Gefn - 01.01.1871, Page 57
57
Norðurferðir.
Hin eiginlegu norðurheimskautslönd eru nyrðsti hlutinn af
Ameríku, og eru ekki einúngis partur af meginlandinu, heldur
og ótal eylönd er gánga lángt til norðurs. í fornöld gerðu
menn sér hér á norðurlöndum ýmsar hugmyndir um norður-
heimskautið og mikil lönd þar í kríng, en allt þess konar
mun ekki hafa verið bygt á neinni reynslu, heldur eintómri
ímyndan, og héldu menn þar bygði tröll og forynjur; í
Bárðar sögu Snæfells-áss er talað um ríki Dumbs konúngs,
er liggi fyrir norðan Dumbshaf, og ætti þar að vera »mörg
lönd smá og eyjar«; en vér höldum, að hafi menn annars
gert sér hugmynd um í hvaða átt þessi lönd hafi átt að
vera, þá hafiþaöverið norður af Noregi. en ekki fyrirnorðan
Ameríku; að minnsta kosti er norðast við Noregs strendur
klettur nokkur er nú er nefndur »Domen«, sem er afbakað
úr »Dumbur«. »Hellulands óbygðir« kölluðu menn ímvnd-
aða landfiáka lengst til norðurs, fulla af jöklum og tröllum,
og merkir þetta nafn þannig raunar allt annað en það »Hellu-
land« sem Leifur hinn heppni fann, og sem menn hafa fyrir
satt að muni vera það land sem nú er kallað Labrador.
Hugmyndin um meginland fyrir norðurheimskautinu kemur
ljósast fram íþættinum afHalli geit, sem nú erekki lengur
til nema hvað Björn á Skarðsá hefir ritað upp eptir honum
þetta: »í vorri gömlu máldagabók verður og Grænlands getið
og þar um nokkuð skrifað náttúrur landsins, svo lángt sem