Morgunblaðið - 14.12.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 55
MINNINGAR
famir, teknir burt á unga aldri. Þessi
sjúkdómur svífst einskis, heggur og
heggur, tekur og tekur og skilur eft-
ir sig kramdar sálir þeirra sem fram
hjá honum læddust. Hvernig er
hægt að trúa á æðri máttarvöld þeg-
ar svona er fyrir komið? Hvernig er
hægt að réttlæta svona hluti? Að
missa einn ástvin og fjölskyldumeð-
lim er hræðileg lífsreynsla, að missa
tvo er enn verra, en að missa rúman
tug af þeim tætir menn inn að beini.
Erfitt er að raða saman þeim púslum
sem eftir eru til þess að hægt sé að
halda áfram eigin lífi. Ég veit að
mamma og öll hin tóku á móti þér
með gleði- og sorgartárum í bland,
þau sýna þér nú og leiðbeina í nýjum
heimkynnum.
Elsku Nína mín, minningarnar
hellast yfir mann við svona kring-
umstæður. Ein minning er þó ofar-
lega í huga. Það var þegar við skrif-
uðumst á í heilt sumar, ég aðeins sex
ára í sveit undir Eyjafjöllum og var
með vægast sagt brjálæðislega
heimþrá. Þú huggaðir mig og hug-
hreystir þrátt íyrir að vera aðeins
níu ára gömul. Einnig mun brúð-
kaup ykkar Steina lifa í minningu
minni ævilangt, svo falleg athöfn og
einlæg og aðeins viku fyrir andlát
þitt. Þið reyndust hvort öðru svo vel,
jafnt í mótbyr sem meðbyr. Steini
reyndist þér svo vel í veikindum þín-
um, svo sterkur bakhjarl og yndis-
legur persónuleiki.
Hann sat yfir þér og aðstoðaði svo
mánuðum skipti af ást og dugnaði.
Þú stóðst þig einnig eins og hetja í
gegnum þessi áföll, fórst strax í end-
urhæfingu af miklum eldmóð eftir
þína fyrstu blæðingu, stóðst fljótlega
upp úr hjólastólnum og kastaðir af
þér hækjunum. Þvílíkur dugnaðar-
forkur.
Það gladdi mig mikið að heyra í
þér reglulega í allt sumar, ég stadd-
ur á Hornafirði og þú á Grensás-
deildinni, heyra hversu hratt þú náð-
ir árangri og hversu dugleg þú varst.
Elsku Nína mín, við söknum þín
sárt, hafðu þökk fyrir allt og hvfl þú í
friði.
Þinn bróðir,
Daði Þór.
Mig langar að minnast kærrar
vinkonu minnar í fáum orðum. Nína
var mjög dugleg og drífandi við það
sem hún var að gera. Minnist ég þess
er ég var ófrísk og þurfti að mála
skápa að Nína var ekki lengi að bjóð-
ast til að mála og gerði það af mikilli
vandvirkni og dugnaði. Hún hafði
sterkar skoðanir á hlutunum, var
mjög hreinskilin og hafði fágaðan
smekk sem sást oft á þeim gjöfum
sem hún gaf. Ófáar stundir sátum
við yfir kaffibolla og töluðum oft
langt fram á nótt. Oft var mikið hleg-
ið, t.d. í Húsafelli þegar tjaldið fauk
af okkur og þegar við fengum
brenndan hamborgara gefins.
Ég votta Steina, Leifi og Ingi-
björgu og öðrum sem eiga um sárt
að binda mína dýpstu samúð.
A sofinn hvarm þinn
fellur hvít birta
harms míns.
Umhiðveglausahaf
lætéghugminnfljúga
til hvarms þíns.
Svo að hamingja þín
berihvítabirtu
harms míns.
(Steinn Steinarr.)
Hrafnhildur Halldórsdóttir.
Elsku Nína, við nokkrar af æsku-
vinkonum þínum viljum minnast þín
með nokkrum fátæklegum orðum.
