Morgunblaðið - 14.12.2000, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FERSKT • FRAMANDI * FRUMLEGT
La Espano/a
Olívuolía
FERSKT • FRAMANDI • FRUMLEGT
Framandi
grænmeti og
kryddjurtir
Suðurlandsbraut 6 • s. 568 3333
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
Agnar Steinarsson, sjávarlíffræðingnr Hafrannsóknastofnunar að Stað í Grindavík, pakkar sandhverfuseiðum.
Sandhverfueldi þrefaldast
Grindavík - í tilraunaeldisstöð Haf-
rannsöknastofnunar að Stað í
Grindavík hafa verið gerðar til-
raunir með sandhverfuseiði. Agnar
Steinarsson, sjávarlíffræðingur hjá
tilraunaeldisstöðinni, segir að
framleiðslan hafi þrefaldast frá því
í fyrra og muni aukast eitthvað á
næstu árum. „Framleiðslan í ár er
um 30.000 seiði og er það þreföldun
frá fyrra ári. Við erum að pakka
sandhverfuseiðunum til flutnings í
eldisstöðvar. 28.000 seiði fara til
Sæbýlis í Vogum en 1.000 seiði fara
til Silfurstjömunnar í Öxarfírði í
tilraunaeldi þar. Restin af seið-
unum verður áfram hjá okkur til að
ala upp framtiðarklakstofn. Stefnt
er að því að auka framleiðsluna og
selja þeim sem áhuga hafa. Til-
gangurinn með þessu öllu er nátt-
úrlega að koma nýrri eldistegund
inn í íslenskt fiskeldi," sagði Agnar.
Seiðin eru sett um 300 stykki sam-
an í plastpoka með sjó að tveimur
þriðju sem er siðan yfirmettaður af
hreinu súrefni. Þegar senda á
lengra er seiðafjöldinn minni. Þau
seiði sem verið var að pakka í þetta
skiptið þegar blaðamann bar að
garði vom um 18 g hvert. Þau
verða siðan alin í tæp tvö ár þar til
þau hafa náð sláturstærð.
WiseFish selt til Hollands
HOLLENSKA fískmarkaðsfyrir-
tækið United Fish Auctions hefur
tekið í notkun íslenskan hugbúnað
við mat á ferskleika fisks. Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins og
TölvuMyndir ehf. þróuðu búnaðinn
sem markaðssettur er undir heitinu
WiseFish.
Hollenska fyrirtaekið starfrækir
þrjá stóra fiskmarkaði í borgunum
Stellendam, Colijnsplaat og Sceven-
ingen. Hugbúnaðurinn var settur
upp á öllum þessum mörkuðum í
október sl. og hefur reynslan af hon-
um verið góð, að því er fram kemur í
fréttabréfi Rf. Að sögn Ólafs Magn-
ússonar, kerfisfræðings hjá Tölvu-
myndum, eru markaðimir þrír
tengdir saman á einu tölvuneti og því
séu allar upplýsingar tiltækar alls
staðar og sjálf uppboðin sameigin-
leg. Hollendingunum hafi verið gert
enn auðveldara um vik með því að
láta þá fá handtölvur sem matsmenn
fari með um markaðina og sendi
þannig niðurstöður ferskleikamats
þráðlaust til upplýsingakerfis fyrir-
tækisins.
í Rf tíðindum segir að WiseFish
hugbúnaðurinn ségæðastaðlað skyn-
mat með aðstoð tölvu, sem geti verið
öflugt stjómtæki í gæða- og fram-
leiðslustýringu í fiskvinnslu. Þessi
tækninýjung geti því skipt miklu
máli á fiskmörkuðum þar sem hrá-
efni gengur kaupum og sölum óséð.
Þá sé mikilvægt að til séu áreiðan-
Iegar og staðlaðar upplýsingar um
ferskleika vömnnar.
WiseFish á rætur að rekja til
verkefnis um tölvuvætt skynmat í
fiskvinnslu sem Evrópusambandið
styrkti. Sjálft forritið. varð til hjá
TölvuMyndum en Rf þróaði gæða-
stuðulsaðferðir og notkun þeirra.
iiaisii
Stólpi fyrir Windows
Kynning á Hótel Loftleiðum, Þingsal 1,
14. desember, kl 16.00 -18,00
Kynnt verður ný útgáfa af Stólpa fyrir Windows og nær bókhaldskerfið nú til flestra
þátta atvinnurekstrar. Meðal nýjunga má nefna nýtt birgðakerfi, tilboðs- og sölukerfi
og tengingu við innheimtukerfi banka. Launakerfi með áður óþekktum sveigjanleika
er tilbúið. Vefverslun með beintengingu við birgðakerfið er vel á veg komin.
