Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 13
Hörð andstaða við hugsanlega sölu á eignarhlut sveitarfélaganna í Orkubúi Vestfjarða
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Hörð andstaða við hugmyndir um sölu Orkubús VestQarða kom fram á almennum borgarafundi á ísafirði í gær.
Viðræður um sölu
eru hafnar við ríkið
Sveitarfélögin á Vestfjörðum hafa skipað
nýja nefnd til að ræða við ríkið um hugs-
anlega sölu á Orkubúi Vestfjarða. Fram
kom hörð andstaða við söluna á almennum
✓
borgarafundi á Isafírði í fyrrakvöld, sem
Helgi Bjarnason fylgdist með. Aftur á móti
kom fram að sveitarstjórnarmenn eru í erf-
iðri stöðu vegna fjárhagserfíðleika bæj-
arfélagsins og að til umræðu hefði komið við
gerð fj árhagsáætlunar á Isafírði að segja
upp 20-30 bæjarstarfsmönnum.
UMRÆÐAN um sölu eignarhlutar
ísafjarðarbæjar í Orkubúi Vest-
fjarða er það mál sem hæst hefur
borið í bæjarmálaumræðunni að
undanfömu. Bima Lámsdóttir, for-
seti bæjarstjórnar ísafjarðarbæjar,
lagði á það áherslu í upphafi almenns
borgarafundar sem bæjarstjórnin
hélt um málið á þriðjudagskvöld, að
veigamikil rök væru á móti sölunni
en út frá sjónarhóli sveitarstjómar-
manna væri einnig nauðsynlegt að
íhuga önnur rök og vísaði þar til fjár-
hagsvanda sveitarfélagsins. Sagði
hún nauðsynlegt að taka upp form-
legar viðræður við ríkið um söluna,
væri það vilji sveitarstjórnanna.
Skipa viðræðunefnd
Færra fólk var á borgarafundin-
um sem ísafjarðarbær efndi til um
Orkubúsmálið í stjórnsýsluhúsinu í
fyrrakvöld en var á fundi sem áhuga-
menn efndu til um sama mál fyrir
nokkru. Á fundinum flutti Helgi
Bjamason, skrifstofustjóri í iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytinu, erindi um
starfsumhverfi orkufyrirtækja eftir
gildistöku nýrra orkulaga, Gylfi
Guðmundsson, innkaupastjóri Orku-
búsins, gerði grein fyrir viðhorfum
starfsmanna, og Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri, fjallaði um fjár-
hagslega stöðu ísafjarðarbæjar og
breytingar á henni ef af sölu á hlut
bæjarins í Orkubúi Vestfjarða yrði.
Á eftir vom almennar umræður. Öll
sveitarfélögin tólf sem eiga samtals
60% hlut í Orkubúi Vestfjarða á móti
ríkinu hafa samþykkt breytingu á
félaginu úr sameignarfélagi í hluta-
félag. Til þess að sú breyting nái
fram að ganga þarf samþykki allra
eigendanna. Sum sveitarfélögin
settu skilyrði fyrir samþykki sínu,
meðal annars um að hugsanleg sala
Grkubúsins yrði ekki liður í lausn á
vanda sveitarfélaga vegna félagslega
íbúðakerfisins en sú tenging hefur
fram til þessa vakið mesta andstöðu.
Fjórðungssamband Vestfirðinga
hefur nú skipað nefnd til að ræða við
ríkið um ýmis þau mál sem upp hafa
komið í umræðum í sveitarstjómum
og meðal íbúanna og átti hún sinn
fyrsta fund með fulltrúum ríkisins í
fyrradag. Að sögn Halldórs Hall-
dórssonar, bæjarstjóra á ísafirði,
mun nefndin hitta fulltrúa ríkisins
fljótlega aftur. Enn hefur ekki verið
efnt til fulltrúafundar í Orkubúinu
vegna breytingar á félagsforminu.