Það hvarflaði aldrei að okkur að
þetta gæti hent þig, það var ein-
hvern veginn svo víðs fjarri, við
ræddum þessa hluti oft opinskátt og
þú fræddir okkur um þetta en fyrir
okkur var útilokað að þú þyrftir að
ganga í gegnum þessar raunir. Og
nú sitjum við saman og upp koma
minningar sem við áttum með þér
allar sem ein eða hver í sínu lagi. Við
gerðum svo sannarlega mikið saman
á sínum tíma og okkur leiddist sjald-
an, við gátum kjaftað út í eitt fram á
rauða nótt og það að þurfa að vakna
daginn eftir var seinni tíma vanda-
mál. Þú hafðir með ólíkindum smit-
andi hlátur og þegar þú byrjaðir lág-
um við allar í kasti, svipbrigði þín
voru mörg og þá glottið einna eft-
irminnilegast. Þið Katý urðuð vin-
konur strax í barnaskóla enda í sama
bekk, við hinar gleymum því seint
þegar þið mættuð í skólann einn
daginn eins og glókollar, nýkomnar
úr strípum og voðalegar skvísur,
þetta var það nýjasta í hártískunni
og voruð þið frumkvöðlar okkar ár-
gangs í þeim efnum, hvergi smeyk-
ar. Ari síðar var örugglega helming-
urinn búinn að apa eftir ykkur. Þið
voruð heimagangur hvor hjá annarri
og brölluðuð mikið saman, fóruð svo
til Ibiza og trölluðuð í sumri og sól.
Ég (Ingibjörg), Stína og þú byrjuð-
um að dandalast mikið saman þrjár í
unglingavinnunni, þá bjóstu í kjall-
aranum á Hofteignum og áttum við
svo til heima þar allar, afi þinn og
Ingibjörg á annarri hæð, eins indæl
og þau voru, og hjá þeim var fasti
punkturinn í tilveru þinni. Það er
mér eftirminnilegt hvað þér þótti of-
boðslega vænt um þau, enda bæði al-
gerar perlur. Á þessum tíma vorum
við nú farnar að spá svolítið í
skemmtanalífið og var oft voða fjör
hjá okkur í Best í Fáksheimilinu,
sem var fyrsti skemmtistaðurinn þar
sem við stigum inn fæti, síðar Best á
Smiðjuvegi. Við fórum nokkrar sam-
an í útilegu eina verslunarmanna-
helgina í Húsafell, sú ferð verður
alltaf eftirminnileg. Rigningin var
svo svakaleg og við, með gamalt og
lúið tjald, vissum ekki fyrr en það
hrandi yfir okkur um miðja nótt. Já
og þarna lágum við með tjaldið í and-
litinu, rennandi blautar og frekar
geðstirðar, en þetta var nú bara lán í
óláni því okkur var útvegaður þessi
fíni bústaður og málunum bjargað.
Það lifir einnig sterkt í minningunni
þegar ég var rétt nýkomin með bfl-
próf og þið Hrafnhildur voruð vænt-
anlegir farþegar mínir. Ég settist
undir stýri og setti í fyrsta gír og fór
beint á bílinn fyrir framan! í fátinu
setti ég í bakkgír og lenti beint á
þeim fyrir aftan, alveg eins og í bíó-
mynd. Þið vinkonurnar gátuð engan
veginn haldið aftur hlátrinumn tárin
hreinlega láku, og ég í hálfgerðu
sjokki stakk bara af með ykkur, al-
veg ótrúlegar, en gaf mig svo fram
síðar um daginn. Árið 1991 flutti ég
með þér í kjallarann á Hofteignum
og þangað sóttu vinkonurnar í stríð-
um straumum. Þetta var yndislegur
tími, við allar konur einar og leit-
uðum á vit ævintýranna, skemmtum
okkm’, trölluðum og möluðum um
allt og ekkert fram eftir öllu. Við
tvær fóram í helgarferð til Akureyr-
ar og máluðum bæinn rauðan þar
jafnt og við allar í Reykjavík. En svo
kom að því; ungur maður var farinn
að vera tíður gestur á Hofteignum,
þar var mættur unnusti Nínu allt
fram til dagsins í dag. Þau urðu fljótt
mjög náin og unni hún honum mjög
heitt. Við hinar fóram margar hverL
ar í sambönd á svipuðum tíma og þar
með höfðum við öðram hnöppum að
hneppa. Sambandið hefur verið
minna undanfarin ár en þvi var alltaf
viðhaldið með jólakortum og fréttum
af okkur. Elsku Nína, þetta er eins
óraunveralegt og hugsast getur, þú
ert og verður alltaf meðal okkar og
ein af okkur.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininnsinnlátna,
Er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Elsku Steini, Leifur, Ingibjörg,
Dagný, Villi, Ásta, Daði og aðrir sem
eiga um sárt að binda. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð og megi
Guð gefa ykkur styrk í þessari miklu
sorg.
Ingibjörg, Kristín og Katrín.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afrnælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar aftnælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
I
UPPBOQ
Uppboð
Uppboð á stóðhesti verður haldið í Vorsabæ
I, Skeiðahreppi, fimmtudaginn 21. desember
nk. kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi.
