Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 78
78
FRAKKLAND.
stjórnarinnar í Versölnm. Hreppstjórar og bæjarfógetar stýra
þingmannakosningnm, og er auðsjeð í hverju skyni þetta er
gjört. þá er komiS sama lagiS á og á dögum keisarastjórn-
arinnar, er kjörstjórarnir voru látnir reka fólk til aS kjósa þá
sem stjórnin vildi, og beita Jar á ofan hverskonar hrekkjum
og falsi viS atkvæSagreiísluna, .er þeir máttu viS koma. Og
t>etta athæfi víttu þá engir óvægilegar en þeir, sem nú
sitja aS völdum í Versölum. Enda mælist nú mjög illa fyrir
þessu og öSru atferli þeirra. Og svo eru nú klerkarnir
allt af öSrum þræSi. J>aS er siSur erkihiskupa og annara pre-
láta í kaþólskum löndum, aS rita klerkum þeim, er þeir eru
yfir settir, umburSarbrjef eSa hjarSmannakveSjur, er svo eru
nefndar, um mál þau og viSburSi, er þeim þykja miklu skipta.
í vetur sungu sumir þessara blessuSu engla á Frakklandi óspart
á hjarSpípur sínar, og var yrkisefniS helzt aSfarir Bismarcks
viS bræSurna í Kristo á þýzkalandi. Fannst Bismarck þær
kveSjur ekki kurteislegri en svo, aS hann þóttist verSa aS biSja
stjórnina í Versölum aS gæta betur afglapa hennar, og hóta
hörSu aS öSrum kosti. VarS hann jafnvel svo þungorSur einu
sinni, aS lítiS vantaSi á aS eldur yrSi af, og mundi líklegast
hafa lostiS upp ófriSi, ef Frakkastjórn hefBi eigi snúizt svo
þýSlega viS áminningunum frá Berlin og fariS aS taka í lurg-
inn á prelátunum. Má nærri geta, aS þá hafi samt Frökkum
þótt sjer nóg boSiS, slíkt ofmetnaSarorS sem þeir hafa jafnan
á sjer haft, og virSa má stjórn Mac Mahons þaS til sæmdar, aS
hún fór svo hyggilega aS ráSi sínu, aS vægja fyrir ofstopamanninum.
þaS er bágt aS vita, hvernig ljúka muni þessari sífelldu
stjórnarbaráttu Frakka, enda ekki til mikils aS vera aS spá
neinu um þab. þó getum vjer þess, aS fáir spá stjórn-
inni, sem nú er, langrar æfi, og aS þá verSi eigi öSru til
aS dreifa en reglulegri þjóSstjórn eða keisarasyni; á hinu, kon-
ungdómi Hinriks greifa eSa þeirra Orleansprinsa, hafi allur
þorri lýSsins slíkan ýmugust, aS þaS muni ekki verSa takandi
í mál. þaS hefSi þótt fyrirsögn dagana eptir ófarirnar í
Sedan, aS niSur Napóleons þriSja ætti nokkurn tíma apturkvæmt