Góð þátttaka var í umræðum á
fundinum á Isafirði. Þrettán tóku til
máls, íyrir utan framsögumenn og
forseta bæjarstjómar, og lýstu tíu
þeirra yfir andstöðu við hugmyndir
um sölu Orkubúsins, einn mælti
beinlínis með sölunni en Sighvatur
Björgvinsson alþingismaður og
Ragnheiður Hákonardóttir bæjar-
stjórnarfulltrúi reifuðu málin án
þess að lýsa beinni afstöðu.
Fram kom á fundinum að ísafjarð-
arbær á í miklum fjárhagsörðugleik-
um, svo miklum að erfiðleikum er
bundið að koma saman fjárhagsáætl-
un. Kom það skýrt fram í máli bæj-
arstjórans og forseta bæjarstjómar
á fundinum. Miðað við núverandi
frumvarp að fjárhagsáætlun aukast
skuldir Isafjarðarbæjar á næsta ári
um 9 milljónir kr. þótt fram-
kvæmdafé sé skorið mjög við nögl,
eða niður í 60 milljónir þótt þörfin sé
300-400 milljónir, að mati Halldórs
Halldórssonar bæjarstjóra.
Málið liti allt öðmvísi út ef hlut-
urinn í Orkubúinu yrði seldur ríkinu
fyrir 1.428 milljónir eins og staðið
hefur til boða og söluandvirðið
óvaxtað á besta hátt. Þá yrðu eftir
190 milljónir til greiðslu afborgana
og ijárfestinga. Ef allri fjárhæðinni
yrði varið til að lækka skuldir yrði
minni afgangur á hverju ári vegna
þess að hluti lána bæjarins er með
lágum vöxtum.
Fram kom hjá Birnu Lárusdóttur,
forseta bæjarstjórnar, að Isafjarðar-
bær væri mikilvægur vinnuveitandi
og þyrfti að geta staðið undir út-
gjöldum sínum. Staðan væri svo erf-
ið að við fjárhagsáætlunargerð hafi
komið fram hugmyndir um að segja
upp 20-30 starfsmönnum. Það hafi
ekki verið ákveðið, bæjarfulltrúar
þekktu vel slæmt atvinnuástand og
þyki á það bætandi. Halldór lagði á
það áherslu að ekkert sveitarfélag
hefði enn lýst yfir áhuga á sölu, nema
Vesturbyggð, og sveitarfélögin
hefðu gert marga fyrirvara við til-
boði ríkisins. En hann lagði jafn-
framt áherslu á að staðan væri eins
og erfið og hann hefði lýst og ekki
yrði hjá því komist að breyta henni.
Að pissa í
skóinn sinn
í máli fundarmanna komu fram
spumingar og efasemdir um að sal-
an á Orkubúinu myndi verða varan-
leg lausn á íjárhagsvanda ísafjarð-
arbæjar. Sölunni var meðal annars
líkt við það að pissa í skóinn sinn, það
myndi hlýja í bili en ekki lengi. Jón
Fanndal lagði áherslu á að Orkubúið
yrði að vera í höndum heimamanna
ef ekki ætti illa að fara og vísaði til
reynslunnar af fyrirtækjum á Vest-
fjörðum sem komist hefðu í eigu ann-
arra. Krafðist Jón almennrar at-
kvæðagreiðslu meðal íbúanna um
sölu Orkubúsins, ef til hennar ætti að
koma.
Almenn atvinnumál á Vestfjörðum
komu inn í umræðuna. Magnús
Reynir Guðmundsson gagnrýndi
bæjarstjóm harðlega fyrir sofanda-
hátt og aðgerðarleysi á meðan grafið
hefði verið undan gmnni byggðar-
innar, rekstri útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja, með þeim afleið-
ingum að átta skuttogarar hefðu
verið seldir í burtu og rekstri
margra frystihúsa hætt. Nú þegar
búið væri að taka frá Vestfirðingum
aðgang þeirra að fiskinum undan
ströndinni ætti einnig að taka
orkuna. Salan á Orkubúinu væri til-
ræði við byggðina, einn líkkistunagl-
inn í viðbót.
