Skírnir - 01.12.1913, Page 74
362
Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins.
værum naumast með öllum mjalla, því að við teldum það
jafnt sem ójafnt væri og beint sem bogið væri.
Þetta er auðvelt að sýna fram á. Hugsum okkur að
myndin af þér sem er innar í kúlunni færi að mæla mynd-
ina af mér, sem er utar. Þin mynd tæki þá kvarðann
sinn og færi að bera hann á mína mynd; en við það mundi
kvarðinn stækka og þinni mynd mundi mælast mín mynd
jafnmargir cm. og hún er sjálf, ef við erum jafn stórir.
Og þó að hún notaði þríhyrningamál til þess að þurfa ekki
að færa sig framar, mundi það að engu haldi koma, því
að linurnar svigna innan í kúlunni, án þess að þær skynji
það, og sjónarhornin breytast hjá þeim rétt ámóta og hjá
okkur. En á okkur, sem fyrir utan erum, mundu þær
horfa með mestu fyrirlitningu, og segja að við værum bara
bjagaðar spegilmyndir af sér; þó að við færum nú að
þræta við þær um þetta, mundu þær standa alveg jafn-
vel að vígi eins og við; þær mundu segja að við í okkar
heimsku teldum þær einraitt hafa þá sömu kynlegu eigin-
leika, sem við hefðum sjálfir.
Það mætti nú segja, að þetta væru eiginleikar mynd-
anna í speglinum, en ekki rúmsins; en þessar breytingar
myndanna eru þó alveg komnar undir því, hvar þær eru
í kúlunni; ef einhver mynd hefir tiltekna stærð á tiltekn-
um stað í kúlunni, má finna stærð hennar á öðrurn tiltekn-
um stað. Sá sem þekkir kúlurúmið, veit radíus kúlunn-
ar, getur reiknað út allar þær breytingar, sem frá okkar
sjónarmiði verða á myndum þeim, sem i þvi hreyfast;
þess vegna kennum vér í orði kveðnu rúminu sjálfu breyt-
ingarnar, — það er svo handhægt að hafa eins og ein-
hverja saveiginlega orsök.
Við segjum að hlutirnir í okkar rúrni séu samir við
sig, þó að þeir séu færðir úr stað; slíkt hið sama segja
myndirnar í kúlunni ura sína »hluti«, þó að þeir séu
það ekki frá okkar sjónarmiði. Hvorttveggja er bara
staðhæfíng, hjá okkur eins og hjá þeim. Allar stærð-
arhugmyndir eru að eins komnar undir samanburði. Þó
að allar fjarlægðir í heiminum, þar á meðal hæð, lengd
og breidd allra hluta og sjálfra vor, væru í fyrra málið