Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1916, Page 16

Skírnir - 01.08.1916, Page 16
240 Snorri Sturlnson. [Skírnir. neitt í sölurnar fyrir þær. Hann er síngjarn við börn sín og hefir »vinaskifti« (sbr. Sturl. II., 209), þegar honum sýnist. Oð hann leggur tilfinningar sínar stundum berlega í sölurnar fyrir hagsmuni sína. Þegar Sturla Sighvatsson hefir felt Þorvaldssonu, þvert ofan í eiða, er hann hafði svarið Snorra og þeir treyst á, »rann honum mjög í skap þessi a.tburður«. En síðan er hann þó hinn auðveldasti í sættinni — »þvi að hann viidi ekki missa liðveizlu Sturlu á þingi um sumarið í málum þeirra Kolbeins unga« (Sturl. II., 207). Marglyndið útilokar langæar tilfinningar og þunga þykkju, en það er skilyrði skjótra geðbrigða (stem- ninga) og nokkurs mislyndis. Lýsing Sighvats á Snorra, sem áður er tilfærð, er lýsing á manni, sem skjótt skiftir skapi. Og á mislyndi Snorra bendir það, að þegar Sig- hvatur vill leita um sættir með þeim Þorvaldi Vatnsfirð- ingi, fer hann á undan í Reykjaholt, en sendir síðan mann til Þorvalds og Sturlu, — »bað þá heim ríða, og sagði Snorra í góðu skapi, lézt vænta, að vel mundi takast« (Sturl. II, 121). Þegar Snorri býður Hákoni konungi byrginn og segir »Út vil ek!« (Sturl. II, 335), eða vill ráðast að Sturlu Sighvatssyni í Reykholti við mikinn liðsmun (Sturl. II, 278) þá er slíkt ekki annað en geðbrigði, sem blossa upp og hjaðna jafnfljótt. Þegar Þorleifi í Görðum þykir vonlaust, að þeir geti yfirstigið Sturlu í einni atför, og vill bíða átekta, bilar Snorri þegar og ríður þá við annan mann og suður á nes. Þrautseigjuna vantar í viljann, sem von er, þar sem tilfinningarnar eru hverfular. Snorra vantar líka samkvæmni til þess að geta haldið bein lof- orð sín (gefur ekki Órækju Melstað né Stafaholt, Sturl. II, 209, 210, 212). En marglyndið er ágætur jarðvegur fyrir fjölbreyttar gáfur, víðsýni, skilning og dómgreind. Snorra hefir veitt auðvelt að lifa sig inn í annara manna hugsanir og forna atburði. Tvennar orsakir valda þvi, að hann verður ekki meira skáld: hann yrkir eftir reglum hnignandi listar og guðmóðurinn bregzt honum, þegar hann talar frá eigin brjósti. Hann vantar skap Egils Skallagrímssonar. En
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.