Skírnir - 01.08.1916, Side 111
Skírnir].
Athugasemdir.
235
má vel gera hver sem hin vísindalega niðurstaða verður
um vetrarkomudaginn að fornu fari. Því meira sem eg
hefi hugsað um þetta mál, án þess þó beint að geta ann-
að en fært líkur fyrir hugboði mínu, heíl eg orðið sann-
færðari um, að Islendingar hafi upphaflega látið veturinn
byrja á fimtudag alveg eins og sumarið. Ef nú Guð-
mundur Björnsson finnur ekkert, sern getur verið því til
beinnar fyrirstöðu, þá myndi mér þykja mjög vænt um>
það og telja það fara nærri fullri sönnun á máli mínu.
Kvennabrekku 30. april 1916.
Jóhannes L. L. Jóhannsson.
Forn daganöfn.
(Athugasemð við Skírni 1915, 274.-5. bls.).
Eftir Jón prófast Jónsson.
Enginn frýr Guðmundi landlækni glöggskyggni né
víðtækrar þekkingar, enda munu fáir treysta sér til að
hnekkja dómi Eiríks prófessors Briems um ritgjörð hans
»Um íslenzka tímatalið«. Eg ætla ekki heldur að bera
það við, en mér finst ekki sízt þörf að mæla á móti því,
sem eg tel mishermt eða órökstutt hjá m e r k u m rithöf-
undum, því á þeim orðum er meira mark tekið en ann-
afra, og því er það, að eg bið Skírni fyrir þessa litlu at-
hugasemd.
Það mun víst rétt hermt, að vér viturn ekki, hvort
dagarnir höfðu nokkur nöfn eða engin í Noregi á land-
námstíð, en úr því að þeir höfðu þá fengið nöfn fyrir
vestan haf, þykir mér ólíklegt, að þau nöfn hafi komist
fyr í tízku í Noregi en á íslandi, því að hvað sem annars
má segja um vestræn áhrif á íslenzkt þjóðerni, þá finn
eg engin líkindi til þess, að þau hafi orðið minni hér en
í Noregi, — svo margir landnámsmenn, sem hingað komu