Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Page 12
12
ár, að 14 sýslumenn og 21 lögrjettumenn hafi komið til alþingis
þetta sumar. Þeir hafa því sennilega búið í tjöldum, eins og búða-
skipunin gefur í skyn, að Páll Vídalín lögmaður hafi gert (sbr. búð
13.) — Höfundur búðaskipunarinnar nefnir búðir undir hallinum
alla leið norðan frá fossi og svo langt suður sem þær bafa lengst
náð; hann nefnir amtmanns-búð og búð Guðmundar sýslumanns Sig-
urðssonar tvær einar af þeim sem nú eru fram með ánni; en hvers
vegna skyldi hann ekki hafa nefnt fleiri þar? Sennilega hafa þær
engar fleiri verið. Þær, sem nú sjást glöggar tóttir eftir, verið flest-
ar bygðar síðar, en Heidemanns-búð þá komin í eyði.
í hvorugri búðaskipuninni eru búðirnar miðaðar við búðir á-
kveðinna manna á 14.—lti. öld, nema Flosa-búð hin fyrri; hún er
í búðaskipuninni frá 1700 talin hafa verið »hvar sidar var Biskups
Augmundar bud«. I síðustu grein getur sama búðaskipun um að
hirðstjóra-búð hafi áður staðið í hólmanum; kemur það heim við
framangreinda frásögn sjera Jóns Halldórssonar í Hirðstjóra-annál.
Vera má að ögmundur byskup hafi haft þar búð, er búðaskipunin
segir; er þar enn kölluð Byskupabúð (Sbr. Alþst, bls. 24); en í hólm-
anum sjást engar leifar hirðstjórabúðar nú, og er óskiljanlegt að S.
G. hafi getað sjeð þær, svo sem hann þó virðist hafa álitið (sbr.
uppdrátt hans aftan við Alþst. og 34 á skránni með honum). Litur
helzt út fyrir, að þessi hirðstjórabúð hafi ekki verið bygð sem
aðrar búðir, úr torfi (og grjóti), enda nefnir sjera Jón Gislason í
klögumáli sínu 1619 (Alþb. IV., bls. 5251) »hirdstiora tialld« (og »hof-
udzmannsins tialld*) á alþingi 1616, en ekki hirðstjóra- (eða höfuðs-
manns-) búð. En ekki er rangt að nefna tjöld búðir og því tala
menn um tjaldbúðir í mótsetningu við aðrar búðir.
Eins og fiestar tóttirnar, sem nú sjást á Þingvelli, bera með
sjer, eru þær varla eldri en frá 18. öldinni. Fáeinar virðast eldri,
og það mjög miklu eldri; og margar, einkum í Þinginu, sýnast
byggðar á fornum tóttastæðum.
Þrem árum eftir að búðaskipunin eldri var rituð, varð sjera Jón
Halldórsson2 prestur á Þingvöllum, 1703. Hann var þá þrítugur og
var þar síðan prestur 36 ár, til þess er hann andaðist, 1739 Á
þeim árum munu flestar þær 10 búðir hafa verið bygðar, sem nefnd-
ar eru í búðaskipuninni vngri, 1735. Sumarið eftir að hún var
skrifuð og það fór að koma í ljós, að þessum búðatóttum yrði hald-
1) Útgefandinn, dr. Jón Þorkelsson, hefir bent mjer á þennan stað. — Ekki
minnist hann þess, að hafa orðið var við það neins staðar, að nefndar sjeu búðir á
Þingvelli á þessum öldum.
2) Annar en sá frægi prófastnr i Hitárdal, sem Hirðstjóra-annáll o. fl. er eftir.