Morgunblaðið - 14.12.2000, Page 82
82 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
ANTÍGÓNA eftir Sófókles
Frumsýning annan í jólum 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti
laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti laus.
jT HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eftir John Osborne
Fös. 29/12.
Smíðaverkstæðið kl. 16.00;
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI eftir Marie Jones
Frumsýning lau. 30/12, örfá sæti laus.
GJAFAKORT í ÞJÓOLEIKHÚSIB - GJÖFIN SEM UFNAR VIÐ!
www.leikhusid.is midasala@leikhusid.is Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Miðasalan eropin mán.—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20.
Leikfélag íslands
Gjafakort í Leikhúsið
— skemmtileg jólagjöf sem lifir
^sTaÍNm
55Z 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR
Frumsýn. fim 28/12 kl. 20 örfá sæti
2. sýn. fös 29/12 kl. 20, A kort gilda
3. sýn. lau 30/12 kl. 20, B kort gilda
fðs 5/1 kl. 20 C&D kort gilda
SJEIKSPÍR EING 0G
HANN LEGGUR SIG
lau 6/1 kl. 20
Kvikleikhúsið sýnir: BANGSIMON
sun 17/12 kl. 15.30
530 3030
JÓLAMÁLSVERÐUR 0G SÝND VEIÐI
fös 15/12 kl. 19
lau 16/12 kl. 19
SÝND VEIÐI
fös 29/12 kl. 20
LEIKHÓPURINN PERLAN
Perlujó! í Iðnó
sun 17/12 kl. 17
TRÚÐLEIKUR
fös 5/1 kl. 20
sun 7/1 kl. 20
fim 11/1 kl. 20
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
16. desember kl. 15.00
Jólatónleikar
Fjölbreytt efnisskrá fyrir alla fjölskylduna.
Örfá sæti laus.
Næstu tónleikar.
Vínartónleikar 4., 5. og 6. janúar
(Z)UEXU5
IHéskólaWó v/Hagatorg
Sími 545 2500
Miöasala alla daga kl. 5-17
Opiö laugardag frá kl. 13
www.sinfonia.is SINFÓNÍAN
Rauð jól, jólavaka Hugleiks
í kvöld, fim. 14.des. kl. 21.00
sun. 17.des. kl. 21.00
Missa Solemnis
eftir Kristiinu Hurmerinta
Innlegg Kaffileikhússins tii jólanna, helgi- og
kyrrðarstund fyrir alla fjölskylduna I önn jó-
laundirbúningsins. Helgileikur sem vekur frið
og eindrægni, leikinn (ró við kertaljós og
helgistemningu.
Einleikari: Jórunn Sigurðardóttir
Leikstjóri: Kristiina Hurmerinta
Búningar og leikmynd: Rannveig Gyifadóttir
Sýningarstjóri: Karólína Magnúsdóttir
Frumsýning sunnudaginn 17.12. kl. 17.30
Sýningar daglega kl. 17.30 til jóla
Sýning á Þorláksmessu kl. 24.00
Sýning á aðfangadagskvöld kl. 24.00
MIÐASALA I SIMA 551 9055
DDAUMASMIÐ3AN
&ÓBAR HÆGWR
efttr Auðt Haralds
Aukasýning fös 29/12 kl. 20
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningin er á leiklistaffiátíðinni Á mörkunum
Hföapantanif í Iónö í síma: 5 30 30 30
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur
Næstu sýningar
BORGARLEIKHÚSIÐ OPNAR HJARTA SfTT!
JÓLABOÐ - aðgangur ókeypis, léttar
veitingar og ailir velkomnir!
Lau 16. deskl.14-17
Atriði sýnd úr Móglf á stóra sviði, Abigail
heldur partí á litla sviði og Skáldanótt I
anddyri. Boðið verður upp á skoðunarferðir
um húsið, leiklestra úr verkum í æfingu,
jólasöng, óvæntar uppákomur og jólasveinar
sprella með bömunum.
