Morgunblaðið - 14.12.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 14.12.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR14. DESEMBER 2000 57 ----------------------------------jjj; ARNIINGOLFUR ARTHURSSON + Árni Ingólfur Arthursson fæddist á Reyðar- firði 6. nóvember 1942. Hann lést í Reykjavík 1. des- ember siðastliðinn. Árni Ingólfur var í sambúð með Lilju Ei- ríksdóttur í nokkur ár. Hennar börn eru Eiríkur, Guðrún og Rúnar. Árni Ingólfur var sjómaður um árabil. Hann lærði bifreiða- smíði hjá SVR. Á síð- ari árum var hann starfsmaður á vélaverkstæði hjá ESSO og síðan Olíudreifíngu. Útför Árna Ingólfs fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Deyrfé, deyjafrændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Við vorum illilega minnt á það hversu stutt er á milli lífs og dauða, þegar andlát Árna frænda bar svo snöggt að. Eitt andartak var hann hress og kátur á leið til „Pólskí“ í langþráða veiðiferð og á næsta augnabliki var honum kippt í enn lengra ferðalag en fyrirhugað var. Ami hafði til að bera sterkan per- sónuleika, hann var einstaklega hlýr maður og bamgóður. Hann var greiðvikinn með afbrigðum og sann- ur vinur vina sinna. Það þurfti ekld að biðja Árna um aðstoð, það var eins og hann fyndi á sér ef eitthvað var öðru- vísi en það átti að vera og þá var höndin rétt fram. Ami hafði sterka kímnigáfu til að bera og gátum við setið og hlegið af litlu tilefni. Okkur er minnisstætt þegar Ámi tók GSM- símann í sína þjónustu nú á haust- dögum. Hann átti í nokkru basli með að átta sig á tökkunum og sátu frændurnir lengi kvölds og æfðu sig með tilheyrandi hlátrasköllum. Ekki er hægt að minnast Áma án þess að leikni hans í Ijósmyndun komi upp í hugann. Hann var eiginlega orðinn „aðalljósmyndari" okkar fjölskyldu, hvort sem festa þurfti á filmu merk- isatburði í núinu eða taka eftir göml- um ljósmyndum. Hann var smekk- maður á mat og það var gaman að bjóða honum í sunnudagssteikina. Þá borðaði hann vel og fannst mikið gott að fá eitthvað sætt í eftirrétt. Arni tók vel eftir umhverfi sínu og hafði á orði ef einhverjar breytingar höfðu orðið á heimili eða fjölskyldumeðlim- um, og lét þá gjaman í ljós hvort hon- um líkaði betur eða verr. Ami hafði áhuga á öllum veiðiskap og eru ófáar ferðimar sem við frændur fómm saman til fjalla í þeim tilgangi. Þetta sameiginlega áhugamál okkar var endalaus uppspretta umræðna. Áma hefði eflaust ekki líkað það að skrifuð væri mærðargrein um sig, og er því við hæfi að geta þess að hann gat verið fastur fyrir og hafði ákveðn- ar skoðanir á mönnum og málefnum. Stundum var hann býsna líkur föður sínum og í huga okkar var það mikill kostur. Minningarnar streyma fram, bæði héðan og frá Reyðarfirði, allar em þær góðar og flestar skemmtilegar og tengdar spaugilegum atvikum. Ami var ógiftur og bamlaus, en hann gerði öll böm systkina sinna að börnum sínum og böm þehra að barnabörnum sínum. Allir áttu Árna sem frænda og afa, bæði skyldir og óskyldir. Góður drengur er genginn á vit feðra sinna og við stöndum eftir með sorgíhjarta. _ Við biðjum algóðan Guð að geyma Árna frænda og blessa minningu hans. Páll og Steinunn. Árni frændi okkar var svona manneskja sem gat allt- af hlustað á mann og gerði aldrei lítið úr því sem maður var að segja, og hann gat alltaf sett sig á sama plan og viðmælandinn var á. Hann var rosalega dug- legur og var alltaf til í að hjálpa öllum. Ef ein- hvern vantaði eitthvað gat hann alltaf hjálpað. Það var alltaf hægt að plata hann til að gera hluti með sér sem eng- um öðrum dytti í hug