Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 24

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Page 24
26 sókn sína þá og síðan rannsakað lindina aftur inst með því að taka þar hellur ofan af, og gefið mér að nýju lýsingu á lindinni eftir síðari rannsóknina. Göng þau, sem hlaðin eru frá lindinni, virðast öll nær jafnvíð, eins og þau eru fremst. Þau virðast vera bein, og um 14 álnir að lengd. Inst er hlaðinn sem ferhyrndur brunnur eða þró, 1 al. og 10 þuml. (89 cm.) að þverm., og að hæð, frá botni og upp undir þak 2 álnir og 9 þuml. (149 cm.), en vatnsdýptin var í brunninum 1 ljé al. (78,5 cm.), er Gísli rannsakaði lindina í seinna skiftið. Vatnið rennur í brunn þennan um mjóa rennu, sem er um 9 þuml. (23,5 cm) að þverm., og er ofantil við miðjan gaflvegginn. Lá renna þessi í austur, eins og göngin, og náði lengra inn en hægt væri að ná til botns með hendinni. Norðan og neðan við opið á þessari rennu er smá-stallur. A honum fann Grísli við fyrri rannsóknina ausu úr tré, í stærra meðallagi, fremur vel gerða, en nokkuru þykk- ari en nú er venja til. Komst hann út með hana í tvennu lagi, en er hún var lögð niður, datt hún öll sundur af fúa. Lundirnar sá- ust glögt í viðnum, og virtist ausan gerð úr rauðri rekaviðarkylfu. Litur út fyrir eftir þessu að menn hafi fyrrum haft brunn þenn- an opinn, að minsta kosti stundum, og tekið vatnið úr honum sjálf- um með ausu þeirri er þar lá. Munnmælin um að bær Herjólfs hafi orðið undir skriðunni hjá Fjósakletti eru líklega mjög gömul, en er Styrmir príor Kárason hinn fróði ritaði Landnámabók sína á fyrri hluta 13. aldar hefir sagan sú ekki verið til, þvi að eins og áður var tekið fram, mun Haukr lögm. hafa haft það úr bók Styrmis, að þar væri þá hraun brunnit. Stórar skriður hafa sumstaðar verið kallaðar »hraun« og orðið »hraun« er haft um grjóturðir úr óbrunnu grjóti, en sögnin í Lnb. tekur það fram að þar sem bær Herjólfs hafi staðið sé hraun brunnit. Verður þeim orðum ekki komið heim við sögnina um skriðuna nema með þeirri tilgátu að í Lnb. hafi átt að standa t. d. »hraun runnit«. En sú tilgáta og sögnin um að bærinn hafi orðið undir skriðunni er óþörf og óeðlileg, -því að brunnið hraun hefir sýnilega gjört óbyggilegt i Herjólfsdal. Brynjúlfur frá Minna-Kúpi álítur (Árb. ’07 bls. 6) að hraunið frá Helgafells-gígnum hafi runnið svo löngu fyrir landnámstíð, að það hafi þá verið uppgróið. Heldur hann að Styrmir eða heimildarmaður hans eða Hauks hafi talað af sér, en þjóðsögnin um bæinn undir skriðunni sé góð og gild. En hvað segja jarðfræðingarnir um hraunið úr Helgafelli? Jónas Hall- grimsson rannsakaði Vestmannaeyjar, eins og áður var tekið fram, í júnimánuði (3.—10.) 1837, og athugaði (3. júní) sérlega vel Helga-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.