Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Blaðsíða 77
Skýrsla.
I. Aðalfundur félagsins 1913.
Aðalfundur félagsins var haldinn fimtudaginn 27. nóv. 1913.
Formaður mintist fyrst látinna félagsmanna, sérílagi rektors Stein-
gríms Thorsteinssons, er verið hafði í stjórn félagsins um mörg ár.
Þvi næst lagði hann fram endurskoðaðan ársreikning félagsins fyrir
árið 1912, og höfðu engar athugasemdir verið við hann gjörðar.
Því næst gat hann um ritgjörðir, er prentaðar mundu verða í Ar-
bókinni. Hann skýrði og frá því, að eftir tillögu fulltrúa Matth.
Þórðarsonar hefði félagsstjórnin geíið út áskorun til manna um að
ganga í félagið og hefði það borið þann árangur, að hérumbil 30
nýir félagar hefðu bæst við.
Þessu næst var rætt um nokkur félagsmál og æskilegt talið, að
fornmenjavörður gæfi út í Árbók félagsins skýrslu um skrásettar
fornmenjar, einkum friðlýstar staðbundnar fornmenjar.
Síðan var gengið til kosninga á embættismönnum og fulltrúum
félagsins.
Formaður:
Varaform:
Fulltrúar:
II. Stjórnendur félagsins.
Eiríkur Briem, prófessor.
Björn M. Olsen, dr. prófessor.
Hannes Þorsteinsson, aðstoðarskjalavörður.
Jón Þorkelsson, dr. landsskjalavörður.
Matthías Þórðarson, fornmenjavörður.
Pálmi Pálsson, kennari.
Þórhallur Bjarnarson, biskup.
Þorsteinn Erlingsson, skáld.
Skrifari: Pálmi Pálsson, kennari.
Varaskrifari: Jón Þorkelsson, dr. landsskjalavörður.
Féhirðir: Þórhallur Bjarnarson, biskup.
Varaféhirðir: Sigurður Kristjánsson, bóksali.
Endurskoðunarmenn: Jón Jakobsson, landsbókavörður.
Jón Jensson, yfirdómari.