MÓGLf e. Rudyard Kipling
Þri 26. des kl. 14 FRUMSYNING
FALLEG GJAFAKORT Á MÓGLl, ÁSAMT
VÖNDUÐUM STUTTERMABOL, ERU TIL-
VALIN (JÓLAPAKKA YNGSTU FJÖL-
SKYLDUMEÐLIMANNA!
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Fös 29. des kl. 20
Lau 30. des kl. 20
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrfm Helgason
Fös 29. des kl. 20
Lau 30. des kl. 20
tJEILL HEIMUR f EINU UMSLAGI!
NÝ OG FALLEG GJAFAKORT Á LEIK-
SÝNINGAR BORGARLEIKHÚSSINS ERU
GLÆSILEGJÓLAGJÖF. HRINGDU (MIÐA-
SÖLUNA OG VIÐ SENDUM ÞÉRJÓLA-
GJAFIRNAR UM HÆL! HÁTfÐARTILBOÐ
Á GJAFAKORTUM FYRIR JÓLINI
Leikhúsmiði á aðeins kr. 1.490!
Opin 10 miða kort á kr. 14.900. Þú sérð sýn-
ingarnar sem þú vilt sjá þegar þú vilt sjá þær!
Miðasala: 568 80001
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu I
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka |
daga. Fax 568 0383 midasala@borgarleikhus.is I
www.borgarleikhus.is
HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ
1 Símonarson
Svninqar hefiast kl. 20
Aukasýn. fim. 28. des., laus sæti
Jólasýn. fös. 29. des., örfá sæti
Jólaandakt
Litla stúlkan með
eldspyturnar
eftir H.C. Andersen
Sun. 17. des. kl. 14, laus sæti
mán. 18. des., örfá sæti laus
Miðasalaísfma S5S 2222
og á www.vislr.ls M
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-16
www.mbl.is
FÓLK í FRÉTTUM
ERLENDAR
O0OOO
Valdís Gregory
fjallar um nýjustu plötuna með
Backstreet Boys sem heitir
Black and Blue.
★★★★☆
Þroskaðn
Backstreet Boys
BLACK AND Blue nefnist nýjasti
diskm- þeirra Brians, Nieks, AJ, Kev-
ins og Howies sem eru betur þekktir
sem Backstreet Boys. Backstreet
Boys eru búnir að vera saman í rúm
átta ár. Backstreet Boys eru örugg-
lega best þekkta strákahljómsveit í
heimi og ein fyrsta hljómsveitin með
þetta „strákasveitarútlit". Lögin sem
Backstreet Boys syngja eru eigin-
lega öll eins - og eru búin að vera það
síðan þeir gáfu út fyrsta diskinn sem
heitir einfaldlega Backstreet Boys.
Ég var mjög mikill aðdáandi þeirra
þegar fyrsti diskurinn þeirra kom út
en dálitlu eftir það hætti ég að vera
aðdáandi þeirra. Svo þegar ég fékk
Black And Blue hélt ég að ég væri að
fara að skrifa um eitthvað ömurlegt
en svo er ekki. Backstreet Boys hafa
þroskast mjög á þessari plötu, þeir
eiga allir kærustur og konur nema
einn (þegar þessi grein er skrifuð er
Howie á lausu). Umslagið er ekkert
sérstakt, sem er mjög skrýtið vegna
þess að þeir hafa alltaf haft það mjög
flott. Núna er það bara svart og blátt,
ekkert meira. Aftan á er mynd af
þeim þar sem þeir eru í jakkafötum
og mjög alvarlegir.
Backstreet Boys hafa tekið út
þroska að mati Valdísar.
Öll lögin eru mjög góð og ýmist ró-
leg eða hröð. Pað hafa örugglega allir
heyrt lagið „Shape Of My Heart“
sem er mjög rólegt en rosa flott.
