Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Side 17
vegg við vestra gaflhlað, rétt við gaflinn á hinni tóftinni. Við
vestra gaflhlað sýnist hafa verið sern afhús, eða þannig að þar í
milli og tóftarinnar er digrt gaflhlað. Þetta afhús er talið með
í lengd tóftarinnar, enn ekki verðr séð hvar dyr hafa á því
verið, því að alt er hér þýft orðið. Tóftirnar eru mjög fornlegar.
6—7 faðma ofar, beint með ánni, er ákaflega stór búð einstök
(7), stærst af þessum tóftum, 75 fet á lengd, enn 25 fet á breidd;
hún er há og greinileg, enn komin f þýfi; dyr hafa verið út úr
hinum nyrðra hliðvegg við vestra gaflhlað. Þessi tóft hygg eg
sé búð Gests Oddleifssonar, og er það llklegra enn að það sé
litla tóftin, sem áðr er getið, því að Gestr var mestr höfðingi í
Breiðafirði vestanfram. 11—12 föðmum ofar með ánni er lítil
búð (8), sem snýr likt og hinar; hún er 36 fet á lengd, enn 21—
22 fet á breidd; dyr sýnast hafa verið á norðrhliðvegg rétt við
austr-gaflhlað. Þessi tóft hygg eg sé búð Hallbjarnar; það sést
á sögunni, að hún var ofarlega á þingstaðnum eða fyrir ofan
aðrar búðir, enn þessi tóft er hér hin efsta.
Alls hefi eg þá fundið hér sjö fornar búðir, og enn fremr
eitthvert mannvirki (nr. 4), enn fleiri búðir hafa hér líklega
verið, því að þannig er farið, að áin, sem hér rennr og heitir
Músará, hefir óefað brotið nokkurar tóftir; áðr rann hún norðr
með brekkunni fyrir neðan túnið, enn nú rennr hún í vestr og
hefir spilt öllum þingstaðnum. Hér hafa verið sléttar graseyrar
alt norðr að Þorskafjarðará, og f hana heflr Músará runnið áðr,
enn nú rennr hún í fjörðinn. Hér hefir verið mjög fallegr
þingstaðr á eyrum þessum.
Lítil eyri er að sunnanverðu við fjörðinn um 160 faðma
fyrir utan búð Þorkels, sem er yzta búðin; það er sjáanlegt, að
við hana hefir Þorkell lent; það er rétt nefnt Fjarðarhorn utan
til við eyrina; þangað flýtr nú litlum bát um smástraumsflæði,
enn um stórstraumsflæði fellr alt upp í gras, enn þar hefir verið
dýpra í fornöld, því að tvær ár, sem hér renna í fjörðinn, hata
hlotið að fylla upp og grynna í svo langan tfma, svo að þá hefir
flotið þar stærri skipum. Utan til á þessari eyri eru tveir steinar,
og er sá neðri lágr og flatr ofan, og svo mátulegr, að hann býðr
manni til að sitja á sér; er undarlega vel frá þessu sagt í sög-
unni. Héðan af eyrinni blasir og alt við frá búð Þorkels, sem
Börkr var að tjalda, og kemr þetta mæta vel heim. Fyrir utan
eyrina taka við klettar með básum; þar eða utar hefir Þorkell
ekki lent.
Enginn veit nú hvar Hjaltdœlalaut er, enn líklegast þætti
3