Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 92

Morgunblaðið - 14.12.2000, Qupperneq 92
'ITí.A !! AiW<íAN| TII IIAIÖÁNÝ Komín á niyiiUliaiid — Smfr^ÁKREÍDSLASæií^.NE^'ANaKnSTÍimBUsHŒURErR^KMPVANG^RÆTn040’ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. < ** oát-J Vann 14 milljónir í Víkinga- lottói RÚMAR 14 miUjónir króna komu á tveggja vikna, sjö talna kerfisseðil, sem viðskiptavinur sölutumsins í Iðufelli keypti í síðustu viku, við útdrátt í Vík- ingalottói í gærkvöld. Alls var fyrsti vinningur 47,6 milljónir króna og skiptist í þrennt; einn vinningshafi býr hérlendis, annar í Danmörku og sá þriðji i Eistlandi en þetta er fyrsti stórvinningur í Vík- ingalottóinu sem fer til Eist- lands. Að sögn Bergsveins Sam- sted, framkvæmdastjóra ís- lenskrar getspár, hafði vinn- ingshafinn ekki gefið sig fram í gærkvöld en hann greiddi 350 krónur fyrir tveggja vikna seð- ilinn sem keyptur var í fyrri viku og valdi tölurnar sjálfur. Sá stóri kom fyrir ári Fyrsti vinningur í Víkinga- lottóinu hefur ekki fallið íslend- ingi í skaut frá því um þetta leyti í fyrra þegar einstæð móð- ir í Hafnarfirði hreppti þann stóra, að sögn Bergsveins. Hann kvaðst eiga von á að vinningshafinn gæfi sig fram fljótlega, líklega strax í dag, því venjulega láta þeir sem hreppa þann stóra ekki þíða lengi eftir sér á skrifstofu Íslenskrar get- spár. Vinningurinn verður greidd- ur út eftir þrjár vikur. Vinningstölurnar voru 19-27- 29-35-37-40 og bónustölurnar 17 og 30. Bónusvinningur að fjárhæð 4,2 m. kr. gekk ekki út en alls var heildarupphæð vinn- inga á íslandi um 19,6 m. kr. íkveikja í Víkinni SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins var í gærkvöld kallað að Víkinni, félagssvæði Knattspyrnufélagsins Víkings í Reykjavík, þar sem eldur var laus í tveimur skúrum í eigu tennisdeildar félagsins. Fullvíst þyk- ir að um íkveikju hafi verið að ræða. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn upp úr kl. 19. Þegar að var komið var talsverður eldur í báðum skúrunum. Slökkvistarf gekk vel. Skúrarnir standa við tennisvelli . •—félagsins og eru notaðir til að geyma ýmsan búnað tennisdeildarinnar. Skúramir eru mikið skemmdir og talsvert tjón varð á þeim búnaði sem inni í þeim var. Lögreglan telur að kveikt hafí verið í húsi Isfélagsins MIKLAR líkur em taldar á þvi að íkveikja af mannavöldum hafi valdið brunanum í húsum ís- félagsins í Vestmannaeyjum á laugardaginn, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglu- stjóranum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Á þessu stigi liggur enginn undir gran en lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks, sem getur gefið upplýsingar um mannaferðir við branastaðinn eft- ir klukkan 17 á laugardaginn, að hafa samband. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur síðustu daga unnið að rannsókn á orsökum branans með aðstoð tveggja manna frá tæknideild lögreglu- embættisins í Reykjavík. Rannsókn á vettvangi lauk í gær og era niðurstöður þær að miklar líkur era taldar á að um íkveikju hafi verið að ræða. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í fyrradag er tjónið vegna branans talið vera á bilinu einn til tveir milljarðar króna. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarfor- maður Isfélagsins, sagði að yfirlýsing lögreglunn- ar um að miklar líkur væra á að braninn væri af mannavöldum væri ömurlegustu tíðindi sem hann hefði heyrt. Morgunblaðið/Ami Sœberg „Maður vill náttúrlega helst ekki trúa því að þetta hafi gerst,“ sagði Gunnlaugur Sævar. „Þess- ar fréttir fengu mikið á mig og þetta era hörmuleg tíðindi ef sönn era.