að gera, eins og að elta uppi selstennur. Ami var ótæmandi uppspretta skemmtilegra sagna af fólki og atburðum sem hann hafði kynnst um ævina og gat hlegið tím- unum saman að fyndnum sögum og bröndurum. Hann var búinn að breytast mikið með aldrinum og far- inn að gera fullt af hlutum sem hann langaði að gera, taka því sem lífið hef- ur upp á að bjóða. Ámi studdi mann alltaf í öllu sem maður tók sér fyrir hendur þótt öðram hefði stundum fundist það hljóma svolítið heimsku- lega, en hann sagði manni alltaf að láta vaða ef maður héldi að það væri raunhæft. Hann var mjög opinn fyrir nýjungum, og þó að hann væri svolít- ið sérvitur var hann yfirleitt til í að prófa hlutina, sama hversu spánskt þeir komu honum íyrir sjónir. Hans verður sárt saknað af rosalega mörg- um, en við eram þakklátar fyrir allar góðu stundirnar, spjallið, skilninginn og óteljandi ævintýri sem við munum alltaf varðveita í hjörtum okkar. Að loknum löngum degi niðri í fjöru snúum við aftur heim og dagurinn heldur áfram. En ferðinni fylgir alltaf söknuður eftir hafinu og Qörunni. Eftírkyrrðinni og vindinum sem virðist sk^ja hvenæráaðblása oghvenæraðþegja Og stundum virðist sem fúllkomnustu sjávarfóllin með skilningsríkustu og bestu öldumar hafi aldrei verið til í raun og veru heldur verið tálsýnir einsogenglar sem komu til okkar og studdu okkur ogfómsvoburt. En er kvölda tekur sjáum við að hver fjara er byijun á nýju flóði. María og Sigrún. Vegir Guðs era órannsakanlegir og máttur mannsins lítill gegn æðri máttarvöldum. Þetta kemm; í hugann þegar við kveðjum í dag Árna Art- húrsson. Það var okkur harmafregn er við fréttum að Ami væri látinn, langt fyrir aldur fram. Hvorki okkur hér í Olíudreifingu né aðra gat órað fyrir því Jafnhraustur og vel á sig kominn og Árni var. Kallið kom er hann var á leið í leyfi með félögum sínum til að sinna sínu eina áhugamáli sem var skotveiði. Frítími sem Ami hefði átt skilið að njóta að afloknu góðu dags- verki. Með Árna er genginn góður sam- starfsmaður og ekki síst góður félagi. Hann var trúr og traustur vinur vina sinna sem einstaklega gott var að leita til. Greiðasemi var honum í blóð borin. Árni ávann sér virðingarsess meðal okkar samstarfsmanna sinna fyrir dugnað og ósérhlífni ásamt þeirri sérþekkingu sem hann aflaði sér sem fagmaður. Samstarfsmenn Árna sýndu honum traust sitt í verki þegar þeir kusu hann til trúnaðar- starfa. Vandfundinn er sá starfsmað- ur sem var stundvísari og samvisku- samari en Árni var í þau tæpu fimm ár sem hann starfaði hjá Olíudreif- ingu ehf. Þar á undan starfaði hann í fjórtán farsæl ár hjá Olíufélaginu h/f. I dag kveðjum við góðan dreng með söknuði og hefðum óskað þess að samvistir okkar hefðu getað orðið lengri og við fengið að njóta mann- kosta hans lengur. Með Árna er genginn drengur góður sem við munu sakna um ókomna tíð. Hvíl í friði. Við vottum ættingjum Áma og vinum okkar dýpstu samúðar. Fyrir hönd Olíudreifingar ehf. og sam- starfsmanna. Hörður Gunnarsson. Á föstudagsmorgun, þegar ég var að fara í vinnuna, hringir síminn. Það var faðir minn. Hann sagði mér að hann Ámi frændi væri dáinn. „Ha, hvað segirðu?" Hann Árni frændi þinn er dáinn. Mér fannst sem tíminn stæði kyrr eitt andartak. Hann sem hlakkaði svo til þessa dags. Hann ætlaði til Póllands á villibráðarveiðar. Hann var ekki vanur að bera vandamál sín á torg. Þess vegna vissi nánast enginn hve veikur hann var orðinn. Árni var sérlega greiðvikinn maður og ósérhlífinn. