Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1893, Qupperneq 60
60
Helga haugr Droplaugarsonar.
Maðr sem eg talaði við í Vopnafirði, og Sigurðr heitir Vil-
hjálmsson, hefir verið 4 ár á Eyvindará og er mjög kunnugr
þar, segir, að haugr Helga Droplaugarsonar sé þar sýndr enn í
dag, og beri nafnið Helgahaugr. Er hann í suðvestr frá bænurn,
svo sem 6—7 faðma fyrir innan þann túngarð, er nú er, suðr af
fjárhústóft, sem stendr á háum hól í túninu, niðr frá bænum.
Það er mælt að bærinn hafi áðr staðið litlu neðar enn nú, utan-
vert við götuna, er liggr niðr frá bænum, og þá verðr haugrinn
í suðr frá þessum gamla bæ, eins og sagan segir. A efra vall-
arpartinum sést móta fyrir fornum túngarði, sem liggr í stefnu
lítið eitt fyrir innan hauginn, svo að hann hefir verið utan túns,
sem sagan segir, enn á neðra parti túnsins, fyrir neðan götuna,
er garðrinn nú horfinn, eða þar sem haugrinn er. Haugr þessi
er 2—3 faðmar í þvermál, að sögn þessa manns; hann er lágr
og niðrsokkinn; í kringum hauginn sýnist vera grjótlag, og í ein-
um stað lagt sem í röð, og hér og hvar upp úr honum sést á
grjót. Þar sem gamli bærinn stóð, er sem upphækkun eða
tóftamót.