Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 28

Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 28
pv ()()(líl rí ''►?*! lí' pp'/jn ' r U- )' ) ' (] ■ ÍTÍ-/ T ' TVf 28 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Lágvöruverðsverslanir keppast um að bjóða lægsta verðið Avextir og grænmeti á krónu kflóið ÞAÐ VAR handagangur í öskjunni í þeim verslunum sem heimsóttar voru í gær. Viðskiptavinir Krónunn- ar og Bónuss fylltu körfur sínar af ávöxtum og grænmeti sem kostaði frá 1 krónu upp í 9 krónur kílóið. Þá var hægt að kaupa grænar Ora- baunir á 1 krónu, Ritz kexpakka á krónu og tvo lítra af Egils appelsíni á um 70 krónur. Gevalía kaffípakki kostaði 139 krónur og Egils maltöl hækkaði og lækkaði til skiptis í verði, kostaði frá 39 krónum og upp í 77 krónur þennan tíma sem staldrað var við. Starfsmenn gengu um og festu nýja miða á hillur, verðið breyttist jafnvel á nokkurra mínútna fresti. Að sögn Guðmundar Marteinsson- ar framkvæmdastjóra Bónuss hófst þessi verðsamkeppni fyrir alvöru í byrjun vikunnar og verð hefur verið lækkað á ótal vöruliðum. Hann segir óvíst hversu lengi þessi verðsam- keppni standi, það verði að koma í ljós. „Við stöndum við það sem við höfum alltaf sagt, að Bónus bjóði lægsta verðið. Við erum með tvo starfsmenn í fullu starfi við að kanna verð á markaðnum. Við göngum ekki á bak orða okkar.“ Bónus hefur sett upp skilti á veggi þar sem verslunin mælist til að fólk kaupi ekki meira í einu en eitt kfló af hverri tegund grænmetis og ávaxta. „Það er gert til að koma í veg fyrir að eigendur veitingahúsa séu að koma og kaupa upp lagerana hjá okkur eins og hefur verið áberandi síðustu daga. Við viljum að allir okkar við- skiptavinir geti notið hagstæðs verðs á meðan það varir.“ Sigurjón Bjamason framkvæmda- stjóri Krónunnar segir greinilegt að búðin hafi hreyft við öðrum lágvöru- verðsverslunum á markaðnum. „Við ætlum að vera lágvöruverðs- verslun og munum gera það sem þarf til að svo sé.“ Þegar Sigurjón er spurður hversu lengi hann telji að þessi verðsamkeppni standi segist hann í raun ekki hafa hugmynd um það, tíminn verði að leiða það í ljós. Elías Þoi’varðarson verslunar- stjóri hjá Nettó segir að verslunin taki þátt í verðstríðinu nema þeir geti ekki leyft sér að bjóða kíló af ávöxtum og grænmeti á krónu. „Við höfum einfaldlega ekki efni á að bjóða vöru eins og grænmeti og ávexti hluta úr degi eins og gert er á hinum stöðunum. Þar klárast birgð- irnar á nokkrum klukkutímum. Við tökum á hinn bóginn fullan þátt í því að lækka verð á öðrum vörum.“ Elías segist ekki vita hversu lengi verðstríðið standi en honum h'st bara vel á þessa þróun. „Þetta er að vísu harðari sam- keppni en áður en hún er bara af hinu góða.“ Hefur þessi samkeppni i matvöru- verði ekki tekið athyghna frá bók- unum? „Jú, en við ætlum um næstu helgi að trompa bókatilboðin sem við höf- um verið með fram til þessa og fá líf í bóksöluna." Morgunblaðið/Ásdís Ágúst Ragnarsson var búinn að kaupa töluvert á tilboði, nokkra kassa af Ora-baunum á krónu stykkið og úrval af græiuneti og ávöxtum. „Ég var við nám í Danmörku og lærði þar að kaupa á tilboðum. Þegar Krónan var opnuð keypti ég egg og kartöflur og núna var hægt að kaupa þar grænmeti, baunir og ýmislegt fleira á hagstæðu verði. Þetta eru góð kaup og baunirnar hafa t.d. geymsluþol fram til ársins 2003.“ Ágúst segist yfirleitt kaupaþar sem það er ódýrast hverju sinni. En hvað á svo að hafa í kvöld- matinn? „Salat, ekki spurning.“ Jens Svansson var að vonum ánægður með verðið á grænmeti og ávöxtum í Bónus, sem kostaði frá einni krónu kflóið, en sagði að sama skapi væri úrvalið ekki mjög fjöl- breytt. Snezana Zivojinovíc og Snezana Milutinovic voru að kaupa tómata og aðrar gi-ænmetistegundir. Þær sögðust gera innkaupin þar sem verðið væri lægst. Að þessu sinni sögðust þær ætla að matreiða ým- islegt úr grænmetinu og sjóða til dæmis tómatana í súpur og pottrétti. Systurnar Lilja og Sandra Jónas- ardætur voru að kaupa gos, kaffi, ávexti eins og vínber og ýmsar grænmetistegundir á tilboði. Þær sögðust af tilviljun hafa rekið inn nefið í Krónuna daginn áður og undrast hvað það var mikill hamagangur í kringum grænmet- isborðið. Þær sögðust yfirleitt kaupa inn í Bónus en sögðu að ef verðið yrði sambærilegt í Krónunni kæmu þær til með að gera innkaupin þar líka. Lilja og Sandra sögðu að lík- lega yrðu pasta og grænmeti á borðum þeirra næstu daga og vín- ber og ostar einnig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.