
Bergþórsdóttur myndlistarkonu
og eiga þau þrjár dætur.
Viðskiptavinir
Trygginga-
stofnunar um
55 þúsund
mánaðarlega
líka staðið fyrir fræðslunámskeið-
um fyrir öryrka."
- Eru fleiri breytingar í vænd-
um?
„Almennt er verið að taka upp
hjá Tryggingastofnun rafrænt
viðmót, koma á rafrænum sam-
skiptum víða í starfseminni. Þetta
er þó afskaplega umfangsmikið
verkefni og tekur langan tíma.
Þess má geta t.d. að nú era komin
á rafræn samskipti við stóran
hluta lyfjabúða í landinu, sem ger-
ir það að verkum að allir lyfseðlar
sem afgreiddir eru í lyfjabúðum
eru nú sendir rafrænt til Trygg-
ingastofnunar. Það getur hver
maður séð fyrir sér hvað það þýð-
ir minna pappírsumfang en áður.
Það má geta þess til viðbótar að
heimasíða stofnunarinnar hefur
verið í endurgerð að undanförau,
þar sem lögð verður áhersla á að
gera hana notendavænni eða að-
gengilegri fyrir viðskiptavini. Þar
verður hægt t.d. að nálgast eyðu-
blöð á rafrænu formi þannig að í
heildina tekið getum við sagt að
Tryggingastofnun sé á fullri ferð
að nútímavæða starfsemi sína að
þessu leyti. Hin rafrænu sam-
skipti við t.d. lyfjabúðir og mörg
fleiri slík munu ábyggilega aukast
umtalsvert á allra næstu árum.“
- Þýðir þetta peningalegan
sparnað í kerfínu?
„Það er erfitt að segja til um
það, vinnan og vinnulagið breyt-
ist, pappírinn og einhæf pappírs-
vinna víkur en starfið breytist og
jafnvel eykst að öðru leyti.“
- Eru þetta öruggari
samskipti?
„Ég myndi halda að
rafræn samskipti innan
þessa sviðs ættu að
geta orðið það en hitt
er ljóst að til þess að
“ gera þau trygg verður
að viðhafa mjög strangt öryggis;
eftirlit, gæta öryggis í hvívetna. í
tengslum við þessi rafrænu sam-
skipti öll má geta þess að við-
skiptavinir stofnunarinnar eru
mjög margir eða um það bil 55 til
60 þúsund í hverjum mánuði, sem
eru tæp 20% af íbúafjölda ís-
lands.“