“ Gunnlaugur Sævar sagði að þessi nýju tíðindi af rannsókn málsins breyttu engu fyrir tryggingamál ísfélagsins. Hörmulegar fréttir Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri Vestmanna- eyja, sagðist vera mjög sleginn yfir þessum nýju tíðindum. „Þetta era alveg hörmulegar fréttir ef þetta er rétt að um íkveikju hafi verið að ræða,“ sagði Guð- jón. „Maður náttúrlega trúir því ekki að þetta hafi komið fyrir fyrirtæki sem er jafnmikilvægur mátt- arstólpi í atvinnulífi Vestmannaeyja og ísfélagið er. Þetta er miklu meira áfali fyrir alla en ef um slys hefði verið að ræða.“ Guðjón sagði mikilvægt að vinna áfram af kappi að rannsókn málsins til þess að fá botn í það. Hann sagði að rannsóknin yrði erfiðari með hverjum deginum sem liði og því væri mikilvægt að fólk brygðist rétt við og léti lög- reglunni í té allar þær upplýsingar um málið sem það kynni að búa yfir. „Það er oft sem smáatriðin skipta miklu máli í svona málum.“ ■ Margir eiga/6 Morgunblaðið/Hafþór Hreiðars Þrátt fyrir erfiðar aðstæður gekk slökkvistarf vel. Slökkviliðinu tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út en nokkur reykur barst um húsið. Lögregla vinnur að rannsókn á eldsupptökum. Mikið tjón í bruna í verslun á Húsavík MIKLAR skemmdir urðu þegar eld- ur kom upp í gærkvöld í sportfata- versluninni Tákn, sem er í nýupp- MÍTSUBISHI demantar í umferO HEKLA ÍJaryMtuánýrriöUI gerðum verslunarkjarna við Garð- arsbraut 64 á Húsavík. Starfsmenn Olís, sem er með að- stöðu í sömu byggingu, urðu varir við reykjarlykt og gerðu viðvart. Barst slökkviliðinu tilkynning um eldinn kl. 20.24 og gekk vel að ráða niðurlögum hans þrátt fyrir erfiðar aðstæður að sögn Jóns Ásbergs Salómonssonar slökkviliðsstjóra. Allt kolsvart af reyk Slökkviliðsmönnum tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út fyrir verslunina og um bygginguna en töluverður reykur barst um versl- unarmiðstöðina. Þar er einnig mat- vöruverslun, sparisjóður og blóma- verslun. „Ég hugsa að það sé allt ónýtt í fataversluninni en hún var eina rým- ið sem brann. Það var ekki mikill eld- ur þegar slökkviliðið kom á vettvang en allt kolsvart af reyk og svo kom upp eldur í reyknum þegar reykkaf- ari fór inn,“ sagði Jón Ásberg. Hann sagði að sót- og reyk- skemmdir hefðu einnig orðið í blómaversluninni, sem er við hlið fataverslunarinnar, en sagði að eng- ar skemmdir væra sjáanlegar í mat- vöraversluninni. „Það era þarna gifsveggir, sem er nýbúið að setja upp og þeir virðast alveg halda eldi. Það hefur hins vegar farið reykur meðfram röram,“ sagði Jón Ásgeir. Ekkert er enn vitað um orsakir branans en lögregla vinnur að rann- sókn málsins. Eldskemmdir í sömu byggingu fyrir sex árum Miklar eldskemmdir urðu í þess- ari sömu byggingu í janúar árið 1995 þegar eldur kom upp í matvöruversl- uninni Þingey. Bolungarvfk 80 skráðir atvinnu- lausir UM áttatíu manns eru nú á at- vinnuleysisskrá í Bolungarvík, að sögn Ólafs Kristjánssonar bæjar- stjóra en atvinnuleysi í bænum var lítið sem ekkert áður en rækju- verksmiðjan Nasco var úrskurðuð gjaldþrota í síðustu viku. Undanfarna daga hefur fólk streymt á bæjarskrifstofurnar að skila atvinnuumsóknum til vinnu- miðlunar og sækja um atvinnu- leysisbætur. Fólkinu var sagt upp störfum á mánudag en Tryggvi Guðmunds- son, skiptastjóri þrotabús Nasco, segir að ekki hafi verið forsendur til að halda áfram rekstri út upp- sagnarfrest starfsfólksins því lítið hafi verið til af hráefni og rekstr- argrundvöllur fyrirtækisins veikur. Bæjarstjórinn segir að það geti tekið tíma að koma rekstrinum aftur í gang. „Ég tel að Bolvík- ingar verði að hafa þolinmæði í tvo mánuði. Ég vona að málin skýrist á þeim tíma því það má ekki drag- ast öllu lengur." ■ Fasteignir/16 S T \J F 13 B, 10 dagar til jóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.