Skírnir - 01.12.1913, Qupperneq 19
Nokkrar athugasemdir
út af riti Einars Arnórssonar um Rjettarstööu íslanös.
Rit þetta er að mörgu leiti fróðlegt og víða vel samið,
og þóttist jeg því geta með góðri samvisku greitt atkvæði
með því, að höf. væri veitt verðlaun firir það af Gjöf
Jóns Sigurðssonar. Með þessu hef jeg þó engan veginn
undirskrifað alt, sem í ritinu stendur, eða afsalað mjer
rjetti til að finna að því, sem mjer virðist vera rangt í
því eða vafasamt. Jeg mun því leifa mjer að fara nokkr-
um orðum um fáein atriði, sem jeg með engu móti get
verið höf. samdóma um.
I.
I sáttmála þeim, er íslendingar gerðu við Ólaf helga,-
segir svo: »Arf eigu at taka í Noregi af íslandi næsta
brœðra, slíkt konur sem karlar, eða nánari menn . . .
En ef eigi er hér arftökumaðr, þá skal halda hér fé þat
sá maðr vetr þrjá, er hann var í húsum með, nema fyrr
komi næsta brœðra eða nánari maðrG). í arfaþætti Kon-
ungsbókaí finst og grein sama efnis (útg. I, bls. 23910)_
Konungsbók er að allra dómi rituð f i r i r 1 2 6 2, þó ekki
mörgum árum firir þann tíma. Kr.'Kálund, sem er allra
manna glöggastur í þeim efnum, telur hana ritaða um
1250. Af stöðum þeim, sem til vóru færðir, má sjá, að
sá, sem ritaði eða ljet rita þetta handrit, hefur talið ákvæðið
0 Jeg filgi hjer G-rágás Kontingshókar (útg. II, 196. bls.) A. M.
Nr. 136, 4° sleppir i ógáti orðunum vetr þrjá, enn kemur annars
heim við Konungsbók að efninu til (sjá ísl. Fornhrs. I, 68. bls.).
20*