Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 11

Skírnir - 01.12.1913, Page 11
Um visindalif á Islandi. 299 stofnanir í öðrum löndum, en mér þykir liklegt, að því mætti koma svo fyrir með aðstoð Búnaðarfélagsins og búnaðarskólanna, að safnað væri athugunum og gerðar tilraunir eftir því sem efnin leyía um ýmislegt, sem okk- ur geti til gagns komið, og væri ekki óhugsandi að eitt- hvað af því gæti haft þýðingu fyrir búnaðarvísindi al- ment. Þá er og saga íslenzks búnaðar ekki mikið rann- sökuð af landsmönnum sjálfum. Hagfræðisdeild stjórnar- ráðsins getur stutt þessi vísindi ekki lítið, eins og mörg önnur, ef vel er að farið, og gæti hugsast að einhverjir reyndu að fást við hagfræði vísindalega, en erfitt mun vera þar eins og annarstaðar, að reyna við nokkuð annað en það sem íslenzkt er. Líti maður þá yfir alt þetta í heild sinni, þá sést það, að öll vísindin eiga sammerkt að einu leyti, það verður ekki stundað neitt s v o a ð v e r u 1 e g u g a g n i geti komið, nema það, sem að einhverju leyti snertir Island sjálft. Við verðum að lofa hinum þjóðunum, sem ríkari eru og hafa fieirum mönnum á að skipa, að stunda hitt. Þetta er ofur eðlilegt og ekki annað en það sem náttúran skipar hverju fátæku landi. Það er hver sjálf- um sér næstur i vísindunum eins og öðru. En úr því við erum svo fáir og fátækir, verðum við að fara hyggilega að og nota kraftana vel. Það væri því afaræskilegt að geta komið því svo fyrir, að þeir sem hafa áhuga á vísindum gæti komið á samvinnu sín á milli. Og ekki væri minst í það varið, ef hægt væri að draga svo marga af alþýðustétt inn í vísindastarfsemina, að hún gæti haft þýðingu fyrir þjóðina 'í heild sinni. Því það kynni að geta leitt til að alþýða manna mundi eins og hefjast í annað, æðra, andlegt veldi. Andlegt líf þjóðar- innar mundi verða magnþrungnara og fjölbreyttara. Þjóðin mundi læra, eins og Aþenumenn forðum1), að e 1 s k a hið fagra og láta þaðsjástidagfarisinu, ') Sbr. orð Períklesar bjá Þúkýdidesi, II. 40.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.