TIL. SÖLU
Til sölu úr gjaldþrotabúi
1 stk. ný ónotuð olíupressuvél, merki Moil-1000 Animal Oil
Extraction Plant Mounted on a skid. Vélin, sem framleidd er af
Högun ehf., Reykjavík, íslandi, er hönnuðtil aðframleiða dýraolíu
úr 800-1200 kg af selspiki á klst. Olíupressuvélin er á skáa/sliskju
sem haegt er að flytja og er tilbúin til notkunar. Verð á vélinni nýrri
var 171.000 dollarar. Nánari lýsing og/eða stafrænar myndir fást
hjá neðangreindum skiptastjóra. (Vélin er í Danmörku).
1 stk. nýlega endurnýjuð ca 5 ára gömul kjöthakkavél, merki
Kramer & Grube Winkelwolf 200. (Vélin var keypt enduruppgerð
árið 1999 fyrir 245.000 DKR. Vélin, sem hefur ekki verið notuð síðan
hún var endurnýjuð, er í Maniitsoq/Sukkertoppen í Grænlandi).
Vélarnar eru seldar án ábyrgðar gjaldþrotabúsins, skiptastjóra eða
Landsréttar Grænlands. Búið áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboð-
um.
Tilboð um kaup á vélunum -! sitt hvoru lagi eða saman - sendist til
Advokatfirmaet Wilhelm Malling & Co.
Aqqusinersuaq 27, Box 1046
GL - 3900 Nuuk.
Sími 299 32 34 00. Símbréf 299 32 38 68.
Netfang: malling@greennet.gl
Att. Advokat Niels Peter Gundelach.
4
Tækifæri
Vinsæl og falleg gjafa- og nytjavöruversl-
un til sölu. Er með fallegar og nýtískulegar
vörur fyrir nútíma heimili. Skilar hagnaði.
Upplýsingar gefur Ragnar Tómasson, gsm 896
2222.
AIU G L V S I IVI B A
ATVINIMUHUSNÆÐI
Tíl sölu
á Suðumesjum
gott 470 fm iðnaöarhúsnæði í Iðn-
görðum 2, Garði.
Upplýsingar í síma 892 8665.
Bæjarlind — fjárfestar
Til sölu glæsilegt 800 fm skrifstofuhúsnæði
á 2. hæð í lyftuhúsi.
Unnt er að skipta húsnæðinu í smærri einingar.
Langtímaleigusamningur við trausta aðila.
Hagstæð langtímalán geta fylgt.
Upplýsingar veitir:
Híbýli fasteignasala,
Suðurgötu 7, sími 585 8800.
FUNOIR/ MANNFAGNAÐUR
Félagsfundur Búseta hsf.
Reykjavík
verður haldinn á Grand Hótei fimmtu-
daginn 28. desember ki. 17.30.
Dagskrá:
Samningur um samruna Búseta Reykjavík,
Búseta Garðabæ og Búseta Mosfellsbæ.
Tillaga um sameiningu þessara félaga.
Sjá www.buseti.is
Stjórnin.
HUSNÆÐI DSKAST
íbúð óskast til leigu
3ja-4ra herbergja íbúð óskast á leigu í hálft til
eitt ár, frá og með miðjum janúar 2001, helst
í Kópavogi eða nágr.
Skilvísar greiðslur - góð umgengni.
Upplýsingar í síma 564 5518 eða 863 0054,
Oddný Halldórsdóttir.
Y
FELAGSSTARF
Jólafundur
Hvatar
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, heldur sinn árlega jólafund
í Valhöll í kvöld, fimmtudagskvöldið 14.desember, kl. 20.00.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í anda jólanna:
Ásdís Halla Bragadóttir les úr bók sinni Listin að vera leiðtogi.
Sr. Hjálmar Jónsson flytur hugvekju.
Inga Jóna Þórðardóttir flytur jólahugleiðingu.
Guðrún Finnbjarnardóttir syngur.
Júlfus Vffill Ingvarsson kemur fram og stjórnar samsöng.
Egill B. Hreinsson leikur ó píanó. '
Allir velkomnir. Kaffigjald 500 kr.
Stjórn Hvatar.
FELAGSLIF
I.O.O.F. 11 = 18112148'/2 = Jv.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Minnum á sameiginlegu
bæna- og lofgjörðarstundina
sem bænahreyfingin ísland
fyrir Krist stendur fyrir f
kvöld kl. 20.00 í Fíladelfíu,
Hótúni 2, Reykjavík. Mætum
og sýnum einingu í verki.
www.vegurinn.is.
I.O.O.F. 5 = 18112148 = M.A.
Landsst. 6000121419 VII
fnmhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Hafliði Kristinsson, fjölskyldu-
og hjónaráðgjafi.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að lok-
inni samkomu. Allir velkomnir. .
www.samhjalp.is