Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1913, Side 78

Skírnir - 01.12.1913, Side 78
366 Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins. hann stendur í rauninni ekki á föstum punkti fremur en A. öll jörðin og alt sólkerfið er nefnilega á hreyfingu, og það verður ekki bent- á neinn »fastan punkt« í rúm- inu. Það verður því að láta sér nægja að segja að þeir hafi báðir jafnrétt, hvor frá sínu sjónarmiði. Þegar vér tölum um »hraða«, án þess að tiltaka nákvæmar við hvað miðað sé, meinum vér venjulega hraðann gagnvart þeim föstu hlutum, sem kring um oss eru á yfirborði jarðar. Á síðustu árum hefir nú sú kenning rutt sér til rúms, að t í m i n n v æ r i afstæður; á sinn máta eins og hraðinn; eins og A og B, sem hreyfast hvor gagnvart öðrum, dæma ekki eins um hraðaeininguna, dæma þeir ekki heldur eins um timaeininguna, sekúnduna. Sá mis- munur er .þó svo lítill, að ekki verður komið við mæl- ingu á honum, þar sem ekki er um meiri hraða að gera, en vér gerum ráð fyrir hér á jörðunni. Mismunurinn er nefnilega kominn undir hlutfalli þess hraða við ljóshrað- ann, sem er 108001)0000 h eða 300000 km. á hverri sek., eins og hér um bil 7 sinnum kringum jörðina. Ástæðan til þess að þessi kenning hefir komið fram er sú, að menn gátu á engan hátt skilið niðurstöður af ýmsum tilraunum um útbreiðslu ljóssins. Einkum er það ein tilraun, sem próf. Miehelson í Chigago hefir gert, er sýnir það berlega, að ljósið er jafnlengi að fara milli tveggja spegla, ef þeir eru afstætt kyrrir, hvernig sem þeir snúa við hreyfingar- stefnu jarðar; þetta er afar-undarlegt; það er nefnilega auðvelt að sýna, að ljósið fer mismunandi vegalengdir, eftir því hvernig speglarnir snúa við hreyfingarstefnunni. Þetta er þó hægt að skýra með því að hugsa sér tímann afstæðan, en afarörðugt á annan hátt. En það er ekki eins saklaust eins og það lítur út fyrir, að hugsa sér að tíminn sé afstæður i þessum skilningi. Það hefir margar og miklar afleiðingar í för með sér, og skal eg nú sýna eina, svo að lesendum mínum skiljist að hér er ekki um smáræði að gera. Ein af frumreglum hreyfingarfræðinnar er þessi: Ef líkami hreyfist þannig, að hann er undir stöðugum áhrifum tiltekins krafts (sem

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.