Myndbandið er líka geðveikt. Það er
allt blátt og þeir eru að syngja og svo
er par á sviðinu sem er að túlka það
sem þeir eru að syngja. í lögunum
syngja þeir allir, sem er ekki algengt
hjá popphljómsveitum eins og West-
life, ’N Sync, 98° og fleirum.
Lagið „The Call“ er mjög
skemmtilegt. Það byrjar á símtali
milli AJ og einhverrar stelpu þar sem
hann er að segja við stelpuna að hann
verði seinn þangað sem þau ætluðu
að hittast. Og lagið er mjög hressilegt
og þeir eru að syngja um símtalið.
Lagið „Get Another Boyfriend" er
líka mjög skemmtilegt en það er
mjög líkt laginu „The Call“. Það er
eins og það sé sama undirspil en bara
annar texti. Þar eru þeir að tala um
að sambandið gangi ekki upp og hún
ætti bara að finna sér annan kærasta.
En Backstreet Boys hafa oftast verið
að syngja lög um að halda í stelpu og
elska hana til eilífðar þannig að ég
bjóst ekki við svona lagi.
Lagið „Yes I Will“ er eitt af uppá-
haldslögunum mínum á þessari plötu
en þar eru þeir örugglega að syngja
til kærustna sinna, vegna þess að í
textanum eru þeir að tala um að þeir
vilji stofna fjölskyldu með þeim.
„How Do I Fall In Love With You“
er rosa skemmtilegt en það er mjög
rólegt og ekkert nema söngur, píanó
og strengjahljóðfæri.
Það eru mjög fá lög sem mér finnst
leiðinleg á þessum diski. „Shining
Star“ finnst mér þó ofboðslega leið-
inlegt lag vegna þess að það er ekki
vel sungið og þetta lag fer bara rosa-
lega í taugamar á mér.
Lagið „I Promise You“ er ekki
skemmtilegt. Það er eins og lélegt
Eurovisionlag. Það er rólegt og svo
er gítar og alls ekki skemmtileg lag-
lína. Black And Blue inniheldur 13
lög, bæði róleg og svo líka hröð. Það
er aðeins meira af rólegum lögum en í
heild er þessi diskur frábær. Eftir að
hafa hlustað á hann er ég aftur orðin
Backstreet Boys-aðdáandi. Ég var
alltaf meira fyrir ’N Sync, sem eru
með mjög lík lög og Backstreet Boys,
en þessi diskur sannar að Backstreet
Boys geta gert góð lög og geta sung-
ið. Black And Blue á heima hjá öllum
sönnum poppaðdáendum. Heimasíða
Backstreet Boys er www.backstreet-
boys.com. Þar getið þið séð textana
og fleiri upplýsingar um þá.
Hrátt, þungt og afar hratt
TOJVLIST
Geisladiskur
FORGARÐUR HELVÍTIS
Forgarður helvítis, samnefnd safn-
plata Forgarðs helvítis sem inni-
heldur Helvíti Sessions (1999),
Burn Churches demo (1995) og
Messiarse demo (1993). Upptöku-
maður á tveimur elstu upptökunum
var Sigurður Ingi en hann fékk að-
stoð frá Finni frænda við upptöku á
nýjasta efninu. 33,28 mín. For-
garður helvítis gefur út.
ÞAÐ er leitun að jafn „rosalegri“
sveit og Forgarði helvítis hérlendis.
Lagasmíðar þeirra félaga leita til öfg-
anna, sérstaklega hvað hraða viðkem-
ur, og oft er eins og trommutakturinn
renni saman í eitt langt suð, svo
dæmalaust ör er hann. Að fara á tón-
leika með Forgarði helvítis er einstök
upplifun en þar leggur sveitin sig alla
fram, orkan og ástríðan er alger.
