Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1913, Page 13

Skírnir - 01.12.1913, Page 13
Um vísindalíf á íslandi. 301 á ensku skulum við segja? Eg nefni einkum náttúru- fræðistímaritið til þessa, af því að það er sá munur á þeim útlendingum, sem rannsaka náttúru íslands, og hin- um, sem stunda málfræði þess og sögu, að náttúrufræð- ingarnir sjaldnast kunna íslenzku, og þurfa hennar lítið við, en hinir verða að kunna hana. Þá væri líka mikil þörf á vísindalegum lögfræðis- og guðfræðisritum, og er það mikil skömm, að annað eins rit og »Lögfræðingur« varð að hætta. — Læknisfræðisritgerðum vísindalegs efnis mætti koma að í almennu tímariti, sem líka fjallaði um náttúrufræði, og ef þær snertu sögu læknisfræðinnar á íslandi að einhverju leyti, mætti gefa þær út í Safni til sögu íslands. Til þess nú að fá alþýðuna með, held eg bezta ráðið sé hið sama sem menn hafa notað erlendis, en það er að stofna fræðifélög út um alt land, smáfélög, sem næðu yfir eitt og eitt hérað eða bæ. Á Frakklandi, Englandi, Þýzka- landi, Italíu og í mörgum löndum er aragrúi af þess konar félögum. Þau kenna sig oft við borgirnar og hér- öðin, stundum með einhverri viðbót til að sýna hvers kyns þau séu (t. d. Société d’émulation d’Abberville, Société philomathique des Vosges osfrv.). Stundum eru það sér- fræðingafélög, sem stunda eingöngu t. d. sögu, fornfræði, náttúrufræði eða einstakar greinar hennar, t. d. grasa- fræði, skordýrafræði o. s. frv. Mörg af þessum félögum gefa út tímarit, sem oft er mikill fróðleikur í. Nú vildi eg leggja til, að menn reyndu að koma á he'ilu kerfi afþesskonarfélögum um alt Island, og byrjuðu með kaupstöðunum, þar sem líklega er hægast að koma þeim á. Þannig ætti t. d. félag í Skagafirði að hafa aðsetur sitt á Sauðárkróki, í Eyjafjarðarsýslu ætti að vera annað félag fyrir Akureyri og Eyjafjörð, o. s. frv. í félögin ættu þeir allir rétt til inn- göngu, sem vildu starfa að því að auka fróðleik sinn og annara í íslenzkum fræðum í víðasta skilningi orðsins, sögu, máli og náttúru landsins. Eg get hugsað mér að sumstaðar mundi verða hentugt að hafa fleiri en eina

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.