Skírnir - 01.08.1916, Blaðsíða 73
Skírnir]
Utan nr heimi.
297
staðiS. Hafa þeir einnig nú oröið fyrstir af ófriðarþjóðunum til að-
ganga skattaveginn. 1. I nóvember 1914 kom Lloyd George, sem
þá var fjármálaráðherra, á tvöfaldri hækkun á eignaskatti og við-
bótarskattinum við hann, þrefaldri hækkun á ölskatti og mikilli
hækkun á teskatti, Þessar skattahækkanir námu 75 miij. punda
fyrsta árið. 2. I október 1915 var McKenna orðinn fjármálaráð-
herra og kom hann á samtals 107 milj. punda hækkun árlega í
beinum og óbeinum sköttum (77 milj. í beinum sköttum,
30 í óbeinum). Tekjuskatturinn var hækkaöur um 40°/o og var
þar áætlaður tekjuauki 43J/2 milj. Stríðsgróðaskatti var komið á,
sem áætlaðar tekjur af voru um 30 miij. Enn fremur voru syk-
urskattur, nylenduvöruskattar, síma- og póstgjöld hækkuð að mikl-
um mun. 3. MeKenna hefir borið fram nyjar skattahækkanir fyrir
yfirstandandi fjárhagsár, sem eiga að nema 65 milj. punda auk
stríðsgróðaskattsins, sem er jafnvel búist við að geti orðið um 80“
milj. punda. Borinn er upp n/r tekjuskattur, sem á að ná betur í
háar og lágar tekjur en fyr, en verði þyngri á háum tekjum.
Hann er áætlaður um 43^/g milj. Skattur á skemtuuum 5 milj.,
á járnbrautarseðlum 3 milj., sykri 7 milj., nýlenduvörum 2 milj.
o. fh, og loks er stríðsgróðaskatturinn hækkaður úr 50°/0 upp í
6 0 °/0. Er það hæsti skattur, sem tii er í álfuuni, en hanu á ein-
ungis að greiðast einu siuni af sömu tekjum og á að falla niðmy
þegar friður kemst á.
A þenna hátt áætla Englendingar, að árstekjur ríkisins aukist
frá 198 milj. punda upp í 502, þ. e. a. s. um 304 milj. punda eða
ö^/jmiljarð króna. Er þetta hið mesta Grettistak í skatta-
málum, sem sögur fara af. Samt getur það ekki hrokkið til, ef
ófriðurinn heldur áfram, heldur verður þá að taka ný lán. Gjöld
á yfirstandandi ári eru áætluð 1825 milj., og dragi menn þar frá
tekjurnar 502 milj., þá er áætlaður tekjuhalli 1323 milj. sem taka
yrði með látium, ef ófriðurinn stendur árið út. Yið áramót 1917
mætti þá búast við 3J/2 miljarð punda ríkisskuld, sem só 707 milj.
á undan ófriðinum, 1417 milj. til áramóta 1916 og 1323 frá yfir-
standandi fjárhagsári. Frá þessu má þó ef til vill draga um 800
milj. til Bandamanna. Til afborgana og vaxta af þeim 2640 milj.,
sem þá yrðu eftir, og til ýmissa annara ársútgjalda við ófriðinn'—
aðallega eftirlauna — má reikna um 170 milj. eða um 140 milj.
um fram vexti og afborganir af lánurn fyrir ófriðinn. Eftir því'
yrði fjárhagsáætlun Englendinga eftir ófriðinn að hafa 338 milj.
gjaldamegin í stað 198 fyrir ófriðinn og ársútgjöldin því að hafa