Skírnir - 01.01.1874, Qupperneq 54
54
ENGLAND.
manna þá, a8 embættismenn stjórnarinnar hefðu ekki veri8 svo
fyrirhyggjusamir og árvakrir a8 forSa vi8 hörmungunum sem
skyldi. Nú er vonandi aS þeir ræki betur skyldu sína. „Í>a8
er fátt, sem embættismönnum stjórnarinnar á Indlandi er ekki
fyrirgefiSsagSi Times, „nema ef þeir láta landsfólkiS deyja
úr hungri; þaS mun þjóS vor varla geta fyrirgefiS þeim“.
Disraeli tók í mál á einum kjörfundinum, aS verja nokkru af
tekjuleifunum eptir þá Gladstone til aS bjarga fólkinu á Ind-
landi, heldur en aS vera aS hafa þær til aS ljetta sköttum á
þeim, er hafa alls nægtir. Svo segir Bartle Frere, er allra
manna er kunnugastur á Indlandi, aS ekki verSi orSum lýst
ógnum þeim og skelfingum, er fylgi hallærum þar eystra.
Nú hafa Englendingar þröngvaS soldáninum í
Zanzibar, viS austurströnd Afríku, til aS banna mansal í
ríki sínu. Sir Bartle Frere, er sendur var þangaS suSur í
fyrra (sjá f. á. Skírni, 52. bls..), ætlabi aS fá hann til þess meS
góSu; en er þaS dugSi eigi, komu tvö herskip austan frá Ind-
landi og þurfti soldán þá ekki meira en aS sjá fallbyssukjaptana.
Annar enskur maSur, Samuel Baker. hefir þetta ár stöSvaS man-
sal í löndunum suSur frá Egiptalandi og Núbíu allt aS miSjarSar-
baug. Frá því mun betur sagt í þættinum um Egiptaiand,
Herför suSur í Afríku. — Gullströnd heitir allmikiS
petti af strandlendi þvi hinu mikla í Afríku vestan, er Guinea
nefnist hin efri. Gullströndin er 14 þingmannaleiSir á
lengd, og eiga Bretar hana alla nú orSiS; áSur áttu Danir og
Hollendingar þar fáeina kaupstaSi, en seldu þá Bretum, Danir
1850, Holleudingar 1871. Merkastur kaupstaSur Hollendinga var
Elmina. það er kastalaborg, reist 1482 af Portúgalsmönnum,
en unnin frá þeim 1637 af Ruyter, hinni frægu sjóhetju Hollend-
inga. Upp frá Gullströndinni liggja blámannaríki mörg. þeirra
er Ashantee merkast og voldugast, og kallar Ashantee-konungur
til yfirtignar yfrr flestum grannþjóSunum, en þær leita sumar
skjóls hjá Evrópumönnum, er fyrir ströndinni ráSa. Hefir opt
lent í vopnaviSskiptum meS Bretum og Ashantee-konungi fyrir
þær sakir og aSrar, og Bretar enga frægS sótt í hendur þeim