Forgarðurinn hefur nú verið starf-
andi í tíu ár og fer starfsemin kirfilega
fram neðanjarðar. Sveitin
hefur þó átt lög á fjöl-
mörgum útgáfum er- 1
lendum og efni með 1
sveitinni heíúr komið út í '
jafnólíkum löndum og
Bandaríkjunum, Belgíu,
Svíþjóð, Portúgal, Tékk-
landi, Þýskalandi, Hol-
landi, Japan, Austurríki og
Ítalíu.
Þó að nafnið og tónlistin
gefi til kynna svama djöfla-
dýrkendur og vitleysinga er raunin
nokkuð langt frá því. Hljómsveitin
var stofnuð af sunnlenskum frændum
sem flestir eiga ætt sína að rekja til
bæjarins Holts í Stokkseyrarhreppi
og eru nú flestir ráðsettir fjölskyldu-
menn. Söngvarinn, Sigurður Harðar-
son, er ljóðskáld og menntaður hjúkr-
unarfræðingur og hefur látið til sín
taka á undanfömum árum á hinum
ýmsu sviðum mannréttinda- og
menningarmála.
Utgáfumál Forgarðsins, líkt og
tónleikar, hafa verið í fátækara lagi
Ljósmynd/Björg Svemsdottir
Forgarður helvítis á hljómleikum: Hér eru þeir að spila á Glundroða-
tónleikunum sem fram fóru í Grafarvogi 10. nóvember síðastliðinn.
hérlendis. Árið 1995 kom út hljóm-
snældan Brennið kirkjur en einnig
átti sveitin þrjú lög á safndiskinum
Suðurlandsskjálftinn
sem út kom árið 1993.
Öll þau lög em hér sam-
ankomin ásamt árs-
gömlum upptökum
f sem ekki hafa litið
dagsins ljós áður, fyr-
ir utan að sex þeirra
hægt að finna á
safnplötunni Pönk-
ið er dautt sem út
kom í sumar.
Er Forgarðurinn kom
fram á sjónarsviðið var íslenska
dauðarokksbylgjan í algleymi. Sveitin
skar sig nokkuð úr flóknum dmnum
dauðarokkaranna og lagði sig eftir
svokölluðu mulningsþungarokki (e.
grindcore) hvers einkenni er hraði
mikill og hráleiki fremur en haglega
samsettar frasafléttur dauðarokks-
ins. Þessari stefnu hefur sveitin fylgt
æ síðan og ekki er að greina mikinn
mun á lögunum hér þótt misgömul
séu. Mulningsrokkið er einkennandi
en einnig má greina áhrif frá pönki
sem svartmálmsrokki. Krafturinn og
keyrslan er ótrúleg á stundum og tón-
listin er sannarlega útrásarvæn þeim
sem þreyttir og þjakaðir era eftir er-
ilsaman dag.
Söngstíll Sigurðar er einkar eftir-
tektarverður. Rammpólitískir text-
arnir fjalla um ýmis þörf þjóðfélags-
efni og margvísleg mannúðarmál en
þó er vart smuga á að greina stakt orð
í lögunum sem bera titla eins og „Guð
er stærsta lygi í heimi“, „Hey tussa“,
„Gelding óskhyggjunnar", „Hóra“,
„Kjöt með gati“ og „Eðlileg hegðun
er hundleiðinleg". Áhugasamir
hneykslunarsinnar geta nú notað
tækifærið og fordæmt tónlist sveitar-
innar sem heilalaust þvaður. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að í text-
unum er að finna upplýsta og heil-
næma gagnrýni á samfélagið. Afstaða
sem ber að lofa en ekki lasta.
Heimildargildi téðs hljómdisks er
ótvírætt. Gott dæmi um kosti geisla-
diska en tilkoma þeirra á sínum tíma
ýtti undir stafræna varðveislu á efni
sem ella hefði týnst. Fagnaðarefni
fyrir aðdáendur Forgarðsins en ekki
síst fyrir þá sem vilja kynna sér rokk-
tónlist í sínu ýktasta og öfgakennd-
asta formi.
Arnar Eggert Thoroddsen