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd. Hann var einn af þeim mönnum sem vora mjög laghentir. Allt frá því að sauma kjóla upp í að gera við og smíða yfir bíla. Ámi var mikill útivistarmaður og náttúraunnandi. Hann stundaði svig- og gönguskíði á vetuma ásamt göng- um og skotveiði. Á sumrin gekk hann oghjólaði. í frium fór hann mikið á sínar æskuslóðir, Reyðarfjörð, en sá stað- ur var honum mjög kær. Áma auðnaðist aldrei að eignast böm en átti þó „mörg“. Ég þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, elsku frændi. Það er sárt að sjá á eftir þér svo snemma. Ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Guð blessi minningu þína. Amþór. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Senda má grein- ar til blaðsins í bréfasíma 669 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsyn- legt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heima- síðum. l>að eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t faðir okkar, Elskulegur eiginmaður minn, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBRANDUR GUNNAR GUÐBRANDSSON, Búðargerði 5, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 5. desember, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 15. desember kl. 10.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Styrktarfélag Krabbameins- sjúkra barna. Guðbjörg Jóhannsdóttir, Ásta G. Guðbrandsdóttir, Garðar Ágústsson, Jóhanna J. Guðbrandsdóttir, S. Stefán Ólafsson, Jón Marinó Guðbrandsson, Elín Elísabet Baldursdóttir, Anna Kristín Guðbrandsdóttir, Benjamín M. Kjartansson, Guðbjörg Jóna Jóhanns, Vilhjálmur B. Þorvaldsson, afabörn og langafabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, BALDUR SIGURÐSSON, Álfatúni 17, Kópavogi, sem lést aðfaranótt sunnudagsins 10. desem- ber, verður jarðsunginn frá Frikirkjunni í Reykjavík föstudaginn 15. desember og hefst athöfnin kl. 15.00. Unnur Þóra Þorgilsdóttir, Þorgils Baldursson, Inga Jónsdóttir, Sigurbjörg Baldursdóttir, Ásgeir Beinteinsson, Hallur A. Baldursson, Kristín S. Sigtryggsdóttir, Sigurður Baldursson, Borghildur Sigurbergsdóttir og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LAUFEY AÐALHEIÐUR STEFÁNSDÓTTIR (Lulla), elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Vífilsgötu 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 15.desember kl. 13.30. Guðný Kristín Garðarsdóttir, Konstantín Hauksson, Rafn Benediktsson, Hulda Hjaltadóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, AUÐUNN KR. KARLSSON, sem lést á heilbrigðisstofnun Suðumesja sunnudaginn 10. desember, verður jarðsung- inn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15. desem- berkl. 11.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minn- ingarsjóð Kristjáns Ingibergssonar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Auðunsdóttir, María Auðunsdóttir, Helga Auðunsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN KRISTINN BJÖRNSSON, Hellulandi, Skagafirði, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 12. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Þórunn Ólafsdóttir. + Faðir okkar, SVEINN BERGMANN BJARNASON, lést á Landspítala Fossvogi þriðjudaginn 12. desember. Jarðsungið verður frá Dómkirkjunni mánudaginn 18. desember kl. 13.30. Bjami, Ingibjörg, Úndtna, Ásmundur, Ámi, Rúnar, Sigrún, Jón Þór og Róslind Sveinsböm og aðrir vandamenn. + Elskuleg systir, mágkona og frænka, ESTER GUÐLAUG WESTLUND, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 15. desember kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Steingrímur Westlund og fjölskylda.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.