Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Side 60

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1913, Side 60
62 13.—14. öld, en frá lokum 15. aldar eða byrjun 16. aldar eru til máldagar beggja kirknanna, sem þá hafa verið á Vestmannaeyjum, kirkjunnar í Kirkjubæ, sem er helguð »allzvalldanda gudi. jungfru marie oc hinum heilaga nicholao«, og kirkju »sancti Andree fyrer ofan leiti«, prentaðir í ísl. fornbrs., VII. b., bls. 41—43. Kirkjan fyrir ofan leiti er þá ekki lengur Péturs-kirkja; einhverntíma er hún hefir verið bygð að nýju hefir hún verið helguð Andrési postula bróður hans, dýrlingi sjómanna; hún hefir þá og líkl. verið vígð á And- résarmessu (30. nóv.), og sá dagur þá verið hennar kirkjudagur. — Máldagarnir eru auðvitað fullkomnar skrár yfir allar eignir þessara kirkna, kirkjugripi, búsáhöld, skepnur o. fi. — Um »land að Bílu- stöðum«, sem kirkjan í Kirkjubæ er talin eiga bæði í þessum mál- daga og hinum fyrri, hefir verið rætt hér áður (bls. 58). Clemens- kirkju er ekki getið í þessum yngri máldögum og mun hún þá, eins og áður er sagt, hafa verið fyrir löngu afiögð. — Prestaköllin voru tvö ætíð eftir að kirkjumar voru orðnar 2, og hélzt það fyrirkomu- lag fram á 19. öld, til 1837, enda þótt báðar sóknir og báðir prest- ar notuðu eina og sömu kirkjuna frá því 1573, Landa-kirkju, er svo var nefnd, af þvi að hún stóð á Löndum svo kölluðum, þar sem nú heita Fornu-Lönd. Segir svo í samþykt þeirri er vestmanney ingar gerðu um hinn svo nefnda kirkjufisk 1606, að Landa-kirkja hafi verið sett 1573 þar sem hún stóð þá (1606)1). Síra Brynjólfur segir þessu viðvíkjandi: »Fyrir fornum húsatóptum mótar og á stöku stöðum, svo sem á »fornu Löndum«, þar er kirkjan eitt sinn hefur staðið«2). Nafni hans frá Minna-Núpi segir að alt sé »sléttað út i tún og kálgarða« svo að hvorki sjái þar tóft eftir bæ né kirkju (Árb. ’07, bls 12). Þetta jarðrask var gert um 1887—90, að sögn Gísla gullsmiðs Lárussonar, en áður það var gert mátti sjá votta fyrir fornum kirkjugarði þar, kvað hann; Sigurður hreppstjóri vís- aði mér á hvar kirkjugarðurinn mundi hafa verið. — Hann sýndi mér og kirkjugarðinn á Kirkjubæ, hvar hann hafði verið; er þar nú smiðja sem kirkjan stóð8); en fyrir kirkjugarðinum á Ofanleiti gat eg séð allglögt enn. — Eru 5 kirkjugarðsstæði á Heimaey. — Kirkja sú, er eyjamenn segja 1606 að sé enn þar er hún var bygð ') Tyrkjaránið, bla. XXV og 347. *) Síra Jón Anstmann hefir fengið skakkar hugmyndir eða upplýsingar um kirkjurnar, eftir sóknarlýsingu hans að dæma. *) Legsteinarnir yfir sira Jóni Austmann, konu hans Þórdisi Magnúsdóttur og Magnúsi syni þeirra, eru gerðir úr legsteinum, er áður voru i Kirkjubæjar-kirkju- garði, en ekki steinninn yfir Jóni Salómonsen; — sögn Sigurðar hreppstjóra. Shr. Árb. '07, hls. 13.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.