Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Blaðsíða 21
23
námabókar Hauks lögmanns Erlendssonar1) nefndur Þorgeirr. Frá
þeim Valla-Brandi og Þuríði eru stórmenni mikil komin. Sturla
lögm. segir (í 359. kap.), að son Valla-Brands hafi verið Flosi, faðir
Kolbeins föður Guðrúnar, er Sæmundur prestur hinn fróði átti, en
af þeim voru komnir Oddaverjar, mesta höfðingjaætt landsins. — I
362. kap. segir Sturla lögm. að Vallverjar séu komnir frá þeim syni
Áskels i Húsagarði (Orms [eða Gríms?] sonar auðga, Ulfssonar hvassa),
sem fyrstur reisti bæ á Völlum, og af Landnámabók Snorra lögm.
Markússonar (Melabók)2) má sjá að þessi sonur Áskels Grímssonar
er enginn annar en einmitt Valla-Brandr.3) Verður því ættartalan
þannig:
Ulfr hinn hvassi
Bárekr Ormr (eða Grímr) hinn auðgi
I , I
Bárðr Áskell í Húsagarði
i r i
Hallgrímr Ormr Valla-Brandr
sviðbalki hinn ánauðgi j j
Halldóra ====== Eilífr Flosi
I
Kolbeinn
I
Sæmundr prestur = Guðrún
d. 1133.
En Haukr lögm. segir öðruvísi frá landnámi á Vestmannaeyj-
um í 302. kap. Lnb. sinnar og má ganga að því vísu samkvæmt
orðum hans í 354. kap., að hann hafi breytt út frá orðum Sturlu
lögm. »eptir þeiri bok annarri, er ritad hafdi Styrmir hinn frodi«
og haft »þat or hvarri, sem framar greindi« Er frásögn hans þann-
ig: «Heriolfr s(vn) Barðar Bareg s(vnar) broðir Hallgrims sviðbalka
bygði fyst Vestmanna eyiar ok bio i Heriolfs dal fyri innan Ægis
dyrr þar sem nv er hravn brvnnit hans s(vn) var Ormr avðgi
er bio a Orms stoðvm við Hamar niðri þar sem nv er blasit allt
ok atti ein allar eyiarnar. Þær liggia fyri Eyia sandi en aðr var
þar veiðistoð ok engra manna vetr seta. Ormr atti Þorgerði d(ott-
vr) Oðz kalld mvnz. Þeira d(ottir) Halldora er atti Eilifr Valla-
Branz s(vn)«.4)
‘) Landnb. I—III, bls. 112.
*) Lnb. I-Hl, bls. 258.
8) Sbr. Safn III. bls. 546.
4) Lnb. I—UI, bls. 105.