Kerfisþróun ehf. byggir á fimmtán ára reynslu við gerð viðskiptahugbúnaðar og þjónar
um 1500 viðskiptavinum á öllum sviðum atvinnulífsins. Um 70 fyrirtæki hafa nú þegar
tekið Stólpa fyrir Windows í notkun og mörg bætast við um áramótin.
Hægt er að skoða kerfin á heimasíðu Kerfisþróunar:http://www.kerfisthroun.is
Komdu, sjáðu og láttu sannfærast um hvernig upplýsingakerfi á að líta út.
Helstu bókhaldskerfin frá Kerfisþróun: Fjárhagsbókhald, Skuldunautabókhald, Lánardrottnabókhald,
Sölukerfi, Innheimtukerfi banka, Birgðakerfi, Vefverslun, Framleiðslukerfi, Verkbókhald, Launakerfi,
Stimpilklukkukerfi, Tilboðskerfi, Bifreiðakerfi, Pantanakerfi, Tollkerfi, Útflutningskerfi og EDI
samskipti.
KERFISÞRÓUN EHF.
Fákafen 11 • Sími 568 8055 • Fax 568 9031
Enn seinkar
Ingunni AK
ENN ein seinkun verður á afhend-
ingu Ingunnar AK, nóta- og togveiði-
skips Haraldar Böðvarssonar hf. á
Akranesi, sem verið hefur í smíðum í
Asmar-skipasmíðastöðinni í Chile.
Að sögn Haralds Sturlaugssonar,
framkvæmdastjóra HB, komu í ljós
óhreinindi í háþrýstilögnum í próf-
unum en verið sé að þrífa þær undir
leiðsögn framleiðenda. Mikilvægt sé
að spilkerfi séu hrein strax í upphafi
því þá endist þau mun lengur. Hann
segir að viðgerðin taki væntanlega
nokkra daga en að öðru leyti sé skip-
ið tilbúið. Áhöfn, sem komin var til
Chile og átti að sigla skipinu til ís-
lands, hefur vegna þessa verið kölluð
heim á meðan viðgerð stendur yfir.
Haraldur á von á því að skipið verði
afhent strax upp úr áramótum og
verði komið til íslands í byrjun
febrúar.
----------------
Tólf sagt
upp hjá HB
TÓLF starfsmönnum hefur verið
sagt upp í sérvörudeild Haralds
Böðvarssonar hf. á Akranesi frá og
með 1. janúar. Sérvörudeildin var
áður Islenskt-franskt eldhús ehf. Að
sögn Haralds Sturlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra HB, liggur fyrir
ákvörðun um að sameina sérvinnsl-
una hefðbundinni vinnslu fiskafurða.
Færri stöðugildi munu því verða í
vinnslu sérafurða en áður en nú
starfa um 13 manns við sérvörufram-
leiðslu fyrirtækisins. „Við munum
draga h'tillega úr þessari starfsemi
fyrirtækisins.
Við gerðum töluverðar breytingar
á vinnslunni um síðustu áramót og
lögðum meiri áherslu á ferskfiskút-
flutning með flugi. Þetta er hluti af
þeim hagræðingaraðgerðum sem við
höfúm staðið í að undanfórnu," segir
Haraldur.
Fram-
leiða
þorsk-
seiði
SEIÐAELDISSTÖÐIN
Framgord Ltd. á Hjaltlands-
eyjum leitar nú samstarfsaðila
til að þróa framleiðslu á þorsk-
seiðum. Frank Johnson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir á fréttavefnum IntraFish
að mikill áhugi sé á verkefninu
meðal breskra og franskra
stórmarkaða og á von á því að
samningar um samstarf liggi
fyrir í næsta mánuði.
Framgord hefur einkum sér-
hæft sig í sölu á laxi síðustu 15
árin en fyrirtækið átti níu lax-
eldisfyrirtæki sem voru sam-
einuð og seld árið 1998. John-
son telur að þorskeldi geti á
næstu árum skipt sköpum í
efnahagslífi Hjaltlandseyja.
Hann segir að eldistími þorsks
sé aðeins tvö ár en eldistími lax
þrjú ár. Eins hrygni hver
þorskhrygna um tveimur millj-
ónum eggja en laxhrygnan að-
eins um 30 þúsund eggjum.
Hann segir fyrirtækið hafa
stefnt að því að auka fram-
leiðslu á laxaseiðum úr 1,5
milljónum seiða í 4 milljónir, en
vegna mikils verðþrýstings á
laxi hafi verið ákveðið að kanna
aðra möguleika. Hann segir að
þegar sé búið að yfirstíga ýms-
ar tæknilegar hindranir í
þorskeldinu. Nú sé einkum
horft til tækni sem beitt er í eldi
á beitarfiski í Hollandi.