Gunnar Þórðarson lýsti yfir stuðn-
ingi við sölu Orkubúsins. Hann sagði
að ísfírðingar hefðu misst stjóm á
fjármálunum og gætu ekki haldið
uppi nauðsynlegri þjónustu við
íbúana. Lagði hann áherslu á að mik-
ilvægara væri að koma lagi á fjár-
málin en að eiga í raforkufyrirtæk-
Efasemdir um
efndir Ioforða
Fram kom í ræðum starfsmanna
Orkubúsins að orkuverð myndi
hækka við söluna og hætta væri á að
starfsemi orkufyrirtækisins myndi
dragast mjög saman við sameiningu
við önnur orkufyrirtæki. Sveitar-
stjómannenn sögðu að ríkið væri
tilbúið til að halda óbreyttum rekstri
fyrst í stað og Birna Lámsdóttir
sagði að I viðræðum við ríkið væri
lögð áhersla lá að efla starfsemina á
Vestfjörðum í kjölfar sameiningar,
til dæmis að höfuðstöðvar RARIK í
hinu nýja Vesturkjördæmi yrði á
Vestfjörðum, eða að minnsta kosti
höfuðstöðvar einhvers tiltekins þátt-
ar í starfsemi sameinaðs fyrirtækis.
Fram komu á fundinum miklar efa-
semdir um að slík loforð stæðust.
Vitnað var til loforða sem gefin hefðu
verið um jöfnun skulda við samein-
ingu sveitarfélaga en þau hefðu verið
svikin og sömuleiðis svikinna loforða
við eigendaskipti og sameiningu
sjávarútvegsfyrirtækj a.
Sighvatur Björgvinsson þingmað-
ur vakti athygli á því að með nýjum
orkulögum yrði enginn virkjanarétt-
ur í höndum Orkubúsins, nema sá
sem því kynni að hafa verið veittur
með lögum frá Alþingi, og öllum yrði
frjálst að virkja á Vestfjörðum. Þá
vakti hann athygli á því að árið 2002
yrði tekið upp nýtt raforkukerfi og
þá þyrfti að breyta verðlagningu raf-
orku, burt séð frá þvi hvort Orkubúið
yrði í eigu sveitarfélaganna eða ekki,
og vitnaði til þeirra ummæla Helga
Bjamasonar skrifstofustjóra fyrr á
fundinum að reiknað væri með að
raforkuverð til Vestfjarða yrði ná-
lægt landsmeðaltali. Sighvatur sagði
einnig að til lítils væri unnið með að
laga skuldastöðu sveitarfélaganna
með kaupum ríkisins á Orkubúi
Vestfjarða ef ábyrgðin á innlausnarí-
búðum félagslega íbúðakerfisins yrði
áfram hjá sveitarfélggunum og
skuldastaðan kæmist í sama horf eft-
ir nokkur ár.
Botninum náð?
Halldór bæjarstjóri sagði í svari
við fyrirspum að ef undanhald yrði á
öðmm sviðum bæjarlífins yrði áfram
undanhald hjá bæjarsjóði. Hins veg-
ar kvaðst hann vonast til að botn-
inum væri náð og hægt yrði að horfa
fram á veginn. Salan á Orkubúinu
væri leið sveitarstjórnarmanna til
þess.
Undir lok fundarins vakti Bima
Lárusdóttir enn athygli á bágri fjár-
hagsstöðu Isafjarðarbæjar og sagði
að það væri eina ástæða þess að
sveitarstjórnarmenn hefðu ljáð máls
á sölu Orkubúsins. Sagði hún frá
fjárhagsáætlunargerð og sagðist
vera orðin leið á því að binda á sig
gatslitna skó en líkti söluandvirði
Orkubúsins við nýja sóla sem hún
gæti gengið á aðeins lengur en tók
jafnframt fram að ekki væri hægt að
lofa neinni varanlegri lausn.
PRINSESSUR
Orðið „bamaníðingur“ er nýtt í íslenskri tungu.
Þessi bók er byggð upp eins og ævisaga ógæfu-
manns.
Sjá nánar: www.jolabok.is
Opnunartími
í desember
Virka daga til kl. 21.00
Laugardaga til kl. 21.00
Lokað á sunnudögum
Nýbýlavegi 12,
Kóp., sími 554 4433.